Tíminn - 01.11.1973, Side 15

Tíminn - 01.11.1973, Side 15
Fimmtudagur 1. nóvember 1973. TÍMINN 15 Smíðað verði nýtt skip til Vestmannaeyjaferða Þingsdlyktunartillaga þingmanna Suðurlandskjördæmis Þingmenn Suðurlandskjör dæmis þeir Guðlaugur Gislason Garðar Sigurðsson, Björn Fr Björnsson, Steinþór Gestsson Ágúst Þorvaldsson og Ingólfui Jónsson, hafa lagt fram tillögu ti þingsályktunar um smiði skips ti Vestmannaeyjaferða. Tillagan er svohljóðandi: Alþingi ályktar að skora s rikisstjórnina að ákveða nú þegai að láta byggja nýtt skip til Vest mannaeyjaferða og leita tilboða : smiði þess á grundvelli tillögu stjórnskipaðrar nefndar um sam göngumál Vestmannaeyinga sem fram kemur i álitsgjörð nefndarinnar til samgönguráðu neytisins. t greinargerð með tillögunni segir: „Þingmenn Suðurlands- kjördæmis fluttu á Alþingi 1972 tillögu til þingsályktunar um samgöngumál Vestmannaeyinga. Tillögunni var visað til f jár- veitinganefndar til fyrirgreiðslu og skilaði nefndin eftirfarandi áliti, sem dagsett er 22. marz það ár: ,,Alþingi ályktar að fela sam- gönguráðherra að skipa 5 manna nefnd, er gera skal tillögu um það, með hverjum hætti sám- göngur við Vestmannaeyjar verði bezt tryggðar. Skulu tveir nefnd- armenn tilnefndir af bæjarstjórn Vestmannaeyja, einn af Skipaút- gerð rikisins, einn af flugmála- stjóra og einn af samgöngumála- ráðuneytinu og skal hann vera formaður nefndarinnar”. Tillagan var samþykkt með samhljóða atkvæðum á fundi sameinaðs Alþingis 18. apríl 1972, og skipaði samgönguráð- herra nefndina i samræmi við ályktun Alþingis með bréfi dags. 24. mai sama ár. Nefndin starfaði þá um sumarið og haustið að at- hugun málsins og skilaði sam- gönguráðuneytinu áliti sinu meö bréfi dags. 1. des. 1972, og er til- laga nefndarinnar varðandi sam- göngur á sjó milli Vestmannaeyja og meginlandsins svohljóðandi: ,,Að athuguðum þeim skjölum og upplýsingum, sem nefndin hef- ur aflað sér, og með hliðsjón af félagslegum og vistfræðilegum atriðum málsins, samþykkir nefndin að leggja til, að nýtt skip verði byggt fyrir Vestmanna- eyjaferðir, til farþega- og vöru- flutninga og jafnframt sérhæft til bifreiðaflutninga, en telur það hins vegar vera ákvörðunarefni réttra stjórnvalda að taka afstöðu til þess, hvenær það verður gert”. Með álitsgjörð nefndarinnar til samgönguráðuneytisins fylgdi teikning og útboðslýsing á skipi, sem nefndin taldi að henta mundi tilsiglinga milli lands og Eyja og uppfylla þær kröfur, sem fram eru settar i álitsgjörð nefndarinn- ar um búnað skipsins og flutningsgetu. Má þvi segja að málið sé komið á lokastig hvað undirbúning varð- LEIKFANGAHUSIÐ Skólavörðustig 10 Talstöðvar. Ódýr þrihjól. Stignir bílar. Trébilar. Ódýr og sterk járn brúðurúm. 10 teg. smiðatól. Skólatöskur. Skólatöflur. Tressy og Sindy dúkkur og föt. Dönsku D.V.P dúkkurnar komnar. Rafmangs þvottavélar, eldavélar, isskápar og vaskar. Brúðukerrur og vagnar 10 teg. Sendum gegn póstkröfu. LEIKFANGAHÚSIÐ Skólavörðustig 10 Simi 14806. ar. Aðeins er eftir að taka ákvörð- un um byggingu skipsins og leita tilboða i smiði þess, eins og til- laga sú, sem hér er flutt, gerir ráð fyrir. 1 greinargerð með tillögu þeirri um samgöngumál Vestmannaey- inga, sem flutt var á Alþingi 1972, og i framsöguræðu fyrir till. var gerð itarleg grein fyrir nauðsyn á byggingu á nýju skipi til Vest- mannaeyjaferða og þvi ekki ástæða til að endurtaka þau rök hér.Aðeins skal á það bent og það undirstrikað, að þörfin fyrir nýtt skip til ferða milli lands ogEyja hefur aldrei verið brýnni en nú i dag, og eru allir, sem til þekkja, sammála um, að uppbygging Vesmannaeyja eftir eldgosið á Heimaey velti beinlinis mjög á þvi, hversu fljótt og vel daglegum ferðum verði komið á sjóleiðis milli lands og Eyja. Þetta er ekk- ert óeðlilegt, þegar athugaðar eru þær kröfur, sem önnur byggðar- lög i námunda við þéttbýlissvæðið við Faxaflóa gera i sambandi við samgöngumál. Má þar til dæmis nefna Akranes, sem er i beinu vegasambandi við Faxaflóasvæð- ið. Þaðan eru þrjár daglegar ferðir til Reykjavikur, og vart hefur komið til álits að fækka þessum ferðum, hvað þá að leggja þær niður, enda hlyti slikt að teljast með öllu óeðlilegt. Ein örugg ferð daglega sjóleiðis með skipi, sem uppfyllir þær kröfur til farþega-, vöru- og bifreiðaflutn- inga, sem fram koma i tillögu hinnar stjórnskipuðu nefndar um samgöngumál Vestmannaeyinga, hlýtur að vera alger lágmarks- krafa þess fólks, sem nú og i framtiðinni kemur til með að búa i Vestmannaeyjum. Þegar rætt er um að byggja nýtt skip til Vestmannaeyjaferða, hlýtur jafnhliða að verða að skoða fjárhagshlið málsins, þvi að hér er vissulega um allkostnaðar- sama framkvæmd að ræða. Sýnist þar tvennt koma til greina: Annars vegar, að tekið verði lán fýrir verulegum hluta af byggingarkostnaðinum, sem sið- an yrði greiddur niður, eftir þvi sem fé yrði veitt til á fjárlögum, og þá reiknað með að dreifa byggingarkostnaðinum á tiltekið arabil. Hins vegar að nota hluta þeirra frjálsu framlaga, sem Við- lagasjóði hafa borizt til uppbygg- ingar Vestmannaeyja til greiðslu byggingarkostnaðar skipsins. Væri slikt ekkert óeðlilegt, þar sem ávallt hefur verið að þvi stefnt, að skipið yrði eign Vest- mannaeyinga, og þvi stjórnað frá Eyjum. Upplýsingar liggja fyrir um, að til greiðslu kostnaðar vegna náttúruhamfaranna i Eyjum og til fullra bóta til Vestmannaey- inga samkvæmt reglugerðinni um Viðlagasjóð og lögunum um neyðarráðstafanir vegna jarðeld- anna á Heimey þurfi ekki að fulu að nota það fé, sem borizt hefur til Vestmannaeyjasöfnunarinnar frá rikisstjórnum Norðurlandanna og fleiri aðilum og Viðlagasjóður hefur veitt móttöku. Er hér á nokkur mismunur, og væri það vissulega i fullu samræmi við óskir gefenda, að framlög þeirra yrðu notuð til uppbyggingar i Eyjum, þannig að byggð mætti sem fyrst risa þar á ný og blómg- ast i framtiðinni En telja verður frumskilyrði fyrir að svo megi verða, að samgöngumálum Vest- mannaeyinga verði komið i svo gott horf sem frekast er kostur á. Fé þetta er að visu i bili fast i fjárfestingum, sem Viðlagasjóð- ur hefur ráðizt i hér á þéttbýlis- svæðinu og viðar til að bæta að- stöðu Vestmannaeyinga, meðan þeir neyddust eða neyðast til að dveljast utan heimabyggðar sinnar, og er þar einkum um að ræða fjárfestingu sjóðsins i sam- bandi við hin innfluttu hús frá Norðurlöndum og stutl lán til sveitarfélaga vegna niður- setningar húsa og til annarra opinberra aðila. Mun fé þetta fljótlega skila sér aftur, þegar Vestmannaeyingar þurfa ekki lengur að nota húsin og þau verða seld og aðilar þeir, sem fengið hafa lán hjá Viðlagasjóði, endur- greiða þau. Er hér um möguleika að ræða, sem flm. telja að skoða beri til hlitar, ef það mætti verða til að leysa þetta mjög svo aðkallandi mál Vestmannaeyinga á sem fljótvirkastan og beztan hátt”. — 1x2 1». leikvika — leikir 27. okl. 1973 Crslitaröðin: 2X1 — 212 — 112 — X22 1. VINNINGUU: 11 réttir — kr. 421.500.00 30942 + 2. VINNINGUU: 10 réttir — kr. 12.900.00 7390 7831 15171 10838 + 37010 38039 39871 7502 12580 10058 30352 37110 39279 40024 + nafnlaus Kærufrestur cr til 19. nóv. kl. 12 á hádegi. Kærur skulu vera skriflegar. Kærueyðublöð fást hjá umboðsmönnum og aðalskrifstofunni. Vinningsupphæöir geta lækkað, ef kærur verða teknar til greina. Vinningar fyrir 10. .eikviku verða póstlagðir eftir 20. nóv. Ilandhafar nafnlausra seðla verða að framvisa stofni eða senda stofninn og fullar uppláyingar um nafn og heimilisfang til Getrauna fyrir greiðsludag vinninga. GETUAUNIU — íþróttamiöstöðin — REYKJAVIK. Auglýsitf í Ttmanum Vórukynning og 30% qfsláttur ájjúursjúuii Næstu vikur verða vörukynningar í ýmsum verzlunum. zfrikiffpuú Kynntir verða réttir úr.sýrðum rjóma ( Cremé fraicbe ). Auglýsingaspjöld í gluggum viðkomandi verzlana munu upplýsa hvar kynning verður bverju sinni og bvenær. Kynningardaginn verður veittur 30% afsláttur á sýrðum rjóma í viðkomandi verzlun. MJOLKURSAMSALAN I REYKJAVTK.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.