Tíminn - 28.11.1971, Side 9

Tíminn - 28.11.1971, Side 9
SUNNUDAGUR 28. nóvember 1971 Otgafantft: FRAMSÓKNARFLOKKURtNN Framkvæmdast]órl: Kristlán Benedlktsson Rltstjórar: Þórartnn Þórartnsaon (áb), Jón Helgason, lndriS) G. Þorstelnsson og Tómas Karlsson Auglýslngastjóri: Stelngrimnr Gíslason Rlt rtjórnarskrtistofur 1 Edduhúslnu. tlmar 18300 — 18306 Skrtf- rtofur Bamkastræti 7. — Afgreiðslusimi 12323. Auglýsingasiml: 19523. AOrar skrtfstofur simi 18300. Askrtftargjald kr 195,00 i mánuði innanlands. 1 lausasðlu kr. 12,00 elnt — Prentsm Edda hl. Á sagan að endur- taka sig? Innan fárra daga mun hefjast hér stórfellt verkfall, ef ekki takast samningar milli samtaka atvinnurekenda og launamanna fyrir þann tíma. Samningaþóf er senn búið að standa í þrjá mánuði, án þess að verulega hafi þokazt í samkomulagsátt. Þó væri rangt að segja, að þessar viðræður hafi verið til einskis, þvi að þær hafa skýrt ýms atriði og þannig greitt fjTir samkomulagL Þess verður líka að gæta, að samningarnir eru óvenju- lega flóknir og viðamiklir, þar sem reynt er að semja fyrir mörg félög í einu til lengri tíma en áður hefur verið gert. Þrátt fyrir þetta eru vafalaust margir famir að undrast yfir því, hve seint gengur, þar sem líka er kunn- ugt um, að yfirgnæfandi meirihluti í liði beggja vill komast hjá verkföllum og er fylgjandi þeirri málamiðlun, að reynt sé, að tryggja hinum lægst launuðu verulegar kjarabætur, án almennra, verulegra kauphækkana, sem myndu leiða til nýs dýrtíðarflóðs. Vafalaust er það margt, sem veldur því, að viðræður hafa dregizt svo mjög á langinn. Þar á vafalaust ekki minnstan þátt' hávaðasamur og öfgafullur minnihluti í beggja liði, sem lætur stjómast af pólitískum og annar- legum sjónarmiðum. Ef illa fer, verður það raunveru- lega þessi minnihluti, er ræður ferðinni. Reynsla undanfarins áratugs ætti að vera bæði atvinnu- rekendum og launþegum hvatning til að fara gætilega. Árið 1960 töpuðust 278 þús. vinnudagar vegna verk- falla og árið 1964 206 þús. vinnudagar. Síðan varð nokk- urt hlé, en á árunum 1968—70 urðu hér stærri verk- föll en dæmi er um í nálægum löndum. Árið 1968 töp- uðust 216 þús. vinnudagar vegna verkfalla, árið 1969 143 þús. vinnudagar og árið 1970 hvorki meira né minna en 296 þús. vinnudagar. Hið beina tjón, sem hlauzt af þvi að svona margir vinnudagar töpuðust, segir vitanlega hvergi nærri alla söguna. Hið óbeina tjón er vafalítið enn meira. Heildar- tap þjóðarinnar af þessum verkföllum verður seint of- metið. Vissulega ættu allir aðilar að vera búnir að læra af þessu og láta ekki þessa sögu endurtaka sig einu sinni enn. Fyrir þá, sem fylgjast með þessum málum álengdar, virðist lausn deilunnar vera næsta augljós. Flestir við- urkenna, að bæta verði kjör hinna lægst launuðu eins og verkafólks, verzlunarfólks, sjómanna og bænda. Flestir viðurkenna einnig að forðast beri mikla almenna kaup- hækkun, því að hún myndi leiða til dýrtíðarflóðs, sem yrði öllum til tjóns, launafólki ekki síður en öðrum. Við þetta bætast svo ýms sérstök ágreiningsatriði ein- stakra hópa. En því að láta þau tefja fyrir heildarsamn- ingum? Geta viðkomandi aðilar ekki sameinazt um að halda áfram samningum um þau eða setja þau í einhvers konar gerð? Það væri hörmulegt, ef slík ágreiningsmál leiddu til eins stórverkfallsins enn. Það er áreiðanlega einlæg von þjóðarinnat, að tíminn, sem er eftir til 2. des., verði vel notaður af deiluaðilum til að sameinast um lausn, sem frá sjónarhóli áhorfanda virðist eiga að vera tiltölulega augljós. Með því verður fylgzt, hvort vilji meirihlutans, sem áreiðanlega vill semja, fær að njóta sín eða hvort annarleg og pólitísk sjónarmið minnihlutans verða látin ráða ferðinni. Þjóð- in bíður og hinn endanlegi dómur verður hennar. Þ.Þ. TIMINN 9 Frú Thi Binh: í tilefnl af Vietnam-vikunm Við eigum óbilandi trú á hinn endanlega sigur Bandaríkin verða að degsetja brottflutning herjanna Nguyen Thi Binh hefur verið fulltrúi Þjóðfrelsis- fylkingar S.-Vietnam við friðarviðræðurnar í París aút frá upphafi, 1968. Þeg- ar bráðabirgðabyltingar- stjórnin í S.-Vietnam var mynduð 1969 varð hún utan ríkisráðherra stjórnarinnar. Eftirfarandi grein var skrif- uð sérstaklega fyrir mál- gagn sænsku Vietnamhreyf ingarinnar, VIETNAM- BULLETINEN, 4. tbl. 1971. Þykir rétt að birta hana hér, þar sem hún skýrir við horf bráðabirgðabyltingar- stjórnarinnar til friðarvið- ræðnanna í París. UM SVIPAÐ leyti og ég skrifa þessar línur er ég að undirbúa 118. fund Parísar- ráðstefnunnar um Vietnam. Þessi fjögurra aðila ráðstefna hófst 25. janúar 1969. Síðan hafa tvö og hálft ár liðið. En ráðstefnan hefur ekki þokazt þumlung áleiðis til friðar í Vietnam. Og ekki nóg með það: Stríðið hefur ekki ein- ungis magnazt stig af stigi, heldur hefur það einnig færzt út yfir landamærin til Kam- 'bódíu og Laos. Hvers vegna hefur þetta gerzt? Eina ástæðan fyrir því að ráðstefuunni miðar ekkert áfram er þvcimóðska og her- stefna Nixonstjórnai;innar. Það hefur orðið æ augljósara á þeim tíma, sem liðinn er, að fulltrúar Bandaríkjanna sitja ekki við samningaborðið til þess að leysa Vietnamdeiluna eftir samningaleiðinni. Nixon- stjórnin leitar ekki eftir friði. Hún leitast crtir að ná „styrk- leikastöðu“ á vígvellinum til þess að þvinga Vietnama til að gangast undir hina óað- gengilegu skilmála sína við samningaborðið. Ef Vietnamar gengjust undir skilmála Nixonstjórnarinnar mundi ^að þýða að þeir játuð- ust undir nýja nýlendudrottn- un Bandaríkjanna og gæfu upp á bátinn hin heilögu takmörk frelsis og sjálfstæðis. Fyrir þessi markmið hafa landar minir úthelt blóði sínu í aldar- fjórðung. Á ÞESSUM tveimur og hálfu ári hefur Nixonstjórnin aukið á glæpavexk sín í Suður-Viet- nam með því að framkvæma hina svokölluðu „vietnamiser- ingu“ stríðsins, en þetta er stefna, sem margir öldungar- deildarþingmenn í Bandaríkj- unum háfa áliti'ð „siðlausa". Bandarísku fulltrúarnir hafa sýnt algjörlega neikvæða af- stöðu við samningaborðið. Bandaríski fulltrúinn hefur skotið sér undan grundvallar- atviðunum og rangtúlkað og falsað upptök stríðsins. Þar að auki hefur hann sett fram fá- ránleg skilyrði um „gagnkvæm an broUflutning hersveita" og spunnið upp hið svokallaða „stríðsfangavandamál“ til þess að æsa upp almenningsálitið í Bandaríkjunum. Allir þessir Nguyen Thi Binh skilmálar miða að því að nið- urlægja vietnömsku þjóðina ög jafnframt að breiða yfir þó giæpi, sem bandaríski árásar- aðilinn hefur urýgt í landi mínu. Þessi afstaða Bandaríkjanna er sá Þrándur í Götu, sem gert hefur Parísarráðstefnuna ár- angurslausa. Ef Nixonstjórnin hefði sýnt góðan vilja og gefið heiðarlegt svar við tillögum okkar, þá hefði Parísarráðstefnunni mið- að áleiðis fyrir löngu og friður verið kominn á í Viet- nam. VIÐ HÖFUM alltaf haft þann einlæga vilja að koma á friði í Vietnam svo fljptt sem unnt er. Þess vegna hefur sendinefnd okkar með stuðn- ingi sendinefndar Alþýðulýð- veldisins í Vietnam lagt fram aðgengilegar, raunsæjar og sveigjanleggr tillögur, sem hefðu átt að hjálpa ráðstefn- unni áleiðis. Þessar tillögur eru: ★ Hin almenna tíu punkta áætlun frá 8. maí 1969. ★ Friðartillagan í átta atrið- um frá 18. september 1970. ★ Vopnahléstillagan í þrem liðum frá 10. desember 1970. ★ Sjö liða tillagan frá 1. júlí 1971. Aðalatrii.n í þessum tillög- um eru eftirfarandi: Þar sem Bandaríkin eru árás araðilinn verða þau að hætta árásarstríði sínu í Suðaustur- Asíu og flytja á brott allar hersveitir sínar og jafnframt hersveitir annarra landa í liði Bandaríkjanna. Bandaríkin láti S.-Vietnama sjálfa ákveða um sína pólitísku framtíð án erlendrar hlutunar. Þetta þýð ir, að ^andaríkin geti ekki þvingað upp á S.-Vietnama stjórnarfari, sem er borgað af Bandaríkjunum. Jafnframt því að bráða- birgðabyltingarstjórnin (BBS) hefur sett fram þessi grundvall aratriði hefur hún tekið sveigj anlega afstöðu. Með þessum til lögum höfum við í raun og veru skapað I x^.istjórninni möguleikú á því að losa sig á heiðarlegan hátt úr „feninu“ í Vietnam, og binda endi á stríð ið, þetta stríð, sem bandaríska þjóðin hefur fordæmt svo ákveðið. En við samningaviðræður nægir ekki að aðeins annar að- ilinr. hafi einlægan vilja til þess að brjóta ísinn við samn- ingaborðið. NÚ ER spurningin sú, hvort Nixonstjórninni hafi tekizt að læra af þeim mistökum, sem íhlutun og árásarstríð Banda- ríkjanna í Vietnam hafa haft í för með sér síðastliðin 20 ár, hvort hún hafi skilning til að bera til að breyta stefnu sinni, hvort hún geti sagt skilið við sinn falska draum um yfir- drottnun yfir S.-Vietnam, stöðvað árásarstríð sitt og sagt skilið við ha..dfylli stríðs óðra og mútubægra svikara, hvort hún geti tekið heiðar- lega afstöðu til samn' íganna og í fullri alvöru. Hér ber að nefna að sl. 2% ár hafa bandarísku fulltrúarn- ir, allt frá hr. Cabot Lodge til hr. Bruce, sett fram háværar, upplognar ákærur til þess að réttlæta hina herskáu stefnu Bandaríkjanna. Þeir hafa látið í veðri vaka að Eandaríkin hafi sent hálfa milljón 1. rmanna til S.-Vietnam til þess að verjast „árás“ frá N-Vietnam og til þess að standa vörð um „frels- ið“ samkvæmt beiðni frá bandamanni (Saigonklíkunni) o.s.frv. EN „hin leynilegu skjöl Mc- • Namara“, sem birtust í New York Times, hafa svipt grím- unni af bessum fáránlegu ásök unum. Nú eru þeir afhjúpaðir. þeir sem hafa sagt ósatt f ára- tugi og svikið bandarísku þjóð ina og allan heiminn, þeir sem hafa leikið „þjófinn" sem hróp ar: „Handtakið þjófinn!" Við þurfum ekki að bíða eftir nýju „leyniskjali“ um stefnu Nix- ins í Indókína. Fólk með heið- arlegan vilja um heim allan hefur þegar skilið að stefna Nixons er grimmúðlegri og svikulli en pólitík allra fyrri Bandaríkjastjórna. Þegar Nix- on stóð í kosningabaráttu sinni lc'aði hann bandarísku þjóð- inni að hann skyldi „stöðva stríðið innan sex mánaða“, ef hann yrði kosinn. Síðan eru liðnir fimm sinn- um sex mánuðir. Raunveruleik inn hefur cýnt okkur, að á með ar. Nixon útbásúnaði friðarpóli- tík, var hann jafnframt búinn að úthugsa „vietnamiserlngar áætlunina“. En þessi áætlun hefur bæði útvíkkað og lengt stríðið. Hin— fyrri Banda- Framhald á bls. 13.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.