Tíminn - 19.01.1973, Qupperneq 5

Tíminn - 19.01.1973, Qupperneq 5
Föstudagur 19. janúar 1973 TÍMINN 5 Svipmynd úr einþáttungi Birgis Engilberts, „Hversdagsdraumur”. Myndin var tekin, er þátturinn var færöur upp á Listahátið siöastliðið vor. Þetta eru Margrét Guðmundsdóttir og Bessi Bjarnason i hlut- verkum sinum. Hlutföllin eru dálitið sérstök, eins og sjá má. (Tímamynd: Róbert). Þjóðleikhúsið frumsýnir: „Hversdagsdraum" og „Ósigur" fimmtudaginn 25. janúar n.k. Stp—Reykjavik. Fimmtudaginn 25. janúar, eftir rétta viku, verða frumsýndir i þjóðleikhúsinu tveir einþáttung- ar eftir Birgi Engilberts. Heita þeir „Ósigur” og „Hversdags- draumur” . A vegum Listahátiðar siðastliðið vor voru hafðar tvær forsýningar á einþáttungum þessum, en siðan hefur höfundur gert miklar breytingar á öðrum þættinum, „Ósigri” og hefur hann unniðað þvi síðan i vor. Má segja, að hver siða handritsins hafi ver- ið endurskrifuð og auk þess bætt inn nýrri persónu. 1 hinum nýja búningi er verkið nokkru styttra en áður. Leikmyndir eru þær sömu og i vor. Leikstjórar eru tveir, þeir Benedikt Arnason og Þórhallur Sigurðsson. Vinna þeir algjörlega i sameiningu að leikstjórninni, — ef ágreiningur kemur upp um ein- hver atriði, leysa þeir hann sin á milli. Leikstjóri og aðstoðarleik- stjóri á ekki við hér, og mun sam- starf sem þetta að likindum vera einsdæmi i leikstjórnarsögu hér- lendis. A blaðamannafundi i gær með leikstjórunum, höfundi, skrifstofu stjóra Þjóðleikhússins og blaða- fulltrúa, var rætt nokkuð um efni þáttanna, hlutverkaskipan þeirra o.fl. Að sögn Benedikts eru þættirnir algjörar andstæður, sem til sam- ans skapa mjög skemmtilega heild. Efnislega og myndrænt er öllum hlutföllum snúið við. Annar þátturinn byggist á misskilningi meðal fólks, en hinn á þeirri „meinsemd” að vilja ekki skilja. I öðrum eru hlutföllin milli manns og umhverfis þannig, að persón- urnar virka mjög smáar, en i hin- um virkar umhverfið mjög stórt. f heild eru leikmyndirnar mjög stórar, en þær hefur höfundur sjálfur, Birgir Engilberts, gert. Hlutverk i „Hversdagsdraumi” eru tvö, og eru þau leikin af Bessa Bjarnasyni og Margréti Guð- mundsdóttur. Hlutverk „Ósig- urs” skipa: Flosi Ólafsson, Hákon Waage, Sigurður Skúla- son, Randver Þorláksson, Hjalti Rögnvaldsson og Jón Gunnars- son. Og eins og áður segir, hefur einu hlutverki verið bætt við, þvi sjöunda, og er það leikið af Þórhalli Sigurðssyni. Það mun sjaldgæft hér á landi, að leikritahöfundar fái tækifæri til að endurskrifa verk sin fyrir hina fyrstu raunverulegu frum- sýningu. Þetta tækifæri gafst Birgi vegna forsýninganna i vor, sem hann og hagnýtti sér . Það liggur ljóst fyrir, að aðstaða sem þessi hlýtur að vera til hagræðis höfundunum, og verður væntan- lega meira um, að boðið veröi upp á slikt i framtiðinni. Birgir gaf það raunar i skyn, að hann myndi að likindum enn endurskrifa einþáttunginn „Ósigur” eftir væntanlegar sýningar. Næstkomandi þriðjudag verður tilraunasýning á báðum þáttun- um i heild i Þjóðleikhúsinu, sem skólastjórum og skólafélögum verður boðið á til kynningar. Birgir Engilberts er einn af yngstu leikritahöfundum okkar, fæddur i Reykjavik árið 1946. Stundaði nám i leikmyndagerð við Þjóðleikhúsið 1963-66 og er nú fastráðinn við leikhúsið sem leik- myndateiknari. Fyrsta leikrit hans var „Loftbólur”, er sýnt var á Litlasviðinu i Lindarbæ árið 1966 og siðan i sjónvarpi hér og á Noröurlöndum. Arið 1967 frumsýndi Gríma leikritið „Lifs- neisti” eftir Birgi, og ári siðar flutti M.R. „Sæðissatiru” eftir hann. Ljóðakvöld í minningu Davíðs haldið á Akureyri A sunnudaginn efnir Þingstúka Eyjafjarðar til ljóðakvölds i minningu Daviðs Stefánssonar skálds frá Fagraskógi. Ljóða- kvöldið verður i Borgarbiói og hefst klukkan 5.15. Ljóðakvöldið er haldið á af- mælisdegi þjóðskáldsins, Daviðs Stefánssonar, og verða þar flutt ávörp og lesið úr kvæðum skálds- ins. Einnig munu þau Jóhann Danielsson og Gunnfriður Hreiðarsdóttir syngja. Verzlunarmannafélag Reykjavíkur Framboðsfundur Ákveðið hefur verið, að viðhafa allsherjar- atkvæðagreiðsluum kjör stjórnar, trúnað- armannaráðs og endurskoðenda i Verzlunarmannafélagi Reykjavikur. Listum cða tillögum skal skila i skrifstofu VR, Hagamel 4, eigi siðar er kl. 12 á hádegi mánudaginn 22. janúar n.k. Kjörstjórnin. Rafiðnaðarsamband íslands. Félag islenzkra Rafvirkja. Simi 26910. Simi 23888. Fræðslunámskeið Rafeindatækni — Einlínumyndir Næsta námskeið i rafeindatækni og ein- linumyndum hefst þriðjudaginn 23. janúar n.k. Væntanlegir þátttakendur hafi samband við skrifstofuna sem fyrst. Þar sem nauðsynlegt verður að takmarka fjölda þátttak- enda á hverju námskeiði, er gert ráð fyrir 2-3 námskeiðshópum fram á vor. Kennslan fer fram á þriöju- dags-og fimmtudagskvöldum og verður hvert námskeið i um það bil 40 kennslustundir. Þátttökugjald kr. 2.000,- greiðist við staðfestingu fyrri umsókna, eða við innritun. Ilafiðnaðarsamband íslands. Félag islenzkra rafvirkja. efstu á vinsælda- TEGUND 2204 Svart og brúnt ieður NR. 35-42 Krónur 1925,00 TEGUND 2210 Brúnt leður með loöfóðri NR. 35-42 Krónur 2760,00 TEGUND 2203 Brúnt eða svart leður með loðfóðri NR. 35-42 Krónur 2560,00 Póstsendum. Skóverzlun Þórðar Péturssonar við Austurvöll - Sími 1-41-81 listanum

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.