Tíminn - 28.11.1971, Blaðsíða 6
6
SUNNUDAGUR 28. nóvember 1971
TIMINN
WOTEL mLEIÐlR
1CC1 NCTT
f samvinnu við Egyptair efnir Hótel Loftleiðir til
eprypzkrar kynningrarviku dagana 22.—29. nóv.
Yfirmatreiðslumaður verður Altid Yousef frá
Cairo.
Arabiskir réttir framreiddir alla vikuna.
Magadansmærin Wafaa Kamel ásamt austurlenzkri
hljómsveit skemmta.
Egyptair gefur minjagripi öllum
konum, er koma til kynn-
ingarvikunnar.
Auk þess verður dregið um
vinninga, hvert kvöld.
BORÐAPANTANIR f SÍMA 22321
EDA 22322
BOROUM HALDID TIL KL. 21.00
ÁSKRIFENDUM FV
FJÖLGAR JAFNT
OG ÞÉTT
Það líður ekki svo vika, að
ekki bætist í hóp áskrifenda
Frjálsrar Verzlunar tugir nýrra
kaupenda. Sala biaðsins er orð-
in það mikii og útbreiðsla, að
það er tvímælalaust mest lesna
tímarit á ís.andi. Allir eldri
árgangar eru upps, Idir, og að-
eins eru til fá eintök frá síð-
ustu mánuðum.
Frjáls Verzlun er mjög fjöl-
breytt blað, flytur fréttir.
greirar, við^öi og margvíslegar
sérstakar upplýsingar, sem
ekki er að finna annars staðar
í jafn aðgengilegu 'ormi. Sér-
staklega á þettp við um afna
bagsmál. viðskiptamál. atvinnu
mál og ýmis sérmál. sem alla
snerta. Lesendur fá betri inn-
sýn í málin. og gleggri yfirsýn.
og þeir verða færari um að
taka afstöðu tii þeirra.
Frjáls Verziun er aðeins
seld f áskrift Áskriftarsíminn
er 82300, aðsetur að Suður-
landsbraut 12 i Reykjavfk.
Jón Grétar Sigurðsson
héraðsdómslögmaSur
Skólavörðustig 12
Slmi 18783
GALLABUXUR
13 oz. no. 4 —6 kr. 220,00
— 8—10 kr. 230,00 r
— 12—14 kr. 240,00 •
Fullorðinsstærðii kr. 350,00 !
LITLI-SKÓGUR
SNORRABRAUT 22.
StMl 25644.
VDO
Útbúum
hraðamælisbarkar
og snúrur
í flesta bíla
ViðgerðarmaSur sér_
hæfður hjá
framleiðendum
— M Æ L A R —
MÆLAVIÐGERÐIR
:unnca öObbsceMQn h.j.
Suðurlandsbratit' 16 • Reykjavik • Simnelni: xVoívert - Slmi 35200
SJÁLIR TÍMAR
Sennilega er hvergi í heimi
auðveldara að verða sér úti um
ávísanareikning, svo ekki sé
nú minnzt á að innleysa per-
sónulegar ávísanir, en hér á
landi. Það virðist alveg sama
hvar maður er staddur —
hvort heldur það' er í einhverj
um banka, verzlun, veitinga-
stað eða benzínstöð — alls stað
ar eru ávísanir keyptar með
glöðu geði og það iðulega fyrir
talsvert hærri fjárhæð en
greiða þarf á staðnum í það
skiptið.
Ekki hefi ég orðið var við
að óskað sé eftir sönnun þess,
hver seljandinn er. Enginn
virðist hafa minnsta áhuga á
að kanna slíkt t. d. með því að
óska eftir að viðkomandi fram
vísi nafnskírteininu fræga a.
m.k. ekki þegar peningar og
ávísanir skipta um eigendur.
Mðað við þá erfiðleika, sem
iðulega skapast við skiptingu
ávísana erlendis, (þar verður
maður yfirleitt að innleysa ávís
anir í þeim banka, þar sem við
skiptareikningurinn er — eða
þá nota svonefnd ,,kredit-kort“)
þá er íslenzka fyrirkomulagið
vissulega mjög til fyrirmyndar
og ber trausti okkar á náung
anum og heiðarleika hans göf-
ugt vitni.
Þá er traustið ekki minna,
þegar miður heiðarlegur nafn-
skírteinishandhafi kemst yfir
ávísanahefti, fer á stjá og byrj
ar „að teikna" og síðan að selja
„verkin“ með frábærum ár-
angri, hvar sem vera skal.
Þetta minnir mig á söguna
um Portúgalann blessaðan og
fréttina um ferðir hans, sem
birtist í blöðunum nú f vikunni.
Samkvæmt þeim var maður
þessi „viðriðinn" sölu á stoln
um ávísunum úr hefti Krabba
meinsfélagsins (minna mátti nú
ekki gagn gera), og þegar hann
hafði kornið ár sinni nægilega
vel fyrir borð, brá kauði sér
til útlanda með fenginn.
Nú hefði maður talið eðlilegt
að maðurinn hefði haldið rak-
leitt til sinna heimkynna, en
nei — Kaupmannahöfn varð tyr
ir valinu og þar hafði danska
lögreglan „hendur í hári hans“.
Ekki mun þeim dönsku hafa
litizt allskostar á þennan feng
sinn. Þeir komu honum af
höndum sér sem fyrst — á
geðveikrahæli. Þegar hér var
komið sögu, var sendur einhver
„Sherlock Holmes“ úr lögregl
unni, „að tala við piltinn", en
það lítur helzt út fyrir að
gleymzt liafi að láta Dani vita
um ferðalagið.
Það er ekki á Danskinn log-
ið — geðveikrafólkið þar þótt
ist ekkert vilja hafa með svona
mann að gera, enda ekki þeirra
að geyma ávísanasöiumenn of-
an af íslandi, jafnvel þótt
portúgalskir væru — og lái
þeim hver sem vill. Þeir komu
vininum um borð í Gullfoss,
en Sherlock Holmes, sem fór
auðvitað flugleiðis, greip í
tómt!
Ég hefi alltaf vanizt því að
maður gerði boð á undan sér,
áður en maðui leggur af stað
í langferðir að hitta fólk, og
tryggja þannig að það sé við.
En kannski voru yfirvöldin að
spara — símaútgjöldin.
Þama var sannarlega farið
yfir lækinn til þess að sækja
vatnið, eins og þar stendur.
Göngutúr yfir Hafnarstræti,
Tryggvagötu og niður að höfn
yhefði vitanlega komið að sama
gagni. Og til þess að bæta gráu
ofan á svart, þá leyfir delin-
kventið sér „að vera miður sín
og vilja ekkert við lögregluna
tala“, eftir allt umstangið!
„Þetta eru viðsjálir tímar,
Watson minn góður“, sagði
Sherlock Holmes einhverntíma,
þegar illa gekk — og ekki að
ófyrirsynju.
Páll Heiðar Jónsson.
FÉLAG
JÁRNIÐNAÐAR-
MANNA
FÉLAGSFUNDUR
verður haldinn þriðjudaginn 30. nóv. 1971 kl.
8.30 e.h. í Kópavogsbíói.
Dagskrá:
1. Félagsmál.
2. Kosning fulltrúa í Iðnráð.
3. Samningamálin.
4. Önnur mál.
Mætið vel og stundvíslega.
Stjóm Félags járniðnaðarmanna.