Tíminn - 16.11.1973, Blaðsíða 16
16
TÍMINN
Föstudagur 16. nóvember 1973.
ELLEN
DUURLOO:
Geymt
en
ekki
gleymt
_______________26_
aö áhrifamikil hefnd tæki sinn
tima.
Tiu ár voru liöin frá þessum
morgni, og nú virtist henni, sem
hún væri aö ná takmarki sinu,
Bella dró hýöið utan af ferskju.
Hún var feginjað hún hafði
beöiö Goldmann að láta sig i friði.
Hana langaði til þess aö fara yfir
áætlanir sinar enn einu sinni i ró
og næöi. Þetta dásamlega
tækifæri, sem hafði boðizt henni
fyrir tæpum þrem vikum og sem
hún ætlaöi ekki að láta renna úr
greipum sér. Það skrýtna var þó
það, að i kvöld, einmitt þegar
þessi mikilvæga ákvörðun skyldi
tekin, þá átti hún erfitt með að
festa hugann við framtiðina. Si og
æ skaut upp i huga hennar at-
vikum, sem höföu gerzt fyrir
löngu og þau skyggðu á allt
annað.
London.
Hún kom til London.
Auðvitað hafði hún skrökvað,
áður en hún fór þangað.
Engan á plantekrunni mátti
gruna, að Jean Pierre hel'ði svikið
hana. Vitaskuld vissi hún, að
flestum var ljóst, að hann hafði
gert það, en hún vissi lika að
enginn mundi þora að láta hana
verða vara við það, ef hún missti
ekki stjórn á sér. Hún efaðist ekki
um að hún gæti haft stjórn á sér.
Henni var vel ljóst,að vilji hennar
var sterkari en skapofsi hennar.
Hún varð einungis að gæta sin.
Hún sat kyrr i um það bil tuttugu
minútur og hringdi siðan eftir
Söru.
Sara birtist i dyrunum forvitin
á svip. Hún var með bréf i
hendinni.
— Þakka þér kærlega fyrir, ég
gleymdi að taka við þessu i gær-
kvöldi. Þegar hún tók bréfið,fann
hún,að það var fullt af peninga-
seðlum. Hún lagöi það óopnað frá
sér á borðið.
— Viltu láta renna i baöið fyrir
mig, ég fer ekki af stað fyrr en
eftir nokkra daga, þegar skipið til
Sct. Thomas kemur. Segðu
negrunum, að farangurinn geti
beðið i geymsluskúrnum, ég þarf
ekki á honum að halda þennan
stutta tima...
Sara gapti af undrun, en stillti
sig. Þegar hún fór inn i baðher-
bergið, opnaði Bella bréfið með
titrandi hendi. Hún renndi laus-
lega augunum yfir það,sem Jean
Pierrehafði skrifað i heigulshætti
sinum, það voru peningarnir, sem
hún hafði áhuga á. Það var ^litleg
■peningaupphæð. Hún reif bréfið i
tætlur og ætlaði að brenna það við
fyrsta tækifæri.
Hún taldi peningana, þegar hún
hafði lokið við morgun-
snyrtinguna. Þetta var meira en
hún hafði búizt við, hún myndi
alls ekki þurfa að selja hvorki föt
né skartgripi, það var þó alltaf
bót i máli.
Bella varpaði öndinni þunglega,
þar sem hún sat þarna i hótelher-
berginu i Amsterdam.
t Londin hafði hún hitt
manninn, sem átti aö vera sem
verkfæri i höndum hennar til þess
að ná settu marki.
Þessi maður var danskur
aðalsmaður og rikur. Hann var
ákaflega ástfanginn af henni, ef
til vill dálitið heimskur, en það
var bara betra.
Henni var nákvæmlega sama
um hann.
Enn reikaði hugur hennar aftur
i timann. Hún hvorki vildi né
þorði að kannast við fortið sina,
hún varð að að reyna að má hana
úr huga sér.
Undarlegt að hún virtist ekki
geta slitið hugann frá þvi, sem á
undan var gengið, og það einmitt i
kvöld.
1 fyrstu hafði allt gengið eins og
i sögu.
Hún birtist ibúum hússins bros-
andi og frtskleg. Hún hafði sagt
kæruleyislega við Harry, að hún
myndi ekki fara fyrr en aö nokkr-
um dögum liðun, og með skipinu
frá Sct. Thomas, og gaf enga
frekari 'skýringu á þessari
breyttu áætlun. Eftir að hafa
neytt rikulegs morgunverðar án
sýnilegs taugaóstyrks, fór hún
yfir i eldhúsbygginguna. þar sem
mammý beið hennar með gleði-
tár i augunum.
—r Þú ferð ekki barnið mitt, ó
hvað ég er glöð.
— Vist fer ég, mammý, það er
bara það, að okkur Jean Pierre
kom saman um það i gærkvöldi,
að það væri bezt,að ég færi með
öðru skipi en hann. Ég játa,að það
var á siðustu stundu sem viö
komum okkur saman um þetta.
EFtir nokkra daga fer ensk
skonnorta frá Sct. Thomas og ég
fer með henni. Við byrjuðum að
tala um Danmörku og þá sérstak-
lega Kaupmannahöfn og
borgarastéttina þar. Jean Pierre
sagði að það væri ákaflega
siðavant fólk, þú þekkir hann
mammý.hann er jú ekki annaö en
stórt barn, hann bcinlinis iðaði i
skinninu eftir að hneyksla þetta
fólk, þegar hann kæmi með
unnustu sina þangað eftir langa
sjóferð á sama skipi, sjáðu til i
augum þessa fólks er slikt
óhugsandi.
— Já, en Bella ætluðið þið
ekki....
— Mammý, mammý, þekkirþú
ekki dóttur þina betur en svo,að
þú haldir, að ég myndi sætta mig
við slikt brúðkaup. Ég hef i raun-
inni undanfariö látið mig dreyma
um stórt brúðkaup i einni af
stærstu kirkjum Kaupmanna-
hafnar, sem Jean Pierre hefur
sagt mér frá. Ég talaði við Jean
Pierre um það. t fyrstu virtist
hann fastákveðinn að halda fast
við skipsbrúðkaupið, en smám
saman gat ég talið honum trú um,
að það væri mikið skemmtilegra
og hátiðlegra með stórt brúðkaup
i Kaupmannahöfn. Það var þá,
sem hann byrjaði að tala um, hve
gaman það væri að hneyksla
ærlega þessa teprulegu smá-
borgara. En þá sagði ég honum
mina skoðun.
— Sérðu ekki, hvað þetta er
heimskulegt, Jean Pierre, sagði
ég. Okkur langar að komast i
kunningsskap við fólk af hærri
stigum ogvera tekin i þeirra hóp,
það væri þá kjánalegt að byrja á
þvi að hneyksla það. Þar að auki
er betra, að þú farir til Kaup-
mannahafnar á undan og undir-
búir brúðkaupið, og siðan kem ég
mánuði seinna. Jean Pierre var
auövitað i fyrstu ákaflega mót-
fallinn þessari tillögu minni, en
ég gaf ekki eftir, og að lokum
féllst hann á þetta. Við komum
okkur saman um,að bezt væri, að
skonnortan létti akkerum að
nóttu til, svo að við slyppum við
að kveðjast i allra augsýn. Ég fer
með skipti til Sct. Thomas eftir
þrjá daga.
Þaö fór ekki framhjá Bellu ao,
mammý horfði á hana efins á
svip. En hún mætti augnaráði
hennar brosandi og söng og
trallaði, eins og ekkert hefði i
skorizt. Hún lék við hvern sinn
fingur næstu þrjá daga og það
virtist sem henni hefði tekizt að
koma i veg fyrir slúðursögur
meðal þjónustufólksins. Enginn
dirfðist að minnsta kosti að
spyrja hana neins, ekki einu sinni
Harry. A tilsettum tima var
farangur hennar borinn um borð i
skipið og hún steig sjálf um borð.
Þegar hún kom til Sct. Thomas
tókst henni að verða sér úti um
skipsibúð. Til allrar hamingju
var hún eini farþeginn og að
mánuði liðnum lagði skipið að
bryggju i London.
Það sem siðan átti sér stað!
Bella beit i ferskjuna. Hún
kærði sig ekki um að rifja það
upp. Hún hafði átt erfitt. Áður en
hún kom til Loridon, var henni
ljóst,að hún átti von á barni, og
það gerði óneitanlega strik i
reikinginn. Hún varð að breyta
áætlunum sinum samkvæmt þvi.
En erfiðleikarnir eru til þess að
sigrast á þeim, og Bella ákvað að
láta ekkert hindra sig i að ná settu
marki. Henni var það ljóst að hún
varö að spara og ganga siðan i
gegnum þetta. Hún hafði tekið
herbergi á leigu i frekar ódýrum
matsölustað fyrir einhleypt
kvenfólk.
Smám saman lét hún dapurlega
sögu sina berast út.
Hún var i stórum dráttum
þessi:
Hún var ung ekkja og átti von á
barni. Hún keypti sorgarklæði,
svarta dragt, sem einnig var
heppileg fyrir ástand hennar.
Hún fór að mestu einförum og
hélt sig mest inni, en fór þó i dag
legar gönguferðir. A þessum
gönguferðum komst hún i nauð-
synleg sambönd og varð sér út
um skjöl þau, er hana vanhagaði
um.
Bellu hafði þótt ákaflega erfitt
að halda að sér höndum i þessa
sjó-átta mánuði, og drengurinn
var ekki fyrr fæddur og komið i
fóstur hjá barnlausri og barn-
góðri ekkju en Bella tók að
svipast um eftir atvinnu. Það
hafði gengið töluvert á sjóð
Kt>5S
1554
Lárétt
1) Borg,- 6) Hláka,- 10) Mjöður.-
11) Trall.- 12) Berrar,-15) Ræna.-
Lárétt
2) Vond.- 3) Kona.- 4) Login,- 5)
Strax.- 7) Strák,- 8) Far,- 9)
Fiska,- 13) Matur,- 14) Fótavist,-
Ráðning á gátu nr. 1553
Lárétt
I) Hanga.- 6) Vitlaus.- 10) Æð.-
II) MM.- 12) Rangala.- 15)
Ættar.-
Lóðrétt 2) Allt.- 3) Góa.- 4)
Óværa,- 5) Ismar,- 7) Iða,- 8)
Lag,- 9) Uml,- 13) Nit,- 14) Ata,-
pgffBW
IV
\u
H o /y
...til að verða Svefnörvarnar.)|
samferða i grafhýsið. Notaðu þær
Leyndarmálið * —
verður grafið
hér að eilifu.
li II ls íil í
Föstudagur
16. nóvember
7.00 Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15
og 10.10. Morgunleikfimikl.
7.20. Fréttir kl. 7,30, 8.15 (og
forustugr. dagbl.) 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Olga Guðrún Árna-
dóttir heldur áfram lestri
sögunnar: „Börnin taka til
sinna ráða” eftir dr.
Gormander (2).
Morgunleikfimikl. kl. 9.20.
Tilkynningar kl. 9.30. Þing-
fréttir kl. 9.45. Spjallað við
bændur kl. 10.05. Létt lög á
milli liða. Morgunpopp kl.
10.25: Close to you,
Carpenters syngja og leika.
Morguntonleikar kl. 11.00:
Filharminiusveitin i Vin
leikur Sinfóniu nr. 9 i d-moll
eftir Anton Bruckner: Carl
Schuricht stj.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
13.30 Með sinu lagi Svavar
Gests kynnir lög af hljóm-
plötum.
14.30 Siðdegissagan: „Saga
E ldey ja r-H jalta ” eftir
Guömund G. Hagalin
Höfundur les (8).
15.00 Miödegistónleikar:
KammertónlistTriest-trióið
leikur
15.45 Lesin dagskrá næstu
viku ’
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Popphornið
17.10 Útvarpssaga barnanna:
„Mamma skilur allt” eftir
Stefán Jónsson Gisli
Halldórsson les (9).
17.30 Framburöarkennsla í
dönsku
17.40 Tónleikar. Til-
kynningar.
18.30 Fréttir. 18.45. Veður-
fregnir. 18.55. Tilkynningar.
19.00 Veðurspá Fréttaspegill.
19.20 Þingsjá Davið Oddsson
sér um þáttin.
19.45 Heilnæmir lífshættir.
Björn L. Jónsson læknir
talar um nýstárlegar mann-
eldisaðferðir.
20.00 Tónleikar Sinfóniu-
hljómsveitar tslands i
Háskólabiói kvöldið áður.
Hljómsveitarstjóri:
Karsten Andersen
Einsöngvari: Jennifer
Vyvyan frá Bretiandi
21.30 Útvarpssagan:
„Dvergurinn" eftir Pár
Lagerkvist i þýðingu Mál-
friðar Einarsdóttur. Hjörtur
Pálsson les (9).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir.
Eyjapistill
22.40 Draumvisur Sveinn
Magnússon og Sveinn Árna-
son sjá um þáttinn.
23.40 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
20.00 Fréttir
20.25 Veður og auglýsingar
20.30 Oscar Peterson.Upptaka
frá tónleikum i Björgvin.
Jazz-pianistinn Oscar Pet-
erson leikur. (Nordvision —
Norska sjónvarpið)
21.05 Landshorn. Fréttaskýr-
ingaþáttur um innlend mál-
efni. U msjónarmaður
Gunnar Eyþórsson.
21.40 Mannaveiðar. Brezk
framhaldsmynd. 16. þáttur.
Peð i hróksvaldi II. Þýð-
andi Kristmánn Eiðsson.
Efni 15. þáttar: Gratz tekur
brezkan njósnara til fanga,
en gengur erfiðlega að
koma honum til að segja frá
leyndarmálum sinum.
Gratz dettur þá i hug að not-
færa sér hrifningu fangans
af Ninu. Hann leyfir Bret-
anum að sleppa, gegn þvi,
að hann fari til fundar við
Ninu og segi henni allt, sem
hann veit. Sjálfur liggur
hann i leyni og fylgist með
fundi þeirra.
22.35 Dagskrárlok