Tíminn - 28.11.1971, Page 3
ÍUNNUDAGUK 28. nóvember 1971
TIMINN
3
Sjá konungur
þinn kemur
„Víst ert þú Jesús kóngur
klár,
kóngur dýrSar um eilíf ár,
kóngur englanna, kóngur
vor,
kóngur almættis tignarstór."
Þannig syngur Hallgrímur
Pétursson í sínum mikla dýrð-
aróði um konunginn Krist og
nú jafnvel eftir 300 ár og
fremur síðar viðurkenna fram-
andi guðfræðingar, meira að
segja annarra kirkjudeilda, að
ekki hafi aðrir sagt sannari né
snjallari orð um konung að-
ventunnar, lávarð elsku og
miskunnar í þessum grimma
heimi.
■ Var hann ekki konungurinn,
sem sagði: „Komið til mín,
tfylgiS mér“. Og samt bauð
hann ekki gull og græna skóga
heldur aðeins hvíld og hjarta-
frið.
Gætu það ekki einmitt verið
dýnmætustu gersemamar á þess
um tímum þreytu, uppgjafar
og friðleysis.
En hann skipaði einnig hin-
urn illu að yfirgefa örmagna
sálir og kyrrði öskrandi
storma og ólgandi bylgjur,
hvort sem við höfum þroska
til að skilja það bókstaflega
eða sem tákn um æði og glaum
mannssálar og mannlífs. Hann
var konungur, sem hrópaði til
unglingsins, sem virtist látinn:
„Ungi maður, farðu á fæt-
ur, vaknaðu“. .
Eru þeir ekki of margir enn
unglingarnir, sem jafnvel verri
en dauðir, hefðu þörf fyrir
slíka konungsskipan til starfs
og sannrar og frjórrar lífs
nautnar, aleflingar andans og
athafna?
Frá gröfum, sem innsiglaðar
virtust, lét hann velta stein-
blokkum og kallaði þaðan
kraft og líf. Hann var í sann-
leika konungur lífsins. Sigrar-
inn dauðans sanni, svo aftur
sé vitnað í Hallgrím Pétursson.
Og við komp sína til Jerú-
salem forðum var hann hyllt-
ur af fjöldanum, fagnað af
múgnum, sem auðvitað
gleymdi þó aftur fljótlega og
æpti í sömu vizku: „Krossfestu, i
krossfestu hann“. Ekkert er
fjöldanum, hugstola múg^fyrir
litlegra.
Og svo kom hann í helgi-
dóminn og hristi upp í göml-
um venjum, sem orðnar voru
stirðar og dauðar, verkuðu á
rnóti sínum eigin upphaflega
tílgangi.
Hann gekk með konungleg-
um myndugleika til móts við
þá. sem komu í Getsemane
gai-ðinn fagra til að handtaka
hflnn eo*f£Cí- TT£~ ~~~
Og þeir hopuðu á hæl og féllu
sem eldingu lostnir til jarðar.
Hann stóð framrni fyrir dóm-
urum og ákærendum í tiginni
ró, sem hvorki pyndingar né
svívirðingar gátu raskað, né
ljúgvitni bifað og sagði:
„Víst er ég konungur. En
mitt ríki er ekki ?f þessum
heimi“.
Og á krossinum sjálfum
Ijómar konungstign kærleik-
ans af ásjónu hans, er hann
segir:
„Faðir, fyrirgef þeim, því
að þeir vita ekki hvað þeir
gjöra“. Og síðar við þjáninga-
bróður, sem þó sjálfsagt var
af öðru sauðahúsi:
„f dag skaltu vera með mér
í Paradís“. Hann vissi ei hik
né efa, þessi konungur.
Svo gekk hann með sömu
tign um helheima og birtist
þaðan vinum sínum og fylgj-
endum og gaf þeim mæddum
og hræddum kraft og speki til
að fara út um allan heirn og
sigra.
Og að síðustu sveif hann á
vit hins ósýiþlega og eilífa,
samsamaðist ljósi og dýrð
himnanna á helgum fjallstindi
og eignaðist stjörnur að tign-
armerkjum, mánann að
skikkju og sjálfan röðulinn að
kórónu, en jörðin, þessi fagra
elskaða en blóði drifna jörð,
drakk tár hans og dreyra. Og
sem konungur birtist hann aft
ur þér og mér eftir þúsundir
ára og enn og aftur sem hinn
frelsandi kraftur elskunnar,
sem dæmir liffendur og látna.
Ættum við ekki að fylgja
þessum aðventukonungi ár-
langt og ævilangt.
Ættum við ekki að syngja
með Hallgrími af hjartans
innstu þrá:
„Jesú þín kristni kýs þig nú.
Kóngur hennar einn heitir
þú“.
Og svo er annar söngur, sem
ekki á síður við í dag:
Hann, þótt æðst í hátign
Ijómi,
hógvær kemur alls staðar.
Hjarta þitt að helgulómi
hann vill gjöra og búa þar.
Opna glaður hjartans hús.
Hýs hinn tigna gestinn fús.
Getur nokkuð glatt þig
fremur:
Guð þinn sjálfur til þín
kemur?
Þannig kveður Valdemar
Briem. Við skulum heilshugar
fagna konungi kærleikans.
fjjfMé þié
SVO Yel.
Refpiið
viðsMptiai
8ímiii]ier
í$m smoo
• i
Verksmiðjuafgreiðsla K E A
annast heildsöluafgreiðslu á
vörum frá framleiðsludeild-
um félagsins. Með einu sím-
tali getið þér pantað allt
það, sem þér óskið, af fjöl-
breytilegri framleiðsluþeirra,
landsþekktar úrvalsvörur, —
allt á einum stað:
Málningarvörur og hreinlæt-
i I Hmt'mr'( teit*
isvörur frá Sjöfn, kjöt- og
niðursuðuvörur frá Kjötiðn-
aðarstöð KEA og hangikjöt
frá Reykhúsi KEA. Gula-
bandið og Flóru-smjörlíki,
Braga-kaffi og Santos-kaffi,
Flóru-sultur og safar, brauð-
vörur frá Brauðgerð KEA,
ostar og smjör frá Mjólkur-
samlagi KEA, allt eru þetta
þjóðkunnar og mjög eftir-
sóttar vörur, öruggar sölu-
vörur, marg-auglýstar í út-
varpi, sjónvarpi og blöðum.
Innkaupastjórar. Eitt símtaL
Fljót og örugg afgreiðsla.
Kynnið yður kjörin og reyn-
ið viðskiptin.
Síminn er (96) 21400.
BRAUÐ GERÐ fi [|| REYK HÚS SMJÖRLÍKIS GERD
KJÖIIONAOARSIÖO '
VERKSMIÐJUAFGREIÐSLA K-E-A AKUREYRI
ifjSw
IBIackcurrant
JAM Si
xíiw:-': ■ jiii iiiiii,
Efl Shredless Orange Jelly jl MARMALADE i; llbnet 454gr ;i
pÉjj
CO
msJiM
SULTUR OG
MARMELAÐI
MIKIÐ ÚRVAL
GÓTT VERÐ
í