Tíminn - 13.11.1971, Blaðsíða 7

Tíminn - 13.11.1971, Blaðsíða 7
iApGARDAGUR 13. nóvcmbcr 1971 TÍMINN 7 Snjórinn setur allt ur skorðum » P y • a öpam NTB—Madrid, föstudag. Norðurhéruð Spánar voru i dag alþakin snjó og víða komst frost- Cð niður í 15 stig. Mörg þorp hafa iinangrazt vegna snjávarins, sem sums staðar er í metra háum sköflum. f ferðamannabænum Malaga var í dag 10 stiga frost. Símakerfið fór allt úr skorðum á Norður-Spáni vegna frostsins, og flestum fjallvegum var lokað. Mörg smáþorp hafa einangrazt, bifreiðir oltið, lestir farið út af sporinu og á einum fjallveginum ultu tvær stórar skurðgröfur. Spánskir veðurfræðingar segja, að sem betur fer, líti ekki út fyr- ir, að þetta vetrarveður verði nema fáa daga. Aðgerðir Nixons: Annar þáttur hefst í dag NTB—Washington, föstudag. Eanpgjalds- og verðstöðvun- huú, sem gilt hcfur í 3 mánuði í Bandaríkjunum, verður aflétt á morgun. í staðinn kemur strangt eftirBt með launum og verðlagi, sem verkalýðshreyfingin hefur gagnrýnt harðlega. í öðrum áfanga aðgerða Nil- ons, ta að rétta við efnahag Banda- rikjamia, er ekki gert ráð fyrir, að grunnlaun megi hækka meira en nm 5,5% á ári og verð- lag ekki nema um 2,5%. Verkalýðsfélögin eru óánægð með, að eftir 90 daga algjöra verð- lags- og kaupgjaldsstöðvun, skuli ekki leyft að hækka kaupgjaldið verulega. Ljóst er, að stjórnin verður að hafa samstarf við verka lýðshreyfinguna, ef hið stranga eft- irlit á að gera sitt gagn. í næstu viku koma landssam- Sök verkalýðsfélaga í Bandarikj- unum saman til ársþings síns í Miami, en í landssamtökunum eru um 14 milljónir manna. Á þing- inu mun væntanlega verða tekin afstaða til aðgerða rikisstjórnar- innar. 35% gengis- felling NTB—Saig'on, föstudag. Nguyen van Thieu, forseti S- Víetnam hefur í hyggju að fella gjaldmiðil landsins um 35% á mánudaginn. Einnig er búizt við, að hann muni boða róttækar efna- hagsaðgerðir, m.a. auína skatta og hækkað matvöruvcrð. Aögerðir þessar eru liður í áætlun um að gera landinu kleift að ráða efnahag sínum sjálft. og geta verið án efnahagsaðstoðar frá Bandaríkjunum. Hér má sjá hvernig braut Mariners 9. um Mars verður. Afstaðan til hinna tveggja fylgihnattanna er greinileg. Mariner 9. íer inn á Marsbraut sína í kvöld SB—Reykjavík, föstudag. Bandaríska Mars-farið Mar- iner 9. fer annað kvöld ijm á braut sína um reikistjörnuna Mars og verður þar með þriðji fylgilmöttur hennar. Maiiner verður í að minnsta kosti S mánuði við margháttaðar ranu- sóknir sínar. Rússar hafa sent Mars 2. og 3. áleiðis til Mars, eu enginn veit, hvað hefur orð ið um þá, að minnsta kosti ekki utan Sovétríkjanna. Líklegast er talið, að Rúss- ar hafi tapað sambandi við Mars — för sín og slíkt hefur reyndar komið fyrir Banda- rikjamenn líka. Mars 8. hafði ekki samband við jörðu, nema fyrstu sekúndurnar eftir skot- ið. Mariner 4. fór fram hjá Mars um mitt árið 1965. Ár- angurinn varð 21 stórkostleg nærmynd úr nokkurra tuga þúsunda km. fjarlægð. Fjórum áruni síðar fóru bæði Mariner 6. og Mariner 7. framhjá Mars í enn minni fjarlægð. Þá feng- ust uni' 200 myndir. Nú ei‘“|ert ráð fyrir hvorki meira né minna en 5000 myndum úr allú a'ði 1500 km. fjarlægð. Búizt er við, að Mariner 9. afli 15 sinn- um meiri upplýsinga af ýmsu tagi, en Mariner 6. og 7. til samans. Það er hann, sem verð ur fyrstur til að gera í-annsókn ir þær, sem miðast að því að finna, hvort líf geti verið á Mars. Fram til þessa hafa sárafáir geimvísindamenn ímyndað sér, að líf finnist á Mars. Sé ekki svo, er jörðin eina plánetan í okkar sólkerfi, sem er með lífi. Það, sem hefur sézt af Mars, cr ekki ósvipað tungl- inu. Þar sjást björg og sléttur, en þó er munur, sem sé sá, að landslagið á Mars virðist eins og það sé veðrað og slitið á allt annan hátt en á tunglinu. Á tunglinu veðrast ekki lands lagio, par sem ekkert andrúms loft er þar. En Mars-hefur and- rúmsloft, sem er þó mjög þunnt í samanburði við and- rúmsloft jarðar. En það virð- ist þó nógu þykkt til að slíta landslaginu. Þaö er meira að segja stundum hvasst á Mars. Þar eru einnig árstíðarskipti, en engar skýringar eru til á því fyrirbrigði. Áður var talið, að það væri sönnun um líf, en nú er enginn viss lengur. Miklar vonir eru bundnar við Mariner 9. sem á morgun mun hefja rannsóknir sínar á braut um Mars. En hinir tveir fylgihnettimir Deimos og Pho- bos geta ef til vill valdið Mar- iner einhverjum vandræðum. Kínverska nefndin taka það rólega í NTB—New York, föstudag. Sendinefnd Kina mun taka sæti sitt á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna á mánudagiiui. Formað- ur nefndarinnar, Chi.ao Kuan-Hua, aðstoðarutanríkisráðlierra Kína, sagði í dag, a‘ð störf nefndariim- ar yrðu ekki sérlega þýðingar- mikil til að byrja með. Chiao ræddi í dag, við forseta allsherjarþingsins, Adam Malik frá Indónesíu og sagði Chiao með- al annars, að það væri heppilegt, að kínverska nefndin þyrfti ekki að sækja neina fundi fyrr en á mánudaginn. — Við erum svo ókunnugir þessu öllu ennþá, sagði hann — og þess vegna getur verið, að við verðum ekki fullstarfhæfir alveg Chiao ræddi við Malik í hálfa klukkustund og Huang-Ilua, fasta- fulltrúi var einnig riðstaddur, Þeir töluðu báðir kínversku, en kín- verskar stúlkur túlkuðu. Sendinefndin hefur enn ekki af- hent trúnaðarbréf sín, en það ger- ist væntanlega á mánudaginn, er nefndarmenn heimsækja U Thant á sjúkrahúsið, þar sem hann ligg- ur með magasár. NTB—Londonderry, föstudag. frski lýðveldislierinn (HIA) kom í dag í veg fyrir að ung stúlka yrði tjörguð fyrir að hafa farið út með brezkum hermanni. Það var hópur kvenna, scm liafði hand sama stúlkiuia, og ætluðu að fara að klippa af hcnni hárið, þegar TRA kom á vettvang. Hefðu konurnar komið áformi sínu í framkvæmd, væri þelta hyggst fyrstu Kínverska Sendinefndin verður fyrstu gestirnir sem koma til U Thants á sjúkrahúsið, auk fjöl- skyldu hans. Fregnir herma, að hann sé nú á batavegi. fjórða stúlkan, sem hefur sætt þessari meðferð af hálfu kvenn- anna. írski lýðveldisherinn lét síðan það boð út ganga, að hver sá, sem gerði sig sekan um slíkt athæfi í nafni IRA fengi harða refsingu, en margir hafa talið, að IRA stæði að baki ofsóknunum á hend- ur stúlkunum. Lýðveldisherinn bjargaði ungri stúlku frá tjörgun Hong-Kong inflúensa í Evrópu NTB—Genf, föstudag. Alþjóða heilbrigðismálastcfnun- in í Genf, upplýsti í dag, að mik- ill inflúensufaraldur geisáði nú í Austur-Evrópu og væri á leið vest- ur yfir. Gert er ráð fyrir, að far- aldurinn verði kominn til V-Evr- ópu innan fárra daga. Heilbrigðisyfirvöld í Búlgaríu, Tékkóslóvakíu, Ungverjplandi og Rúmeníu hafa tilkynnt, að þar sé veikin all útbreidd. Einnjg hefur inflúensunnar orðið vart á Spáni. Ekki er þess getið, að neinn hafi lá'tizt af völdum hennar. Inflúensa þessi orsakast af veiru, sem kölluð hefur verið A-2 Hong- Kong. Veira þessi kom fyrst til V-Evrópu árið 1968. Pakistanir fljúgja yfir Indland i NTB—Nýju-Dehli, föstudag. Hermenn Indverja og Pakistana standa í vígstöðu sín hvoru meg- in við landamæri landanna. öðru hverju heyrast skothvellir, meðan flóttamcnn frá A-Pakistan reyna að skjótast í skjól á indversku Iandi. Talsmaður indverska varnar- miálaráðuneytisins sagði i dag, að þrjár pakistanskar flugvélar hefðu farið inn yfir indverskt yfirráða- svæði í Kashmír-héraöi í dag. Reynt var að skjóta á eina flug- vélanna, en ekki er þess getið, að hún liafi verið hæfð. Indira kemur heim í dag NTB—Nýju Dehli, föstudag. Indira Ghandi forsætisráðherra Indlands kemur heim úr þriggja vikna ferðalagi sínu til Vestar- landa á morgun og er þá búizt við að hún geri einhverjar ráðstaf- anir vegna ástandsins á Iandamær- unum við Pakistan. Hún heldur strax fund með ráðgjöfum sínum og kynnir sér ástandið. Indverska þingið kemur saman á mánudaginn, og þá er gert ráð fyrir, að forsætisráðherrann muni gera grein fyrir ástandinu. Ástæða er til að ætla, að ind- verska stjórnin hafi uppi áætlan- ir um að grípa til hernaðarástands og flogiö hefur fyrir, a'ð Indland muni viðurkenna uppreisnarstjóm ina í Bangla Desh bráðlega. Sú stjórn stefnir að því, að Austur- Pakistan losni frá V-Pakistan. Á blaðamannafundi í Bonn í dag, sagði frú Ghandi, að íerðalag hennar hefði enga þýðingu, þeg- ar um væri að ræða, að komá í veg fyrir slyrjöld milli landanna. — Það er ástandið á landamærun- um, scm allt veltur á, sagði frúin.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.