Tíminn - 21.12.1973, Page 4

Tíminn - 21.12.1973, Page 4
4 TÍMINN Föstudagur 21. desember 1973. Evrópa að fara úr tízku Þaö virðist ekki lengur vera i tizku meðal riks fólks i Banda- rikjunum að eiga sitt annað heimiii einhvers staðar i Evrópu. Astæðan er sennilega sú, að dýrara er nú að lifa i flestum Evrópulöndum heldur en i Bandarikjunum sjálfum, eftir að dollarinn hefur fallið i verði. Geta Bandarikjamenn þviekki lifað þar eins og kóngar og eytt samt ekki nema svipuð- um peningaupphæðum og fátækur bóndi þurfti að fram- fleyta sér á i heimalandinu. Standa nú fyrir dyrum Ijölda- uppboð á húseignum Banda- rlkjamenna i Sviss, Frakklandi og London. Arabarnir og oiían Talið er, að um 2,7 milljónir Palestinuaraba séu nú dreifðir viðsvegar um heiminn. Um 1.51 milljón þessa fólks er skráð sem flóttafólk i skjölum PUótta- mannastofnunar Sameinuðu þjóðanna, og þar af lifir um 40% þess við sult og seyru i flótta- mannabúðum, sem komiðhefur verið upp i ýmsum Arabalönd- um. Mikill peningaskortur háir nú starfsemi F'lóttamannastofn- unarinnar, og má þvibúast við, að skera verði niður framlög til þessa l'lóttafólks á næsta ári. Verður það þá að gera sér að góðu að verða af ýmsu þvi, sem það fær frá Flóttamannastofn- uninni nú, þar á meðal kennslu. Það mun verða mikið áfall, ekki sizt vegna þess að Palestinuar- abar hafa gert sér grein fyrir þvi, að menntunin er einmitt ein af fáum undankomuleiðum til betra lifs. Arabar hafa beitt ýmsum aðferðum til þess að fá framlög hinna ýmsu landa til Flóttamannastofnunarinnar hækkbö. Til dæmis hefur oliu- sölubannið verið hugsað til þess I og með. Hefur það orðið til þess að Hollendingar, sem einna verst hafa orðið úti vegna oliu- skortsins i Evrópu, hafa nú ákveðið að tvöfalda framlag sitt á næsta ári. Fótt er svo með öllu illt___ Italska lögreglan hefur skýrt frá þvi, að fyrsta sunnudaginn, sem einkabilaakstur var bannaður á ttaliu, til að spara bensin, þá hafi ekki aðeins sparazt bensin og mannslif, — þvi að slysin i umferðinni urðu helzt um helgar —, heldur hafi lika glæpir minnkað ótrúlega mikið. 1 14 stærstu borgum Italiu, þar sem glæpir skipta hundruðum um helgar, þá urðu aðeins 62 þjófnaðiren voru 169sunnudaginn þar áður. Þetta segir lögreglan að sé auðskilið, þvi að það er ekki auðvelt fyrir glæpamenn að komast i burtu með ránsfeng eða þýfi, þegar engir bilar eru á ferð. Þeir hefðu ekki komizt langt, þvi að lög- reglan var með vegatálmanir alls staðar, og stöðvaði alla bila og létu bilstjóra gera grein fyrir ferðum sinum. 00 ö Hamingjusöm að lokum 6g held við gætum yfirstigið hvaða vanda sem væri, úr þvi við ætlum að standa hvort við annars hlið i framtiðinni, segir May Britt Anderson, 38 ára gömul. Við hlið hennar i öðrum hjólastól situr kærastinn henn- ar, hinn .þritugi Eiwe Hermans- son. Bæði Eiwe og Maj Britt eru mjög mikið bækluð, og hafa verið það frá fæðingu. Þau kynntust, þegar þau fóru að ganga i skóla nú fyrir stuttu. Skólinn heitir Furuboda Ung- domsgard i Yngsjö i Sviþjóð og er ætlaður fötluðu fólki. Lengi framan af var Maj Britt höfð á elliheimili með gömlu fólki, sem algjörlega var búið að tapa sér, en enginn annar staður var fyrir hana. Hún var þó ekki vanheil andlega. og fékk að lokum tæki- færi til þess að komast i áður- nefnda skóla, en þó ekki fyrr en hún var komin hátt á fertugs- aldurinn. Maj Britt fór fljótlega að hjálpa Eiwe, eftir að hann kom i sama skóla og hún var i, en honum gekk ekki vel þar, aðallega vegna þess að kennar- arnir áttu erfitt með að skilja hann, þegar hann talaði. Fyrst var Eiwe aðeins þakklátur Maj Britt, en svo kom að þvi dag einn, að hann sagði við hana: Við skulum fá okkur hring, við skulum fá okkur hús. Þá fyrst þorði Maj Britt að láta i ljós ást sina á Eiwe, svo allir mættu sjá, en undir niðri hafði hún elskað hann miklu lengur. Svo kom að þvi siðastliðið vor, að þau opin- beruðu trúlofun sina, og eftir það fengu þau að búa saman i einni Ibúðinni I skólanum. tbúð- in er sérstaklega ætluð fötluðu fólki, og þar hjálpast nú Eiwe og Maj Britt að við búskapinn. Það einasta, sem skyggir á gleði þeirra er, að þau vita ekki hvert þau eiga að fara, þegar skóla- vistinni lýkur, en hver veit nema þeim takist að fá ein- hverja litla ibúð, sem ætluð er fólki eins og þeim, og þá trúa þau þvi, að þau geti búið ham- ingjusöm saman um alla fram- tið. — Eigum við svo að reyna aftur...? DENNI DÆMALAUSI Og gættu svo Snata og Betu og allra hinna krakkanna góði guð.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.