Tíminn - 28.11.1971, Qupperneq 10
TIMINN
SUNNUDAGUR 38. nóvember 1971
HALL CAINE:
GLATAÐI SONURINN
133
Magnús tók viðbragð, svo að
brakaði í stólnum, hann sagði:
— Dauðinn er eins og blind
ófreskja, sem hrifsar hina ungu,
en leyfir öldnurh að lifa, tekur
þá sem eru hamingjusamir, en
gengur fram hjá ólánsfólki, legg-
ur hramm sinn á hina saklausu
og þyrmir hinum seku, sækist eftir
varnarlausum og táldregnum, held
ur verndarhendi yfir svikurum,
þessu höfum við öll orðið vitni
að, það hef ég að minnsta kosti.
Magnús hóf þessa tölu æstur og
hávær, en undir lokin var rödd
hans orðin lág, hás og ekkaþimng-
in. Gesturinn þorði ekki að líta
upp, en gafst þó ekki upp, hann
sagði:
— Það hefur samt ætíð verið
reynsla mín, að guð lætur allt
fara vel að lokum, þótt lífshlaup-
ið sé erfitt, þá endar það vana-
lega með því, að réttlætið sigrar.
— Hverju skiptir mig endir-
inn, herra? Lífsskeið mitt er stutt
eins og annarra manna, ég þarf
á réttlæti að halda núna, ég óska
að verða vitni að hirtingu hins
illa, ég vil ekki, að illvirkjum sé
þyrmt til eilífs nóns. Þér talið um
réttlæti, hið eina réttlæti, sem ég
hef orðið vitni að, er það, að synd-
ir feðranna koma niður á niðjun-
um, finnst yður það réttlátt, að
barn er félaust, vegna þess að fað-
ir þess hefur eytt því fé, sem
hann vann ekki einu sinni fyrir í
fjárhættuspili og drykkjuskap? —
Ekki kalla ég slíkt réttlæti. —
Enn á ný mátti Magnús vart
mæla, þeir þögðu um hríð, Magn-
ús var samt fyrri til að taka til
máls á ný, hann sagði:
— Nei, herra, reynið ekki að
segja mér, að við uppskerum, eins
og við sáum hér í heimi, hvorki
þeir góðu né illu. Ef maður er
svikari, blekkingameistari eða
glataði sonurinn, þá getur maður
lifað óhófslífi og ferðazt um víða
veröld, en ef maður er bjáni, sem
húkir heima og þrælar, þá er
manni hent út á kaldan klaka.
En það er gagnslaust að tala
um þetta, ógæfan er á næsta leiti,
látum hana koma. — Aldrei á æv-
inni hafði Kristjáni Kristjáns-
syni fundizt hann vera svona
auvirðilegur og illur, hann átti
ekki eftir snefil af sjálfsvirðingu,
þegar hann sat nú loks hjá bróð-
ur sínum, sem hafði hingað til
borið allar hans byrðar og kikn-
að undir þeim, hann þorði ekíci
að líta upp, hann óttaðist, að
smán hans sæist á honum. Hann
reyndi þó að segja eitthvað, hon-
um fannst orðin' brenna munn
sinn, hann sagði:
— Ég get ekki rökrætt við yð-
ur, þér hafið þolað meira harð-
rétti en ég, vafalaust eru vand-
ræði yðar arfur eftir glataða son-
inn, sem móðir yðar minntist á
við mig áðan. — Framkoma Magn
úsay breyttist, hann sagði:
—*— Var hún enn einu sinni að
tala um hann?
— Talar hún oft um hann?
— Of oft. hann var undirstað-
an, sem hún reisti hús sitt á, sú
von brást, en samt hugsar hún
bara um hann. — Ósjálfrátt sagði
gesturinn:
— Guð blessi hana og allar
konur, þær taka ætíð máli hinna
föllnu krossbera, þær hljóta líka
að fá sín laun einhvers staðar.
— Engin merki sé ég þess, að
móðir mín muni hljóta slík laun,
hún reyndist syni sínum sú bezta
móðir, sem nokkur maður hefur
átt, það vissi hann líka vel, en
samt launaði hann henni með
skeytingarleysi og' fyrirlitningu.
— Fyrirlitningu?
— Já, hvað annað getið þér
nefnt framferði hans? Hann var
erlendis í fimm ár og skrifaði
henni einu sinni. Á hverju kvöldi
stóð hún úti, þar til pósturinn
var farinn fram hjá, í hvaða veðri
sem var bæði sumar og vctur,
er sunnudagurinn 28. n.v.
— Jólafasta
Árdegisháflæði í Rvík kl. 03.26.
Tungl í hásUðri kl. 22.01.
HEILSUGÆZLA
Slysavarðstofan 1 Borgarspttalan
nm er optn atlan sótarhrtnglBn
Siml 81212
Slökkviliðið og sjíikrabtfreiðti fvT
tr Reykjavík og Kópavog stmi
11100
SJúkrabifreið ) Bafnarflr® «tml
51336
ranniæknavakt er 1 Hellsuverndar
stöðinnl. þai sem Slysavarðstoi
an vai, og er optn laugardaga o<
sunnudaEa kl 5—6 a h. — Slm
22411
Apótek Hafnarfjarðar ei opið al
vlrka dat- trá ö 9—7. a laugai
clftgum kl 9—2 og a rumnudög
uin og öðrum belgidðgum er op
\T> trí fci 2—4
Maetur- og helgidagavarzla lækna
Nevðarvakt:
Mánudaga — föstudaga 08.00 —
17.00 eingöngu ) neyðartilfellum
slmi 11510.
Kvöld-. nætur og helgarvakt.
Mánudaga — fimmtudaga 17.00
— 08.00 frá -L 17.00 föstudag tii
fcl. 08.0( mánudag. Sími 21230.
Almennar opplýsingar um læknis
þjOnustu 1 Reykjavík cru gefnar i
sima 18888. /
Læknlngastofur cru lokaðai 6
laugardögum, nema stofnr á Klapp-
arstíg 27 frá kl. 9—11 f.h. Simi
11360 og 11680.
Um vitjanabciðnir visast til
helgidagavaktar Sími 21230.
Ónæmisaðgerðir gegn mænusótt
fyrir fuUorðna fara fram í Heilsu
verndarstöð Reykjavíkur á mánu
dögum frá kl. 17 — 18
Kvöld- og helgarvörzlu Apóteka
í Reykjavík vikuna 27. nóv. — 3.
des. annast Apótek Austurbæjar
og Lyfjabúð Breiðholts.
Næturvörzlu í Keflavík 27. og
28. nóv. annast Arnbjörn Ólafsson.
Næturvörzlu í Keflavík 29. nóv.
annast Guðjón Klemenzson.
ÆLAGSLÍF
Bazar Kvenfélags Hallgrims-
kirkju verður laugardaginn 4. des.
í félagsheimili kirkjunnar. Félags
konur og aðrir velunnarar kirkj
unnar gjöri svo vel að senda
gjafir sínar í félagsheimilið
fimmtudag og föstudag 2. —3. des.
kl. 3—6 e.h. eða til Þóru Einars
dóttur Engihlíð 9 og Huldu Norð
dahl Drápuhlíð 10.
Frá N'orræna félaginu, llafnar-
firði:
Félagið efnir til kvöldvöku í Iðn
aðarmannafélagshúsinu Linnets-
stíg 3. Hafnarfirði í kvöld sunnu
dag 28. nóv.
Dagskrá:
Kynning á verkum Þórodds
Guðmundssonar frá Sandi. Ólafur
Þ. Kristjánsson skólastjóri talar
um höfundinn og 12 manns, kon
ur og karlar flytja efni úr verk
um skáldsins.
Kvcufélag Kópavogs.
Heldur basar í Félagsheimili
Kópavogs sunnudaginn 5. des. kl.
3. Félagskonur eru vinsamlegast
beðnar um að gefa hluti eða kök-
ur á basarinn. Hafið samb. við Arn
dísi í síma 41673, eða Þuríði í síma
40322. Næsti fundur félagsins
verður þriðjudaginn 7. des. kl.
8.30.
Æskulýðsstarf Neskirkju-
Fundir pilta og stúlkna 13 til 17
ára mánudagskvöld kl. 8,30. Opið
hús frá kl. 8. Séra Frank M. Hall-
dórsson.
Fylgið fordæmi meistarans.
Þeir, sem gerast áskrifendur að tímaritinu SKÁK
fyrir næstu áramót, fá yfirstandandi árgang
ókeypis. (Áskriftargjaidið er kr. 1000,00 fyrir 10
tölublöð).
Notið þetta einstæða tækifæri.
Tímaritið „SKÁK", pósthólf 1179, Rvík.
Sími 15899 (í hádegi og á kvöldin).
Félagsstarf eldri borgara í
Tónabæ.
Þriðjudag 30. nóv. hefst handa-
vinna og föndur kl. 2 e.h. Mið-
vikudag 1. des verður opið hús.
Hinn árlegi Basar Kvenfélags
Grensássóknar,
verður haldinn sunnudaginn 5.
des. Vinsamlegast hafið samband
við — Þrúði sími 33924, Margréti
sími 32671 og Sigríði sími 36883.
Og munu þær taka við munum á
basarinn.
Frá verkakvennafélaginn
Framsókn.
-V'
Basarinn verður 4. desember, fé-
lagskonur vinsamlegast komi
gjöfum til skrifstofu félagsins-
Gerum basarinn glæsilegan.
Kvenfélag Háteigssóknar
gefur öldruðu fólki í sókninni kost
á fótsnyrtingu gegn vægu/gjaldi.
Tekið á móti pöntunum f síma
31103 milli kl. 11—12 á miðviku-
dögum-
/XÁ’GO ^TAT/CA/-
Ég verð aff vara þá við að nú séu þeir Tonto. Ég geri varla ráð fyriv, að þú get-
búnir að finna okkur. Ég legg af stað ir haft samband við grímuinanninn vin
strax og ég cr húinn að búa mig. — þinn, og komizt til búða ræningjanná
áður en kunningi þeirra kemst til þeima.
— Tonto verðnr að reyna. Fljótur nú
Vörður.
IIHUIIIIIIIIIIIUIIMIIIMIitlllUlimillllilllllllMIIII1lllllllllll((IIIIIIUI1lllltlllUIIMIIMiMMIIIIIII(llllllllllllllllllllllilll1IHIIIIiltlllimillltllllllllll>llllll||