Tíminn - 16.11.1973, Page 20
20
TÍMINN
Föstudagur 16. nóvember 1973.
I Komin tími til að
gera eitthvað rót-
tækt í dómaramáluml
1
i
Handknattleiksdómarar leika allt of stór hlutverk
í 1. deildarleikjum
Frammistaöa Islenzkra
handknattleiksdómara und-
anfarin ár hefur langt frá þvi
verið lofsverö. Það hefur
komið fyrir leik eftir leik, aö
islenzkir dómarar hafa
hreinlega skemmt leiki I 1.
deildarkeppninni, S.l. miö-
vikudagskvöld gerðist það
að dómarar skemmdu leik
Vals og ÍK, meö alls konar
dómum, sem cnginn skildi I.
Þetta er ekki fyrsti leikurinn
á kcppnistlmabilinu, sem
dómarar hafa látið Ijós sitt
skina og veriö meira I sviðs-
Ijósinu en sjálfir leik-
mennirnir, sem voru að
kcppa.
Það verður að fara að taka
dómamálin fastari tökum
og jafnvel að setja dómara i
leikbann. Það er greinilegt,
að túlkun sumra dómara á
leikreglum eru fyrir neðan
allar hellur.
i
Jafntefli á
Hampden Park
V-Þjóðverjar jöfnuðu
SKOTAIt og Vestur-Þjóð-
verjar gerðu jafntefli I vin-
áttuleik i knattspyrnu á mið-
vikudagskvöldiö. Leikurinn,
scm fór fram á Ilampden
Park I (ílasgow, lauk 1:1. Jim
Ilolton, miðvörðurinn snjalli
hjá Manchester United,
skoraði fyrir Skota strax á 4.
min. leiksins við mikinn
fögnuð áhorfenda. Það var
ekki fyrr en fjórum minútum
fyrir leikslok að V-Þjóð-
verjum tókst að jafna, en
markið skoraði hinn 21 árs
gamli leikmaöur Bayern
Múnchen, Uli Iloeness.
Fróðir menn telja að lands-
lið Skota og Vestur-Þjóðyerja,
séu þau sterkustu i Evrópu i
dag og þetta eru landsliðin,
sem heimsmeistararnirfrá
Brasiliu hræðast mest i loka-
keppni HM i knattspyrnu i
00
JIM IIOLTON... skoraöi mark
Skota gegn Vcstur- Ujóðverjum
1:1 rétt fyrir lok
Vestur-Þýzkalandi næsta
sumar.
Búlg-
arar
í HM
BÚLGAKAK tryggðu sér rétt til
að lcika i 16-liða úrslitunum i IIM
i knattspyrnu I Vestur-Þýzka-
landi á miðvikudagskvöldið,
þegar Fortugal og Norður-irland
gerðu jafntefli 1:1 i Lissabon.
Staðan i riðlinum er nú þessi:
Bulgaria 5 3 2 0 11:3 8
Portugal 5 2 3 1 10:5 7
N-trland 5 1 3 2 5:5 5
Kýpur 5 10 4 1:12 2
Italir unnu
Englendinga
á Wembley
Italir hafa ekki fengið á sig mark í síðustu 10 landsleikjum sínum
ENN ein sprengjan sprakk á
Wembley-leikvanginum á miö-
vikudagskvöldið. þegar hinu
snjalla landsliði ttala tókst aö
tryggja sér sigur yfir Englend-
ingum I vináttulandsleik I knatt-
spyrnu. Sigurmark ttala var
skoraö þegar aöeins fjórar
minútur voru til leiksloka, en það
skoraði Fabio Capello. Um 90
þúsund áhorfendur yfirgáfu von-
sviknir leikvöllinn fræga i
Lundúnum , þvi að þetta var I
fyrsta skiptið, sem ttalir vinna
Englendinga I Englandi.
Leikurinn var mikill sigur fyrir
markvörð ttaliu, Dino Zoff, en
hann hefur haldið marki ttaliu
hreinu i tiu leiki i röð, hann hefur
nú leikið með italska landsliðinu i
917 minútur, án þess að fá á sig
mark. ítalska liðið er mjög gott
um þessar mundir, leikur hraða
og skemmtilega knattspyrnu, og
hefur unnið hvern leikinn á fætpr
öðrum i sumar og vann einnig
riðil sinn i undankeppni HM mjög
glæsilega. Of snemmt er að fara
að skrifa ttali efsta á blað sem
næstu heimsmeistara, þvi að liðið
hefur ekki leikið gegn sterkum
þjóðum i sumar. Þeir voru i riðli
með Sviss, Luxemborg, og Tyrk-
landi i undankeppni HM.
Bobby Moore lék sinn 108.
landsleik fyrir England á mið-
vikudaginn og vilja margir halda
þvi fram, að það hafi verið siðasti
leikurinn sem hann klæðist ensku
landsliðspeysunni. Annars var
enska liðið skipað þessum leik-
mönnum: Shilton (Leicester),
Madley (Leeds), McFarland
(Darby), Moore (West Ham),
Hughes (Liverpool), Bell
(Manchester City), Currie
(Sheffield United), Channon
(Southam p t on) , Osgood
(Chelsea), Clarke (Leeds), og
Peters (Tottenham).
Lið ttaliu var skipað þessum
leikmönnum: Zoff, Fachetti,
Benetti, Bellugi, Burnich, Causio,
Capello, Chinaglia, Rivera og
Riva.
SOS
í mörg
horn verð-
ur að líta
Búið að ákveða leikdagana í NM
í golfi, sem fer fram á Grafar-
holtsvellinum í ágústlok 1974
Golfsambönd Noröur-
landanna hafa nú
endanlega samþykkt að
Islendingar féi að halda
Norðurlandamótið í
golfi 1974.
Þegar er búiö að ákveða
leikdaga, og fer mótið fram
dagana 31. ágúst og 1. septem-
ber. i sambandi viö mótið er
búizt við á milli 30 og 40 kepp-
endum og forráðamönnum frá
öðrum Noröurlöndum, en
vitað er að mikili áhugi er
meðal þeirra á þessari ferð og
er talið, að háð verði hörð
keppni i þessum löndum
næsta vor og sumar til að
komast i landsliðiö og þar með
að komast i íslandsferðina.
Mótið mun verða haldið á
velli GR i Grafarholti, þar
sem er eini 18 holu goifvöllur-
inn á islandi. Þegar eru
Að lokinni
golfvertíð....
Arsþing Golfsambands istands veröur haldið á morgun, laugardag-
inn 17. nóvembcr, I fundasal Hótel Holts, Þingholti.og hefst kl. 10,00
f.h. Búast má við miklum umræöum á þinginu um hin ýmsu mál,er
varðar golfíþróttina. Má þar t.d. nefna aukna þátttöku I opnum mót-
um hjá golfklúbbunum, en hún virðist hafa fariö I taugarnar á sum-
um framámönnum fþróttarinnar. Þetta er allviðkvæmt mál, sem
varðar bæöi fjárhag golfklúbbanna, GSÍ og einnig hina félagslegu
hlið golfsins, enda mætast I þessum keppnum oft á annaö hundraö
keppendur. Þessar myndir hér eru frá einu af stærstu opnú mótum
sumarsins, BEA-keppninni hjá Golfklúbbi Suðurnesja. Efri myndin
sýnir hinn Irska forstjóra BEA hér á landi, Joe Kennedy, slá fyrsta
höggið i keppninni, en neðri myndin er af fulltrúum BEA,
verðlaunahöfum I einstökum flokkum keppninnar, en þarna náðist
mjög góður árangur i einstökum flokkum. Vonandi verða keppnis-
málin svo og önnur viðkvæm og vandasöm mál til lykta leidd á
farsælan hátt á þinginu á morgun enda þarf aö huga vel að fram-
gangi þessarar iþróttar eins og annarra.
hafnar þar framkvæmdir i
sambandi við mótið, en mesta
vinnan verður i sambandi viö
að fá flatirnar nógu sléttar og
góöar, og veröur það einn
aöalhöfuðverkur þeirra sem
sjá um undirbúning mótsins. í
mörg horn verður þó að lita,
enda ekkert smáræði að halda
svona mót.