Tíminn - 01.11.1973, Blaðsíða 17
Fimmtudagur 1. nóvember 1971!.
TÍMINN
17
§iUmsjón: Alfreö Þorsteinsson
SIGURBERGUR SIGSTEINSSON AGÚST SVAVARSSON
OLAFUR BENEDIKTSSON
GEIR HALUSTEINSSON
Getum
við
verið
án
þeirra?
ER EKKI KOAAINN TÍMI TIL
AÐ SENDA OKKAR STERKASTA
LIÐ FRAM Á VÍGVÖLLINN?
Það er heitasti draumur islenzkra handknattleiks-
manna að komast i lokakeppni HM i handknattleik,
sem fer fram i Austur-Þýzkalandi um mánaða-
mótin febrúar — marz 1974. Ef þessi draumur á að
rætast, verðum við að vakna af dvalanum, rífa
okkur upp — kasta striðsexinni og gera stórátak á
sunnudaginn i Laugardalshöllinni, þegar við mæt-
um Frökkum i siðari leiknum i undankeppni HM.
Það verður stórt áfall fyrir islenzkan handknattleik,
ef við vinnum ekki leikinn gegn Frökkum með 6-7
marka mun á heimavelli. Við vitum, að við eigum
sterkari handknattleiksmenn en Frakkar, og þvi
verðum við að velja okkar beztu leikmenn i lands-
liðið, sem leikur á sunnudaginn. Sterkir leikmenn
hafa þvi miður staðið fyrir utan landsliðið, sem hef-
ur leikið landsleiki okkar á keppnistimabilinu.
Það er óskynsamlegt að stilla En það má ekki leggja strax
upp sama liði og lék gegn
Frökkum i Paris i sl. viku. Þaö á
tvimælalaut að gera breytingar á
liðinu þvi þá eiga Frakkarnir
erfiðara með að átta sig á hinum
nýju leikmönnum. Þar með er is-
lenzka liðið búið að ná nokkru for-
skoti, þegar tillit er tekið til þess,
að hér verður um heimaleik að
ræða.
Það hlýtur að vera erfitt fyrir
landsliðsnefndina að velja suma
leikmenn landsliðsins aftur í
landsliðið, sérstaklega eftir
landsleikinn gegn Frökkum i
Paris. Landsliðsnefndin valdi
nokkra unga leikmenn i landliðiö
fyrir yfirstandandi keppnistima-
bil. Leikmenn, sem eru óreyndir
og ekki sterkustu leikmenn okkar
nú — leikmenn, sem verða
eflaust góðir eftir svona 2-3 ár.
traust á leikmenn, sem eru aðeins
„efnilegir”, i handknattleik. Þá
valdi landsliðsnefndin einnig
nokkra leikmenn, sem eru óút-
reiknanlegir. Leikmenn, sem
eiga kannski einn toppleik i dag
og leggjast siðan i dvala næstu tiu
landsleiki. Það er ekki hægt að
byggja upp á þannig leik-
mönnum, við eigum nóg af jafn-
sterkum leikmönnum, sem
styrkjast með hverri raun. Þá
hefur gengið heldur treglega að
fá suma góða handknattleiks-
menn til að mæta á æfingar. Það
er reyndar gömul saga — hags-
munir félaganna og landsliðsins
hafa oft og mörgum sinnum
rekizt á. Einnig hefur verið erfitt
að fá leikmenn, sem hafa staðið i
ströngu við vinnu og annað.
Landsliðsnefndin á við marg-
vislega erfiðleika að etja, þegar
hún velur i landslið. Hún fær oftar
gagnrýni en þakkir. En eitt
vitum við, sem fylgjumst með
handknattleik, að þeir Jón
Erlendsson, Karl Benediktsson,
og Páll Jónsson hafa allir mikinn
áhuga á að glima við erfið verk-
efni og hvetja islenzka hand-
knattleiksmenn til meiri afreka.
Þeir fylgja islenzka landsliöinu
gegnum sætt og súrt og hafa ekki
áhuga á að kasta mikilli vinnu á
glæ.
En snúum okkur að lands-
leiknum gegn Frökkum á sunnu-
daginn. Stóra spurningin er þá:
Hvernig verður islenzka lands-
liðið skipað? Verður liðið
óbreytt... eða verða reyndir leik-
menn teknir inn i það? Þvi er
fljótsvarað. Að sjálfsögðu
flöggum við okkar sterkasta liði i
dag, skipuðu reyndum leik-
mönnum. Þvi er ekki ósennilegt,
að liðið verði skipað eftirtöldum
leikmönnum:
Ölafur Benediktsson, Val
Gunnar Einarsson, Haukum
Gunnsteinn Skúlason, Val
Björgvin Björgvinsson, Fram
Auðunn Óskarsson, FH
Sigurbergur Sigsteinsson, Fram
Ólafur Jónsson, Val
Geir Hallsteinsson, Göppingen
Ágúst Svavarsson, ÍR
Axel Axelsson, Fram
Hörður Sigmarsson, Haukum
Viðar Simonarson, FH
Af hverju þessir leikmenn?....
Þvi er sljótsvarað:
Við vitum, að þessir leikmenn
hafa mikla leikreynslu. Ólafur
Benediktsson er tvimælalaust
tSLENZKIR ÁHORFENDUR... koma til meö aö styöja viö bakiö á islenzka landsliöinu í Laugardals-
höllinni á sunnudaginn.
okkar sterkasti markvörður, þótt
hann sé nokkuð erfiður i um-
gengni. Hann hefur reynsluna,
sem hinir ungu markverðir
okkar hafa af skornum skammti.
Gunnar Einarsson er sá mark-
vörður sem hefur komizt bezt frá
siðustu landsleikjum okkar. Linu-
mennirnir Gunnsteinn, Björgvin;
Auðunn og Sigurbergur, eru allir
margreyndir landsliösmenn, sem
leika mjög sterkan varnarleik.
Sigurbergur hefur ekki getað æft
sem skyldi að undanförnu, en nú
er hann i mjög góöri æfingu. Hann
er tvimælalaust okkar sterkasti
m iðfra m her ji, kröftugur
„tekniskur” leikmaður, sem er
frábær i að skora úr láréttri stöðu
eftir innhlaup úr hornum. Þá er
hann einn af fáum handknatt-
leiksmönnum okkar, sem láta
knöttinn ganga á milli kantanna.
Auðunn er einn okkar sterkasti
varnarleikmaður, og hann skorar
yfirleitt úr þeim marktæki-
færum,sem hann fær. Gunnsteinn
er dæmigerður stjórnandi og
fæddur fyrirliði, en slikir leik-
menn eru ekki á hverju strái.
Björgvin er einn af þeim leik-
mönnum, sem kalla ekki allt
ömmu sina. Hann gefst aldrei
upp i sókn eða vörn.
Um Geir Hallsteinsson þarf
ekki að ræða. Geir er reyndur
leikmaður, sem hefur verið
driffjöður fslenzka landsliðsins
undanfarin ár. ólafur Jónsson er
hinn hvetjandi leikmaður, sem
gefst aldrei upp og verkar sem
vitaminsprauta á meðspilara
sina. Axel er stórhættuleg lang-
skytta, sem þarf sitt pláss, og það
verðuraðspila hann upp, ef hann
á að sýna sitt rétta andlit. Það
verður verðugt verkefni fyrir
Geir á sunnudaginn, og þá lætur
Axel örugglega ekki standa á sér,
með sin stórhættulegu skot og
frábæru linusendingar. Agúst
örvhenta stórskyttan er leik-
maður sem getur skotiö, og ekki
nóg með það hann dregur einn-
ig varnarmenn aö sér. Það
hljóta allir varnarleikmenn sem
hafa eitthvert vit i kollinum, að
hræðast stóra vinstrihandar-’
skyttu. Hörður, annar vinstri-
handarleikmaður, vex með hverri
raun. Leikmaður, sem er að fá
sjálfstraust og er strax farinn að
sýna það að hann hefur verið úti i
kuldanum i FH sl. ár. Hann getur
skotið, brotizt i gegn og er góður
aö fara inn úr hornum. Viðar er
leikmaður, sem ekki ber mikið á,
en er ómetanlegur á örlagarikum
stundum. Hann getur skotiö^hefur
næmt auga fyrir linu —
kannski stundum of eigingjarn.
Hverjir vilja ekki sjá þessa
leikmenn leika saman i islenzka
landsliðinu? Þetta eru leik-
mennirnir, sem geta komið
islenzka landsliðinu i úrslita-
keppnina i A-Þýzkalandi 1974.
SOS
Það er
komin
tími til
að kasta
stríðsex-
inni og
gera
stórátak
Landsliðs-
nefndin
í hand-
knattleik
má ekki
kasta
mikilli
vinnu
í rusla-
tunnuna
Við
verðum
að fá
HM far-
seðilinn
til
Austur-
Þýzka-
lands á
sunnu-
daginn