Tíminn - 01.11.1973, Qupperneq 5
Fimmtudagur 1. nóvember 1973.
TÍMINN
5
Gufimundur Daníelsson.
Kári Tryggvason.
Blindingsleikur
— í annari útgdfu
BLINDINGSLEIKUR Guð-
mundar Danielssonar er nú kom-
in út i annarri útgáfu. Hún er átt-
unda bókin, sem út kemur i rit-
safni höfundar, en hann hefur alls
sent frá sér yfir þrjátiu bækur.
Þegar Blindingsleikur kom upp-
haflega út árið 1955, hlaut bókin
frábærar viðtökur. Skáldsagan
Blindingsleikur er allt i senn:
ástarsaga, afbrotasaga og saga
um ótta og hugrekki. Hún lýsir
mannssálinni á úrslitastund, þeg-
ar leitin að betra lifi hefur borið
hana út á yztu þröm og hún mætir
sjálfri sér, þegar blindleikurinn
hefur náð hámarki og skýlan fell-
ur frá augunum. Fullyrt skal, að
sagan fjallar um sigilt og al-
mannlegtefni og að hún er spenn-
andi. Isafoldarprentsmiðja gefur
út. Bókin er 175 biaðsiður sb
Skemmtilegir skóladagar
—önnur útgdfa
SKEMMTILEGIR SKÓLADAG-
AR eftir Kára Tryggvason er nú
komin út i annarri útgáfu. Fyrri
útgáfan kom út 1962. 1 bókinni
segir frá skólaferð Disu og stall-
systkina hennar, leik skólakrakk-
anna i fristundunum og svo er
þarna lika fallegt ævintýri fyrir
börn, sem skólakennarinn segir
þeim fyrir jólin. Að lokum segir
frá verðlaunum, sem Disa litla
vinnur.
Þess má geta, að Disa þessi er
sú hin sama og Disa frá Græna-
læk, sem var ein vinsælasta
barnabókin á sinum tima, en hún
kom fyrst úr 1951, næst 1959 og
loks 1970. Raunar hefur Kári sent
frá sér fleiri sögur um Dfeu litlu.
Skemmtilegir skóladagar er 97
blaðsiður, með teikningum eftir
Odd Björnsson og kápumynd eftir
Benedikt Gunnarsson. Isafoldar-
prentsmiðja gaf út og prentaði.SB
UR BYGGÐUM
BORGARFJARÐAR
— þriðja bindi með nafnaskrd
ÚT ER KOMIÐ þriðja bindi af
„Úr byggðum Borgarfjarðar”
eftir fræðimanninn Kristleif Þor-
steinsson. Er þetta önnur útgáfa
safnsins, en fyrsta bindið kom út i
fyrri útgáfu 1944 og annað bindi
1946. Þriðja bindið kom áður út
1960. Þvi fylgir nafnaskrá. Þórður
Kristleifsson, sonur höfundar,
hefur búið verkið til prentunar og
skrifað formála. Þar segir hann:
1 bók þessari birtast kaflar sér-
stæðs eðlis: búendatal i þremur
hreppum i Borgarfirði. Lýsing á
eðli, útliti, hugsunarhætti, högum
og hæfileikum þeirra sem við
sögu koma á þessum vettvangi,
munu mynda holl vináttutengsl
milli eftirkomenda þessa fólks,
sem flest var rikt af góðvild, en
fátækt af fé. Bókin er stór, 400
blaðsiður. tsafoldarprentsmiðja
gefur út.
—SB.
Fyrir Spdnarfara:
Spænsk-íslenzk
orðabók komin út
Isafoldarprentsmiðja hei'ur
sent frá sér sæpnsk-islenzka
orðabók. Er hún eftir Sigurö
Sigurmundsson. 1 formála segir
höfundur, að hann hafi unnið
verkið fyrir sig einan, en atkvikin
hafi hagað þvi þannig, að það
komi nú fyrir almenningssjónir.
Segist hann hafa byrjað með þvi
að styðjast við spænskt-enskt
orðasafn en of timafrekt reynzt
að fletta hverju orði tvisvar upp,
og þvi hafi hann gripið til þess
ráðs að þýða orðasafnið úr ensku
yfir á islenzku. Orðabókin er 185
blaðsiður að stærð, i sams konar
bandi og aðrar orðabækur heims-
málanna, sem til eru á is-
lenzku. —Sb
Frímerkjaverðlistinn
—100 dra hdtíðarútgdfa
ISLENZK FRtMERKI 1974, er
komin út. Er þetta 100 ára há-
tiðarútgáfa i tilefni afmælis is-
lenzka frimerkisins i sumar. Sig-
urður H. Þorsteinsson hefur tekið
verðlistann saman og skrifar for-
mála fyrir útgáfunni, sem er hin
18. i röðinni af verðlistanum. Seg-
ir þar, að nú hafi farið fram gagn-
ger endurskoðun á listanum og
sérstaklega sé vandað til verð-
lagningar að þessu sinni og reynt
að komast sem allra næst raun-
vérulegu markaðsverði. Segja
má, að hvert einasta frimerki
hafi hækkað i verði i listanum.
Ýmsan meiri fróðleik en verð fri-
merkja er að finna i listanum,
sem nú er 140 blaðsiður. lsa-
foldarprentsmiðja gefur verðlist-
ann út. —Sb.
Tvær nýjar bækur um
Siggu og Skessuna
ATTUNDA OG NtUNDA
Skessubókin eru nú komnar út hjá
lsafoldarprentsmiðju. Fjalla þær
allar um Siggu litlu og skessuna i
fjallinu. Sögurnar eru eftir Her-
disi Egilsdóttur kennara og eink-
um ætlaðar átta og niu ára börn-
um. Sagt er á skemmtilegan hátt
frá samskiptum Siggu litlu i
sveitinni og skessunar góðu i
fjallinu. Höfundur hefur einnig
teiknað myndirnar, sem eru
margar og skemmtilegar. Letrið
er stórt og aðgengilegt börnum.
Nýju bækurnar eru 32 og 42 blað-
siður, heftar og al'tast eru spurn-
ingar úr sögunni handa barninu
að svara. —SB.
Skrautkerti llmkerti
Aðventukerti Figúrukerti Borðskraut Jólaskraut
Tertuskraut Jóla-
pappír Leikföng.
Sendum
í póstkröfu
tUUeUöldi,
KJALLARAIMUM AUSTURSTOÆTI SÍMI 14376