Tíminn - 01.11.1973, Qupperneq 16

Tíminn - 01.11.1973, Qupperneq 16
16 TÍMINN Fimmtudagur 1. nóvember 1973. UNDIRBÚNINGUR heims- meistarakeppninnar i knatt- spyrnu 1974 i Vestur-Þýzka- landi er nú i fullum gangi. V- þýzka knattspyrnusambandið hefur ákveðiö að gefa út plötu með landsliðsinönnum Vestur- Þýzkalands. Þeir munu syngja mörg vinsæl lög inn á plötuna, sem verður siðan sett á markaðinn fyrir keppnina. V-þýzku landsliöskapparnir hafa æft sönginn eins vel og þeir æfa knattspyrnu, upp á siðkastið. Myndin hér til hlið- ar var tekin á cinni söngæfing- unni og á henni má sjá heims- fræga knattspyrnumenn, eins og Gerd Muller, markaskor- arann mikla (efst til vinstri) Franz Bechenbauer, fyrirliða v-þýzka landsliðsins (fyrir miðju) og Sepp Mier, markvörð (fremst til hægri). Það er ekki að efa, að það verða margir þýzkir knatt- spyrnuáhugamenn, sem kaupa plötuna. Dómarar verð- launaðir :: ÍIANDKNATTLEIKSDÓM- í: ARAFÉLAG Reykjavikur ;: vcrðlaunaði þrjá kunna hand- ;: knattleiksdómara á þriðju- 55 dagskvöldiö sl. fyrir vel unnin {E störf i þágu félagsins. Þeir :{ Hannes Þ. Sigurðsson og Val- ;: ur Benediktsson, fengu gullúr ;; fyrir 25 ára störf hjá félaginu. ; Karl Jóhannsson, fékk silfur- {{ bókahnif fyrir 2« ára störf I {; þágu félagsins. Þessir þrir :; millirikjadómarar eru vel að : vcrölaununum komnir, þvi að {: þeir liafa vcrið litrikustu : handknattleiksdómarar ;: íslands undanfarin ár. ;: Sveinn Kristjánsson, for- :; maöur IIDR sést hér afhenda :; Karli Jóhannssyni, silfur- : hnifinn. i baksýn sjást þeir {: Ilanncs Þ. Sigurðsson og E: V a 1 u r Benediktsson. :: (Timamynd: Gunnar) ■■ ■■ ■■■■■■■■■■■■■■■•■■■■■■■■■■■■■■•■■■■■■■■■■■■■■ ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■•■■■■■■■■■■■«■■■■■■■■■■■ 15. sérsamband ISÍ: Siglingasamband íslands SIGLINGASAMBAND islands (SIL) var stofn- að s.l. fimmtudag (25. okt.) i húsakynnum Í.S.Í. Forseti Í.S.Í. Gisli Halldórsson, setti þingið og stýrði þvi. Þá flutti hann ávarp og kvað það mikið ánægjuefni, að áhugi á siglingaiþrótt- inni væri orðinn svo mikillog raun bar vitni um, þar sem nú væri komið að stofnun sér- sambands fyrir sigl- ingaiþróttina. Lagt var fram frumvarp að lögum siglingasambandsins, og þau samþykkt með nokkrum breytingum Kosin var stjórn hins nýja sér- sambands og skipa hana: Jón Ar- mann Héðinsson formaður og meðstjórnendur: Ari Bergmann Einarsson, Gunnar Hilmarsson, Stefán Sigtryggsson, Rúnar Steinsen. Varamenn: Daniel Friðriksson Gunnar Hallsson Pétur Th. Pétursson. Endurskoð- endur Stefán Stephensen, Arni Friðriksson I þinglok ákvörpuðu þingið Gisli Halldórsson forseti I.S.I., og árnaði hinu nýja sérsambandi og stjórn þess heilla i störfum og Jón Armann Héðinsson hinn nýkjörni formaður SIL, er ræddi um við- fangsefni, er biðu hins nýja Sigl- ingasambands. Stofnaðilar Siglingasambands Islands eru: Iþróttabandalag Reykjavikur. Ungmennasam- band Kjalarnesþings, Iþrótta- bandalag Akureyrar, Héraðs- samband Suður-Þingeyinga Iþróttabandalag Hafnarfjarðar. Með stofnun þessa nýja sér- sambands, sem myndað hefur verið um siglingaiþróttina, eru sérsambönd, innan Iþróttasam- bands tslands orðin 15 talsins. Judo- nám- skeið fyrir byr|- endur JUDOFÉLAG REYKJAVIKUR efnir til Judonámskeiðs fyrir byrj- endur, sem hefst miðviku- daginn 7. nóvember n.k. og stendur til 5. desember n.k. Kennt verður í eina klst. i senn , klukkan 19 til 20 á mið- vikudögum og 13 til 14 á laugardögum. Tékkneski þjálfarinn Michal Vachun, 4. dan, mun kenna á miðviku- dögum, og einn af okkar reyndustu keppnismönnum, Sigurður Kr. Jóhannsson, 1. dan, kennir á laugardögum. Hér er gott tækifæri til að kynnast Judo hjá reyndum mönnum, Michal Vachun er auk þess að vera einn af reyndustu og beztu keppnis- mönnum Evrópu, háskóla- menntaður iþróttakennari og hefur sú menntun ekki litið að segja við þá alhliðaþjálfun, sem þarf við Judoæfingar. Judofélag Reykjavikur hefur aðsetur i Skipholti 21, inn- gangur Nóatúnsmegin. Æfa söng og knatt- spyrnu

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.