Tíminn - 01.03.1973, Blaðsíða 16

Tíminn - 01.03.1973, Blaðsíða 16
Fimmtudagur 1. marz. 1973. xj; MERKID SEM GLEDUR Htttumst í haupjélagínu [Hlégarður ± *—' QQmlrnmnoolir Samkomusalir til leigu fyrir: Arshátiöir, Þorrablót, fundi, ráðstefnur, afmælis- og ferm- ingarveizlur. Fjölbreyttar vcitingar, stjórir og litlir salir, stórt dansgólf. Uppi. og pantan- 9JT' ÍKr lx húsverði i slma 6-61-95. <r? GOÐI fyrir gódan mat EJOTIDNADARSTÖD SAMBANDSINS P ^ EJOl Geta afgreitt timbur húsin á fimm vikum KJ—Reykjavík. — Okkur var ein- göngu falið að kanna hvaða húsa- geröir myndu henta bezt, og von- ast ég til, að sendinefndin geti skilað skýrslu um feröina um næstu helgi, og þá verður strax hægt að fara að panta húsin, sagði Guðmundur G. Þórarinsson verk- fræðingur I samtali við Tlmann i gær. — Verksmiðjurnar geta svo af- greitt húsin fimm vikum eftir að pöntun hefur veriö gerð, þá er það undir viökomandi sveitar- félögum komið, hvort þau eru tilbúin með götur og lagnir, hvenær hægt verður aö taka húsin I notkun, sagði Guðmundur enn- fremur. Guðmundur kom einn nefndar- manna heim fyrir siöustu helgi, en meðnefndarmenn hans komu á miðvikudag, en þeir eru: Bárður Danlelsson brunamálastjóri, Jó- hann Friöfinnsson kaupmaður i Vestmannaeyjum og Hafsteinn Stefánsson skipasmiður I Vest- mannaeyjum. — Leiðin lá fyrst til Finnlands, þar sem Juuranto ræðismaöur hafði skipulagt dvölina, sagði Guðmundur G. Þórarinsson. Fyrst var heimsótt Puutalo, sölu- fyrirtæki fyrir tilbúin hús, en auk þess húsaverksmiðjurnar Enso- Gutzeit, og viðræður áttu sér stað við fulltrúa fyrirtækjanna Seismo og Dominu, auk fleiri aðila. Skipulag þessara húsa var mis- jafnt, en það var athyglisvert, að I þeim öllum var Sauna-baðstofa. I Finnlandi eru þrir aðilar, sem ætla að gefa hús til Islands, Huvudstadsbladet, kirkjan og Nordisk byggedag. 1 Sviþjóö voru skoðaðar margar gerðir af húsum og má nefna Aldalshus, sem framleidd eru af B.P.A., en það fyrirtæki er tengt alþýðusamtökunum i Svlþjóð. Þá voru skoðuð Hultsfredshús, Ekj- sjö-hús, Guldringen-hús, Mock- fjard-hús og Wellit-hús. Þetta voru lagleg hús, og I Sviþjóð eins og I Finnlandi mættum við mikl- um velvilja, ságöi Guðmundur I viðtalinu við Timann. t Svlþjóð töluðu nefndarmenn m.a. viö innanrlkisráðherra Svia, og þar var mikið rætt um aðstoð viö tslendinga vegna náttúru- hamfaranna lEyjum. M.a. var sú saga sögð, að maður nokkur, sem gekk I hús og safnaöi til tslands, kom þar að sem fimm ára, dreng- ur kom til dyra. Maðurinn sagði drengnum I hvaða erindum hann væri, og spurði hvort nokkur full- oröinn væri heima. Drengurinn bað hann að biöa, og kom að vörmu spori til baka með kr. 3.75 sænskar krónur, sem hann sagð- ist hafa tekið úr sparibauknum sinum. Hann hefði ætlað að safna sér fyrir hjóli, en nú vildi hann gefa aleiguna til hjálpar ts- lendingunum, sem orðið heföu að flýja Heimaey. Indíánar taka lOOOmanna bæ NTB-Suður-Dakóta. Rúmlega 200 Indiánar réðust i gær inn i 1000 manna bæ, Wounded Knee i S-Dkóta og tóku tiu manns sem gisla. Taka Wonded Knee er nýjasta aðgerð Indlana I mótmælaskyni við kynþáttamisrétti og slæm lifs- skilyrði, sem þeim eru búin. Leið- togar innrásarmanna segjast ekki láta gislana lausa fyrr en gengið verði að körfum þeirra. Woonded Knee er þekktur stað- ur vegna þess, að þar stráfelldu bandariskir hermenn 200 Indiána fyrir 83 árum. 96 lögreglumenn umkringdu svæðið, sem er skammt frá verndarsvæði Oglala-Sioux- Indiána. Margir Indlánanna, sem þátt tóku I árásinni, eru I hreyfingu bandariskra Indiana. Innrásar- menn eru vopnaöir byssum og segjast reiðubúnir að berjast til siöasta blóðdropa. 1 Noregi skoðaöi sendinefndin margar gerðir húsa, og þar bjuggumst við við, að finna hent- ugustu húsin, sagði Guðmundur, vegna svipaðs veðurlags á vesturströnd Noregs og á Islandi. Húsin, sem viö skoðuðum þar, voru Moelven-hús, Block Watne- hús, Anberg-hús, Trysil-hús, Sun house, sem er eftirtektarvert af- brigði, þótt þaö henti e.t.v. ekki hér á landi. Auk þess voru fleiri hús athuguö. Trysil er sveitar- félag, þar sem búa aðeins um sjö þúsund manns, og hafa ibúarnir ákveðið að gefa Vestmannaey- ingum hús. Ég varð svo að fara heimleiðis, áöur en húsin I Danmörku voru skoðuð, og einnig áður en hús voru skoðuö i Gautaborg. — Hvernig eru svo öll þessi hús uppbyggð? — Þetta eru að sjálfsögðu allt timburhús, og má segja, að þau séu byggð upp á þrennskonar máta. I fyrsta lagi er um að ræða mjóar einingar, eða um 30 senti- metra breiðar. I öðru lagi eru flekahús, og veggirnir þá i heilu lagi. 1 þriðja lagi eru einingahús og koma þá heilu húshlutarnir tilbúnir frá verksmiðjunum. Ollum þessum húsum má svo skipta I varanleg hús og bráða- birgðahús, og skoðuðum við báð- ar geröirnar. Ég held að flestir séu þeirrar skoðunar, að kaupa eigi góð hús, sem verða til frambúöar, heldur en að kaupa ódýrari hús. í þessu sambandi má geta höfðinglegrar gjafar frá SKF kúluleguverksmiðjunum I Svl- þjóð, en þær hafa boðizt til að gefa 10 hús, sem hvert er 350 fermetr- ar að stærð, meö 10-12 herbergj- um. Þessi hús virðast geta hentaö Frh. á bls. 15 Þjóðernistilfinningar hurfu í skuggannó írlandi NTB — Dublin — Kosningaþátttaka i þingkosning- unum i irska lýðveldinu i gær virtist siðdegis ætla að verða mikil. Engu var þó hægt að spá um, hvort það lofaði góðu fyrir Fianna Fail, flokk Jack Lynch forsætisráðherra eða andstæðinga hans, kosninga- bandalag Fine Gael og Verkamannaflokksins. 1 kosningabaráttunni hafa báðir aðilar lagt áherzlu á að nauðsynlegt væri að úrslit kosninganna yrðu greinileg á annan hvorn veginn. Fianna Fail átti að- eins 69 sæti af 144 i fráfarandi alþingi Sérlega flókið kosningakerfi veldur þvl, að enginn flokkanna getur búizt við mikilli breytingu á fylgi, og margir hafa látið I ljósi ótta um, að hvorki núverandi stjórnarflokkur, Fianna Fail, né samsteypa Fine Gael og Verka- mannaflokksins fái hreinan meirihluta atkvæða. Kosningabaráttan hefur á margan máta verið furðuleg. Þjóðernistilfinningar og kröfur um að Stóra — Bretland láti Noröur Irland af hendi hafa ávallt sett mikinn svip á kosningar I Irlandi. En nú, meðan ný morða- og hryðjuverkaalda geisar fyrir norðan, haía þessi mál alveg horfið I skuggann fyrir velferðar- og skattamálum. Lynch forsætisráðherra kaus i Dublin og hélt siðan til kjördæmis sins, Cork á Suður-írlandi til að bíða úrslitanna. Liam Cosgrave, leiðtogi andstæðinga hans, greiddi einnig atkvæði I Dublin, Mynd þessi var tekin I efri deild Irska þingsins I desember s.l., er samþykkt voru umdeild lög, sem gerðu stjórnvöldum hægara um vik að handtaka meðiimi i ólöglegum samtökum, þ.á.m. Irska lýð- veldishernum. í dag verður úr þvi skorið hverjir stjórna eiga trlandi næsta kjörtlmabil. GefaNorð- menn okkur fræ- ræktarstöð 1974? NTB — Osló.Norska skógræktar- félagið hefur lagt til, að Islend- ingum verði gefin fræræktarstöð fyrir sitkagreni I tilefni 1100 ára afmælis tslandsbyggðar 1947. 1 fregn frá NTB fréttastofunni segir, að félagiö hafi boðið skóg- ræktarráði sambandi norskra skógeigenda, norska skógarelda- tryggingafélaginu og yfirstjórn skóga rikisins að taka þátt I kostnaði vegna gjafarinnar. í fréttinni segir ennfremur, að Islendingar noti stikagreni I miklum mæli til skógræktar, og fái fræ frá Bandarlkjunum. En loftslag I skógræktarstöðvum þar er ekki mjög svipað islenzkri veðráttu. Skógræktarstöð þessi verður e.t.v. á Haraldsöy I Etne , en þar hefur skógræktarfélaginu norská boðizt land til langtimaleigu. Hugmyndin er að gjöfin standi undir kostnaði viö stofnun stöðvarinnar og rekstur, þangað til hún fer að gefa af sér fræ. Þá eigum við sjálfir að taka að okkur kostnaðinn. Stofnkostnaður er áætlaöur um 50.000 norskar krón- ur. Sakadómur segir: „Allt í lagi að nota orðin Wine & Dine" Klp—Reykjavlk. — Fyrir skömmu var kveöinn upp I Sakadómi Reykjavlkur dómur I máli, sem höföaö var af hálfu ákæruvaldsins á hendur Hauki Hjaltasyni, framkvæmdastjóra veitingahússins óðals viö Austur- völl. Var honum gefið að sök, að hafa látið prenta auglýsingakort á ensku með orðunum WINE & DINE og hafa kortin frammi á veitingastaðnum og ferðaskrif- stofum. Var þetta talið brot á ákvæðum laga um bann við áfengisauglýsingum. Þórður Björnsson yfirsaka- dómari kvað upp dóminn og sýknaði hann ákærða I máli þessu. Jafnframt var kostnaður sakarinnar lagöur á rikissjóð, þar með talin málsvarnarlaun verj- anda ákærða, Guðmundar Ingva Sigurðssonar, hrl., kr. 15.000.00. 1 dómsorði segir m.a. að við skýrin^u á orðinu „áfengisaug- lýsing megi greina á milli auglýs- Frh. á bls. 15 WINE « iN A COZV ATMOSPHERE ICÉLAND S MOST EXCLUSIVE RESTAURAt IN THE HEART OF THE CITY HEADWAITER TELEPHONE 11322 - OPEN DAILY 11,30 - 15 & i»

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.