Tíminn - 25.01.1974, Qupperneq 12
TÍMINN
Föstudagur 25. janúar 1974.
Föstudagur 25. janúar 1974.
TÍMINN
13
12
í . ;;
.
í desembermánuði
siðast liðnum kom
Þórarinn Björgvinsson
hingað til lands eftir að
hafa dvalizt i Alsir
undan farin ár. Og þar
sem það hefur lengi ver-
ið siður á landi hér að
spyrja menn frétta, þeg-
ar þeir koma heim úr
ferðalögum, — ekki sizt,
ef farin hefur verið
meira en ein bæjarleið
— þá þótti okkur hér á
blaðinu það ómaksins
vert að hitta Þórarin að
máli og spyrja tiðinda.
Hefur aldrei
verið eins kalt
Er þá bezt að hefjast handa og
byrja að spyrja:
— Hvenær var það, sem þú fórst
til Alsir, Þórarinn?
— Ég fór þangað með fjölskyldu
mina i febrúar 1970.
— Voru ekki mikil viðbrigði að
koma úr vetrarveðrinu hér heima
og vera allt i einu kominn til
Alsir?
Franskt klaustur, helgað heilögum Antoniusi.
wSjBk
)r'! i HiúÆm
Ljósm. Þórarinn Björgvinssoi
Þannig er Saharaeyðimörkin vörðuð. Þær gætu alveg eins verið á islenzkum heiðum, vörðurnar þær
arna, svo likar eru þær vörðunum okkar nema ef tii viil öllu vandaðri.
Ljósm. Þórarinn Björgvinsson.
— Ég get með sanni sagt, að
mér hefur aldrei á ævi minni ver-
ið eins kalt og þegar ég steig fyrst
út úr flugvélinni i Alsir. Þá var
hitinn þar þrjú stig, en raki lofts-
ins var eitthvað nálægt áttatiu
hundraðshlutum, og þetta varð
svo sárkalt, að engu tali tók.
Morguninn sem við fórum til
Skikda, borgarinnar, þar sem við
áttum að starfa, gerði haglél svo
fjöll urðu hvit.
— Er ekki snjór annars heldur
óalgengur þarna?
— Það snjóar alltaf i fjöll ein-
hvern hluta vetrarins, og inni i
Atlasfjöllunum eru yfirleitt öll
þorp einangruð i tvo mánuði
vegna snjóa.
— Hvað varst þú að gera i
Skikda?
— Skikda er um 130 km frá
landamærum Túnis og Alsir. Þar
er hafnarborg, og nú er verið að
gera þar mikla oliuhöfn, aðra af
tveimur i landinu. Ég vann þarna
við hafnargerð. Fyrst var gömul
höfn „innréttuð”, ef ég má kom-
ast svo að orði. Það verk tók eitt
og hálft ár. Siðan fórum viö að
vinna við nýja höfn, sem verið
var að byggja sex kilómetra frá
borginni. Þar er sandströnd, og
þegar við komum þar, var þar
ekki neitt að sjá, utan kofa og
aumustu hreysi, þótt mannabú-
staðir ættu það að heita. Við þessa
höfn var lokið núna i desember.
— Var unniö að þessum fram-
kvæmdum með innlendu vinnu-
afli?
— Yfirmenn allir og sömuleiðis
tæknimenn voru Evrópubúar, en
almenna verkafólkiö var innlent..
Þegar Frakkar yfirgáfu Alsir-
búa árið 1962, skildu þeir þannig
við, að ekki var einn einasti
menntamaður eftir I landinu.
Vitanlega hefur margur Alsirbú-
inn stundað skólanám siðan, en
fjölmenn þjóð verður ekki tækni-
menntuð á einum áratug.
Vinnulag, trúarbrögð
og barátta
gegn Frökkum
— Hvernig eru vinnubrögð og
verklag Alsirbúa, til dæmis i
samanburði við okkur?
— Þar er skemmst af að segja,
að allur samanburður má heita
útilokaður. Það, sem maður rek-
ur sig fyrst á, þegar til Alsir kem-
ur, er hversu gersneydd þjóðin er
allri verkmenningu. Og meira en
þaö: Ég gat ekki betur séö en að
þeir vildu alls ekki læra verklag
okkar Evrópumanna, og þar held
ég að trú þeirra, Múhameðstrúin,
komi mjög við sögu. Þeir lita á
okkur eins og hálfgerða skræl-
ingja, held ég.
— Er þá ekki óþægilegt, eða
jafnvel hættulegt, fyrir Evrópu-
menn að vinna þarna?
— Jú, vist getur það verið
slæmt, en einkum þó fyrir þá
Evrópumenn, sem létu Alsirbúa
finna, að þeir litu niður á þá. Þeir
lentu oftast i vandræðum, og
marga þeirra þurfti að senda
heim, stundum ærið snögglega.
Hinir, aftur á móti, sem umgeng-
ust Alsirbúana eins og jafningja
sina, áttu yfirleitt ekki i neinum
sambúðarörðugleikum.
— Er þetta fólk á lágu menn-
ingarstigi, til dæmis i samanburði
við Vesturlandabúa, sem við
þekkjum?
— Já, þaðheld ég nú að verði að
teljast. Til þess að renna stoðum
undir þá fullyrðingu, skal ég
nefna dæmi:
Maður nokkur hafði barizt alla
sina ævi gegn yfirráðum Frakka
og oftast haldið sig uppi i fjöllum.
Þegar svo friður var saminn, gat
þessi maður farið að taka þátt i
borgaralegum störfum sins þjóð-
félags, en hann kunni hvorki að
lesa né skrifa og yfirleitt ekki
neitt annað en að skjóta menn, en
það hafði hann lika stundað með
miklum árangri. Nú vantaði
manninn vinnu, og þá var hann
gerður að borgarstjóra i Skikda,
þótt hann þurfi að hafa, ekki að-
eins skrifara, heldur einnig les-
ara til þess að lesa öll skjöl, sem
embættinu berast, þvi að það get-
ur hann ekki sjálfur enn þann dag
i dag. Og þetta er engan veginn
neitt einsdæmi, þótt vera megi,
að ekki séu fleiri borgarstjórar i
landinu ólæsir og óskrifandi.
Kunningi minn einn átti dóttur,
sem hann vildi koma i heima-
vistarskóla, þvi að þar i landi er
ekki hægt að mennta stúlkur ann-
ars staðar en i slikum skólum. En
þessum ágæta manni tókst ekki
að koma dóttur sinni neins staðar
inn, og hann fékk alls staðar þau
svör, að þeir, sem tekið hefðu þátt
i striöinu gegn Frökkum, gengju
fyrir. Þetta var nóg til þess að
hindra skólagöngu ungu stúlk-
unnar, þvi að fjölskyldan hafði
búið i Þýzkalandi siöustu ár
striðsins, og gat þvi ekki lagt
fram nein óyggjandi skilriki fyrir
andstöðu við Frakka.
— Þú nefndir áðan Múhameðs-
trúna. Fannst þér trúarlif áber-
andi þáttur i fari Alsirbúa?
— Að sumu leyti, já. Margir
þeirra manna sem ég umgekkst
báðust fyrir þrisvar á dag, eins og
vera ber samkvæmt trúarbók
þeirra, en aftur á móti held ég, að
þeir lifi ekki ýkjamikið eftir
trúnni. Þeir eru til dæmis mjög
hirðusamir, eins og það var kall-
aö á Islandi i gamla daga, þrátt
fyrir það að trúa þeirra kveður
svo á, að menn skuli ekki stela.
Ósiðsemi á almanna
færi — og virðuleg
brúðkaupsveizla
— Nú leyfir Múhameðstrú fjöl-
Þórarinn Björgvinsson
kvæni. Nota Alsirbúar sér það
ekki?
— Mönnum er leyfilegt að eiga i
mesta lagi fjórar konur. Þetta er
nokkuð notað af bændum, sem
vilja fá ódýran vinnukraft, en I
borgunum, einkum þeim stærri,
hafa menn alls ekki efni á þvi að
sjá fyrir svo mörgum konum.
Annars fannst mér siðferðið dá-
litiö furðulegt hjá þeim Alsirbú-
um. Ef til dæmis strákur og
stelpa eru staðin að ósæmilegri
hegðan inni i bil eða annars stað-
ar þar sem heita má að þau séu á
almanna færi, þá er stúlkan tekin
og látin á hóruhús, þar sem hún
verður að vera i sjö ár, það er
hegningin. Hún fær þrjátiu pró-
sent af þvi sem hún vinnur inn,
hitt gengur til ríkisins. Liklega er
það vegna ættartengsla, en svo
mikið er vist, að hún er aldrei lát-
in afplána refsinguna i heima-
borg sinni.
— Hversu mikið þarf afbrotið
að vera til þess að kalla á slika
refsingu?
— Samfarir eru eina gilda
ástæðan.
— En hvað er gert við piltinn,
sem staðinn hefur verið að verki?
— Ekkert, ekki nokkur skapað-
ur hlutur. Við verðum að muna,
að þarna er aðeins litið á konuna
sem húsdýr.
Fyrstu misserin sem ég var
þarna, voru þar ekki neinar gift-
ingar, af þeirri einföldu ástæðu,
að þá áttu þeir ekki neina peninga
til þess að kaupa sér konur. En
svo fóru aurarnir að koma, og þá
var þess ekki langt að biða, að
manni væri boðið i brúðkaups-
veizlu. Það fannst mér kynleg
samkoma. Allir gestirnir voru
karlmenn, en ekki ein einasta
kona, meira að segja ekki brúður-
in sjálf, við fengum ekki einu
sinni að sjá hana. En karlarnir
skemmtu sér ágætlega og döns-
uðu hver vib annan. Ég spurði,
hverju það sætti, að ekki væri
nein kona I fagnaðinum, og svarið
Timamynd Gunnar
sem ég fékk var mjög svo einfalt:
Ef þú færir á finan skemmtistað
hérna I borginni, myndiröu þá
taka með þér hest eða hund?
Þessu svaraði ég auðvitað neit-
andi, og þá sögðu þeir aðeins:
Þarna sérðu. Svo einfalt var mál-
ið.
Matvælaframleiðsla
og landbúnaður
— Við nefndum áðan skort á
tæknimenntun hjá Alsirbúum. Er
þá til dæmis landbúnaður þeirra
rekinn með frumstæðum hætti?
— Ég ferðaðist mikið um landið
og veitti vinnubrögðum sveita-
fólks nána athygli. Það var
eftirtektarvert að hvar sem
maður fór var verið að vinna
með nýjum vélum sem flestar
voru
af ameriskri gerð. Þó er gamli
timinn alls staðar nálægur. Það
er merkilegt að sjá eina skák
lands unna með fjórum eða fimm
jarðýtum, sem allar eru að verki i
einu, en á næstu skák viö er uxum
og ösnum beitt fyrir tréplóga.
Samyrkjubú eru að byrja að risa
á legg, en eru skammt á veg kom-
in. Þótt það væru aðeins tæp fjög-
ur ár, sem ég dvaldist þarna, var
auðséð, að landbúnaði fleygði
mjög fram á þvi timabili.
— Eru landsmenn sjálfum sér
nógir hvað snertir framleiðslu
matvæla?
— Þessu má svara bæði játandi
og neitandi. Þeir rækta korn og
selja það til útlanda, ávaxtarækt
hafa þeir nóga handa sjálfum sér,
aðkartöflum ekki undan skildum,
vinberjagarðar eru bæði margir
og stórir, en fara minnkandi með
hverju ári sem líður, þvi að for-
setinn vill útrýma vindrykkju,
enda er fyrsta boðorð Mýhameðs-
trúarmanna að drekka ekki vin,
en það hafa Alsirbúar haldið
mjög illa, þvi þeir drekka mikið.
En þótt matvælaframleiðsla sé
þannig mikil i landinu, þá er mik-
ið flutt inn af sérunnum matvör-
um. Sykurinn kemur frá Kúbu,
hveiti er flutt inn frá Frakklandi,
en að visu hafa Alsirbúar fyrst
flutt hveitikornið til Frakklands,
þar sem það er unnið, og svo
kemur það aftur sem fullunnin
vara. Til áréttingar þvi sem ég
sagði áðan um kartöfluræktina,
má geta þess, að þann ágæta
jarðarávöxt flytja Alsirbúar út i
stórum stil, enda munu þeir oftast
fá þrjár uppskerur á ári af
kartöflum. Og döðlur rækta þeir
manna mest.
— Eru ekki miklir sumarhitar
þarna, fyrst ávaxtaræktin gengur
svona vel?
— Jú. Fyrsta sumarið sem ég
var i Alsir, var hitinn þetta 36-38
sig og fór upp i 48 stig i skugga
innan húss um tveggja mánaða
skeið. Þetta fannst manni óþægi
lega mikill hiti, en þó beit hann
minna á okkur tslendingana held-
ur en Þjóðverja og Frakka, sem
þarna voru. Það var einnig eftir-
tektarvert, að þeir, sem' lengst
höfðu verið þar, þoldu hitann
verst. Ég veit ekki af hverju það
hefur stafað en ég fann það á
sjálum mér, aö þvi lengur sem ég
dvaldist i Alsir, þeim mun verr
þoldi ég hitan, — það er að segja
sjálft sólskinið.
— Valda ekki þessir miklu hitar
óþægilegum þurrkum?
— Nei. Það má heita öruggt
mál, að ekki kemur dropi úr lofti I
þrjá mánuði, en aftur á móti er
uppgufunin geysileg vegna þess,
hve loftið er rakt. Við ströndina er
svo mikið áfall um nætur, að
vatnið lekur af húsaþökum, þegar
maður kemur á fætur á morgn-
ana. Það er vitanlega þetta, sem
bjargar gróðrinum og gerir hann
svo þroskamikinn sem raun ber
vitni
Tungumálakunnátta
og daglegt lif
— Er ekki tungumálið mikill
þröskuldur i vegi Norðurlanda-
búa, sem dveljast i Alsir?
— Eiginlega eru Alsirbúar
sjálfir mállausir. Þeir tala
blending af frönsku og arabisku,
sem þó er i aðalatriðum afbökuð
franska. Nú er verið að byggja
upp skólakerfi eingöngu með
kennurum frá Egyptalandi, sem
vitanlega kunna arabisku, og þeir
eru að reyna áð kenna fólkinu það
mál. Skólaskylda er frá sex
ára aldri til þrjátiu og tveggja.
Þeir sem vinna, ganga I kvöld-
skóla, hinir eru skyldugirtil þess
að sækja aðra skóla, en þó gera
menn það yfirleitt ekki, eftir að
þeir eru komnir yfir tvitugt.
— Gátuð þið ekki bjargað ykkur
með enskunni?
— Nei, að minnsta kosti ekki
þar sem ég var. Allan þann tima,
sem ég var þarna, hitti ég aðeins
einn Araba, sem talaði ensku,
það var skömmu eftir að ég kom
— en svo fluttist hann i burtu, og
þá mátti heita að maður stæði eft-
ir mállaus.
Svo kom nú málið smám saman
hjá manni, og Arabarnir,sem með
okkur unnu, lærðu furðufljótt eitt
og eitt orð i islenzku. Þeir gátu
nefnt nöfn á öllum helztu áhöldum
sem við notuðum dagsdaglega,
enda eru mörg þeirra stutt og
meðfærileg: „hamar”, „sög”, og
svo framvegis. Einn Arabinn var
sérstaklega góður málamaður.
Hann lærði á örstuttum tima að
telja á íslenzku upp að hundrað,
ég held að það hafi ekki tekið
hann nema sex daga eða svo að
læra það. Þegar við fórum inn i
borgina heilsuðu mér margir með
þvi að segja „góðan daginn”, —
þeim þótti gaman að heilsa mér
þannig, þvi að þetta hafði ég
kennt þeim. Þvi er ekki að neita,
að stundum heyrðu þeir mig lika
segja önnur orð og ljótari, og þeir
lærðu þau lika. En konu minni
likaði illa að ég væri að veita slika
fræðslu, svo ég reyndi allt hvað ég
gat að láta ekki annað út úr mér
en það sem hver og einn mátti
eftir mér hafa hvar sem var.
— Eru Alsírbúar reglusamir
menn i háttum sinum?
— 1 Skikda er yfirleitt allt kom-
ið I fullan gang klukkan fimm á
morgnana á sumrin, en heldur
seinna á veturna. En á kvöldin er
þaö viðburður, ef maður sést ut-
an dyra eftir klukkan niu — að
undan skildum þeim, sem hanga
á kaffihúsum, en þau er opin til
klukkan eitt að nóttu. En að þess-
um nátthörfnum frá teknum fer
allur almenningur snemma á
fætur og gengur snemma til náða.
Búfé á svölum
fjölbýlishúsa
— Er ekki húsagerð heldur
frumstæð i Alsir?
— Jú, ekki er nú þvi að neita.
Það er mjög algengt að bændur
og annar almenningur búi i leir-
kofum, sem hlaðnir hafa verið
upp úr leir, teknum beint úr jörð-
inni. Þakið er oft úr bárujárni, en
stundum lika aðeins stráþak.
Frakkar byggðu þarna heilar
borgir, og þau hús eru að sjálf-
sögðu úr varanlegra efni en leir,
en þar eru húsnæðisvandræðin
gifurleg. Það er engan veginn
óalgengt, að i einu herbergi hafist
við tiu eða tólf manns. A siðari
árum hafa verið byggð heil hverfi
Framhald á bls. 23