Tíminn - 17.11.1973, Síða 9

Tíminn - 17.11.1973, Síða 9
Laugardagur 17. nóvember 1973. TÍMINN 9 / .. —................ — WUkm — - Útgefandi Framsóknarflokkurinn Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þór- arinn Þórarinsson (ábm.), Jón Helgason, Tómas Karlsson. Auglýsingastjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrif- stofur i Edduhúsinu við Lindargötu, simar 18300-18306. Skrif- stofur i Aðalstræti 7, simi 26500 — afgreiðslusimi 12323 — aug- lýsingasimi 19523. Askriftagjald 360 kr. á mánuði innan lands, i lausasölu 22 kr. eintakið. Blaðaprent h.f. „Dirfska, stefnufesta og baráttuþrek" í Degi á Akureyri er á forsiðu fjallað um lausn landhelgisdeilunnar við Breta. Er þar minnt á til- lögu forsætisráðherra um slit stjórnmálasam- bandsvið Breta, er rikisstjórnin samþykkti og kom rnálinu á úrslitastig. í kjölfar þess fyrirskip- aði brezka rikisstjórnin undanhaldið með brott- kvaðningu herskipanna og boðinu til Ólafs Jóhannessonar um viðræður i Lundúnum. Dagur telur einkum þrennt athyglisvert hafa komið i ljós eftir utanför forsætisráðherra: ,,í fyrsta lagi var það sjálfur samningsgrund- völlurinn. Um hann sagði brezki sendiherrann i Reykjavik, að forsætisráðherra íslands hefði kreist Breta i þeim samningum á þann veg, að lengra yrði ekki komizt. í öðru lagi sýndi forsætisráðherra þá djörfung, heim kominn, að ákveða að standa eða falla með máli þessu. í þriðja lagi mótmæltu Alþýðubandalagsmenn samningnum, semóaðgengilegum, þegar i stað. Þótti þá ýmsum i óefni komið fyrir rikisstjórn- inni, og stjórnarandstæðingarnir, einkum ihaldið, höfðu mörg orð um, kvöldu Alþýðubandalags- menn og spáðu stjórninni falli. En það voru þó ekki hinir fljótráðu Alþýðubandalagsmenn, sem að lokum rufu algera samstöðu Alþingis i land- helgismálinu, er þingsályktunartillaga stjórnar- innar um heimild til að ganga frá bráðabirgða- samkomulaginu við rikisstjórn Breta var rædd þar á mánudaginn. Þar rufu nokkrir Sjálfstæðis- menn samstöðuna við endanlega afgreiðslu til- lögunnar”. í niðurlagi þessarar greinar i Degi segir svo: „Dirfska, stefnufesta og baráttuþrek ólafs Jóhannessonar forsætisráðherra, i landhelgis- málinu, hefur aukið virðingu hans og vinsældir með þjóðinni, og mun rikisstjórn hans nú njóta meira fylgis en nokkru sinni áður”. Endurskoðun varnarsamningsins Nýlokið er samningafundum hér i Reykjavik um endurskoðun varnarsamningsins við Bandarikin. Mr. Porter, sem var i forsvari fyrir bandarisku samninganefndina, lagði fram nýjar tillögur Bandarikjastjórnar um fyrirkomulag þeirrar starfsemi, sem rekin er á Keflavikurflug- velli. Ekkert hefur enn verið látið uppi opinber- lega um þessar tillögur. Einar Ágústsson utan- rikisráðherra hefur þær nú til athugunar, en mun gefa um þær skýrslu til rikisstjórnar og utan- rikismálanefndar. Ákveðið er að halda samningaviðræðum áfram, og er liklegt að næsti fundur verði i Reykjavik i næsta mánuði. Ólafur Jóhannesson lýsti þvi yfir i umræðunum á Alþingi fyrr i vikunni, að rikisstjórnin myndi leggja fram tillögur sinar i varnarmálum fyrir lok þessa Alþingis. Sagði forsætisráðherra, að ef utanrikisráðherra tækist ekki að ná fram þeirri endurskoðun varnarsamningsins, sem teljast mætti viðunandi og i samræmi við þau markmið, er að væri stefnt, myndi rikisstjórnin leggja fyrir þingið tillögu um uppsögn varnarsamningsins við Bandarikin. — TK. ERLENT YFIRLIT Verður Japani vara- forseti Bandaríkjanna? Watergate-málið hefur gert Inouye frægan Inouyf «»K fjölskylda hans HAWAII varð 50. rikið i Bandarikjunum árið 1959. Ungur maður, Daniel Ken Inouye, tók þá sæti i fulltrúa- deild Bandarikjanna sem ann- ar af fulltrúum Hawaii þar. Fyrsta verk hans var að ganga á fund forseta deildar- innar, Sam Rayburns. Inouye kvað það sér mikinn heiður að mega heilsa þekktasta manni deildarinnar. Rayburn svar- aðium hæl: — Þú verður brátt annar þekktasti maður deildarinnar. Inouye varð hálfvegis undrandi við þetta svar og spurði um ástæðuna fyrir þessum spádómi. — Við höfum ekki marga Japani á gangi hér, svaraði Rayburn, sem hafa þar að auki misst aðra höndina i striði lyrir Bandarikin. Rayburn reyndist ekki sannspár. Inouye náði kosn- ingu til öldungadeildarinnar þremur árum siðar, og hefur átt þar sæti siðan. Verulega þekktur i Bandarikjunum hef- ur hann ekki orðið fyrr en á þessu ári. Hann var þá kjörinn af demokrötum til að verða einn af fulltrúum þeirra i rannsóknarnefndinni, sem fæst við Watergate-málið. Réttarhöldum hennar er sjón- varpað, og hefur það gert alla nefndarmennina þekkta um öll Bandarikin. Mesta athygli hafa þó tveir þeirra vakið. Annar þeirra er Howard Bak- er, öldungadeildarmaður frá Tennessee, en hann hefur að undanförnu oft verið tilnefnd- ur sem liklegt forsetaelni republikana i næstu kosning- um. Hinn er svo Inouye, en hann er nú oft tilneíndur sem heppilegt varaforsetaefni demokrata. I skoðanakönnun, sem nýlega fór fram, var spurt, hvaða maður i Water- gate-nefndinni héldi þar bezt á málum. Inouye fékk flest at- kvæði, Sam Irvin, formaður nefndarinnar, kom næstur, en Baker var sá þriðji i röðinni. Aðrir nefndarmenn fengu miklu minna. DAN INOUYE fæddist i Honolulu 7. sept. 1924. For- eldrar hans höfðu flutzt til Hawaii frá Japan með fjöl- skyldum sinum, þegar þau voru börn að aldri. Inouye hafði rétt lokið menntaskóla- námi, þegar Japanir réðust á Pearl Harbor. Hann hefði þá, sem bandariskur þegn, átt að innritast i herinn, en af öryggisástæðum þótti ekki rétt að innrita neinn, sem var 'af japönsku bergi brotinn. Siðar breytti Roosevelt forseti þessari ákvörðun og veitti heimild til að innrita mætti takmarkaðan fjölda Japana, sem hefðu gengið undir sér- stakt próf. Inouye var einn þeirra, sem stóðust slikt próf. ,Hann var þá 18 ára og ný- byrjaður á laganámi við háskólann i Honolulu. Eftir að hafa fengið nauðsynlega her- þjálfun, var hann sendur til vigstöðva á ttaliu og sýndi fljótt mikið hugrekki og snar- ræði i orustum. Hann var þvi gerður að foringja og var tal- inn liklegur til mikils frama i hernum. Það batt hins vegar enda á þennan frama hans, að hann varð íyrir þýzkri sprengju og særðist hættulega. Hann íá á spitala i 20 mán. og missti hægri höndina. Þegar hann komst til heilsu aftur, hóf hann að nýju laganám við há- skólann i Honolulu og hélt þvi siðan áfram við háskólann i Washington. Hann sneri heim til Honolulu að loknu náminu i Washington og hóf þar lög- fræðistörf. Jafnframt gerðist hann einn af forustumönnum demokrata þar. Arið 1954 var hann kjörinn á fylkisþingið i Honolulu og varð brátt for- maður þingflokks sins þar, rétt þritugur að aldri. llann náði svo kosningu til fulltrúa- deildar Bandarikjaþings árið 1959 og var svo endurkjörinn næsta ár. Arið 1962 bauð hann sig fram i kosningum til öldungadeildar Bandarikja- þings og hlaut 70% greiddra atkvæða. 1 kosningunum 1968 varð atkvæðamunurinn enn meiri honum i hag. Það þykir öruggt, að hann verði endur- kjörinn i kosningunum, sem eiga að fara fram á næsta ári. ÞAÐ HEFUR að sjálfsögðu verið Inouye mikill styrkur i stjórnmálabaráttunni, að hann er viðurkennd striðs- hetja. Einkum átti það góðan þátt i að ryðja honum braut, þegar hann var að hefja stjórnmálaferil sinn. Siðan Inouye hóf þátttöku sina i þingstörfum, hefur hann hins vegar ekki þurft á herfrægð sinni að halda. Hann hefur reynzt mjög starfhæfur þing- maður og hlotið almenna viðurkenningu fyrir störf sin á þingi. Hann hefur kynnt sér mjög gaumgæfilega þau mál, sem hann hefur tekið að sér, og reynzt ötull við að koma þeim fram. Það hefur hjálpað honum i þeim efnum, að hann er mjög vel látinn af þing- mönnum, og á geðþekk fram- koma hans þátt i þvi. Hann er með betri ræðumönnum og nýtur sin ekki sizt vel á fjöl- mennum kjósendafundum. Hann á lika auðvelt með að ræða við áheyrendur á fá- mennum fundum. Þetta hel'ur komið honum vel i kosninga- baráttunni á Hawaii, þvi að þar hefur hann þurft jöfnum höndum að mæta á fjölsóttum fundum og fámennum. Siðustu mánuðina, eða siðan réttarhöldin i Watergate-mál- inu hófust, hefur verið rætt um þaö i sivaxandi mæli, að Inouye gæti orðið mjög heppi- legt varaforselaefni hjá demokrötum i forsetakosning- unum 1976. Sjállur segist hann ógjarna vilja takast það á hendur, heldur halda áfram starl'i sinu i öldungadeildinni, þvi að honum falli það mjög vel. En margt bendir til þess, að flokksbræður hans muni ekki taka þær óskir hans til greina. Þaö styrkir hann m.a. sem varafðrsetaefni að hann nýtur sérstakrar viðurkenn- ingar fyrir heiðarleika i fjár- málum. Þá er það honum til framdráttar að tilheyra litlu þjóðarbroti i Bandarikjunum, en það er nú mjög vinsælt i Bandarikjunum að sýna i verki, að menn séu ekki snið- gengnir vegna þjóðernis eða litarháttar. Fyrir fáum ára- tugum rikti gerólikt viöhorf i þessum efnum. Hér er vissu- lega um mikilsverða og lofs- verða hreytingu að ræða. Inouye kvæntist japanskri stúlku á háskólaárum sinum. Þau eiga niu ára gamlan son. Fjölskyldulif hans er sagt mjög gott, en hann leggur kapp á að lifa hæglátu lifi, þegar pólitiskt annriki leyfir það. Siðan réttarhöldin i Watergate-málinu hófust, hef- ur hann þó haft litinn tima til þess, þvi að þau hafa að sögn hans aukið daglegan vinnu- tima hans um fimm klukku- stundir. Þ.Þ.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.