Tíminn - 28.11.1971, Qupperneq 8

Tíminn - 28.11.1971, Qupperneq 8
TÍMINN ■ -III II II I I..111.. , M . STJNNUDAGUR 28. nóvember 19U Ríkisstjórnin stefn- ir að áætlunarbúskap Vehir konungur lætur nú aS sér kveSa. Börnin kunna vel aS meta snjóinn. Tímamynd—Gunnar. 1 framsöguræðu sinni fyrir frumvarpi ríkisstjórnarinnar um Framkvæmdastofnun ríkisins, sagði Ólafur Jóhannesson, forsæt isráiðherra m.a.: „Með þessari lagasetningu er ítefnt að því að byggja atvinnu- þróunina á skipulegum vinnu- brögðum í stað handahófs. Hver vill vera á móti Því? Með þessari lagasetningu er stefnt að samhæfðu og samvirku útlánakerfi lánastofnana, byggðu á frjálsu samkomulagi fyrir til- stuðlan Framkvæmdastofnunar- innar. Hver vill vera á móti því? Með þessari lagasetningu er itefnt aið samhæf,u og samvirku útlánakerfi lánastofnana, byggðu á frjálsu samkomulagi fyrir til- stuðlan Framkvæmdastofnunar- innar. Hver vill vera á móti því? Störf sín að eflingu atvinnu- vega og þróun íslenzkra byggða á Framkvæmdastofnunin sam- kvæmt þessari löggjöf að vinna í nánu samstarfi við aðila atvinnu lífsins og landshlutasamtökin. Hver vill vera á móti því? Með þessum lögum er stór- auknu fjárniagni beint til Byggðasjóðs. Á því er brýn þörf, cins og nú stendur á. Hver vill vera á móti því? Með þessari löggjöf er stefnt að því að veita þeim framkvæmd um forgang, sem nauðsynlegast- ar eru fyrir þjóðarheildina og hverja atvinnugrein og bezt búa í haginn fyrir framtiðina. Hver vill vera á móti því? Með þessari lagasetningu er stefnt að Því að láta hugkvæmni, framtak og þeikkingu njóta sín á íslandi. Hver vill vera á móti því? Með þessari löggjöf er stefnt að því að leiða atvinnuvegina og efling atvinnulífsins til öndvegis á íslandi. Það á alð ganga fyrir öllu öðru. Hver vill vera á móti þvl? Samkvæmt þessum lögum kem- ur ein stofnun í stað þriggja, sem fyrir voru. Hver vill vera á móti því?“ Jú, þeir reyndust til, sem vilja vera á móti þessu öllu. Sjálf- stæðismenn á Alþingi hafa lagzt gegn frumvarpinu og segja að það muni lama allt framtak manna og drepa þjóðfélagið í dróma sköömmtunar og hafta. Fjarri er það öllum sannleika og kom það glögglega fram í ræðu forsaetisráðherra sem sagiði, að Framkvæmdastofnunin ætti þvert á móti að verða hvetjandi stuðningsaðili heilbrigðs fram- taks einstaklings og félaga. Um meginatriðin í frumvarpinu sagði forsætisráðherra m.a. Meginatriðin „Efling atvinnuveganna skal í framtíðinni byggð á skipulegum áætlunarvinnubrögðum. Er því í frumvarpinu að finna all ítarleg ákvæði um margvíslega áætlunar- gerð og hagrannsóknir áætiunum til undirbúnings. Áætlanagerð og fjármagnsöfl- un er tengd saman hjá einni stofnun þannig, að samræmi og samstarf sé um áætlun, ákvörð- an um framkvæmd og fjáröflun sg fjámagnsráðstöfun til hennar. Stofna skal til samstarfs margra aðila um áætlanagerð, er til þessa hafa haft of litla sam vinnu sín á milli. Er þar um að ræða opinberar stofnanir, að- ila vinnumarkaðarins, rannsókn- ar- og vísindastofnanir, lánastofn anir og fleiri aðila. Með slíku samstarfi má fá betri og örugg- ari yfirsýn yfir þjóðarbúskapinn og forðast margvísleg mistök og óþarfan kostnað. Byggðasjóður Starfsemi þriggja stofnana, — Elfnahagsstofnunar, Framkvæmda sjóðs og Atvinnujöfnunarsjóðs, sem eftir frumvarpinu á að nefn ast Byggðasjóður — er tengd saman í einni stofnun og lögö undir eina stjórn. Mörkuð er eindregin byggða- þróunarstefna, sem byggð skal á sérstakri áætlunargerð, sem gerð skal í samráði við landshluta- samtök sveitarfélaga, verkalýðs- félaga og atvinnurekenda. Byggða sjóður er stórefldur með sér- stöku framlagi úr ríkissjóði næstu tíu árin. Auk Þess er fram kvæmd byggðaáætlunar tryggðj með traustum tengslum við fjár magnsöflun til þeirra fram- kvæmda, sem áætlaðar eru og ákveðnar á hverjum tíma. Framkvæmdastofnun ríkisins getur átt frumkvæði að stofnun nýrra fyrirtækja. Hún getur ann- azt rannsóknir, áætlanir og ann- an undirbúning að stofnun þeirra, tryggt þeim eðlilegt láns- fé til stofnunar og starfrækslu og samið síðan við aðila atvinnu- veganna um að hrinda málinu í framkvæmd. Heildarstjórn í fjár- festingarmálum Tekin er upp tiltekin heildar- stjórn í fjárfestingarmálum. Sú fjárfestingarstjórn er fyrst og fremst óbein og er fólgin í áætl- anagerðinni, skipulagningu fjár- magnsöflunar til þeirra fram- kvæmda, sem forgang eiga að hafa, og samræmingu útlána op- inberra stofnlánasjóða og þeim víðtæku áhrifum, seim Fram- kvæmdastofnunin getur haft á allt lánakerfið. Þá getur og Fram kvæmdastofnunin sett almennar reglur um, hvers konar fram- kvæmdir skuli hafa forgang um- fram aðrar. Þetta eru þau höfuðatriði, sem stefnt er að með þessu frum- varpi — þau aðalsjónarmið, sem í því felast. Það er byggt á mál- efnasamningi stjórnarflokkanna. Þar segir, Ríkisstjórnin einsetur sér að efla undirstöðuatvinnu- vegina á grundvelli áætlunar- gerðar undir forustu ríkisvalds- ins. Koma skal á fót Franj, kvæmdastofnun ríkisins, sem hafi á hendi heildarstjórn fjár- festingarmála og frumkvæði í atvinnumálum. Stofnunin skal gera áætlanir til langs tíma um þróun þjóðarbúsins og fram- kvæmdaáætlanir til skemmri tíma, þar sem greindar eru þær fjárfestingarframkvæmdir, sem forgang skulu hafa. Stofnunin fari með stjórn Framkvæmda- sjóðs ríkisins og annarra þeirra fjárfestingarsjóða. sem eðlilegt verður talið að falli undir hana. Stofnunin skal hafa náið sam- starf við aðila atvinnulífsins um það.hvað unnt sé að gera til að vinnugrein. Ennfremur segir þar: Þær stofnanir og nefndir, er fyr- ir eriijOg gegna skyldum verkefn um og Þessi nýja stofnun, verði sameinaðir henni, eftir því sem ástæða þykir til. Þetta frumvarp er í samræmi við þessi fyrirheit málefnasamn- ingsins og miðar að því að koma þeim í framkvæmd.'* Nauðsyn áætlunargerðar Naumast, er lengur deilt um nauðsyn áætlunargerðar í nú- tímaþjóðfélagi. Áætlanagerðir eru víðast hvar viðurkenndar sem mikilvægt hagstjórnartæki. Það á jafnt við, hverjar sem stjórnamálaskoðanir manna eru og hver sem þjóðfélagslegu markmiðin eru, sem keppt er að. Mönnum verður það æ ljós- ara, að mistök vegna þekkingar- leysis og skipulagsieysis eða vegna rangra ákvarðana og mark miða geta ekki aðeins skipt sköp um fyrir fyrirtæki, heldur einnig valdið alvarlegum áföllum í efnahagslífi þjóða. Það er þess vegna sem há- þróuð þjóðfélög og stórfyrir- tæki beita víðtækri og nákvæmri áætlanagerð til að forðast ýmiss konar byrjunarmistök og ná sem fullkomnastri nýtingu allra fram leiðsluþátta, jafnt til hagsbóta fyrir einstaklinga og þjóðfélags- heildina. Engir verja hlutfalls- lega meira fjármagni til marg- víslegra áætlanagerða, rann- sókna og tilrauna en stærstu og voldugustu auðhringir veraldar, enda þótt þeir séu að öðru leyti reknir eftir ströngustu lögmál- um einkaframtaks og gróða- hyggju. Og forsætisráðherra benti á i ræðu sinni, að svo nauðsynleg sem áætlunarvinnubrögð væru stórþjóðunum, þá væru þau þó enn nauðsynlegri smáþjóð eins og íslendingum. Smáþjóð með takmörkuð efni á öllum svið- um hefði ekki efni á mistökum, sem hægt væri að komast hjá með skynsamlegum búskaparhátt um. Hún væri viðkvæmari fyrir mistökum við uppbyggingu at- vinnulífs en stórþjóð með gnægð framleiðsluþátta og margra kosta völ. Hún hefði ekki efni á þeirri sóun sem felst í tví- verknaði eða margverknaði í rannsóknastörfum, upplýsinga- söfnun og áætlanagerð. Þess vegna er þörf á að koma fast- ara skipulagi á þessi mál hjá okkur en verið hefur. Við þurf- um að stefna að skipulegum áætlanabúskap í framtíðinni. Hann þarf að byggja á vel gerð- um og traustum grunni. Fram- kvæmdastofnun ríkisins á að skapa þann grundvöll. Handahófið víki Handahófið hefur allt of lengi verið ábérandi einkenni í ís- lenzkum þjóðarbúskap. Það kannast allir við, hvernig við- brögðin hafa verið, þegar vel hefur árað i einhverri atvinnu- grein um sinn. Þá hafa menn þyrpzt þangað án skynsamlegr- ar athugunar, fjárfest þar án "yrirhyggju og án tillits til al- ..íennra þjóðíélagsástæðna. Á slikum ævintýrum hefur oft orðið snöggur og -orglegur end- ir. Það er saga, sem allir þekkja. Nokkrar tilraunir hafa verið gerðar hér á landi á vissum svið um til áætlanagerða, en þær hafa verið fálmkenndar og ósam ræmdar. Ekki hefur sízt á skort, að framkvæmd áætlana hefur ekki verið nægilega tengd fjár- lagnsöflun. Með frumvarpi ríkis stjómarinnar er ætlunin að taka þessi mál fastari tökum. Skoða þau meira heildstætt, sam ræma áætlanagerðir, tengja þær sem mest inn í eina stofnun en hafa þó jafnan náið samráð við þá aðila, sem í hlut eiga. Hér er ekki ætlunin að leggja neins konar fjötur á einkaframtak, heldur þvert á móti geta rann- sóknir og áætlunargerð orðið heilbrigðu einkaframtaki og fé- lagsframtaki ómetanlegur stuðn ingur. Framkvæmdastofnunin á einmitt að vera aflvaki nýrra fy.'rtækja, rétta atvinunvegun- um örvandi hönd án tillits til þess í hvaða formi atvinnurekst- urinn er. Þjóðhagslegt gildi at- vinnugreina og fyrirtækja verð- ur leiðarljósið. Eru þeir á móti könnun málsins? Talsverðar umræður urðu á ÁLþingi um skýrslu Einars Ágústssonar, utanríkisráðherr%, er hann flutti Alþingi á þriðj»- dag. Af máiflutningi Geirs HaO- grímssonar var helzt að skilja,, að hann væri á móti því að sú. könnun yrði gerð sem utanríkisí ráðherra hef.ur ákveðið að framt skuli fara á öllum hliðum vam- armálanna. Svaraði Einar Ágústs son ræðu Geirs Hallgrímssonar og minnti á að bæði Jóhann Hafstein og Benedikt Gröndal hefðu í sínum ræðum lýst því yfir, að þeir vonuðu að út úr þeirri athugun sem fyrir dyrum stæði, gæti komið það, að við þyrftum ekki að hafa hér her. Endurskoðunin hefur verið ákveðin í því augnamiði að her- inn geti farið í áföngum, sagði utanríkisráðherra. Uppsögn varnarsamningsins fer aðeins fi-am eftir þá könnun og niður- staða hennar verður höfð til hliðsjónar þeirri ákvörðun og það verður Alþingi, sem tekur þá ákvörðun, en vamarliðið mun ekki fara nema meirihluti Alþingis eða meirihluti þjóðar- innar vilji það. Utanríkisráðherra kvaðst líta svo á, að það ætti að era skylda NATO-þjóðanna að sannfæra okkur um það, að hér væri áfram þörf varnarliðs, vegna þess að í upphaflegum samn- ingum hefði ekki verið ráðgert að hér væri varnarlið og þegar það kom árið 1951, þá var sú ákvörðun tekin vegna þess, að þáverandi stjórnarvöld töldu, að hér þyrfti að vera her. En auðvitað verða það íslendingar, sem taka ákvörðun um það, hvort hér verður varnarlið eða ekki. Það er algerlega á þeirra valdi að ákveða það og það lagði Bjarni heitinn Benedikts- son áherzfu á í æðu þeirri, sem hann flutti á ráðherrafundi NATO í Reykjavík. Þessa sömu skoðun staðfesti Josef Luns. framkvæmdast, -i NATO, i við- tali í íslenzka sjónvarpinu fyrir skömrou. Einar Ágústssoi. ræddi enn- fremur nokkuð um tillögu þá, sem sjálfstæðismenn hafa flutt im meðferð varnarmála. í grein argerð með tillögu þeirra segir, að „allt frá því að ísland gerð- Framhald á bls. 13.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.