Tíminn - 28.03.1973, Síða 9
8
TiMINN
MiAvikudagur 2S. marz 1 !»7I5
Mif)vikudaf>ur 2S. inarz l'ITS
TÍMINN
9
Tímamyndir : Gunnar
skiðjuverin standa hliö viö hlift viö höfnina, og hrauniö þrengir sér inn á milli þessara glæsilegu húsa.
Þaö logar bæöi i gígnum og húsunum, og i myrkri næturinnar veröur eldurinn enn ægilegri en aö degi til.
A jarfthæöinni, þar sem röndóttu veggirnir eru, var verzlunin Kyjafótó. Ilraunjaftarinn hefur ýtt veggjunum
á jaröhæöinni til og kveikt i húsinu.
Kldhafið var ægilegt, eins og myndin sýnir, og þarna brenna mörg hús samtimis, en uppi á þaki jeppans
fremst á myndinni er sófi, sem tókst aö bjarga á siftustu stundu úr einu húsanna.
Ilraöfrystistööin slendur i björtu báli, og vatnsbunurnar mega sin litils i baráttunni vift hraunjaöarinn.
Þrátt fyrir mikla viöleitni mannsius. má hann sín litils i baráttunni vift náttúruöflin. Myndin er tekin i gærmorgun, og yfir öllu saman er eldspú-
andi gigurinn.
Þaö eru rústirnar af Hótel Berg, sem eru á miöri myndinni, en nær logar i gömiu timburhúsi.
ELDNOTT
í EYJUM
Það var þögult og klökkt fólk
sem stóð við húsin á Heimatorgi á
Heimaey í fyrrinótt. Fjöldi húsa
stóð í björtu báli, og hraunjaðar-
inn skreið fram fet fyrir fet, og
um leið og hraunið valt fram var
eins og það sýndi tennurnar þegar
rauð glóðin kom í Ijós undir harðri
skelinni. Þegar brennheitt hraun-
ið nálgast húsin, kveikir það í
þeim með hitanum, en um leið
ræðst hraunjaðarinn á undirstöð-
ur húsanna og vinnur á þeim, að
neðan. Undirstöðurnar fara þá
gjarnan fyrst, en siðan hrynur
húsið saman eins og spilaborg,
eða efri hluti þess berst nokkurn
spöl áfram með hrauninu, áður en
að hruninu kemur. Svona hefur
það verið nokkra undanfama
daga, en í fyrrinótt var ein ægileg
asta nóttin — að undanskilinni
gosnóttinni sjálfri. Myndirnar hér
á siðunum tala sínu máli.
I