Tíminn - 01.11.1973, Page 9

Tíminn - 01.11.1973, Page 9
Fimmtudagur 1. nóvember 1973. TÍMINN 9 Útgefandi Framsóknarflokkurinn Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þór- arinn Þórarinsson (ábm.), Jón Helgason, Tómas Karlsson. Auglýsingastjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrif- stofur i Edduhúsinu við Lindargötu, simar 18300-18306. Skrif- stofur i Aðalstræti 7, simi 26500 — afgreiðslusími 12323 — aug- lýsingasimi 19523. Askriftagjald 360 kr. á mánuði innan lands, i lausasölu 22 kr. eintakið. Blaðaprent h.f. Næsta stórvirkjun verði norðanlands Fjórir þingmenn Framsóknarflokksins, þeir Steingrimur Hermannsson, Stefán Valgeirs- son, Ingvar Gislason og Jónas Jónsson, hafa lagt fram i Sameinuðu þingi tillögu um, að markvisst skuli stefnt að þvi, að næsta stór- virkjun landsmanna eftir Sigölduvirkjun verði utan Þjórsársvæðisins, t.d. á Norðurlandi, og sé rikisstjórninni þvi falið að láta haga virkjanarannsóknum og öðrum undirbúningi þannig, að svo geti orðið. í greinargerðinni segir, að i mörg ár hafi verið um það talað, að næsta stórvirkjun yrði á Norðurlandi og sú stóriðja, sem kynni að risa i þvi sambandi. Þetta var fullyrt, þegar ráðizt var i Búrfellsvirkjun og álbræðslan reist. Það hafa hins vegar reynzt orðin tóm. Rannsóknir á virkjunaraðstöðu utan Þjórsársvæðisins hafa ekki einkennzt af sliku markmiði, þrátt fyrir það að utan þess eru sumir af hagkvæmustu virkjunarstöðum þessa lands. Með u.þ.b. 10% árlegri aukningu á orkuþörf landsmanna mun Sigölduvirkjun aðeins fullnægja þörfum i 3-4 ár. Hönnun næstu stór- virkjunar þarf þvi að hefjast um það leyti, sem Sigölduvirkjun er lokið, eða á árinu 1976. Ef ekki verður þegar breytt um stefnu og mark- visst unnið að undirbúningi að einni virkjun, t.d. á Norðurlandi, bendir allt til þess, að næsta virkjun eftir Sigöldu verði Hrauneyjarfoss í. Tungnaá. Þar er þegar allt tilbúið til hönnunar og framkvæmda. Flestum mun ljóst, að æskilegt er að dreifa stórvirkjunum um landið. Þjórsársvæðið er á eða við jaðar eins mesta eldfjallasvæðis lands- ins. Eitt kröftugt eldgos i Heklu gæti lagt allar virkjanir þar i rúst á einni nóttu. Virkjanarannsóknir utan Þjórsársvæðisins hafa verið takmarkaðar og dreifðar, og segja má, að þær hafi verið reikular og án mark- miðs. Liklega hefur mestu fjármagni verið varið til rannsókna á flutningi Jökulsár á Fjöllum og Jökulsár á Brú yfir i Fljótsdals- hérað. Þessar hugmyndir hafa verið óljósar, ekki sizt með tilliti til þess að aldrei hefur þeirri spurningu verið svarað, hvernig ætti að nýta þau 1000 megawött, sem þannig fengjust. Þó hefur verið litið á aðra virkjunarmögu- leika. Af þeim virðast álitlegastir annars veg- ar virkjun Dettifoss og hins vegar virkjun Blöndu. Þó er einnig rætt um virkjanir i Skagafirði og stóra jarðhitavirkjun á Kröflu- svæðinu. Að öllum likindum eru allir þessir valkostir álitlegir, og e.t.v. skiptir ekki höfuð- máli, i hvaða röð þeir eru valdir. Því virðist auðvelt að einbeita rannsóknum að einum ákveðnum stað, sem yrði valinn með tilliti til hæfilegrar stærðar. Þegar virkjað er stórt á Norðurlandi, er nauðsynlegt að tengja þá virkjun við Suðvest- urlandið. í þvi sambandi er talað um tvo mögu- leika, annars vegar linu um byggð og hins vegar linu yfir hálendið, annað hvort niður i Eyjafjörð eða Bárðardal. öllum mun vera ljóst, að lina um byggð hefur marga kosti. Hún er I fyrsta lagi öruggari, og i öðru lagi þjónar hún mikilvægum byggðarlögum á leið sinni. Þvi ætti að vera auðvelt að ákveða nú þegar þá leið. Þ.Þ. ERLENT YFIRLIT Verður þingræði endur reist í Grikklandi? Vantrú rikir á tilraun Markezinis l’apadopoulos Markeznis FYRIR skömmu gerði Papadopoulos, einræðisherra Grikklands, þær breytingar á rikisstjórn sinni, að hann lét herforingjana, sem höfðu setið i henni siðan 1967, vikja, og fól þekktum stjórnmálamanni, Spyros Markezinis, að mynda nýja rikisstjórn, sem skipuð er mönnum utan hersins, aðal- lega embættismönnum. Það á að vera meginhlutverk hinnar nýju stjórnar að efna til frjálsra þingkosninga á næsta ári og færa stjórnarfar Grikk- lands þannig i lýðræðislegra form. Breytingar þessar á stjórnarforminu eru ekki sizt gerðar vegna gagnrýni þeirr- ar, sem herforingjastjórnin hefur sætt innan vébanda Nato og Efnahagsbandalags Evrópu. Af sömu ástæðum létu herforingjarnir i Tyrk- landi undan og efndu til þing- kosninga þar i siðastl. mánuði, og er nú unnið þar að stjórnar- myndun á grundvelli þeirra úrslita, sem urðu i kosningun- um. Flestir þeirra, sem til þekkja, efast um, að kosn- ingarnar verði frjálsar. Þær hömlur verða strax settar, að hvorki konungssinnar né kommúnistar fá að bjóða fram. Jafnvel þótt kosningarnar yrðu tiltölulega frjálsar innan þess ramma, myndu þær ekki breyta miklu. Samkvæmt hinni nýju stjórnarskrá, sem her- foringjastjórnin fékk sam- þykkta i þjóðaratkvæða- greiðslu i fyrra, eru völdin fyrst og fremst i höndum for- setans. Völd þingsins eru m jög takmörkuð. Þó gæti það gert nokkurt gagn, ef þar kæmi fram nokkurn veginn rétt mynd af þjóðarviljanum. 1 framhaldi af stjórnar- skrárbreytingunni i fyrra, var Papadopoulos kosinn forseti til átta ára, og hefur hann þannig tryggt sér völdin til 1980, ef honum verður ekki steypt af stóli með einhverjum hætti á timabilinu. ÞAÐ hefur gert umrædda stjórnarbreytingu i Grikk- landi nokkuð sögulegri og um- talsverðari en ella, að nýi for- sætisráðherrann, Spyros Markezinis, er þekktur og um- deildur stjórnmálamaður frá árunum fyrir byltingu herfor- ingjanna 1967. Markezinis fæddist 9. april 1909, og á fæðingardagur hans þátt i þvi, að hann heldur upp á töluna 9. Afi hans og faðir voru báðir þingmenn, og hlaut hann þvi pólitiskt uppeldi, ef svo mætti segja. Hann lagði stund á laganám og lauk góðu lögfræðiprófi. Álit hans á þessum tima má nokkuð ráða af þvi, að árið 1936 var hann ráðinn lögfræðilegur ráðu- nautur Georgs II Grikkjakon- ungs. Hann var kosinn á þing 1946sem fulltrúi fhaldsmanna, sem varð viðskila við þá ári siðar og stofnaði þá nýjan flokk, sem hlaut litið fylgi. Það var ekki sizt fyrir áeggjan hans, að Papagos hershöfð- ingi, sem var þjóðhetja Grikkja frá heimsstyrjaldar- árunum, ákvað að mynda flokk og taka þátt i þing- kosningunum 1953. Flokkur Papagos vann mikinn sigur, og myndaði Papagos rikis- stjórn. Hann gerði Markezinis að efnahagsmálaráðherra sin- um. Flestum kemur saman um það nú, að Markezinis hafi verið athafnasamur sem efna- hagsmálaráðherra og lagt grundvöll að bættri efnahags- legri afkomu Grikkja. Hann sat hins vegar ekki lengi i stjórninni. Þegar Papagos vildi ekki fallast á vissar til- lögur hans, baðst hann lausn- ar. Papagos lézt árið 1955, og er það almennt álitið, að Markezinis hefði þá orðið for- sætisráðherra, ef hann hefði ekki verið farinn úr stjórninni. Sama ár stofnaði Markezinis flokk með 29 þingmönnum Framfaraflokksins, en hann hlaut litið fylgi. Markezinis var eftir þetta áhrifalitill i griskum stjórnmálum, en naut þó vissrar viðurkenning- ar sökum gáfna og einbeitni. Hins vegar þótti hann oft tæki- færissinnaður og óútreiknan- legur. Það vakti athygli, að hann var einn hinna þekktari grisku stjórnmálamanna, sem ékki fordæmdi byltingu her- foringjanna 1967, en hann lýsti ekki heldur fylgi við hana. Á undanförnum árum hefur Markezinis unnið að þvi að rita sögu Grikklands á siðari timum, og nær hún fram til 1960. Þetta er orðiö mikið verk, sex bindi. Markezinis er sagður viðlesinn og fjölfróður, og gætir þess lika i viðræðum við hann. Hann er heldur lágur vexti og hefur breitt og sér- kennilegt enni. Þessi sérkenni hafa gert hann að eftirlæti skopteiknara. Markezinis læt- ur sér skopmyndirnar ekki illa lika, heldur hefur hann safnað þeim, og á hann yfir 1000 skop- myndir af sér. Af þessu er dregin sú ályktun, að Marke- zinis sé ekki eins hörundssár og herforingjarnir hafa þótt. Markezinis er kvæntur konu, sem hlaut menntun sina i Bretlandi, og sjálfur er hann sagður aðdáandi brezkrar menningar. Þau hjón eiga dóttur og son, sem dvelur við nám i Cambridge. MARKEZINIS lét svo um- mælt i sambandi við stjórnar- myndunina, að hann myndi óðara segja af sér, ef hann fengi þvi ekki framgengt, að kosningarnar yrðu frjálsar, en hann taldi það höfuðhlutverk sitt að vinna að þeim, ásamt því að gera ráðstafanir gegn verðbólgunni. Þá hyggst hann vinna að stofnun flokks, sem laki þátt i kosningunum. Hann segist engu vilja spá um úr- slitin, þar sem siðast hafi ver- ið kosið til þings 1964, og þvi sé kjósendahópurinn allt annar nú en þá. Litið er kunnugt um afstöðu Markezinis til utanrikismála annað en það, að hann lýsti þvi yfir fyrir tveimur árum, að Rússar og Bandarikjamenn ættu ekki að hafa herskip á Miðjarðarhafi, og Banda- rikjamenn ættu ekki að hafa herstöðvar i Grikklandi. Tilraun hans til að koma á visi að þingræði i Grikklandi mun verða veitt veruleg at- hygli, þótt vantrú sé nú á, að hún muni heppnast. þ.Þ.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.