Tíminn - 29.12.1973, Qupperneq 5
Laugardagur 2». desember 1972.
TÍMINN
5
Áramótaskemmtanir og aðrar
skemmtanir í skólum borgarinnar
Við höfðum fyrir nokkru sam-
band við einn gagnfræðaskóla,
Lindargötuskólann, til að kanna,
hvernig þar væri háttað skemmt-
anahaldi um jól og áramót.
Skólastjórinn, Hafsteinn Stefáns-
son, varð fyrir svörum : — f þetta
sinn, eins og i fyrra, lauk nokkr-
um prófum rétt fyrir jólin. Eink-
unnir voru afhentar að kvöldi 20.
des., og höfðum við þá um leið
kvöldvöku með upplestri og flutn-
ingi hugvekju. Siðan var farið i
leiki og spjallað saman. Annars
er oft fátt á þessari kvöldvöku,
enda er húsrými ónógt i
skólanum. Margir nemendanna
eru lika utan af landi og eru farnir
heim til sin um þetta leyti. Það er
ekkert ball hjá okkur kringum jól
og áramót.
Nemendur Lindargötuskólans
eru á aldrinum 17 til 30 ára,
megnið kringum tvitugt. Enda
þótt við höldum enga áramóta-
gleði erum við þó með nokkra
dansleiki á vetrinum. Þótt ég segi
sjálfur frá, hefur reynslan af
þessum dansleikjum verið alveg
furðugóð. Þetta hefur farið mjög
vel fram, sérstaklega miðað við
aðra skóla sama eðlis, og við höf-
um fengið mjög gott orð á okkur i
þeim húsum, sem við höfum feng-
ið leigð til dansleikjahalds.
— Ég held, að enginn gagn-
fræðaskólanna sé með dansleik
um jól eða áramót, heldur kvöld-
vökur. Hvernig þær eru sóttar,
veit ég ekki, en þess ber að gæta,
að margir nemendanna vinna i
jólafriinu.
Keniiaraháskólinn — Dr. Broddi
Jóhannesson rektor: — Við höld-
um yfirleitt smásamkomu siðasta
kennsludaginn fyrir jól. Það er
alveg innan skólans og skiptist
svona að hálfu i veraldlega hluti
og að hálfu i efni helgað jólahelg-
inni. Enginn dansleikur eða annað
slikt. Og við höfum ekki verið
með neinar áramótaskemmtanir.
Enda hafa nemendur ekki óskað
þess. Þeir hafa vist á nóga aðra
staði að sækja. Reynslan af dans-
leikjum skólans hefur verið upp
of ofan: stundum góð, og stundum
ekki alveg eins góð.
Memitaskólinn v/IIamrahlið. Að
sögn rektors skólans, Guðmundar
Arnlaugssonar. hefur M.H. aldrei
verið með áramótadansleiki eða
aðrar skemmtanir i skólanum
kringum jólin. Skólinn var með
skemmtun á þrettándanum
fyrstu árin. en það hefur ekki ver-
ið siðustu árin, enda erfitt að fá
húsnæði fyrir þennan mikla nem-
endafjölda. Um reynsluna af
dansleikjum innan skólans sagði
Guðmundur, að hún hefði stund-
um verið nokkuð slæm vegna
drykkjuskapar, en hefði þó ekki
versnað siðustu árin. örfáum
hefði verið vikið úr skóla vegna
drykkjuskapar. Annars hefðu
aðilar utan skólans oft valdið
mestu vandræðum á dansleikjun-
um, brotið rúður og gert annan
usla, vegna þess að þeir komust
ekki inn á dansleikinn. Nemendur
fengu að halda dansleik i húsnæði
skólans i haust, en rektor þótti
reynslan af honum það slæm, að
hann hefur ekki veitt nemendum
leyfi til að fá húsnæði skólans til
sliks aftur. það sem af er vetri.
Hafa nemendur þess i stað haldið
einn eða tvo dansleiki á dansstöð-
um i bænum. sem þeir hafa leigt.
Rektor kvað skólann ekki
skipta sér af þvi, hvort nemendur
hans sæktu vinveitingahús, enda
væri erfitt að fylgjast með þvi.
Stýrimannaskólinn — Jónas Sig-
urðsson skólastjóri
Nei, það hafa ekki verið neinar
sérstakar skemmtanir hjá strák-
unum kringum jól og nýár, enda
fara þá margir þeirra i afleys-
ingar á sjóinn eða heim til sin út á
land. Hins vegar höfum við verið
með árshátið okkar um mánaða-
mótin janúar febrúar, og mér
skilst á strákunum, að svo verði
einnig i þetta sinn. Um þau
mánaðamót er undirbúnings-
deildin og deild fyrir skipstjóra
varðskipa laus. Þessar hátiðar
hafa farið hið bezta fram, eftir
þvi sem ég bezt veit, og engir
árekstrar hafa orðið.
Vélskólinn — Bogi Arnar Finn-
bogason, fulltrúi skólastjóra:
—Skólafélagið hefur sérstaka
skemmtinefnd. Að þvi er ég bezt
veit hafa strákarnir ekki haldið
neinar áramótaskemmtanir .
Aðallega vegna þess, að Vél-
stjórafélag tslands hefur venju-
lega haldið sina árshátið i byrjun
janúar og þar höfum við verið
með, kennararnir, og skóla-
félagið hefur einnig tekið þátt i
þeirri skemmtun. Það hefur
komið i staðinn fyrir sérstaka
áramótaskemmtun, og ég reikna
með, að þannig verði einnig núna,
svo fremi að þjónaverkfall standi
þá ekki enn.
Menntaskóliiin við Tjörnina —
Björn Bjarnason rektor: —Við
höfum aldrei verið með neina
skemmtun i jólafriinu, og það
verður ekki frekar i ár. Þau hafa
hins vegar verið með ball fyrir
jólin, er prófum lýkur, en það er
engin áramótaskemmtun eða
slikt. Nei, nemendur hafa ekki
farið fram á að halda árshátið.
Menntaskólinn i Reykjavik
—Guðni Guðmundsson rektor:
—Jú, það hefur lengi verið jóla-
gleði milli jóla og nýárs, en það
hefur ekkert verið ákveðið um
hana núna. Reynslan i fyrra? Hún
var afleit, eins og á öllum
skemmtunum núorðið. Jú, jú,
okkur hefur oft dottið i hug að
taka fyrir þessar skemmtanir.
Það hefur bitnað mest á okkur,
hve við höfum verið með stórt
húsnæði (Laugardalshöllina), og i
þetta hefur sótt alls konar lýður
utan úr bæ. Það verður örugglega
engin slik hátið i þetta sinn. Til
greina gæti komið smáskemmtun
eingöngu fyrir nemendur skólans,
og þá i húsnæði hans.
Iðnskölinii-Sveinn Sigurðsson að-
stoðarskólastjóri: —Nei, við
höfum ekki haldið áramóta-
hátiðir. Það hefur verið haldinn
dansleikur hjá okkur svo sem
einu sinni á önn, en ekki sérstak-
lega i sambandi við jólin. Að visu
var haldin skemmtun á vegum
skólafélagsins rétt fyrir jólin i
fyrra. Hún gekk stórslysalaust
fyrir sig, en alltaf er þó einhver
drykkjuskapur, sem erfitt er að
stemma stigu við. Við reynum að
halda þessu sem mest niðri, en
liklega verður maður að sigla
milli skers og báru þarna, meðan
ekki er tekið fyrir öll leyfi. Ekki
hefur komið fram nein beiðni
um skemmtanahald um þessi jól.
Ég get ekki svarað þvi á þessu
stigi, hvort slikri beiðni yrði
neitað eða ekki.
Háskóli islands — Að sögn
Halldórs Arm. Sigurðssonar,
formanns Stúdentaráðs, verður
áramótaskemmtun stúdenta,
öðru nafni „áttadagsgleðin”
(áttunda dags gleðin), i Laugar-
dalshöllinni á gamlárskvöld.
Verður gleðin með svipuðu sniði
og undanfarin ár, og það verða
skrey tingar. Hljómsveitin
Brimkló leikur fyrir dansi, þarna
verða tiltölulega ódýrar vinveit-
ingar, og eins og áður verður
öllum frjáls aðgangur. En einnig
verður fyrirframsala aðgöngu-
miða, sem miðast einkum við
stúdenta. Alls seldust 1900 af 2.500
miðum i fyrirframsölu i fyrra, en
þeir eru ódýrari. Halldór kvað
80% þeirra, sem sótt hafa þessar
áramótaskemmtanir stúdenta
undanfarin ár, hafa verið náms-
fólk úr hinum ýmsu skólum. En
„alls konar fólk" hefur verið
innan um. Vinveitingar hafa
verið á þessum skemmtunum, og
hélt llalldór, að aldurstakmarkið
hefði verið það sama og á vin-
veitingastöðum yfirleitt. Þessi
fjölmennasti dansleikur ársins er
algjörlega á vegum Stúdenta-
ráðs, og sjá tveir menn innan
ráðsins um hana.
Meniitaskólinn i Kópavogi —
l''ramhald á bls. 19
STÓR FLUGELDAMARKAÐUR
VIRKNI í?
Armula 24 — Reykjavík
Símar 8-54-66 og 8-54-71
Opið í dag laugardag frá kl. 9—22 og sunnudag frá kl. 9—76
og á mánudag (gamlársdag) frá kl. 9—76
Stórkostlegt úrval
Gengið inn í vesturendann
Víkingur