Tíminn - 29.12.1973, Side 2

Tíminn - 29.12.1973, Side 2
2 TÍMINN i.augardagur 2». desember l!)7:i. Flugeldasalan, Grandagaröi 13 Flugelda- og blysaúrval. Opið til kl. 12 og til 4. á gamlársdag. Starfsstúlkur vantar að Skálatúnsheimilinu i Mosfells- sveit. Fæði og húsnæði á staðnum. Upplýsingar hjá forstöðukonunni i sima 66249. Húsmæðraskólinn ó Hallormsstað tilkynnir: 2ja mánaða hússtjornarnámskeið hefst 7. janúar. 2ja mánaða vefnaðarnámskeið hefst 15. janúar. Saumanámskeið hefjast i marz, en verða auglýst siðar. BÍLALEIGAN 5IEYSIR CAR RENTAL *24460 í HVERJUM BÍL PIONEER ÚTVARP OG STEREO CASETTUTÆKI ttcvuun Verðstaðrey ndir! 650x16 negldur kr.4290.- 750x16 neqldur kr.4990.- nýi TORFÆRU- HJÓLBARÐINN! SOLUSTAÐIK: Hjólbarðaverkstæðið Nvbarði. Garðahreppi. simí 50606. Skodabúðiu, Kópavogi. simi 42606. Skbdavcrkstæðið á Akureyri h.f. simi 22520. Varahluta verzlun Gunnars Gunnarss., Egilsstöðum. simi 1158. BÍLALEIGA CAR RENTAL 21190 21188 (OPIÐ: Virka daga kl. 6-10 e.h. Laugardaga kl. 10-4 e.h. ö< BILLINN BÍLASALA HVERFISGÖTU t8-limi 14411 BÍLALEIGA Car rental 41660 &42902 Skólavörðustig 2 — Simi 1-23-34 Ný vandamál Fyrir nokkru skrifaði H. Pétursson grein i Timann um þá hættu, sem æðarfuglastofni Is- lands stafar af þeirri mergð svartbaka, sem nú lifir góðu lffi við strendur landsins á úrgangi frysti- og sláturhúsa meðal annars. Allt er þetta satt og rétt hjá Hjálmtý, en svo er annar vargur og 'ékki ósaknæmari en varg- fuglinn, en það er maðurinn sjálf- ur, meö tæknivædd veiðiskip og nælonvoðir um allan sjó. Nokkur undanfarin ár hefur fengizt gott verð fyrir hrogn grá- sleppunnar og hafa þær veiðar þá tekið fjörkipp. svo sem venja er, þegar gullbjarminn birtist. Púsundir nælonneta eru nú lagðar við strendur landsins og allt upp i fjörusteina, einkum vestan, norðan og austanlands. Einn sjó- maður aö noröan, sagði, að það væri algengt, að svona einn og tveir fuglar væru i hverju neti eftir nóttina. Hver bátur hefur frá 60-100 net i lögn, og gera menn þá ráö fyrir, að veiðitiminn^tan^ji 2-2,5 mán. að vorinu til. Hér falla i'ullorðnir æðariuglar, sem gætu verpl eggjum og komið upp ungum það árið. Lettu mál veldur nú æðar- varpseigendum miklum ugg, og sjá þeir ekki frama annaö en æðarvarp leggist niöur með öllu hér á landi. Þó er hér um tölu- verðan tekjustofn að ræða fyrir landið i heild, samsvarað afla- verðmæti eins skuttogara. Þess vegna er nú rætt um það i alvöru að óska eftir breyttri iand- helgi jaröa, sem að sjó liggja, og að gömlu netalagnalögin um 60 faðma verði færð út i t.d. 2000 metra, eða um það bil að 12-14 metra sjávardýpi, en þar munu vera takmörk þess, að æðar- fuglinn geti kafað til botns eftir hrognum. Þetta myndi einnig gefa griðland öörum smáverum, sem skýla sér i þara og við kletta- brúnir, þar sem oft má sjá þúsundir af smáfiskum á sumrin. Ekki er við þvi að búast, að einstakir jaröeigendur geti varizt af sjálfsdáðun vélvæddum flota, sem herjar allt að fjöruborði á fyrrnefndum svæðum við landið og byggð sjávarjarða byggist að' töluvert miklu leyti á nytjum rauðmaga og grásleppu. Margt fleira kemur til greina i þessu sambandi, sem verður kannski rætt um i þessu blaði innan tiðar til verndar smáat- vinnuvegum hinna byggðu strandjarða, svo sem þá rányrkju, þegar ekki er nytjað nema hrognin ein, en öðru fleygt fyrir vargfugla, o.s. frv. Bj. Bj. Auglýsið Tímanum 1 14444 mum * 25555 BÍLALEIGA CAR RENTAL BORGARTUN 49 SVEITARFELOG SOTTU UAA LÁN TIL 1072 ÍBÚÐA Fréttabréf frá Húsnæðismála- stofnun rikisins SÍULA sumars var ölluin sveitar- félögum á landinu, þar scm 300 ibúar eða flciri búa i þéttbýli, skrifað bréf og þau beðin að láta i Ijósi vilja sinn um það, hve margar tiltekinna 1000 leigu- ibúða, samkvæmt lögum frá s.l. vori, yrðu byggðar i hverju þeirra fyrir sig. Jafnframt voru þau beðin að grciná itarlega frá því, á hvcrju þessi vilji þeirra byggðist. l>cim var upphaflcga gert að senda svör sin fyrir 15. október s.l., en þcim sem þá liöfðu ekki gert skil, var siðan gefinn frestur til 1. dcscmber. Fyrir tilstuðlan félagsmála- ráðúneytisins og Húsnæðismála- stofnunarinnar starfar nú áætlunardeild Framkvæmda- stofnunar rikisins að athugun á þvi, með hverjum hætti ibúðirnar 1000 gætu skipzt milli þeirra sveitarfélaga, sem gefinn verður kostur á þeim. Athugúnin er meðal annars byggð á svörum sveitarfélaganna. Vonir standa til, að niðurstöður athugunar- innar liggi fyrir á næstunni. Húsnæðismálastofnunin hefur, allt frá þvi i sumar, búið sig undir það, starfslega séð, að sjá um framkvæmd þessa máls. Til athugunar er, hvort til greina komi að flytja inn erlend hús með hagkvæmum kjörum, til notkunar i þessu skyni, að hluta að minnsta kosti. Könnunarvið- ræður hafa farið fram um þessi mál. Með tilliti til þessa, og enn- fremur með tilliti til hugsan- legrar notkunar innlendra einingahúsa, hefur húsnæðis- málastjórn nýlega samþykkt, að Húsnæðismálastofnunin fari þess á leit við Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins, að hún láti fara fram i vetur mjög rækilega og itarlega könnun á þvi, hvernig þessi hús reynast. Niðurstaða þessarar könnunar verður mikil- væg vegna framkvæmdanna á þessu sviði. í félagsmálaráðuneytinu og Húsnæðismálastofnuninni hefur farið fram athugun á þvi, með hverjum hætti hyggilegast verður að standa að þessu mikla verk- efni. Hér er um verkefni að ræða, sem getur kostað 3 til 4 milljarða króna, og er þvi að mörgu að gæta áður en sú leið verður valin, sem hagkvæmust er og bezt verður talin fyrir alla aðila. Loks má geta þess, að 1. des- ember s.l. höfðu borizt óskir frá 49 sveitarfélögum um lán, sem nemur 80 af hundraði byggingar- kostnaðar, til smiði 1072 ibúða. Þessa dagana er hvert jólaballið á fætur öðru haldið i veitingasölum út um allt land. A þnöjudaginn þegar við áttum leiöútúr Edduhúsinu, þar sem ritstjórnarskrifstofur Tfmans eru til húsa, heyrðum við mikinn söng úr næsta húsi, þar scm Lindarbær er. Er við litum þar inn var hástöfum sungið Göngum viö kringum og önnur skemmtileg jólalög, sem nær allir kunna og börn á öllum aldri gengu I kringum jóla- tréð i fylgd með mæörum sfnum og öðrum ættingjum. Þarna voru börn starfsfólks Sambands islenzkra samvinnufélaga að skcmmta sér ásamt jólasveininum og öðru góðu fólki meö söng og dansi. (Timamynd Róbert)

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.