Tíminn - 17.11.1973, Blaðsíða 19

Tíminn - 17.11.1973, Blaðsíða 19
Laugardagur 17. nóvember 1973. TÍMINN 19 Varanleg gatnagero í þéttbýli kostar Fró Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi: 450 milljónir A Ð A L F U N I) U R S a m t a k a sveitarfélaga í Vesturlandskjör- dæmi var haldinn i Borgarnesi i lok siðustu viku. Fluttu Björn Jónsson félagsmálaráðlierra og Páll Lindal, formaður Sambands islenzkra sveitarfélaga, ræður, en að þvi loknu gerði for maður samtakanna á Vestur- landi, Alcxander Stefánsson i Ólafsvík, grein fyrir störfum stjórnarinnag og Gylfi ísaksson gjaldkeri las reikninga þeirra. Guðjón Ingvi Stefánsson, fram- kvæmdastjóri samtakanna, gerði grein fyrir kostnaðaráætlun við að ljúka varanlegri gatnagerð i þéttbýli á Vesturlandi. Meðal þess, sem var til um- ræðu, var landnýting.og flutti Ás- geir Bjarnason framsöguræðu um nýtt frumvarp til jarðalaga, Stefán H. Sigfússon búfræði- kandidat um landnýtingu og gróðurvernd og Arni Reynisson framkvæmdastjóri um náttúru- vernd. Um skólaskipan á Vestur- landi talaði Indriði Þorláksson, fulltrúi i menntamálaráðuneyt- inu, en um störf byggðarnefndar talaði Steingrimur Hermannsson alþingismaður. Nú er talið, að varanleg gatna- gerð i þéttbýli á Vesturlandi muni kosta um 450 milljónir króna. Skiptist sá kostnaður þannig: Neshreppur utan Ennis fimmtiu milljónir, Ólafsvik 61,3 milljónir, Grundarfjörður 64,9 milljónir. Stykkishólmur 78 milljónir, Búðardalur fjörutiu milljónir, Borgarnes 37 milljónir og Akra- nes 120 milljónir. Nú þegar hafa Akurnesingar gengið frá 45% af sinu gatnakerfi með slitlagi, en Borgnesingar tæplega 40%. Margar samþykktir voru gerð- ar á fundinum. Stjórn samtak- anna var heimilað að fá sér- fræðinga til þess að flýta alhliða áætlanagerð fyrir Vesturland i samráði við áætlanadeild fram- kvæmdastofnunar rikisins, fagn- að löggjöf um byggingu leiguhús- næðis á vegum sveitarfélaga og lögð áherzla á að útvega yrði nóg fé til þess að ná takmarkinu með lögunum, óskað aukinna lán- veitinga til ibúðarhúsabygginga á Vesturlandi og þun áherzla lögð á þýðingu aukinna möguleika til framhaldsmenntunar i heima- héraði, og þóttu hugmyndir um samræmt framhaldsnám þar álitleg lausn á þörfum dreifbýlisins. Fundurinn taldi ástand i póst- málum á Vesturlandi ótækt og fór fram á, að flokkun pósts færi fram á einum eða fleiri stöðum á svæðinu og komið yrði upp póst- bílaþjónustu með svipuðum hætti og nú er veitt á Suðurlandi. Þá var farið fram á, að Landsiminn fjölgaði talrásum milli Reykja- vikur og Vesturlands, munur á simgjöldum eftir fjarlægð afnum- inn og hraðað framkvæmdum við sjálfvirkan sima um allt Vestur- land t ályktunum um samgöngumál var áherzla lögð á, að epgar tafir yrðu á brúargerð yfir Borgar- fjörð, þjóðvegurinn milli þorp- anna á Snæfellsnesi yrði endur- gerður með varanlegu slitlagi, vegatengsl við Akranes bætt með brú yfir Grunnafjörð við Súlunes, hraðað brúargerð vfir Alftafjörð, viðhald vega stóraukið og ailur snjómokstur greiddur af Vega- gerð rikisins. Við'skiptingu þétt- býlisvegafjár var talið, að sú meginregla yrði að gilda, að þétt- býlissveitarfélögum yrði gert kleift að fullgera gatnakerfi sitt, og úthlutun miðuð við lengd ófull- gerðra gatna 1. janúar 1974, en ekki ibúafjölda, og lögum breytt i samræmi við þetta. Loks var lagt til, að sveitar- félög yrðu aðstoðuð við að koma á bættri aðstöðu handa ferðafólki á áningarstöðum og komið i veg fyrir, að skemmdir verði unnar á stöðum, sem sérstakt gildi hafa frá sjónarmiði náttúruverndar, svo sem Búðahrauni og Berudal á Snæfellsnesi. Asgeir Bjarnason, alþingismaöur i AsgarOi, I ræöustóli. Hjá honum situr Alexander Stefánsson, formaöur Samtaka sveitarfélaga á Vestur- landi. o Nokkur orð aldrei getað notað landið vestan fjalla og geta það ekki enn, nema með þyrlum og öðrum nútima fyrirgangi. Þá segir Angantýr: ,,Það er tæpast hægt að búast við þvi, að Eyfirðingar afhentu Skagfirðing- um þetta stóra landsvæði um- yrðalaust, þegar þeir voru búnir að nýta það i meira en 100 ár, þótt Skagfirðingar hömpuðu gömlu afsali frá Nýjabæjarbónda”. Angantýr virðist álita, að Eyfirðingar hafi eignazt land- svæðið með þvi að sækja fé sitt þangað. Hliðstætt dæmier það, ef bóndi nokkur segði við nágranna sinn: „Heyrðu góði! Nú er ég bú- inn að sækja minar skepnur i þitt land i 30 ár, og nú á ég landið”. Svo auðvelt er það ekki, að eign- ast land. t forsendum fyrir landa- merkjadómi segir svo: „Þykir þvi verða að byggja á þvi við úr- lausn máls þessa, að afréttarlönd jarðanna Hóla og Möðruvalla nái ekki suður fyrir Eyjafjarðardal, enda verður ekki talið, að fjárleit- ir Eyfirðinga eða framkvæmdir á svæðinu suöur og vestur af Eyja- fjarðardölum hafi skapað Hólum og Möðruvöllum umráðarétt yfir þvi svæði, sem Upprekstrarfélag Saurbæjarhrepps gerir nú tilkall til”. Þar með er Angantýr búinn að ,,missa glæpinn”, og ég vil benda honum á, að Hæstiréttur hefur ekki breytt þessum úrskurði. Um nýtingu Eyfirðinga á margumræddu landsvæði vil ég benda á eftirfarandi: Á seinni hluta 19. aldar var ekki rekið fé á Nýjabæjarafrétt súnnan Fossár, hvorki úr Eyjafirði né Skagafirði, en lömb og geldfé úr ýmsum átt- um settist þar að um sumur. Þess konar nýting var óviðráðanleg, eins og ósjálfráð skrift. Eyfirð- ingar og Þingeyingar gerðu fyrstu göngur, en svo tóku eftir- leitir Austdælinga við, tvær og stundum þrjár, eins og Hjálmar Þorláksson segir i „Göngur og réttir”. 1 nóvember 1912 fundu Arbæjarbændur 27 kindur i eftir- leit, og var ekkert af þvi fé úr Skagafirði. Fyrstu göngur Eyfirðinga hafa verið mislukkað- ar haustið það. Um það, hvar Nýjabæjarafrétt sé austan Jökulsár eystri, segir Angantýr svart, þar sem ég segi hvitt, og verður við það að sitja. Og hann segir svart, af þvi að hans málstaður er rangur. 25. okt. ’73. ÍOPIÐ: 1 Virka daga kl. fi-lOe.h. Laugardaga kl. MMe.h. I BILLINN BÍLASALA HVERFISGÖTU 18-nmi 14411 pœMMmam l§ k ,:.1 V.-Us &>. N!, g $ I Aðstoðarlæknar 2 stöður aðstoðarlækna við Lyflækn- ingadeild Borgarspitalans eru lausar til umsóknar. Stöðurnar veitast frá 1. febrúar 1974, til 6 eða 12 mánaða, eða eftir samkomulagi. Laun samkvæmt samningi Læknafélags Reykjavikur, við Reykjavikurborg. Umsóknir,er greini nám og fyrri störf, skulu stflaðar á Heilbrigðismálaráð Reykjavikurborgar og sendar yfirlækni lyflækningadeildar fyrir 20. desember 1973. Frekari upplýsingar um stöðurnar veitir yfirlæknirinn <tZr Ú' i I y - v>i Reykjavik 16. nóvember 1973. Ileilbrigðismálaráð Reykjavikurborgar. r ;---------------------------n Félag framsóknarkvenna í Reykjavík Hinn árlegi bazar félagsins verður laugardaginn 24. nóvember næst komandi að Hallveigarstöðum og hefst hann kl. 14. Félags- konur og velunnarar félagsins eru hvattir til þess aö gefa muni á bazarinn. KöKUR eru sérstaklega vel þegnar. Tekið verður á móti gjöfum að Hringbraut 30, næst komandi miðvikudag, 21. þessa mánaðar, kl. 13 til 17, og á móti kökum laugardagsmorgun 24. nóv. að Hallveigarstöðum. Einnig taka eftirtaldar konur á móti munum: Dóra Guðbjarts- dóttir, Aragötu 13, simi 16701, Elin Gisladóttir Sundlaugaveg 28, simi 32768, Ingibjörg Helgadóttir, Bergþórugötu 8, simi 21727. - x Akranes Framsóknarfélag Akranes heldur fram- sóknarvist i félagsheimili sinu, að Sunnubraut 21, sunnudaginn 18. nóvember kl. 16. öllum heimill aðgangur meðan húsrúm leyfir. r ^ Félagsmólaskóli Framsóknarflokksins Fundir i félagsmálaskóla Framsóknarflokksins, haustnám- skeiði, eru haldnir tvisvar i viku, á laugardögum kl. 15 og á fimmtudögum kl. 21. Laugardagsfundirnir verða fyrir mælsku- æfingarog leiðsögn i fundarstörfum, en á fimmtudagsfundunum verða flutt 45 minútna fræðsluerindi um Framsóknarflokkinn og islenzk stjórnmál. Lestrarefni: Lýðræðisleg félagsstörf, Sókn og sigrar. Málefna- samningur rikisstjórnarinnar og Tiðindi frá Flokksþingum. Leiðbeinendur á málfundaæfingum verða: Björn Björnsson Jón Sigurðsson og Kristinn Snæland. Fundir verða haldnir á Hótel Esju. 7 Fundur Laugardag !7. nóvember kl. 3 e.h. Fjórða málfundaraif'ng, sk v. 5. i adingu, bls 302, Lýðræðisleg félagsstörf. ___________________________J Freyja, félag f ramsóknarkvenna Kópavogi heldur aðalfund sinn i Félagsheimili Kópavogs neöri sal þriöju- daginn 20. nóvember kl. 20:30. Venjuleg aöalfundarstörf. Kosnir fulltrúar á kjördæmisþing. Halldór E. Sigurðsson fjármálaráö- herra mætir á fundinum og ræðir skattamál, og svarar fyrir- spurnum. Stiórnin. Reykjaneskjördæmi Kjördæmisþing framsóknarmanna i Reykjaneskjördæmi veröur haldiö i Skiphóli i Hafnarfiröi sunnudaginn 25. nóvember og hefst kl. 9:30 árdegis. Stjórn kjördæmissambandsins. Framsóknarvist að Hótel Sögu Framsóknarvist að Hótel Sögu. Fyrsta vistin á þessum vetri veröur að Hótel Sögu fimmtudaginn 22. nóv. Góö verðlaun aö venju. Nánar auglýst siðar. Stjórnin c ^ Framsóknarfélögin ó Snæfellsnesi Framsóknarfélögin á Snæfellsnesi hala aðalfundi sina á Breiða- bliki sunnudaginn 25. nóvember kl. 15. Venjuleg aðalfundarstörf. Asgeir Bjarnason alþingismaður mætir á fundinum. 's_______________________________________J

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.