Tíminn - 01.11.1973, Blaðsíða 20

Tíminn - 01.11.1973, Blaðsíða 20
f ™ lI G Ðl MERKIÐ.SEM GLEOUR Híttumst t haupféíaginu fyrir yóóan mai ^ kjötionaðarstöo sambandsins Munch-málverki rænt i Osló NTB-Osló — Uppkasti af hinu fræga málverki Edward Munch „Sagan” var stoliö úr veitinga- stofunni i Stúdentabænum Sogni. Málverkiö, sem metiö er á mörg hundruð þúsund norskar krónur, hvarf á miövikudagsnóttina. Það var skoriö úr rammanum, þannig að hluti af einu horninu varö eftir. Málverkiö, eöa uppkast þetta, er 200x90 sm og er af stórri eik, er breiöir greinir sinar út yfir landslagiö. Undir henni sitja gamall maður og drengur. Hiö endanlega málverk Munchs. hangir i háskólanum i Osló. Ekki er neitt þjófavarnarkerfi i veitingastofunni og fyrir skömmu rændi norskur blaöa- maöur þaöan öðru málverki eftir Munch, svona rétt til að sýna, aö þetta væri enginn vandi. Olíumálin alvar- leg í Hollandi — en reiðhjólaframleiðendur græða Asgeir Magnússon yfirvélstjóri og Gullfoss. Myndin er tekin I gær, skömmu áöur en þeir logöu upp I sfna siöustu ferö saman. (Timamynd Eóbert) Gullfoss er farinn NTB-Haag — Holland hefur fariö þc ss á leit viö framkvæmdaráö EBE, aö þaö tryggi, aö oliu þeirri sem aö berst, veröi dreift jafnt yfir allt EBE-svæöiö. Ilefur hol- lcnska stjórnin beöiö um aö ollu- vandamáliö veröi sett á dagskrá ráðherraráösfundarins I næstu viku. Mörg Arabalönd hafa nú stöövaö alla oliusölu til Hollands, vegna þess aö Holland hafi staöiö með tsrael i striöinu. Til að bæta úr ástandinu, hefur stjórnin bannað allan bifreiöaakstur á A miðvikudag, kom hingaö hljómsveitin John Miles Band Set, og mun leika á hljómleikum i Austurbæjarbiói i kvöld. Auk John Miles Band Set, koma fram á hljómleikunum hljómsveitir- nar Capricorn og Júdas. John Miles er viðurkenndur sunnudögum milli kl. 03,00 til miðnættis . Borgarstjórnarfulltrúi i Rotter- dam sagði i gær, aö 20 þúsund manns þar i bæ ættu á hættu aö vera sagt upp störfum eða gefið fri vegna oliuskortsins. Einnig myndi borgin tapa geysilegu fé i hafnargjöldum, ef ástand þetta stendur lengi. Þeir einu, sem lik- lega myndu græöa á oliuleysinu, eru reiöhjólaframleiðendur. Þegar hafa nokrir reiðhjólasalar tekið til við að leigja reiðhjól til sunnudagsins. listamaöur i heimalandi sinu, Englandi og leikur jöfnum höndum á pianó og gitar. Hljóm- sveitin flytur frjjmsamið efni. Út hafa komið nokkuð margar litlar plötur meö John Miles og fer vegur hans stööugt vaxandi. Er óhætt aö fullyröa, aö hér er á ferðinni athyglisverð hljómsveit. GULLFOSS, flaggskip islenzka kaupskipaflotans, lagöi i gær- kvöldi upp i sina siöustu ferö frá landinu, en sem kunnugt er, hcfur skipiö veriö selt til Beirút i IJbanon. Ekki þarf aö efast um, aö mörgum veröur eftirsjá aö Gullfossi og margir eiga þaöan góöar ininningar. Gullfoss hefur alls fariö 456 ferðir og flutt nálægt 156 þúsund manns milli landa, þau 23 ár,sem hann hefur veriö i eigu Eimskipa- félagsins. Hingað kom skipið upp- haflega 20. mai 1950. Verið var að lesta Gullfoss i gær, en hann fer fullhlaðinn skreiö til Hamborgar, þar sem hann verður afhentur hinum nýju eigendum. Blaðamaður Timans leit um borö og var það heldur dauft yfir og fáir á ferli, utan nokkrar þernur aö þvo og pússa. Stórt málverk af Gullfossi i Hvitá, sem þar var á gangvegg, hefur verið fjarlægt og svart/hvit ljós- mynd af þvi sett i staöinn. Niöri i vélarrúmi hittum viö Asgeir Magnússon, yfirvélstjóra, en hann er eini maðurinn, sem verið hefur á Gullfossi frá þvi hann var afhentur i Kaupmannahöfn fyrir 23 árum og hann er einnig með i siðustu ferðinni. — Við erum reyndar fjórir, sem höfum verið á skipinu allan timann, segir Asgeir, — en hinir þrir fara ekki með i kvöld. — Heldurðu, að það muni ekki margir sakna Gullfoss? — Jú, þaö er vafalaust og Fær- eyingar ekki minnst. Þeir vildu gjarnan hafa haft efni á að kaupa skipið, sem hefur veitt þeim góða þjónusta gegnum árin. Ekki sagðist Asgeir geta sagt frá neinu sérstöku, sem á dagana heföi drifið þessi ár um borð, en minntist þó á fyrsta veturinn. Þá sigldi Gullfoss i leigu hjá Frökkum, með farþega og vörur milii Bordeaux og Casablanca. — Það var gott að sigla hjá Frökkum. — Þið farið til Hamborgar núna? — Já, við verðum komnir þangaö á sunnudag. Það er ekki ákveðið enn, hvenær eigendurnir i Beirut koma og taka við skipinu, það getur dregizt fram yfir miöjan nóvember. Við véla- mennirnir verðum úti væntanlega nokkra daga eftir það til að sýna þeim eitt og annað i vélinni og svo komum veið heim, annaðhvort fljúgandi, eöa með einhverju skipi félagsins. — Hvað tekur svo við? —-Ég veitþaðekki. Ég er fastur maður hjá Eimskipafélaginu og veit ekkert, hvar ég lendi. Að lokum óskum við Gullfossi góðrar ferðar og vonum að hann eigi góða daga i nýja heima- landinu. —sb SADAT HOTAR, EF ISRA- ELSMENN FÆRI SIG EKKI Hljómsveit John Miles Band Set- ie ikur í Austurbæjarbíói NTB-Kairó — Sadat, forseti Egyptalands, lýsti þvl yfir I gær, aö Egyptaland vildi þvl aöeins taka þátt I samningaviöræöum um friö, aö tsrael kallaöi her- menn sina til baka þangaö, sem þeir voru þegar fyrra vopnahléö gekk I gildi 22. október. Geri tsrael þaö ekki, mun Sadat láta heri slna leysa málin á sinn hátt, eins og hann oröaöi þaö. Jafnframt þessari aövörun Sadats, eru ýmsir aðilar að ræða friðarhorfurnar og reyna aö leysa málin. Golda Meir fór til Washington i gær til að ræða viö Nixon og Kissinger, utanrikisráö- herra Bandarikjanna kemur til Kairó i næstu viku. Tilkynningin um ferð hans hefur ekki verið staðfest i Washington, en óstað- festar fregnir þaðan herma, að hann muni einnig heimsækja önnur lönd i Mið-Austurlöndum. Sadat lagði áherzlu á þaö við blaðamennina, sem voru 350 talsins, viöa að úr heiminum, að Egyptar myndu ekki láta það viðgangast, að Israelsmenn legðu undir sig vesturbakka Súez-- skurðarins. Nixon Bandarikja- forseta, svo og Brézjnéf flokks- ritara hefði verið gert þetta ljóst. AAiklar breytingar á sænsku stjórninni — rdðherrum fiölgað, ráðuneytum skipt NTB-Stokkhólmi. — Olof Palme, forsætisráðherra Svlþjóöar til- kynnti I gær um meiri háttar breytingar i rikisstjórn sinni. Innanrikisráðuneytinu veröur skipt i húsnæöisráðuneyti og vinnumarkaðsráöuneyti. Jafn- framt bætast fjórir nýir ráö- herrar viö. Þingmaðurinn Bertil Zachris- son verður kennslumálaráðherra, þingmaðurinn Gertrud Sigurds- son verður þróunarhjálparráð- herra, Hans Gustafsson, verður sveitastjórnaráðherra. og Anna Greta Lejon verður aðstoðar- vinnumarkaðsmálaráðherra. Sven Anderson, varnarmála- ráðherra verður utanrikisráð- herra i stað Krister Wickmans, sem verður að likindum banka- stjóri, kennslumálaráðherrann Ingvar Karlsson verður húsnæðismálaráðherra, land- búnaðarráðherrann Ingemund Bengtson verður atvinnumála- ráöherra, innanrikisráðherrann Eric Holmkvist verður varnar- málaráðherra og sveitarstjórnar- ráðherrann Svante Lundkvist verður landbúnaðarráðherra. Ráðherra án ráöuneytis, Camilla Odhnoff gengur úr stjórninni. Breytingar þessar eru hinar umfangsmestu á sænsku rikis- stjórninni i þau 41 ár, sem jafnaðarmenn hafa setið við völd. Að visu hafa orðið miklar breytingar áður, en þá hafa fleiri flokkar dregizt inn i þær. Flosmjúkar andlitsþurrkur meö friskandi ilm og miklum þurrkeiginleikum.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.