Tíminn - 03.11.1971, Page 16

Tíminn - 03.11.1971, Page 16
Miðvikudagur 3. nóvember 1971 Langir þing- fundir í gær EB-Reykjavík, þriðjudag. Það sem af er þingtíma hafa þing fundir verið heldur stuttir. Þeim hefur lokið milli kl. 15 og 16, en sem íiestum á að vera kunnugt, hefjast þingfundir yfirleitt kl. 14. — f dag fór þó á annan veg, þótt fá mál væru tekin fyrir. Var fundur í Sameinuðu þingi og stóð hann frá kl. 14—19, með hálfrar klst. kaffihléi. Það sem olli þessum langa fundartíma, voru miklar um ræður um samgöngumál Vest- mannaeyinga og stóriðjumál. Fyrsta málið, sem til umræðu var í Sameinuðu þingi í dag, var þingsályktunartillaga um samning milli Norðurlanda um samstarf á sviði menningarmála. Framsögu- maður utanríkismálanefndar Al- þingis, Eysteinn Jónsson (F), gerði grein fyrir tillögunni og auk hans tók menntamálaráðherra, Magnús Torfi Ólafsson, til máls. Tillagan var því næst afgreidd til ríkisstjómarinnar sem ályktun A1 þingis. Þessu næst var fyrirspurn frá Helga Seljan um, hvort ríkis- stjórnin hefði uppi áform um að beita sér fyrir breytingu á vega- lögum á þann veg, að ríkið taki að sér uppbyggingu þjóðvega, sem liggja um kaupstaði og kauptún. Samgöngumálaráðherra, Hannibal Valdimarsson, sagði, að nú væri verið að endurskoða gildandi reglugerð um þetta efni frá 1965 og ríkisstjórninni þa?tti ekki ráð- legt að ákvarðanir um breyt- ingar fyrr en umræddri endurskoð un væri lokið. Þá var þingsályktunartillaga um samgöngumál Vestmannaeyinga, sem Tíminn hefur greint ítarlega frá, tekin til umræðu og mæltu Guðlaugur Gíslason (S) og Garð- ar Sigurðsson (AB) fyrir henni með löngum, ítarlegum ræðum, en auk þess tóku til máls Hannibal Valdimarsson, samgöngumálaráðh. og Ágúst Þorvaldsson (F). Síðan mælti Benedikt Gröndal (A) fyrir þingsályktunartillögu um eignar- rétt á hálendi l?ndsins og í óbyggð um, og að lokum var þingsályktun artillaga Sjálfstæðisflokksmanna um skipun stóriðjunefndar tekin á dagskrá. Urðu miklar umræður Framhald á bls. 14 r j j j xrrrr.-— “ 4 KONUR í ÞINGSALNUM EB-Reykjavík, þriðjudag. Nú sitja fjórar konur á Al- þingi og hefur það ekki gerzt áður. að svo margar konur hafi srtið Þar samtímis. Þrjár konur, þær Svava Jak- obsdóttir (AB), Auður Auðuns <S'», og Bagnhildur Helgadóttir fSi. eiga srm kunnugt er sæti á Alþingi. t dag tók hins vegar Rlarnfríðtrr Ueósdóttir (AB) sæti .Tónasar Ámasonar á þingi, yf'W annar varamaður þing- mannsins. en Skúl; Alexanders ) soii, sem setið hofur á þingi | fvrir Jónas og er 1. varamaðar, J þurfti fri aí bverfa vegna anna | við sveitarstjórnarstörf. Á síð- j asta kjörtímabili átti ein kona | ;æti á þingi. Auður Auðuns. Viðskiptasamkomulag til þriggja ára undirritað í Moskvu: GERT ER RÁD FYRIR AUKNINGU Á ÚT- FLUTNINGI NIÐURSUÐU- DG ULLARVARA rrKJ—Reykjavík, þriðjudag. í dag var undirritað viðskipta samkomulag milli fslands og Sovét rikjanna til langs tíma, eða árs loka 1974. Er í samningnum gert ráð fyrir allverulegri aukningu við skipta milli landanna, og þá sér staklega á útflutningi íslenzkra niðursuðuvara og ullarvara. Þá hafa Sovétríkin gefið vilyrði fyrir að kaupa fiskflök og niðursuðu vörur fyrir um 200 milljónir króna, í viðbót við fyrri samninga. Fréttatilkynning utanríkisráðu- neytisins um viðskiptasamkomulag þetta, fer hér á eftir.: „Hinn 23. októebr s. 1. fór til Moskvu saimninganefnd undir forystu Þórhalls Ásgeirssonar, ráðuneytisstjóra í viðskiptaráðu- neytinu, til þess að semja um nýtt viðskiptasamkomulag til langs tíma milli íslands og Sovétríkj- anna, en slíkir samningar hafa verið gerðir síðan 1953. Viðræður hófust 25. október við sovézka samninganefnd undir forystu A. N. Manzhulo, aðstoðar-utanríkis- viðskiptaráðherra Sovétríkjanna, og hafa síðan staðið. í dag undirrituðu Lúðvík Jósepsson, viðskiptaráðherra, og N.S. Patolichev, utanríkisviðskipta ráðherra Sovétríkjanna, nýtt sam komulag um viðskipti milli ís- lands og Sovétríkjanna, sem gild ir fyrir timabilið 1. janúar 1972 til 31. desember 1974. Viðskipti landanna verða sem hingað til á jafnkeypisgrundvelli með tilheyr andi árlegum vörulistum á báða bóga. Vörur þær, sem gert er ráð fyrir sölu á til Sovétríkjanna árlega á samningstímabilinu eru: Hraðfryst fiskflök 12.000—15.000 tonn. Heilfrystur firkur 4.000— 6.000 tonn. Saltsíld 2.000 tonn. Nið ursoðinn og niðurlagður fiskur 43,318 fjár slátrað hjá KS GÓ—Sauðárkróki. Slátrun lauk hjá Kaupfélagi Skagfirðinga 18. okt. s.l. Alls var slátrað á vegum K.S. 43.318 fjár á þremur sláturhúsum. Á Sauðárkróki var slátrað 35.269 fjár. Meðalþyngd dilka í því slát urhúsi reyndist 14,63 kg. Á Hofs ósi var slátrað 3.921 kind. Meðal þyngd dilka var þar 14,5 kg. í Haganesvík var slátrað 4,128 fjár. Meðalþyngd dilka reyndist 16,2 kg. Jafnaðarmeðalþungi í sláturhús unum þremur ér 14,8 kg. og er það 650 gr. meiri meðalþungi en í fyrra. Eins og komið héfur fram í fréttum, átti Leifur Þórarinsson í Keldudal þyngsta dilkinn og vóg hann 35,5 kg. Sláturfé skiptist þannig, að slátrað var 40,703 dilkum og fóru um 60% af þeim í fyrsta flokk og fullorðið sláturfé reyndist 2,615. Stefán Jónsson, Grænumýri, lagði inn tvílembinga undan sömu ánni, er samanlagt höfðu 54,5 kg. í kjötþunga. Árið 1970 var þessi sama ær þrílembd og var þá 2 lambanna slátrað og höfðu þau 44,5 kg kjötþunga, en þriðja lamb ið, sem var gimbur, var látið lifa, og vóg hún 57 kg., sem mun svara til 25 kg. kjötþunga. 1969 var þessi umrædda ær einnig tvílembd og var þá kjöt þungi dilkanna 51 kg. Hjá Slátursamlagi Skagfirðinga á Sauðárkróki var siátrað 6.227 kindum og er þnð um 750 kind um fleira en í fyrra. 100—150 millj. króna. Fiskimjöl 5.000 tonn. Prjónaðar ullarvörur 100—150 millj. kr’ória. Ullarteppi 60—80 millj. króna. Málning og lökk 1.000 tonn. Ýmsar vörur 25 millj. króna. Hins vegar er gert ráð fyrir, að Sovétríkin selji aðallega til íslands eftirtaldar vörutegundin Bensín, brennsluolíur, timbur, valsaðar járn- og stál-vörur, bif- reiðar, vélar, verkfæri, áhöld og tæki, gler og hjólbarða. Samningurinn gerir ráð fyrir allverulegri aukningu viðskipta milli landanna. Sérstaklega er um að ræða mikla aukningu á útflutn Lngi islenzkra iðnaðarvara, svo se.m niðursuðuvörum, prjónuðum ullarvörum og ullarteppum. f þessum vöruflokkum er yfirleitt um að rsfeða’ tvöföldun frá því sem verið hefur. Ennfremur hef ur íifýrsfa srffh fengizt kvóti'fyrir málningu. Þá hafa Sovétríkin gefið vilyrði SB—Reykjavík, þriðjudag. Tveggja ára barn, sem faðir reiddi á reiðhjóli eftir Kapla- skjólsveginum í dag, stakk fæti inn á milli píláranna í hjólinu, með þeim afleiðingum að feðg arnir skullu í götuna. Þeir munu þó ekki hafa meiðzt að ráði, að- eins skrámazt. fyrir þvf að kaupa á þessu ári til viðbótar því, sem áður hefur verið samið um, fryst fiskflök og niðursuðuvörur fyrir samtals tæp lega 200 milljónir króna.“ Um kvöldmatinn varð 19 ára piltur á skellinöðru fyrir bifreið á gatnamótum Nesvegar og Kaplaskjólsvegar. Hann tvifót- brotnaði á hægra fæti. Um hádegið hljóp sex ára dreng ur fyrir bifreið í Glaðheimum, en hann meiddist lítið. 13 árekstrar urðu í dag. Vélhjóls- og reiðhjólsslys Stúlka úrskurðuð í gæzlu- varðhald vegna ávísanafals OÓ—Reykjavík, þriðjudag. í gær var handtekin stúlka í Sparisjóði Hafnarfjarðar. Yar hún að reyna að selja þar ávísun að upphæð kr. 26.300,00. Var tékk- urinn á ávísanahefti frá Búnað- arbankanum. Þegar stúlkan var búr.n að afhenda ávísunina , kom í ljós að hér var um að ræða ei-tt af þeim eyðublöðuni, scm stolið var fyrir nokkru í Björnsbakaríi í Reykjavík. Skýringar stúlkunnar á því, hvernig hún hefði komizt yfir eyðublaðið, eru mjög þoku kenndar. Var hún höfð í haldi í gær og nótt. f dag var lnin úr- skurðuð í allt að sjö daga gæzlu varðhald. Stúlkan ber að hún hafi fundið tékkheftið í miðborg Reykjavíkur, og hafi ein ávísunin í heftinu ver ið útfyllt. Tékkhefti þessu var stolið með fleiri ávísunum og plöggum, sem voru í möppu, sem stúlka gleymdi á afgreiðsluborði bakarísins. Þeg ar hún skömmu síðar hringdi I bakaríið, var búið að hirða möpp- una, og bar afgreiðslufólk að ung ur maður hefði haldið á henni út, %n þess að það áttaði sig á að hann var að stela henni. En það eru fleiri stolin tékk heft’ í umferð en þau sem stolið var í Björnsbakaríi. Aðfaranótt sunnudagsins s. 1. var brotizt inn í hús Vinnuveit- endasambandsins við Garðastræti. Þar voru hurðir og húsgögn brot in og brotizt inn hjá fimm aðilum, sem þarna eru til húsa. í skrifstofu Hafsteins Baldvinssonar, lög- manns, var stolið miklu af ávísun um og tékkheftum. Lögreglan telur að tveir eða þrír menn hafi verið að verki. Voru margar hurðir brotnar upp og eins skrifborð, og voru unnin mikil skemmdarverk í húsinu. Reynt var að brjóta upp peninga skáp hjá Vinnuveitendasamband- inu, en það tókst ekki. Gaflar voru teknir úr skrifborðum til að komast í þau. í skrifstnfu Hafsteins var stol ið fimm útfylltum tékkum. Þrír þeirra eru á Verzlunarbankann. Númerin eru A 181508, A 18152Í og A 181522. Einn er á Iðnaðar- bankann í Hafnarfirði númer hans ér ’C 81732 og einn er á útvégs bankann í Vestmannaeyjum; er hann ódagsettur og óundirskrif aður) en upphæðin er kr. 12.879,00 Þá var stolið óskrifuðu ávísana hefti á Verzlunarbankann, sein i eru 25 blöð. Er ekki vitað um númerin í því hefti. Þá var stolið hefti á Sparisjóð Amfirðinga. Númerin eru 29904 til 29925. í húsinu var einnig farið inn hjá Hirti Péturssyni, löggiltum endurskoðanda, skrifstofu Rit- höfundafélags íslands og skrif- stofu Apótekarafélags íslands. Að því að talið er, var hvergi stolið nema hjá Hafsteini. Japönsku skuttogarafram- leiöendurnir komnir með teikningar og verötilboð ÞÓ—Reykjavik, þriðjudag. Fulltrúar frá japanskri skipa- smíðastöð eru um þessar mundir staddir í Reykjavík og ræða við islenzka útgerðarmenn um smíði á japönskum skuttogurum fyrir íslendinga. Ef af samningum verð ur, þá er talið að Japanir muni a.m.k. selja íslendingum 5 skut togara. Þeir Jón Hafsteinsson, skipa verkfræðingur, og Vilhelm Þor steinsson, framkvæmdastjóri Út- gerðarfélags Akureyrar fóru til Japan í síðasta mánuði, og skoð- uðu þeir japanska skuttogara af þeirri gerð, sem Japanir töldu, að myndu henta íslcndingum bczt. Ekki leizt þcim féliigum, Jóni og Vilhelm, vel á þá gerð skipa, og buðust Jnpanir þá til þess að teikna skip eftir okkar kröfum, koma síðan til landsins með þær teikningar og verðtilboð. Komu Japanirnir til landsins í gær og er nú verið að ræða við þá um kaup á þessum togurum. Pilturinn úr lífshættu OÓ—Reykjavík, þriðjudag. Drengurinn sem höfuðkúpu- brotnaði er hann varð fyrir bfl á Hofsvallagötu s. 1. föstudag, er nú á batavegi. Um tíma var tví sýnt um líf hans, en hann komst til meðvitundar á föstudagskvöld ið. Er pilturinn, sem er 10 ára gamall, úr allri hættu og líðan hans eftir atvikum góð. AKRANES Framsóknarfélag Akraness heldur fund um viðfangsefni hinnar nýju ríkisstjórnar, í Fram sóknarhúsinu, Sunnubraut 21, Akranesi, íöstu íaginn 5. nóvember kl. 20,30. Framsögumað- ur: Halldór E. Sigurðsson, fjármálaráðherra. — Allt stuðningsfólk Framsóknarflokksins vel lcomið meðan húsrúm leyfir.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.