Tíminn - 30.08.1973, Side 13
Fimmtudagur 30. ágúst 1973.
TÍMINN
13
0 AAegivistna
iö eftir þvi og linna ekki látum að
skamma mig. Ég vona þess
vegna að mér fyrirgefist, þó ég
noti tækifærið að bera þetta af
mér einu sinni enn.
En ég var að tala um skrifstofu
mina já, ég hef komið upp handa
leiklistardeildinni dálitlu safni
góöra bóka og ágætu safni leik-
ritahandrita, sem útlendar út-
varpsstöðvar sem ég hef heimsótt
eða skrifað til senda mér reglu-
lega i hverjum mánuði. Svo hefur
tengdasonur minn lánaö mérj
málverk eftir sig til að hengja á
veggina og allt þetta gerir vinnu-
stofuna mina vistlega og
viðkunnanlega.
Gluggai minir vita I mót suðri,
eins og ég hef áður drepið á, og
það er sólskin úti og heitt i veðri.
Aður en ég veit af er ég búinn að
opna glugga til að hleypa inn
dálitlu lifslofti. En ég er fljótur að
loka honum aftur. Hávaðinn úr
húsgrunni Seðlabankans ætlar að
æra mig. Hérna handan við gang-
inn er einn af minum ágætu sam-
starfsmönnum i tæknideildinni að
taka upp á segulband morgun-
bænir með séra Þorgrimi, og mér
veröur eitt andartak á að hugsa,
hvorthávaðinn frá loftpressunum
muni ekki koma inn á bandið með
bæninni. En ég átta mig fljótt og
minnist -þess að þegar við fluttum
hingað átti (Jtvarpið nokkrar
milljónir króna I byggingarsjóði
og þeim var varið til þess að
hljóðeinangra skonsurnar hér á 6.
hæðinni, þar sem dagskrá út-
varpsins er tekin upp, og svo til
þess að greiða nokkurra ára fyr-
irfram leigu, svo Rannsókna-
stofnun fiskiðnaðarins gæti lokið
við húsið sitt. Ég settist við skrif-
borðið mitt og ætlaði að byrja að
vinna, en það gekk ekki. Það
sóttu að mér hugsanir, sem höfðu
reyndar oft áður valdið mér óró-
ieika, en ég hélt að ég væri búinn
aö sigrast á þeim og þær mundu
ekki trufla mig framar. En þvi
var ekki að heilsa. Hugur minn
tók á rás fjóra áratugi aftur i tim-
ann til þeirra daga þegar ég, eftir
auglýsingu þáverandi útvarps-
stjóra, sótti um stöðu sem að-
stoðarþulur útvarpsins og gekk
undir samkeppnispróf við sjötug-
asta mann. Þetta var á kreppuár-
unum. Ég renni huganum til baka
og dvel við nokkrar minningar frá
þessu timabili ævi minnar og út-
varpsins, margar góðar og
skemmtilegar, fáeinar ekki góðar
og ekki skemmtilegar. En ég
ætla ekki að fara aö þreyta
hlustendur á þeirri sögu, ég ætla
að minnsta kosti að geyma mér
það. En vegna þeirra atvika, sem
ég hef verið að ræða hér á undan,
heimtar ein þessara minninga að
ég segi frá sér með nokkrum orð-
um.
Fyrir þvi nær fjórum árum
varð útvarpið40 ára. Þá var hald-
in veizla aö Hótel Borg og okkur
starfsfólkinu var boðið i veizluna.
Mér er það ákaflega minnisstætt,
þegar þáverandi Menntamála-
ráðherra, æðsti yfirmaður út-
varpsins, steig I ræöustólinn og
tilkynnti viðstöddum að hið háa
Alþingi hefði gert samþykkt á þá
leiö, að hér eftir skyldi útvarpið
leggja til hliðar 5% af tekjum sin-
um I byggingarsjóð. Það leyndi
sér ekki i fasi ráðherrans, að
hann taldi sig vera að flytja hér
boðskap um heldur en ekki
myndarlega afmælisgjöf til hins
fertuga afmælisbarns. Þaö var
auðséð að hann ætlaðist til að það
yrði klappað — og það var klapp-
að. En ráðherrann var 1 svo góðu
skapi, að mega flytja þetta
fagnaðarerindi, að hann tók að
segja gamansögu, einhverja sögu
sem átti vel við þetta hátiðlega
tækifæri. Ég er nú búinn að
gleyma sögunni, en ég man að
mér þótti hún skemmtileg, og það
var hlegið.
Já, misjafnlega ferst forsjár-
mönnum almannafjár við börnin
sin. A þeim þvi nær 44 árum sem
liðin eru frá þvi aö útvarpiö var
stofnað, hafa mörg Alþingi setiö
og margar rikisstjórnir. Aldrei
fyrr en á þessu 40 ára afmæli
haföi, svo ég viti til, neinum al-
þingismanni né ráðherra dottið i
hug að veita fé til þess aö byggja
hús handa útvarpinu. Og þá var
fjárveitingin með þessum
myndarbrag, að útvarpiö mátti á
næstu árum, og sennilega áratug-
um, leggja til hliöar 5% af sinum
eigin peningum og byggja svo yfir
sig einhvern tima I framtiðinni.
Þangaö til skyldi þaö kúldrast
áfram i allt of þröngu húsnæði við
ófullnægjandi tækjakost sem
leigjandi hjá einhverri annarri
rikisstofnun. Þessi 5% munu
nema nálægt 15 milljónum á ári,
og var byrjað að leggja þetta til
hliöar á árinu 1972, svo þaö getur
orðið langur á þessu ómagaháls-
inn, ef það dæmi er reiknaö.
Reyndar byggja nú margir, þó
þeir eigi ekki fyrir öllum kostn-
aði, flestir taka lán. Hver veit
nema Seðlabankinn sæi aumur á
útvarpinu, ef það tæki á sig rögg
upp á Guð og lukkuna. Ég horfði
og hlustaði á sjónvarpsviötal við
nýja félagsmálaráöherrann á
mikudaginn var. Hann var spurð-
ur hvernig Rikisstjórnin ætlaði aö
afla fjár i eitthvað, sem hún var I
beknivi með. Hann savaraði mjög
bljúgurásvip: ,,Ja, Seðlabankinn
hjálpar nú kannski upp á sakirnar
hjá okkur. Hann hefur fyrr verið
okkur velviljaður”. Svo mér dett-
ur i hug hvort ráðherra okkar út-
varpsmanna, Menntamálaráö-
herrann núverandi, mundi ekki
lika með hógværö sinni geta lagt
inn gott orð fyrir þessa marg-
hrjáðu stofnun sina útvarpið, ef
hún hristi af slenið.
En svo ég sleppi öllu kallsi: Ég
hef oft undrazt það hve
stjórnmálamenn á tslandi hafa
gjörsamlega brugðizt skyldum
sinum við útvarpið. Við sem
munum fyrstu ár þess, og þá
kannski sérstaklega við, sem urð-
um starfsmenn þess minnumst
þess hve þjóðin var innilega glöð
að eignast þessa stofnun.
Eimskipafélagið var þá aö kom-
ast i efni og orðið það hátt til
hnésins, að það þurfti ekki lengur
á gælunafni sinu aö halda: Öska-
barn tslands. Þá tóku sér margir i
munn þetta nafn um útvarpiö. Sér
staklega held ég að það hafi verið
fólkið I sveitum landsins, sem
þótti vænt um útvarpið. En ekki
heldur fulltrúar sveitakjördæm-
anna á Alþingi hafa nokkurn
tima, mér vitanlega, flutt um það
tillögu að tryggja útvarpinu
sómasamleg starfsskilyrði. En nú
er útvarpið orðið það roskiö, að
engum dettur lengur i hug aö
kalla það barn, hvað þá Óskabarn
íslands. Eiginlega held ég að það
gælunafn sé ekki notaö um neina
stofnun i landinu nú. Þaö er leitt
til þess að vita. Hvernig væri að
eitthvert lýöræðisblaöanna fimm,
sem út eru gefin i Reykjavik, léti
fara fram skoðanakönnum, þar
sem vegfarendur yrðu spuröir
þessarar spurningar: „Eruö þér
meðmæltur þvi að gamalt og gott
gælunafn, Óskabarn Islands, sem
nú er laust til afnota verði gefið
Seðlabankanum?” Ég legg til að
fyrirspyrjandinn reki hljóönem-
ann alveg fyrirvaralaust upp i
andlitið á þeim, sem spurður er,
og ljósmyndarinn sem er með
honum smelli myndinni af um
leið. Ég held að þetta yröi
skemmtileg myndaseria.
Ég hætti þessum vangaveltum.
Mér verður hvort eð er ekkert úr
verki, svo ég fer heim aö fá mér
kaffisopa. Ég geng Ingólfsstræti,
fram hjá bárujárnsgirðingu
Seölabankans, og þegar ég er
kominn fram hjá henni, veröur
mér litiö yfir Arnarhólinn niöur á
Kalkofnsveg. Hvaö er þetta sem
ég sé? Stærðar skógur af grænum
trjám á hreyfingu suður Kalk-
ofnsveginn. Ég átta nig fljótt.
Borgarstjórinn ungi er að búa til
manneskjulegt umhverfi niöur I
Austurstræti. Þetta eru tré i pott-
um sem eiga að prýöa götuna. Nú
vil ég ekki aö neinn haldi, að ég sé
á móti því aö loka Austurstræti
fyrir bilaumferð. Þvert á móti.
Að visu hlýtur það aö skyggja
mjög á ánægju okkar með þessa
nýbreytni aö bæjaryfirvöldin
skuli fyrir mörgum árum hafa
fyrirbyggt það um allan aldur að
vegfarendur Austurstrætis gætu
hafiö augu sin upp á vesturloftiö,
hversu fagur sem kvöldroðinn
kann að vera, með þvi aö hlamma
þar niður Morgunblaðshöllinni.
Sjálfsagt hefur Birgir Isleifur
ekki um þá óhæfu kennt, en hitt
verður ekki afsakað, jafnvel með
æsku borgarstj. að vita lóö á
Arnarhólstúni undir Gabbróhöll
Seðlabankans og loka þar meö
um allan aldur fyrir Reykviking-
um þeirri dýrlegustu útsýn sem
til er i Reykjavik og nágrenni
hennar, þegar búið veröur aö rifa
stóra hjallinn sem kallaður er
Sænska-frystihúsið. Þeir menn
sem sliku valda, hvort sem þeir
eru ungir eöa gamlir, eiga ekki aö
taka sér I munn orðin
„manneskjulegt umhverfi”, eða
eins og leiöari Visis hét einn dag-
inn: „Manneskjan i öndvegi”.
Leiðarinn fjailaði um blómapott-
ana I Austurstræti. Nei, komizt
borgarstjórnin og Seölabankinn
upp með þetta nú geta Reykvik-
ingar átt það vist að eftir nokkur
ár verði stytta Ingólfs Arnarson-
ar flutt suður i Vatnsmýri og þvi
sem eftir er af Arnarhóli úthlutað
einhverri stofnun, sem þykir hafa
til þess veröskuldun. Kannski
verður Samvinnubankanum eða
Alþýðubankanum þá vaxinn svo
fiskur um hrygg aö þeir fái að
byggja þar sina Gabbróhöllina
hvor.
Ég er vist búinn að tala of lengi.
Ég vona aö mér verði talið það til
málsbóta að ég hef alltaf siðan ég
varð starfsmaöur útvarpsins haft
i heiðri danskt orðsprok sem ég
læröi ungur og er á islenzku eitt-
hvað á þessa leið „Skóari, haltu
þig við þinn leista”. En þó mér
hafi orðiö skrafdrjúgt um þessi
mál skal enginn halda að ég sé
eini starfsmaður útvarpsins sem
nú er heitt i hamsi. Stjórn starfs-
mannfélags okkar hefur boöaö
til fundar um málið og mun láta
almenning frá sér heyra. Starfs-
mönnum útvarpsins mun nú
þykja mælirinn fullur og skekinn.
Að lokum skora ég á, sem
flesta Reykvikinga, aö leggja leið
sina upp á Arnarhólinn næstu
daga ef vel viðrar og taka með sér
börn sin eða barnabörn. Þótt
Sænska-frystihúsið kljúfi nú hina
stórkostlegu útsýn af hólnum má
þó sjá hvernig hún verður þegar
búiö er að rifa það hrófatildur.
Cató hinn eldri sem var á dög-
um eitthvað tvö til þrjú hundruð
árum fyrir Kristsburð og átti sæti
i öldungaráöinu i Róm endaði all-
ar ræöur sinar á sömu setning-
unni sem hann hafði gert að kjör-
oröi sinu, og mátti einu gilda um
hvaö ræða hans hefði fjallaö.
Þessi setning hljóðaði svo: „Svo
lýsi ég að endingu yfir þeirri
skoðun minni að leggja beri
Karþagóborg i auðn”. Ég vil
ljúka máli minu meö svipuðum
hætti, og ég beini þeim tilmælum
minum til allra þeirra, sem sjá
um þætti I dagskrá útvarpsins að
fara að minu dæmi, og enda jafn-
an mál sitt á þessum orðum:
„Arnarhóllinn er friðhelgur stað-
ur, og skal vera þaö um allan ald-
ur. Megi sú hönd visna sem
hreyfir þann hóllL
Þorsteinn 0. Stephensen.
[bændurI
■ Gefið búfé yðar
vítamín- og
VIPPU - BllSKÚRSHURÐIN
I-k»XTUX
Lagerstærðir miðað við múrop:
Hæð: 210 sm x breidd: 240 sm
210 - x - 270 sm
Aðrar stærðir. smíÐaðar eftir beiðni.
GLUGGAS MIÐJAN
Síðumúla 12 - Sími 38220
Ægir eignast
bróður
i fyrradag var undirritaður.
samningur um byggingu á
nýju varðskipi. Byggingarað-
iiar eru Alborg Værft og Arhus
Flydedok. Fyrir hönd tslands
undirrituðu samninginn Pétur
Sigurðsson, forstjóri Land-
helgisgæzlunnar og Egill Sig-
urgeirsson hrl. en þeir eiga
báðir sæti i byggingarnefnd
auk óttars Karlssonar skipa-
Apollo
voru stödd 38 sjómilur norðvestur
af Grimsey. Varðskipinu tókst að
forðast árekstur i fyrstu, en eftir
siendurteknar tilraunir tókst frei-
gátunni að sigla á bakborðshlið
varðskipsins, og urðu nokkrar
skemmdir á skipunum.
Varðskipið var á siglingu við
Kolbeinsey, er freigátan stefndi
að þvi. Freigátan notaði sömu að-
ferðir og dráttarbátarnir og
freigáturnar hafa notað, það er að
sigla varðskipið uppi, beygja og
reyna að slá skutnum i hlið varð-
skipsins.
Eftir itrekaðar tilraunir tókst
freigátunni að slá skutnum i
varðskipið og skullu afturhlutar
skipanna saman.
Eftirtaldar skemmdir urðu á
Ægi: gat kom efst í ljósavélarúmi
og varð smá leki. A freigátunni
bognuðu sjö bönd inn stjórnborðs-
megin um eitt og hálft fet fyrir
neðan þilfar.
Varðskipið Ægir hafði ekki orð-
ið vart við brezkan togara allt frá
Langanesi, og enginn brezkur
togari var sjáanlegur nálægt
árekstrarstað. Það er enginn vafi
á að áreksturinn var beinn
ásetningur af hálfu brezku
freigátunnar Apollo”.
Fréttastofan Rauter og NTB
sendu út fréttaskeyti um atburð
þennan og eru þau byggð á
heimildum i brezka varnarmála-
ráðuneytinu. Að venju ber þeim
heimildum ekki saman viö frá-
sögn Landhelgisgæzlunnar.
Fréttaskeytið hljóðaði svo:
„LONDON 29.8 NTB—REUTER,
— Brezka freigátan Apollo og is-
lenzka varðskipið Ægir lentu á
miðvikudag i árekstri á miðun-
um norður af tslandi, segja
heimildir i varnarmálaráöuneyt-
inu i London.
Samkvæmt heimildunum varð
áreksturinn, þegar Apollo var að
vernda hóp brezkra togara, sem
voru að veiöum innan nýju 50
milna markanna við Island, en
Bretland viðurkennir ekki
þessi mörk.
Heimildirnar segja, að Ægir
hafi skyndilega breytt um stefnu
og siglt rétt fyrir framan stefni
brezku freigátunnar. Um leið og
Ægir gerði þetta gaf hann frá sér
tvö hljóðmerki. Apollo reyndi að
komast hjá árekstri, en þaö
reyndist ekki mögulegt.
Brezka varnarmálaráöuneytiö
heldur þvi fram, að áreksturinn
hafi stafað af hættulegum tilburð-
um islenzka varðskipsins.
„Litlar skemmdir urðu á skip-
unum”.
Timinn hafði samband við Haf-
stein Hafsteinsson hjá Land-
helgisgæzlunni og spuröi hann,
hvaö honum þætti um frétta-
skeytiö frá NTB og Reuter.
„Þessi fréttaflutningur dæmir
sig alveg sjálfur, enda er hann
byggður á heimildum i brezka
ráðuneytinu. Ég held, að sú stað-
reynd, ein út af fyrir sig, aö Ægir
gengur aðeins 20 sjómilur, en
freigátan gengur um 30 milur,
sýni, að fréttin er helber ósann-
indi”, sagði Hafsteinn.
— gj-
verkfræðings og Guömundar
Kærnested skipherra.
Skipið verður afhent i
desember 1974, og er samn-
ingsverð d. kr. 29 millj. 642
þúsund, og nemur það sam-
kvæmt núverandi gengi i Is-
lenzkum krónum 416 millj. 381
þúsundum. Hið nýja skip
verður i öllum megin atriðum
eins og varðskipið Ægir.
0 Vísi stefnt
halda þvi fram, að Vísir sé
meö ótuktarskap og kvikindis-
hátt. Slikt tiðkast ekki hér á
blaðinu. Við höfum ekki enn
rætt viö lögfræðing blaðsins,
en við höföum mál á móti, ef
ástæða þykir til. Ekki skortir
nú meiðyröin i okkar garð I
bréfinu.
Úr þessu þarf
að skera
Eins og sjá má, stendur hér
fullyrðing gegn fullyrðingu, en
vonandi fæst úr þvi skorið,
hver fer með rétt mál, því að
vitaskuld er það með öllu óvið-
unandi, ef blaðamenn leyfa
sér að afbaka orð manna eða
gera þeim upp orð, sem þeir
i'iafa aldrei látið út úr sér, sem
og hitt, að menn sem tekið
hafa meira upp i sig en þeir
eru menn til aö standa við, fái
átölulaust að veitast að blaða-
mönnum og ásaka þá um lyg-
ar.
Loks má hnýta þvi hér aftan
i, að Páll Heiðar Jónsson mun
ræða við Þórunni og önund i
þætti sinum, „Vikan sem
var”, á laugardaginn kemur.
HHJ
0 Sviptingar
Norðurár, sagöi Timanum, að
leigutilboðin hljóðuðu upp á eitt
til fimm ár, en til lengri tima
hefði aldrei komið til greina að
leigja ána. Sum leigutilboðin eru
til mismunandi timalengdar og
þannig gerði Stangaveiðifélagiö
fimm mismunandi tilboð.
Ymsar blikur eru á lofti, og
virðist einsýnt, að Stangaveiðifé-
lagið verði að sæta allhörðum
kostum, ef það á að halda ánni.
Meðal annars mun vérða að láta
veiðihús i landi Litla-Skarös, sem
talin eru tiu milljón króna virði
eða meira, renna til veiðieigenda
að loknu leigutimabilinu, ef það
ætlar sér að halda ánni. Þess er
þó að gæta, að á þvi hvila miklar
veðskuldir, sem stofnað var til
vegna byggingar veiðihússins viö
Grimsá. Mun halli hafa orðiö á
rekstri félagsins i Borgarfirði tvö
siöustu ár, og bandarisk ferða-
skrifstofa, Mayfair Travel, er það
hafði samið við um sölu á veiöi-
leyfum i Bandarikjunum, hefur
sagt upp þeim samningum, þar
sem hún hagnaðist ekki á þessum
viðskiptum.
Komið hefur til greina, að Páll
Jónsson og feröaskrifstofa Zoéga
gangi til samninga viö Stanga-
veiðifélagiö gegn þvi, aö þeir aðil-
ar fái ána til umráða og leigu
handa útlendingum á timabilinu
frá 1. júli til 5. ágúst.
Um allt þetta hélt fulltrúaráð
Stangaveiðifélags Reykjavikur
fulltrúaráðsfund á þriðjudags-
kvöldið, og I kvöld hefur verið
boðað til almenns félagsfundar til
þess að ráða til lykta, hvaö gera
skuli.
Blaðinu tókst ekki i gærkvöldi
að ná i Barða Friðriksson, for-
mann Stangaveiðifélags Reykja-
vikur, og flestir aðrir, sem blaðið
haföi tal, af vörðust aö mestu
leyti frétta af þessu máli, er
margir munu iáta sig miklu
skipta.
Atvinna
Viljum ráða nú þegar bifreiðastjóra og af-
greiðslumann i vörugeymslu.
Kaupfélag Árnesinga
Selfossi.