Tíminn - 01.11.1973, Side 8

Tíminn - 01.11.1973, Side 8
TÍMINN Frumvarp til jarðlaga lagt fram á Alþingi: Byggðarlögum veitt meira áhrifavald um hvernig jörð- um og landi er ráðstafað A mánudag voru eftirfar- andi fyrirspurnir lagðar fram á Alþingi: Til félagsmálaráðherra um styttingu vinnutlmans. Frá Pétri Sigurðsyni. 1. Hvað er áætlað að stór hluti launþega hafi fengið raun- verulega (effektiva) vinnu- timastyttingu með setningu laganna 1971 um styttingu vinnutimans? 2. Hver er áætluð kaupmáttar- aukning hjá þeim launþegum, sem notið hafa vinnutima- styttingarinna að fullu á þvi timabili, sem liðið er frá setningu umræddra laga, og um hvaða launþegahópa er hér helzt að ræða? Til dómsmálaráðherra um Landhelgissjoð og innheimtu- menn hans. Frá Pétri Sigurðssyni. 1. Hvað á Landhelgissjóður mikið óinnheimt: a. af sektarfé islenzkra skipa, b. af sektarfé erlendra skipa? 2. Hvaða embætti sýslumanna og fógeta eiga þessar skuldir óinnheimtar, og hver er upphæðin hjá viðkomandi em- bættum hverju fyrir sig? Til heilbrigðismálaráðherra um byggingu læknisbústaðar á Hóimavik. Frá Steingrimi Hermanns- syni. 1. Hað hefur tafið byggingu læknisbústaðar á Hólmavik? 2. Hvenær má gera ráð fyrir þvi, að bygging hefjist og henni ljúki? 3. Hver verður hlutur rikis- sjóðs I kostnaði við byggingu þiessa læknisbústaðar? Til samgönguráðherra um hafnaáætlun. Frá Steingrimi Hermanns- syni. 1. Hvenær má gera ráð fyrir þvi, að áætlun um fram- kvæmdir við hafnir landsins verði lögð fyrir Alþingi? 2. Hvað tefur gerð umræddrar áætlunar? Til sjávarútvegsráðherra um rekstrargrundvöll skuttogara. Frá Halldóri Blöndal. 1. Hve miklu nam tap togaraútgerðarinnar 1972? 2. Hvaða ráðstafanir hyggst rikisstjórnin gera til þess að tryggja rekstur hinna nýju skuttogara? Til f jármálaráðherra um verkfallsrétt opinberra starfs- manna. Frá Halldóri Blöndal. 1. Hvað liður heildarendur- skoðun laga um kjara- samninga opinberra starfs- manna? 2. Hefúr fjármálaráðherra i hyggju að leggja fram frum- varp um fullan samningsrétt og verkfallsrétt opinberra starfsmanna á þessu þingi? Til sjávarútvegsm álaráð- herra um athugun á rekstri skuttogara. Frá Jóni Árm. Héðinssyni. 1. Hvaða athugarýr hafa átt sér stað um afkomu hinna nýju skuttogara á yfirstand- andi ári? 2. Má gera ráð fyrir,að meiri hluti þeirra geti staðið i skil- um með greiðslur á vöxtum og afborgunum? 3. Er einhver aðili, sem fylgizt skipulega með þeim göllum eða bilunum, sem fram koma á fyrsta ári? 4. Hvað má gera ráð fyrir miklu meðalaflamagni og verðmæti á ári hjá 500 brt. skuttogara? Halldór E. Sigurðsson, land- búnaðarráðherra, hefur lagt fram frumvarp til jarðalaga. Ennfremur hefur hann endurflutt stjórnarfrumvarp nýrra ábúðar- laga. i fyrstu grein frumvarpsins segir að tilgangur laganna sé að tryggja, að nýting lands utan skipulagðra þéttbýlissvæða sé eðlileg og hagkvæm frá þjóðhags- lcgu sjónarmiði og að cignarráð á landí og búseta á jörðum sé i samræmi við hagsmuni sveitar- félaga og þeirra, sem landbúnað stunda. I athugasemdum um 1. gr. frumvarpsins segir: A undanförnum árum hefur eftirspurn eftir landi til annarra nota en landbúnaður farið stór- vaxandi. Einkum hafa jarðir ver- ið keyptar háu verði, þar sem góð aðstaða er til að setja niður sumarbústaði, eöa eftirsóknar- verð hlunnindi fylgja jörðum, svo sem veiði. Verðslikra jarða er þegar orðið svo hátt að sjaldnast er viðráðan- legt fyrir bændur að kaupa þær, og reynist oft fullerlitt lyrir sveitarfélög, þrátt fyrir að þau eiga lögboðinn forkaupsrétt. Afleiðingin er þvi sú, að margar vildisbújarðir hafa verið skákað- ar niður, en það hefur torveldað eðlilegan búrekstur, og á mörg- um hefur föst búseta lagzt niður, vegna jarðarkaupa félagssam- taka eða manna, sem ekki hyggja á búskap. Rétt verður að teljast að gefa þéttbýlisbúum og öðrum, sem eft- ir sækjast, kost á landspildum til ræklunar og útivistar og trt a& reisa sumardvalarhús. Reynslan sýnir hins vegar nú þegar, að brýn þörf er á að fylgj- ast með slikum ráðstöfunum lands og hafa áhrif á, hvar og hvernig landi er ráðstafað á þann hátl. Að öðrum kosti vofir yfir stórfelld röskun á búsetuaðstöðu fólks á dreifbýlissvæðum umfram það, sem þegar er orðið,og óeðli- leg verðhækkun lands. Lögum þessum er m .a. ætlað að veita byggðarlögunum meira áhrifavald i þessu efni, styrkja aðstöðu bænda, bændaefna og sveitarfélaga til jarðakaupa, skapa aðstöðu til að fylgjast með öllum ráðstöfunum fasteigna og fasteignaréttinda, utan skipu- lagðra þéttbýlissvæða; og hafa áhrif á verðlag þeirra. t athugasemdum með frum- varpinu segir: „Búnaðarþing 1971 samþykkti ályktun um að fela Búnaðarfélagi tslands að hlutast til um við land- búnaðarráðherra að skipa nefnd, til þess að endurskoða eftirtalin lög: 1. Lög um kauprétt á jörðum nr. 40 frá 5. april 1948. 2. Ábúðarlög nr. 36 29. marz 1961. 3. Lög um ættaróðul, ættarjarðir, erfðaábúð og sölu þjóð- og kirkjujarða nr. 102 21. desem- ber 1962. 4. Lög um Jarðeignasjóð rikisins nr. 54 27. april 1967. Hlutverk þeirrar nefndar, sem skipuð yrði, skyldi vera að gera frumvarp til nýrra laga um framangreind efni eða breyt- ingartillögur á gildandi lögum, þar sem þess yrði meðal annars gætt, að aðstaða sveitarfélaga og einstaklinga, búsettra innan þeirra,við að ná og halda eignar- og umráðarétti á landi innan við- komandi sveitarfélaga, yrði tryggð sem bezt, einnig að ábúð- ar- og erfðaábúðarlög verði gerð einföld og réttlát i framkvæmd. Hinn 18. ágúst 1971 skipaði Halldór E. Sigurðsson — landbúnaðarráðhcrra. landbúnaðarráðherra nefnd til þess að starfa að þessu verkefni Nefndina skipuðu Asgeir Bjarna- son, alþingismaður, formaður, Sveinbjörn Dagfinnsson, skrif- stofustjóri og Arni Jónasson, fulltrúi. Dr. juris Gaukur Jörundsson, prófessor hefur verið nefndinni til ráðuneytis við samn- ingu frumvarps þessa. Nefndin hefur haldið marga fundi og átt viðræður við ýmsa varðandi viðfangsefni sitt. Meðal annarra;búnaðarmálastjóra, for- mann Stéttarsambands bænda, framkvæmdastjóra Sambands sveitarfélaga, skipulagsstjóra, skógræktarstjóra, auk viðræðna við ýmsa bændur og sveitar- stjórnarmenn. Nefndin hefur aflað sér upplýs- inga um meðferð jarða og fast- eigna utan þéttbýlissvæða i Noregi, Sviþjóð og Danmörku. t>á hefur nefndin farið yfir nú- gildandi ábúðarlög, lög um ættar- óöul, ættarjarðir, óðalsrétt og erfðaábúð. Nefndin kynnti sér, hver væri fjöldi skráðra ættar- óðala og ættarjarða við öll sýslu- mannsembættin. Niðurstaða þeirra athugana er sú, að mjög fáir bændur hafa gert jarðir sinar að ættaróðulum aðrir en þeir, sem keypt hafa jarðir af rikinu, en þá er það skylda. Allmörg dæmi eru þess, að bændur, sem eiga óðalsjarðir, hafa fengið jarðir sinar leystar undan ákvæðum óðalslaga sam- kvæmt heimild i lögum nr. 18 frá 1968. Ættarjarðir eru sárafáar skráðar, þó að vitað sé að mikill fjöldi jarða hefur verið lengur i eigu eða ábúð sömu ættar en 75 ár, og við athugun nefndarinnar upplýstist, að andstaöa er meðal eigenda fjölda jarða, að þær verði gerðar að ættarjörðum. Að fengnum upplýsingum og eftir athugun á gildandi laga- ákvæðum um framanskráð efni var ákveðið að leitast við að stytta ábúðarlögin frá 1961, auk efnisbraytinga, sem á þeim yrðu gerðar. Akvæði um ættaróðul, óðalsrétt og erfðaábúð halda sér litið breytt, en kaflinn um ættar- jarðir er felldur úr gildi. Ákveðið var að taka efni það, sem fjallað hefur verið um saman I tvo lagabálka, sem bera heitin Jarðalög og Ábúðarlög. t Jarða- lögunum eru nýmæli i islenzkum lögum um meðferð á landi og eignarhald á jörðum, landi og landspildum. t nóvembermánuði s.l. var nefndinni að auki falið af nefnd, sem endurskoðar lög um land- nám rikisins, Stofnlánadeild landbúnaðarins o.fl., að fella inn i Jarðalagafrumvarpið ákvæði úr IV.-VIII. kafla laga nr. 45/1971, sem þörf var talin á, að héldu áfram gildi, þó lögin yrðu felld úr gildi i núverandi formi. t Jarðalög eru tekin ákvæði um byggðaráð, hvernig skuli fara með hvers konar aðilaskipti að umráðum yfir fasteignum og fasteignaréttindum, auk þess ákvæði um forkaupsrétt að jörð- um, jarðir i opinberri eign, Jarð- eignasjóð og óðalsjarðir. t ábúðarlögin er bætt inn kafla um erfðaábúð og er þannig lögum nr. 102/1962 um ættaróðul, ættarjarðir, erfðaábúð og sölu jarða i rikiseign skipt upp milli þessara tveggja lagabálka.” Sem fylgiskjöl með frumvarp- inu fylgja stutt yfirlit yfir afskipti rikisvalds og sveitarstjórna á eignahreyfingum á jörðum, lóð- um og lendum utan skipulagðra svæða I Noregi, Sviþjóð og Dan- mörku. Þau þykir Timanum rétt að birta, þar sem þessi mál eru svo mjög i brennidepli nú hér á landi: Noregur Samkvæmt lögum, sem sett voru á timabilinu frá árinu 1909 til 1920, þarf leyfi landbúnaðarráðu- neytisins til þess að eigendaskipti geti orðið að landeignum utan skipulagðra svæða og gildir þar jafnt, hvort um er að ræða skóg- lendi, mýrlendi, fjalllendi eða ræktað land. Akvæðum þessara laga hefur verið beitt allt fram til þessa dags og þannig, að hvenær sem eigendaskipti eru áformuð að landi eða bújörð, verður að leggja inn beiðni um heimild til eigendaskiptanna, áður en þau eru endanlega framkvæmd. t norskum lögum frá 18. marz 1955, jarðalögum, er ákvæði um for- kaupsrétt rikisins að bújörðum, skóglendum og fjalllendum, sem áformað er að selja eða að láta af hendi á annan hátt. Tilgangur þessara lagaákvæða er sá að reyna að tryggja það, að land verði nýtt á sem hagkvæmastan hátt fyrir þjóðfélagið og þá, sem hafa afkomu sina af landbúnaði. Enn fremur er það tilgangurinn að gæta þess,svo sem tök eru á,að hafa hamlandi áhrif á miklar verðhækkanir lands. Mörg dæmi eru þess, að norska landbúnaðar- ráðuneytið hafi neitað að heimila eigendaskipti að jörð, þar sem að mati ráðuneytisins hefur verið um of hátt kaupverð að ræða. Slíkar neitanir byggjast gagngert á þvi að gera það, sem tök eru á, til þess að halda verðlagi lands niðri. Slik afstaða er m.a. rök- studd með þvi, að norska rikið hafi aukið verðmæti lands með framlögum og eigin framkvæmd- um. Beiðni um eigendaskipti að landi, þar sem ástæða er til að ætla,að áformað sé að skipta landi niður i hagnaðarskyni, t.d. i sumarbústaðalóðir, er að jafnaði neitað. Norska rikið er ekki skylt að kaupa land, sem það leyfir ekki sölu á. Akvæði er i lögum um það, að engri þeirri jörð, sem hægt er að nota til landbúnaðar; megi skipta niður, nema að áður fengnu sérstöku samþykki land- búnaðarstjórnar viðkomandi héraðs. Algengt er, að norska rikið noti forkaupsréttarheimild sina og kaupi þær jarðir og landspildur, sem til sölu eru eða eigendaskipti eru áformuð á af öðrum ástæðum. Slikt er nær undantekningarlaust gert i hagræðingarskyni til þess að fella saman jarðir i stærri ein- ingar eða á annan hátt að auka hagkvæmni við landbúnað, og eru þessar eignir þvi að öllum jafnaði seldar aftur innan tiltölulega skamms tima, frá þvi að rikið eignaðist þær. Til þess að annast kaup og sölu fasteigna og lands i þessu skyni starfar sérstakur sjóður, er Norð- menn kalla Jordfond,og fær hann fjárveitingu eftir þvi, sem þörf krefur á fjárlögum hvers árs. Fyrir Stórþinginu liggur nú frumvarp að lögum um leyfi til þess að eignast fasteign (kon- sesjonsloven). Tilgangurinn með þessu lagafrumvarpi er, að lögin komi i stað þeirra laga, sem áður hafa gilt um eigendaskipti að fasteignum á dreifbýlissvæðum, og taka nánari afstöðu til þarfa landbúnaðarins, þéttbýlissvæða, almennrar náttúruverndar og útilifsáhugamála. t þvi eru ákvæði um, að ekki geti orðið eig- endaskipti að fasteignum utan skipulagðra svæða, nema með leyfi ráðuneytisins, og jafnframt er i frumvarpinu ákvæði um for- kaupsrétt rikis og sveitarfélaga að þeim fasteignum, sem til sölu eru eða eigendaskipti eru áform- uð á. t frumvarpinu er tekið fram, að.leyfi til eigendaskipta skuli ekki veitt, þar sem ástæða þykir til að ætla, að kaupandinn ætli sér fyrst og fremst að afla eignarinn- ar til þess að ávaxta á þann hátt fé,og heldur ekki ef ástæða er til þess að ætla,að sá, sem eignina ætlar að kaupa eða yfirtaka, ætli sér með þvi að hafa fjárhagslegan ávinning af að selja eignina aftur eða hluta af henni innan skamms tima. Sviþjóð t Sviþjóð hafa verið i gildi lög allt frá árinu 1916, sem hafa i för með sér vissar takmarkanir á rétti manna til þess að hafa frjáls eigendaskipti að bújörðum. Nú giida um þetta efni lög nr. 290 frá Fimmtudagur 1. nóvember 1973. 1965. t 1. gr. þeirra laga segir, að ekki megi verða eigendaskipti að fast'eign, sem sé skattlögð sem jörð, nema með leyfi viðkomandi landbúnaðarráðs, ef um er að ræða kaup, skipti eða gjöf, viðbót við fyrri eign eða skipti út úr eign. Landbúnaðarráð eru lögboðin i öllum lénum Sviþjóðar. Undantekningar eru frá þessu ákvæði laganna, m.a. ef eignin er keypt af riki eða sveitarfélagi, ef eignin er keypt á nauðungarupp- boði eða þéttbýli er skipulagt á henni. t lögunum segir, að um- sókn um leyfi'til eigendaskipta sé heimilt að neita, þegar ástæða er til að ætla, að aðaltilgangurinn með kaupunum sé ekki sá að reka landbúnað á eigninni. Enn fremur segir i lögunum, að þegar rikið neitar um leyfi til eigendaskipta að fasteign, þá sé það skylt, ef seljandinn hefur rekið þar land- búnað, að kaupa eignina á þvi verði, sem seljandinn átti kost á að fá fyrir eignina, en skyldan nær ekki til þess að kaupa, ef verðið telst óeðlilega hátt. Framkvæmd þessara laga er þannig, að þegar kaup á fasteign- um eru áformuð, þá eru umsóknir lagðar til landbúnaðarráðs við- komandi léna, sem eru undir stjórn landbúnaðarráðuneytisins, en fjallað er um leyfin i land- búnaðarráðuneytinu. Þegar neit- að er um leyfi til sölu a jörð af hagkvæmnisástæðum, er venjaf að rikið kaupi slikar eignir. Þegar kaup virðast áformuð i þvi skyni aðhafa af þvi sérstakan fjárhags- legan ávinning, þá er það megin- regla, samkvæmt upplýsingum þeirra, sem hafa með fram- kvæmd laganna að gera, að neita um leyfi til sölu. Takmark laga þessara er. að auka hagkvæmni i landbúnaði og i nýtingu lands. Aðalgreglan er sú, að leyfi eru veitt til sölu jarða, og meira frjálsræði rikir nú á þessu sviði, heldur en var. Sam- kvæmt ársskýrslu sænska land- búnaðarráðuneytisins fyrir árið 1970 yfir störf landbúnaðarráða landsins hefur á þvi ári verið neitað um leyfi til þess að selja jarðir eða fasteignir utan þétt- Framhald á bls. 19 lÍÍ GFBET' ■

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.