Tíminn - 06.04.1973, Blaðsíða 1
WOTEL mtMIR
„Hótel Loftleiðir býður gestum
slnum að velja á milll 217 herbergja
með 434 rúmun — en gestum
standa líka Ibúðir til boða.
Allur búnaður miðast við strangar
kröfur vandlátra.
LOFTLEIÐAGESTUM LIOUR VEL.
V
Óhemju fannkyngi á Héraði,
rafmagnsbilanir og símaslit
JK—Egilsstöðum. — Geysilega
miklum snjó hefur kyngt niður á
Austfjörðum, og eru þar allir veg-
ir gersamlega ófærir. Miklar
skemmdir hafa oröið á raflfnum
og simalinum, snjóflóö fallið og
með öllu var rafmagnslaust á
stórum svæöum um tfma I gær.
Ekki voru afgreidd sfmtöl milli
Austurlands og annarra lands-
hluta nema hraðsamtöl um eina
linu gegnum Hornafjörð.
I fyrradag hlóð niður firnum af
snjó á skömmum tima, einkum i
fyrrakvöld, og varð allt ófært.
Þegar á fætur var komið i gær-
morgun, var fönnin svo mikil og
jafnfallin, að harðfylgi þurfti til
þess að ösla á milli húsa hér i
Egilsstaðaþorpi. Þessi snjór féll i
hægri austanátt og var raunar
bleytuhrið um skeið, en nú er
komin norðaustanátt. A láglendi
niðri á fjörðum er snjórinn miklu
minni, þótt úrkoma væri þar
einnig mjög mikil.
Krapastifla i Grimsá,
disilstöðvar bilaðar
Mjög viða slitnuðu raflinur og
simalinur, er snjórinn hlóðst á
þær. Þrir staurar raflínunnar,
sem liggur um Svinadal til Eski-
fjarðar brotnuðu , og búnaður á
tuttugu til viðbótar skemmdist.
I gærmorgun kom krapastifla i
Grimsá, og stöðvaðist þá orku-
verið þar, og var með öllu raf-
magnslaust i hálfan sjötta
klukkutima. Disilrafstöövarnar á
Seyðisfirði og i Neskaupstað hafa
verið bilaðar vegna mikils álags i
sambandi við loðnubræðsluna að
undanförnu, og hafa varahlutir i
Seyðisfjarðarstöðina ekki fengizt
vegna verkfalls i Englandi.
Dsisilrafstöð Norðfirðinga tókst
að koma i gang i fyrrinótt.
Allir mjólkurflutningar liggja
að sjálfsögðu niðri á Héraði og til
marks um simabilanir má nefna
að linan á Fagradal eyðilagðist á
fimm hundruð metra kafla.
Simalina á Gagnheiði rofnaði
einnig, svo og viðs vegar annars
staðar i héraðinu.
Þá var endurvarpsstöðin á
Eiðum biluð i gær.
Rafmagnið brást i
kveðjuhófinu
Fréttaritari Timans á Seyðis-
firði, Ingimundur Magnússon,
sagði svo frá, að loðnubræðslu
hefði lokið þar i fyrradag, og var
þá haldið kveðjuhóf. Þegar hófið
stóð sem hæst, rofnaði háspennu-
linan að sildarverksmiðjunni, og
var myrkur i bænum i rúma
klukkustund. I gær var engan mat
að fá i mötuneytinu vegna raf-
magnsskorts.
Mikill snjór er i fjöllum, þótt
ekki kveði ýkjamikið að honum
niðri við sjóinn, og hafa snjófióð
falliðá nokkrum stöðum skammt
innan við söltunarstöðina Neptún.
Snjóbill var sendur til könnunar,
og fór hann yfir tvær snjóskriður,
en sneri frá við þá yztu og
breiðustu. Voru þær tiu til þrjátiu
metra breiðar og náðu i sjó fram.
Þarna hafði raflina fallið niður og
staurar brotnað, einn eða fleiri.
Við Hánefsstaði var sambands-
laust i gær.
Happdrættislán vegna hringvegar
tSLENDINGAR hafa færzt það i
fang að vega mestu torfæruna á
landinu, Skeiðarársand, og brúa
vötnin, sem um hann falla. Þvi
vérki skal lokið sumarið 1974,
þegar þúsund ár eru liðin frá þvi
land byggðist þeim kynþætti, sem
siðan hefur haft hér búsetu. Það
verður mikill sigur, unninn með
fjárfrekum fórnum, erfiði og
kunnáttu, og veglegur minnis-
varði, sem ber hátt yfir allan
stundarglaum.
Nú á að bjóða út nýtt happ-
drættislán til þess að standast
kostnað við framhald verksins,
svo unnt sé að vinna sleitulaust að
þessari miklu samgöngubót, sem
allir hugsandi menn bera mjög
fyrir brjósti.
Myndina hér á siðunni tók
Einar Valdi af einu
mannvirkinu á Skeiðarársandi,
burðarvirkjum fyrirhugaðrar
brúar á Gigju.
Sjá nánar frásögn á 3. blaðsiðu.
Netabáti hvolfdi snögglega:
Uppfinning eins skipverjans
bjargaði áhöfninni á kjöl
VÉLBATNUM Katrfnu GK-90
hvofldi snögglega á Sandvik
sunnan Reykjaness i gærmorgun.
Fjórir inenn voru á Katrinu, sem
var 11 lcstir að stærð, gerð út frá
Hafnarfirði. Komust þeir á kjöl
og var bjargað um borð i Knarr-
arnes, sem fór með skipsbrots-
mennina til Grindavikur. Eigandi
bátsins var Þorkell h.f.
Markús Þorgeirsson gerir
bátinn út og var hann einn af há-
setunum, er honum hvolfdi.
Timinn hafði samband við hann i
gær, og sagði, að báturinn hefði
verið á lausri keyrslu, þegar hann
valt skyndilega.
— Bátnum hvolfdi rétt fyrir kl.
10. Var það svo snöggt, að ekki
var hægt að komast i gúmibjörg-
unarbátinn. Báturinn var fyrir
framan kappann, og það hefði
ekki verið hægt fyrir neinn að
nálgast hann, hvorki úr stýrishúsi
né annars staðar að. Það, sem
varð okkur til lifs, var að lúgur
vóru velskálkaðar, lúkar lokaður
og öryggisgrindverk á lunningu,
sem við notuðum sem stiga til að
komast á kjöl. Katrin var smiðuð
i Bátalóni 1970. Er hún fyrsti
báturinn, sem smiðaður er þar
með sliku öryggisgrindverki, og
er það min uppfinning, og lét ég
setja grindverkið á lunninguna
fyrstur manna. Grindverkið
notuðum við sem stiga til að
spyrna okkur upp á kjöl. Ef
grindverkið hefði ekki verið, skal
ég ekkert segja um, hvað orðið
hefði um okkur.
— Við vorum um 15 minútur á
kili áður en okkur var bjargað.
Veðrið var gott og margir bátar
nærri. Til okkar sást af Knarrar-
nesinu og brugðu skipverjar fljótt
við og silgdu að okkur og tóku um
borð. Vil ég færa þeim sérstakar
þakkir fyrir björgunina, sem
gekk mjög fljótt og vel.
Skipstjóri á Katrinu var Lúter
Þorgeirsson, en Gunnar örn
Gunnarsson vlestjóri., Guð-
mundur Friðriksson og Markús
voru hásetar. Hinn siðastnefndi
var ekki skráður á bátinn, en fór
þess ferð i forföllum annars há-
seta.
Katrin var á þorsknetum og var
búin að fá 35 lestir siðan 16.
febrúar s.l.
Skipverjum á Hópnesinu frá
Grindavik tókst að koma taug i
Katrinu, þar sem hún maraði i
kafi, og sást rétt i bátinn. Þegar
siðast fréttist var ekki útséð um,
hvort tækist að draga bátinn að
landi OÓ
Nú hefur
Holberg
eignazt
nóga belgi
ÞÓ, Reykjavik—- Loft-
belgjafrömuðurinn Holberg
Másson er nú nýkominn frá
Bandarikjunum, þar sem
hann-flaug meðal annars i
loftbelg og var viðstaddur
fyrsta heimsmeistaramót i
flugi ,,heitra loftbelgja”.
Holberg kom ekki alveg
tómhentur til landsins, því
hann kom með hvorki meira
né minna en niu loftbelgi, og
loftskip, tvær fallhlifar og
ýmislegt annað, sem að
gagni kemur fyrir loftfara-
Við náðum tali af Holbergi
i gærkvöldi, en hann kom
með alla loftbelgina og loft-
skipin með sér heim um
siðustu helgi. Hann sagði, að
hann væri búinn að vera
tvisvar i Bandarikjunum
siðan um áramót. 1 fyrra
skiptið var hann i einn
mánuð og i seinni ferðinni i
tvær vikur. A þessum ferða-
lögum sinum ferðaðist Hol-
berg um öll Bandarikih og
fór meðal annars til Alaska
og skoðaði þar loftbelgja-
verksmiðjur.
I eitt skiptið, sem Holberg
var staddur á Keflavikur-
flugvelli, kynntist hann pró-
fessor frá Bandarikjunum,
sem hafði verið að rannsaka
gosið i Vestmannaeyjum, og
bauðst hann til að útvega
Holberg loftbelg.
,,Ég ákvað þess vegna að
fara aftur út og heimsótti ég
þá prófessorinn i þeirri
ferð” sagði Holberg. Hann
tók mér mjög vel, sýndi mér
háskólann, sem hann kennir
við, og að skilnaði útvegaði
hann mér tvær fallhlifar,
fjóra loftbelgi, sem geta
borið einn mann og einn loft-
belg, sem getur borið einn
mann. Auk þessa gaf hann
mér hæðarmæla og klifur-
mæli. Ekki var allt búið, þvi
að auki fékk ég fjögur litil
loftskip, sjö til átta metra að
lengd sagði Holberg.
,,Ég gaf eitt þessara loft-
skipa loftbelgjafólki, sem ég
kynntist og hafði verið mér
mjög hjálplegt, og að skiln-
Framhald á bls. 19
Holberg Másson með hluta af loftbelgj
kom með frá Bandarfkjunum.
unum og fallhlifunum, sem hann
—Tímamynd Gunnar