Tíminn - 06.04.1973, Side 17
Föstudagur <i. apríl. l!)7ii
TÍMINN
17
FH-ingar áttu ekki í
vandræðum með ÍR
Fyrstu 15 mín. leiks liðanna var geysileg skotkeppni, sem
endaði 5:5. Samtals skutu leikmenn liðanna 25 skotum á
þessum mínútum
FH-INGAR LÉKU sér að áhugalausu ÍR-liði á miðvikudagskvöldið.
Leikur liðauua var ekki upp á það allra bezta, oft á tiðum einkenndist
hann af misheppnuðum sendingum og klaufaskap leikmanna liðanna,
þó sérstaklega iR-liðsins. Fyrstu 15 infn. leiksins, var skotkeppni.
Leikmenu liðanna skutu i tima og ótima. Staðan var 5:5 eftir 15 min. Þá
voru ÍR-ingar búnir að skjóta 15 skotum og FH-ingar 12 skotum. Á
þessu sést, hvað sóknir liðanna stóðu lengi yfir. Eftir þetta fóru
FH-ingar að hitta markið og hvert skotið af öðru lentu I IR-markinu og
staðan var orðin 15:7 i hálfleik.
Leikurinn var jafn til að byrja
með, en þegar staðan var 5:5 var
Erni Sigurðssyni vísað af leikvelli
i 2 min. Á þeim tima, sem FH-ing-
arnir léku einum færri, skoruðu
Geir
skoraði
níu mörk..
GEIR Hallsteinsson var
markhæsti leikmaðurinn i
leik FH og 1R. Hann skoraði
niu mörk i 15 skotum, sjö
mörk með langskotum og tvö
eftir hraðupphlaup. Aðrir,
sem skoruðu fyrir FH, voru:
Viðar 6 tfjögur langskot, eitt
viti og eitt eftir hraðupp-
hlaup), Ólafur 3 (langskot),
Birgir 2. (eitt með langskoti
og eitt eftir hraðupphlaup),
Auðunn 2. (gegnumbrot),
Gils (Gegnumbrot) og örn
(lina), eitt hvor.
Fyrir 1R skoruðu: Vil-
hjálmur 6 (langskot, gegn-
umbrot og fjögur úr vita-
köstum), Þórarinn 3 (tvö
langskot og eitt
gegnumbrot), Brynjólfur 2
(af linu og með gegnum-
broti), Jóhannes (langskot),
Gunnlaugur (lina) og
Gunnar (gegnumbrot), eitt
hver.
....og
Bergursex
Markhæsti leik-
maðurinn i leik Hauka og
Vals var, Bergur Guðnason.
Hann skoraði sex mörk úr
niu skotum, lét tvisvar verja
frá sér vitaköst. Bergur
skoraði tvö mörk með lang-
skotum og fjögur úr vita-
köstum. Aðrir, sem skoruðu
fyrir Val, voru þessir: Agúst
Ogmundsson 4 (öllu úr hrað-
upphlaupum), Ólafur Jóns-
son 4 (eitt af linu og þrjú með
langskotum), Stefán
Gunnarsson 3 (tvö af linu og
eitt með langskoti), Gunn-
steinn Skúlason 2 (eitt af linu
og eitt eftir gegnumbrot) og
Jón Karlsson, eitt með lang-
skoti.
Fyrir Hauka skoruðu:
Stefán Jónsson 3 (tvö lang-
skot og eitt með gegnum-
broti), Ólafur ólafsson 2 (
langskot), og Þórir (lang-
skot), Guðmundur (hrað-
upphlaup), Sturla (viti) og
Sigurgeir (gegnumbrot), eitt
hver.
þeir þrjú mörk. Siðan bættu þeir
við mörkum jafnt og þétt.
FH-ingar náðu sjö marka for-
skoti strax i siðari hálfleik 14:7 og
þegar 10 min. voru til leiksloka,
voru þeir búnir að ná tiu marka
forskoti, 22:12. Þá kom ungur
maður, GunnarHaraldsson.inn á
hjá 1R og skoraði strax mark.
Eftir að Gunnar kom inn á breytt-
ist leikur ÍR-liðsihs. Liðið fór að
nota breidd vallarins, og við það
opnaðist vörn FH. Þá fór Þórar-
inn Tyrfingsson i gang og hann
skoraði þrjú góð mörk. IR-ingar
minnkuðu muninn undir lokin i
sex mörk, en leiknum lauk með
sigri FH, 22:18.
FH-liðið átti ekki i erfiðleikum
með lélega _IR-vörn i leiknum, það
var alveg sama, hvernig leik-
menn liðsins skutu, knötturinn
lenti i marki 1R. Geir Thorsteins-
son, hinn snjalli markvörður
ÍR-liðsins, lék langt undir getu.
Geir Hallsteinsson lék vel að
vanda, svo og Viðar Simonarson.
Hjalti Einarsson stóð i FH-mark-
inu framan af og varði mjög vel,
sérstaklega i fyrri hálfleik.
IR-liðið virtist áhugalaust i
leiknum, og leikur liðsins ein-
kenndist af ónákvæmum sending-
um. Mesta vandamál liðsins er,
að það á ekki til frambærilega
linumenn. Þeir linumenn, sem
leika með liðinu gripa sjaldan
knöttinn, en ef þeir gripa hann, þá
skora þeir ekki. Þá leika þeir oft-
ast i hnapp og gera meira i þvi að
þjappa vörn andstæðinganna
saman, heldur en að dragá hana i
sundur. Þjálfari liðsins gerði
mikil mistök að láta ekki Gunnar
og Þórarin fyrr inn á.
Karl Jóhannsson og Hannes Þ.
Sigurðsson dæmdu leikinn vel.
Geir...skoraði niu mörk gegn 1R.
STEFANSMOTIÐ
í STÓRSVIGI
UNGLINGA
AAótið fór fram við góðar aðstæður
um síðustu helgi f Skólafelli
UM SÍÐUSTU helgi fór fram i
Skálafelli Stefánsmót i unglinga-
flokkum á i’egum Skiðadeildar
K.R. Keppt var í stórsvigi á
laugardag við góðar aðstæður. En
á sunnudag varö að aflýsa svig-
mótinu vegna veðurs, þrátt fyrir
að til mótsins voru mættir kepp-
endur frá Akureyri og Húsavik.
Þetta er I annað sinn, sem þeir
ætla að taka þátt i mótinu, en i
fyrra skiptið varö að aflýsa mót-
inu, m.a. vegna þess að utan-
bæjarmenn komust ekki til
Reykjavikur. Keppt var i tveim
brautum. Fyrir drengi og stúlkur
12 ára og yngri var brautin 19 hlið
og (íOO metrar, en fyrir eldri
flokkana 28 hlið og 900 metrar.
Helztu úrslit voru sem hér
segir:
Stúlkur 12 ára og yngri:
1. Steinunn Sæmundsd. Á,
2. Aldis Árnardóttir, Á,
3. Maria Viggósdóttir K.R.,
Islenzka lands-
liðið í borðtennis
fór utan í morgun
Landsleikur við Færeyjar um helgina
lslenzka landsliði i borðtennis
hélt utan til Færeyja i ntorgun.
Liðið mun leika landsleik gegn
Færeyingum um helgina.
islenzka liðið, sem leikur fyrsta
landsleik þjóðanna i iþróttinni,
er skipað eftirtöldum kepp-
endum.
Hjálmur Aðalsteinsson, KR
Ragnar Ragnarsson, Erninum
Björn Finnbjörnsson, Erninum
Olafur H. Ölafsson, Erninum
Jóhann Ó Sigurjónsson, Erninum
Birkir Þ. Gunnarsson, Erninum
Þá keppa tveir þátttakendur i
unglingaflokki, það eru þeir
Gunnar Finnbjörnsson, Erninum,
og Jón Sigurðsson, ÍBK
Keppt verður bæði i einliðaleik
og tviliðaleik Þeir, sem keppa
saman i tviðliðaleik, eru þessir:
Hjálmur — Björn
Ragnar — Jóhann
Ólafur — Birkir
Gunnar — Jón
Fararstjóri verður Sveinn A.
Lúðviksson. Iþróttasiða Timans
óskar landsliðinu góðrar ferðar.
120 hafa spreytt sig
í Breiðholtshlaupi ÍR
ALLS voru þátttakendur
i 3. BreiðliQltshlaupi ÍR,
sem fram fór á sunnu-
daginn fi7 talsins. Veður
var ágætt, en færðin
ekki sem bezt, nema
fyrir þá, sem voru svo
lánsamir að eiga gadda-
skó. Af þessum sökum
voru timarnir misjafnir,
en að sjálfsögðu haföi
getan einnig nokkuð að
segja.
Nú hafa 120 áhugasamir hlaup-
arar spreytt sig i Breiðholts-
hlaupunum i vetur, en þar sem 3
hlaup eru enn eftir, eiga þeir allir
mögúleika á að vinna til ver'ð-
launa og þátttakan á enn eftir að
aukast.
Beztum tima hjá stúlkunum á
sunnudag náði Anna Haraldsdótt-
ir, 3:11 min., en næst var Asta B.
Gunnlaugsdóttir, 3:25 min. Þriðja
bezta timanum náði Uagný
Pétursdóttir, 3:33 min.
Hjá piltunum var Guðmundur
Geirdal beztur, 2:55 min. Jón
Erlingsson hljóp á 3:07 og Berg-
þór Kristjánsson á 3:11 min.
Miklatúns-
hlaup
Armanns
á morgun
5. MIKLATÚNSHLAUP Armanns
fer fram á morgun (laugardag)
kl. 14.00. Mikill áhugi er á þessu
hlaupi, sem hefur heppnazt mjög
vel, og þátttaka hefur verið mjög
mikil. Þeir þátttakendur, sem
ætla að vera með að morgun, eru
beðnir að mæta timanlega og
vera vel klæddir.
Hljómskálahlaup
ÍR á sunnudaginn
ÍILJÓMSKALAIILAUP 1R muii
fara fram i 4. sinn á þessum vetri
sunnudaginn 8. april n.k. Hlaupiö
hefst ú sama stað og vant er i
Hljómskálagarðinum og hefst kl.
14.
Hlaupið er eins og áður opiö öll-
um, sem vilja spreyta sig i góðum
félagsskap. Keppendur eru beðn-
ir aö mæta i siðasta lagi kl. 13,40
til nafnakalls og númeraúthlutun-
ar. Hlaupinu lýkur um kl. 14,20.
Timi Drengir 12ára ogyngri: Timi
42,0 1. Finnbogi Baldvinss. Á, .43,8
43,6 2. Friðjón Jónsson, A, 44,0
45,3 3. Steinar Þórsson Á, 44,3
58. VIÐAVANGS-
HLAUP ÍR Á SUM-
ARDAGINN 1.
VÍÐAVANGSHLAUP ÍR
fer fram i 58. sinn á
sumardaginn fyrsta eins
og venjulega en daginn
ber upp á skirdag að
þessu sinni.
Keppnin er opin öllum og er
keppt bæði i karla og kvenna-
flokki.
Karlarnir keppa um einstakl-
ingsverðlaun, auk sveitakeppni i
3ja, 5 og 10 manna sveitum.
Konurnar keppa um einstaklings-
verðlaun auk sveitakeppni 3ja
manna sveitar.
Þátttökutilkynningar þurfa að
berast i siðasta lagi þann 14. april
til þjálfara IR-inga, Guðmundar
Þórarinssonar, Baldursgötu 6,
simi 12473.
Knattspyrnudómarar
Aðalfundurinn verður haldinn i Leifsbúð,
Hótel Loftleiðum þriðjudaginn 10. april kl.
20,30.
St jórnin.