Tíminn - 01.12.1973, Blaðsíða 6
6
TÍMINN
Laugardagur 1. desember 1973.
Q
BÍLALEIGAN
51EYSIR
CAR RENTAL
*24460
í HVERJUM BÍL
PIOIMEER
ÚTVARP OG STEREO
CA5ETTUTÆKI
Jólasýning A.S.Í.
1 GÆR 30, nóvember, var opnuð
ný sýning — jólasýning — i
sýningarsölum iistasafns ASt að
Laugavegi 31.
t fremri salnum eru eingöngu
uppstillingar eða samstillingar
hluta eftir eftirtalda málara:
Asgrim Jónsson, Gunnlaug
Scheving, Snorra Arinbjarnar,
Kristján Daviðsson, Þorvald
Skúlason, Jóhannes Sveinsson
Kjarval, Ninu Tryggvadóttur,
Jón Stefánsson og Braga Ásgeirs-
son.
t innri salnum verða sýnd lista-
verk af ýmsum gerðum og frá
ýmsum timum eftir þessa lista-
menn: Kristján Daviðsson, Ninu
Tryggvadóttur, Einar G. Bald-
vinsson, Karl Kvaran, Jóhann
Briem, Asgrim Jónsson og Jón
Stefánsson. Málverk Jóns
Stefánssonar heitir Bóndinn og
hefur sjaldan verið sýnt opinber-
lega.
Þá er ein grafikmynd eftir
franska myndlistarmanninn
Vincent Gayet á jólasýningunni.
Nýlega er lokiö I safninu sýningu
á grafikverkum Gayet. Hún hlaut
mjög góðar undirtektir. Jóla-
sýningin veröur opin kl. 15-18 alla
daga nema laugardaga fram und-
ir jól.
BÍLALEIGA
CAR RENTAL
21190 21188
BÍLALEIGA
Car rental
660 & 42902
Deila við dómarann
— segir gatnamálastjóri
A FORStÐU Timans I dag birtist
grein undir fyrirsögninni „Iiver á
stæðið”. Tilefni þessarar greinar
er eftifarandi bréf undirritaðs til
yfirsakadómara, Halldórs Þor-
björnssonar:
„Miklar kvartanir hafa borizt
frá borgarstarfsmönnum, er
starfa I Skúlatúni 2, um að bif -
reiðastæðihússins sé nú orðið svo
þéttsetið, að starfsfólk komist þar
iðulega eigi að lengur meö
bifreiðar sinar. Athuganir, sem
gerðar hafa verið á vegum
umferðardeildar sýna, að stæðið
á að nægja fyrir bifreiðar starfs-
fólks og þeirra, sem erindi eiga i
húsið. Þá hefur einnig komið i
1 jós, að nokkur hluti stæðisins er
notaður af starfsmönnum yðar.
Það eru þvi vinsamleg tilmæli, að
þér hlutist til um, að starfsmenn
yrðar finni sér bifreiðastæði
annars staðar, svo eigi þurfi að
koma til sérstök takmörkun á
aðgangi að stæðinu”.
[
OPID:
Virka daga kl. fi-10 e.h.
Laugardaga kl. io-4e.h.
^ BILLINN BILASALA
vA HVERFISGÖTU 14411
1 greininni er ranglega með
farið, að sakadómur og
rannsóknarlögreglan sé borgar-
stofnun, þvi frá 1. janúar 1972
yfirtók rikið launagreiðslur til
rannsóknarlögreglumanna og
yfirsakadómari er rikisstarfs-
maður-
Bifreiöastæðið var tekið af lóð
Vélamiöstöðvar og Ahaldahúss
borgarinnar og kostaö af húseign-
inni Skúlatún 2. Stæðið er ætlað
fyrir það starfsfólk, sem vinnur i
þessum stofnunum og þá, sem við
þær eiga erindi. Eftir er að sjá,
hvort yfirsakadómari lætur það
viðgangast, að starfsmenn hans
taki ekki þessum vinsamlegu
tilæmlum. Ef ekki, verðum við
borgarstarfsmenn og al-
menningur, sem erindi á við
nefndar þjónustustofnanir
borgarinnar, að sætta okkur við
þennan yfirgang og takmarka
okkar aðgang að stæðinu, þvi ekki
þýðir að deila við dómarann.
Reykjavik, 29. nóvember 1973.
Ingi 0. Magnússon.
gatnamálastjóri.
Sýning Maríu
framlengd
Lögtök í Selfosshreppi
Með úrskurði sýslumanns Árnessýslu
dagsettum 27. nóvember 1973, var gefin út
lögtaksheimild fyrir eftirtöldum gjöldum
til Selfosshrepps.
Það er, útsvörum, kirkjugarðsgjöldum,
aðstöðugjöldum, viðlagagjöldum og fast-
eignagjöldum álögðum árið 1973. Að átta
dögum liðnum frá birtingu auglýsingar
þessarar munu hefjast lögtök til inn-
heimtu gjaldanna.
Sveitarstjóri Selfosshrepps.
MARÍA II. rtlafsdóttir listmálari
hefur haldið málverkasýningu i
Norræna húsinu undanfarna
daga, og átti henni aö ljúka um
helgina. Nú hefur Maria ákveðiö
að framlengja sýningu sina þar til
klukkan tiu á þriöjudagskvöldiö.
— Ég hef selt nokkrar myndir,
sagði Maria við blaðið, og eina
hefur listasafn rikisins keypt. Og
viijið þið svo geta þess, aö það er
opið hjá mér frá klukkan 2-10 eftir
hádegi?
Almannatryggingar í Gullbringu-
og Kjósarsýslu
Útborgun bóta almannatrygginga fer fram sem hér segir:
í Seltjarnarneshreppi mánud. 3. des. kl. 10-12 og 1.30-5.
í Mosfellshreppi þriðjud. 4. des. kl. 1-3
í Kjalarneshreppi þriðjud. 4. des. kl. 4-5
í Kjósarhreppi þriðjud. 4. des. kl. 5.30-6.30.
í Grindvikurhreppi miðvikud. 5. des. kl. 1-5
í Vatnsleysustrandarhreppi fimmtud. 6. des. kl. 11-12.
í Njarðvikurhreppi fimmtud. 6. des. kl. 1-5
í Gerðahreppi föstud. 7. des. kl. 10-12.
í Miðneshreppi föstud. 7. des. kl. 2-5 .
1 Hafnarfirði, Garða- og Bessastaðahreppi hefjast greiðslur á elli-,
og örorkulifeyri mánudaginn 10. des. og greiðslur allra annarra
bóta miðvikudaginn 12. des.
Sýslumaðurinn i Gullbringu- og
Kjósarsýslu
Bæjarfógetinn i Hafnarfirði.
Afgreiðslutími
verzlana í des.
KAUPMANNASAMTOK Islands, Verzlunarráð Islands, Vinnu-
veitendasamband Islands, Kaupfélag Reykjavikur og nágrennis
og Vinnumálasamband samvinnufélaganna annars vegar og
Verzlunarmannafélag Reykjavikur hins vegar hafa gert eftir-
farandi samkomulag um lokunartima sölubúða i Reykjavik og
nágrenni i desember 1973.
Mánudaga, þriöjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga er heim-
ilt að halda sölubúðum opnum til kl. 18.00 e.h., á föstudögum er
heimiltaöhalda sölubúðum opnum til kl. 22.00e.h.
Laugardaga sem hér segir:
laugardag 1. desember opið til kl. 12.00 á hádegi
laugardag 8. desember opið til kl. 18.00 e.h.
laugardag 15. desember opið til kl. 18.00 e.h.
laugardag 22. desember opiö til kl. 23.00 e.h.
laugardag 29. desember opiö til kl. 12.00 á hádegi
A aðfangadag og gamlársdag er heimilt að halda sölubúðum
opnum til kl. 12.00 á hádegi.
I gær var unnið aö uppsetningu sýningarinnar í Gallerf SCM. Verkiö
fremst á myndinni heitir „Leikur fyrir tvo stjórnmálamenn, annan
örvhentan, hinn rétthentan” Þaö er eftir Jón Gunnar Arnason. 1
höndunum eru hnifar, á bak viö sjást plakötin i tilefni dagsins og
stiginn er einnig hluti af listaverki eftir Sigurö Guömundsson.
(Timamynd: Róbert).
Pólitísk myndlistar-
sýning í Gallerí SÚM
— í tilefni fullveldisdagsins
STÚDENTAR viö Háskóla ts-
lands munu aö vanda halda bar-
áttuhátiö sina i dag, fullveldis-
daginn. Kl. 2 hefst i Háskólabíói
fjöldafundur undir kjöroröunum:
tsland úr Nato — herinn burt og
verður fundinum útvarpaö. Þá
verðuropnuð i Galleri Súm fyrsta
pólitiska myndlistarsýningin á
landinu og veröa þar til sýnis
verk fjölda listamanna.
Dagskrá fundarins i Háskóla-
biói verður á þá leið, að Eyvindur
Einarsson setur samkomuna og
siðan verður samfelld dagskrá i
mæltu máli, ljóðum og söng.
Vésteinn Lúöviksson flytur þvi
næst aðalræðu dagsins.
Að vanda hefur erlendum
gestum verið boðið á samkom-
una, i þetta sinn þeim Lu Van Ky,
sendifulltrúa Þjóðfrelsifylkingar
Vietnam i Oslo og Rafael Carero
forsvarsmanni stúdentasamtaka
i Chile. Hann er nú landflótta i
Tékkóslóvakiu. Gestirnir munu
dvelja hér i nokkra daga og ræða
við ráðamenn, auk þess sem þeir
ávarpa fundinn i Háskólabiói.
Þá flytur Dagur Þorleifsson
tölu um Chile og fleira og flutt
verður af plötu siðasta ávarp
Allende forseta til þjóðar sinnar,
en þvi var smyglað frá Chile. Þá
verða lesin Ijóð eftir Pablo
Neruda og að lokum verða um-
ræður.
Myndlistarsýningin i Súm
verður opnuð i dag og verður hún
opin i tvær vikur. Á sýningunni
eru 43 pólitisk verk eftir 28 lista-
menn. m.þ. Gylfa Gislason, Jón
Gunnar Árnason, Hildi Hákonar-
dóttur, Hring Jóhannesson,
Magnús Tómasson og Þorbjörgu
Höskuldsdóttur. Mörg þessara
verka eru gömul og hefur þeim
verið safnað saman viða undan-
farnar vikur. Sýningin er á
vegum 1. des. nefndar stúdenta. A
sýningunni er hægt að fá plaköt
þau, sem gefin eru út i tilefni
dagsins, þrjár gerðir. 1. des.-blað
stúdenta er komið út og hefur
verið dreift I Reykjavik, en
verður einnig sent.út um land. —
SB