Tíminn - 21.11.1971, Síða 14
TÍMINN
14
*• vifr,"
Meðfylgjandi mynd er frá afhendingu gjafar Kiwanis-klúbbsins. —
Ásgeir R. Guðmundsson afhendir formanni sjúkrahússtjórnar, Gylfa
fsakssyni, bæjarstjóra, gjafabréfið.
Sjúkralvlsi Akraness
færbar stórgjafir
Sjúkrahúsi. Akraness voru færð-
ar stórgjafir fyrir skömmu. Kven-
félag Akraness færði sjúkrahús-
inu brjóstmjaltavél. Oddfellowstúk
an færði því 200 þúsund kr. og
Kiwanisklúbburinn gaf hjarta-
sjúkrarúm og fyrirburðarkassa.
Föstudaginn 29. okt. s.l. afhenti
Kiwanisklúbburinn Þyrill á Akra-
nesi Sjúkrahúsi Akraness að gjöf
eftirtalin sjúkratæki: Hjarta-
sjúkrarúm að verðmæti kr. 43.379,
00 og fyrirburðarkassa að verð-
mæti kr. 108.969,00 eða samtals
kr. 159.348,00. Fjár var aflað með
ýmsu móti, svo sem með útgáfu
símaskrárkápu, flugeldasölu um
Magnús Sveinsson
LE9ÐRÉTTING
Saga Hvítárbakkaskólans.
f greininni „Saga Hvítárbakka-
skóla gefin út á næsta ári.“ (Tím-
inn 17. nóv.), hefur misprentazt
nafn höfundarins, en hann er
Magnús Sveinsson gagnfræðaskóla
kehnari í Reykjavík. Þess má geta
að fyrir tveimur árum kom út
bókin Mýramer.naþætíir eftir
sama höfund.
áramót, blómasölu á konudaginn
o.fl. Forseti Kiwanisklúbbsins
Þyrils er Ásgeir R. Guðmundsson.
Nýlega færði Kvenfélag Akra-
ness sjúkrahúsinu brjóstmjalta-
vél, að verðmæti 33 þúsund kr. í
tilefni 45 ára afmælis félagsins.
Formaður félagsins, frú Jónína
Bjarnadóttir, afhenti gjöfina, og
gat þess í ræðu sinni, að kven-
félagið mundi halda áfram að
bæta úr þöríum kvensjúkradeild-
arinnar, svo sem ástæður frekast
leyfðu. Formaður sjúkrahússtjórn
ar, Gylfi ísaksson, bæjarstjóri,
þakkaði fyrir hönd sjúkrahússins,
og sama gerði yfiriæknir deildar-
innar, Árni Ingólfsson, er kvað
þessa ágætu gjöf bæta úr brýnni
þörf, og vissulega væri sjúkrahús-
inu ómetanlega mikils virði, að
mega búast við frekari gjöfum og
fyrirgreiðslu þessa ágæta félags.
Laugardaginn 13. nóv. gáfu
Oddfellowstúkunnar á Akranesi og
í BorgarJirði Sjúkrahúsi Akraness
200 þús. kr. að gjöf, í tilefni 15
ára afmælisins. I ræðu, sem for-
maður Oddfellowstúkunnar Egill
á Akranesi, Valdimar Indriðason,
forstjóri, hélt við það tækifæri,
sagði hann að heilbrigðismálin
hefðu frá upphafi verið eitt aðal
áhugamál þessa félagsskapar, og
minnti í því sambandi á, að dansk-
i* Oddfellowar hefðu á sínum tíma
byggt holdsveikrahælið í Laugar-
nesi, og gefið landinu það. Vara-
formaður sjúkrahússtjórnar,
Stefán Sigurðsson, lögfræðingur,
þakkaði þessa myndarlegu gjöf,
sem á að ganga til kaupa á blóð-
rannsóknatæki, "peetrophometer,
og einnig færði yfirlæknir lyfja-
deildar, Einar Helgason, sérstak-
ar þakkir læknanna fyrir þessa
rausnarlegu gjöf, sem hann kvað
sjúkrahúsinu ómetanlega mikils
virði, því áður hefði þurft að fá
slíkav rannsóknir framkvæmdar í
Reykjavík. Árnaði yfirlæknhinn
Oddfellowreglunni alls velfarnað-
ar í tilefni be'=a merkisafmælis.
SUNNUDAGUR 21. nóvember 1971
GRÓÐURINN
Framhald af bls. 11.
bezt nýtt, hvaða búpeningur
verði beztur til að breyta því
í arðbæra vöru og hvernig
megi í framtíðinni stilla sam-
spil gróðurs og búfénaðar, svo
að ábati verði að, án þess að
gengið sé á framtíðarforða
gróðurlendis og gróðurmold-
ar Framtíðai'áætlun verður að
byggja á aldagamalli reynslu,
en þó skoða hana í ljósi tækni-
legrar og vísindalegrar þeklt-
ingar líðandi stundar. Enn sem
áður fer val búsmala eftir inn
anlandsfóðri. Það er erfiðleik-
um bundið að auka kjötfram-
leiðslu á hagkvæman hátt með
framleiðslu svína- eða fugla-
kjöts, einfaldlega vegna þess,
að hér er ekki völ á kolvetna-
ríku fóðri. Á svipaðan hátt
verða íslendingar vart sam-
keppnisfærir við suðlægari
lönd með mjólkurafurðir, þar
sem þau lönd hafa völ á ódýr-
ara og kolvetnaríkara fóðri en
við höfum. I-Iins vegar er það
ljóst, að sauðfjárafurðir er
unnt að framleiða á grasinu
einu saman. Eins og áður hef-
ur verið vikið að, verður þó
ekki unnt að auka sauðfjárhald
að ráði fram yfir það, sem nú
er, nema með beit á ræktað
land. Bændur landsins hafa nú
þegar hafið þennan ræktunar
búskap. Þeir beita fé á rækt-
að land að meira eða minna
leyti haust og vor með góðum
árangri. Á tilraunastöðvunum
eru nú auk bess hafnar athug-
anir með sumarlanga fjárbeit
á ræktuðu landi. Þessar tilraun
ir hafa enn borið misjafnan
árangur. Nefna má athuganir,
sem gerðar hafa verið á Gunn-
arsholtsbúinu, þar sem sauðfé,
hefur meira og minna gengið
á ræktuðu landi. Þar er fé
ýmist aðnjótandi fóðurs af ný-
græðum Sandgræðslunnar eða
sérstaklega ræktuðu káli til
haustfóðurs. Tilraunir, sem
gerðar hafa verið á Korpúlfs-
stöðum, Ilesti og - Laugardæl-
um sýna, hvernig sauðfé getur
þrifizt á ræktuðu landi, ef fóð-
urgildi uppskerunnar er liald-
ið í réttu horfi með beitarskipt
um og slætti, og leiða í ljós
hvaða vandkvæðum sú ræktun-
arbeit er bundin. Við þessar
byrjunarathuganir virðast koma
fram ýmsir erfiðleikar við að
halda fénaði í þrifum og kostn
aður virðist auk þess vera of
mikill, til þess að hægt sé að
hafa góðan óbata af fjárbúskap
á ræktuðu landi, en vonir
standa til, að unnt sé að finna
þar úrbót á og lækka tilkostn-
aðinn að nokkru. Með sauðfjár
haldi á ræktuðu landi ætti af-
rakstur sauðfjárbúanna aftur á
móti að vera árvissari og yrði
ekki eins liáður óvissum gjöf-
ulleik hinnar villtu náttúru.
Bústærðin gæti aukizt, þar sem
hver einstaklingur gæti annazt
meiri fjölda fjár, sem allt
gengi á afgirtu ræktarlandi.
Fram að þessu hefur að
mestu verið notazt við beitar-
gagn hins óræktaða lands, en
í þessum efnum hefur viðhorf-
ið breytzt. Það þarf að vera
unnt að byggja framtíðaráætl-
anir á þeim upplýsingum, sem
tilraunir um beit á ræktuðu
landi leiða í ljós. M^ð þær stað
reyndir að baki er fyrst unnt
að segja fyrir um, hve margt
fé er hægt að hafa i högum.
Þá er ef til vill unnt að segja,
að á 10.000 Km-' ræktaðs lands.
sem er *ðeins V\ hluti þess
heildarlandsvæðis, sem unnt
er að klæða einhverjum gróðri
með góðu móti er hægt að ala
um það bil 5 milljónir fjár.
Sé hægt að finna lausn á peim
erfiðleikum, sem nú hindra arð
bæra fjárbeit á ræktuðu landi,
mætti stefna að hraðfara rækt-
unaraukningu landsins. Það er
þá vel að vita, að þjóðin á völ
á miklu ónumdu landi fyrir
komandi' kynslóðir. Miðað við
fisk og aðrar auðlindir lands-
ins, sem oft eru álitnar alltak-
markaðar, er langt frá því að
ræktunarmöguleikar séu full-
nýttir. Byggt á þessum for-
sendum ætti að vera áuðvelt að
líta björtum augum á framtíð
fóðurframleiðslu af landinu og
þátt landbúnaðarafurða sem
undirstöðu í lífsnauðsynjum
þjóðarinnar.
Plata
Framhald af bls. 2
sent hingað upp úr þessari
helgi.
Jón sagði, að þetta yrði að-
alplata Tónaútgáfunnar um
þessi jól. Auk þess kæmu vænt
anlega út tvær aðrar hljóm-
plötur hjá útgáfunni á þessu
ári. Aðspurður sagði Jón, að
líklega yrði önnur þeirra með
Jónasi R. Jónssyni og mun
hann þá að sjálfsögðu hafa átt
við tveggja laga plötu.
-rlent yfirlit
Framhald af bls. 9.
samt er hins vegar, að Banda-
ríkjamenn treysti sér til þess,
þar sem næsta ár er mikið
kosniriga'ár • í Bándaríkjunum
og Gyðingár geta haft mikil
áhtif á úrslitin í mörgum fylkj
um.
Ósáttfýsi fsraelsmanna get-
ur þannig orðið til þess, að
Sadat verði innan tíðar að
velja milli þess að missa völd-
in í hendur herskárri manna
eða að grípa til einhverra ör-
þrifaráða. Þ.Þ.
Kirkjuþáttur
Framhald af bls. 3.
milljónir og hundruð milljóna
tákn einhverrar jákvæðrar
stærðar, sem gerir tilveruna
auðuga og góða.
Að vera kristinn gæti verið
það að eiga ljós í sínum glugga,
sem fáir veita athygli í allri
þess smæð, eins og núllin í
milljónatölu, en með stóra
ljósinu — ljósi heimsins fyrir
framan, gætu það orðið gæfu-
Ijós umhverfis síns, glugginn,
sem prýðir götuna þína, gleð-
ur barnið á stéttinni og vísar
villtum á rétta braut í rökkr-
inu.
Einu sinni sagði auðmjúk
sál við Guð sinn:
„Leyfðu mér, því mig lang-
ar til á Ijósinu einu að halda"
Við skulum taka undir þá
bæn og kveikja í glugganum.
Árelí’is Níelsson.
Magnús E. Baldvlnsson
______laugavegl 12 - Sfml 22804
Bóluefni
Framhald af bls. 1
um“ hefur verið í notkun í
Bandaríkjunum og Bretlandi í
6 ár, en norrænir læknar eru
hikandi, þar sem ekki er vitað
nægilega mikið um áhrif þess,
né heldur, hversu lengi það
virkar.
f þeim löndum, sem bóluefni
þetta hefur vcrið notað, eru
ófrískar konur ekki bólusettar,
þar sem enginn veit, nema það
muni skaða fóstrið, þar sem
efnið er framleitt úr „Rauðra-
hunda-veiru". Talið er, að helm
ingur ófrískra kvenna, sem fá
veikina, fæði barn, sem eitt-
hvað er að og er „rauðum
hundum“ um kennt.
Á ráðstefnu þessari um
„Rauða hunda“ var ekki komizt
að neinni niðurstöðu, en f vor
verður haldin önnur læknaráð-
stefna í Stokkhólmi um sama
efni.
IVIánar
Framhald af bls. 2
Reykjavíkurborgar, fái að
hlýða á það, sem landsbyggðar
hljómsveitirnar hafa upp á að
bjóða.
Um síðustu helgi stóð til að
önnur slík popphljómsveit
kæmi í heimsókn til borgar-
innar, og spilaði fyrir popp-
áhugamenn og fleiri er höfðu
viðkomu í Glaumbæ s.l. sunnu-
dagskvöld. Var hér um að ræða
hljómsveitina Loga frá Vest-
mannaeyjum, og var auglýstur
dansleikur með hljómsveitinni
í Glaumbæ umrætt kvöld. Því
miður kom hljómsveitin ekki
og mun flugófærð vera ástæð-
an fyrir því. Vonandi heim-
sækja Logar þó Reykjavík á
næstunni.
JOHNS-MANVILLE
glerullareinangrun
er nú sem fyrr vinsælasta og
örugglega ódýrasta gleruUar-
einangrun á markaðnum »
dag. Auk þess fáið þér frfan
álpappir með. Hagkvæmasta
eirangrunarefnið f flutningi.
Jafnvel flugfragt borgar sig.
Hagkvæmir
greiðsluskilmálar.
— Sendum hvert á land
sem er.
M U N : Ð
JOHNS-MANVILLE
í alla einangrun.
JÖN LOFTSSON H.F.
HRINGBRAUT 121
SÍMI 10600
GLERÁRGÖTU 26,
Akureyri. — Simi 96-21344.