Tíminn - 07.02.1974, Side 1
Áætlunarstaðir:
Akranes Blönduós
Flateyri - Gjögur
Hólrr.avík - Hvammstangi
Rif - .Sigluf jöröur
Stykkisl.ólmur
Sjúkra- og
allt land
Símar:
2,-60-6.0 &
2-60-66
Opið öll kvöld til kl. 7
Laugardaga til kl. 2
Sunnudaga kl. 1 til 3
Simi 40-102
>■
VERÐUR LOÐNUVEIÐI BÖNNUÐ
VEGNA SUÐURLANDSSÍLDARINNAR
— að næturlagi á svæðinu milli
Hrollaugseyja og Ingólfshöfða?
—hs—Rvik. — Eins og sagt var
frá i blaöinu fyrir skömmu, er sú
hætta fyrir hendi, að loönuskipin
kasti á Suðurlandssildina ef hún
er blönduö loðnunni, þó allir sýni
fyllstu varúð, enda stranglega
bannað að veiða hana. Nokkuö
hefur borið á þvi, að sild hafi sézt
i loðnuaflanum undanfarna
daga, úr skipum sem loðnuna
fengu á svæðinu milli Hrollaugs-
eyja og Ingólfshöfða. Hefur sildin
verið allt að 1% af heildarafl-
anum, en i einu sýnishorni voru 80
kg i 6 tonnum af loðnu.
Timinn hafði i gær samband við
Jakob Jakobsson, fiskifræðing og
HRING-
VEGURINN
OPNAÐUR
14. JÚLI
EINN þáttur þjóöhátiðar-
innar i sumar verður opnun
hringvegarins við Skeiðará.
Er nú gcrt ráð fyrir þvi, að
þessi athöfn fari fram sunnu-
daginn 14. júli.
— Við verðum þó að hafa
um þetta fyrirvara, sagði
Indriði G. Þorsteinsson,
framkvæmdastjóri þjóð-
hátiðarnefndar, þvi að ekki
verður fullyrt svo löngu
fyrirfram, að fram-
kvæmdum verði lokið á
Skeiðarársandi um miðjan
júli. Einhverjar tafir geta
valdið seinkun.
deildarstjóra á Hafrannsóknar-
stofnuninni, og sagði hann, að
þeir hefðu reynt að kanna þessi
mál eftir föngum, en annars væri
það ekki i þeirra verkahring að
kanna aflasamsetninguna. Hann
sagði, að i sýni úr einum bát hafi
verið allt að 1% aflans sild, sem
sér fyndizt allt of mikið.
Þess vegna teldi hann nauðsyn-
legt að takmarka veiðarnar á
svæðinu frá Hrollaugseyjum til
Ingólfshöfða þannig, að engin
loðnuveiði yrði leyfð þar að
næturlagi. Taldi hann ekki
nauðsynlegt að banna veiðar á
svæðinu á daginn, þvi þá væri
auðvelt að þekkja sildarlóðning-
arnar frá loðnunni, þvi sildin
stæði þá miklu dýpra. A
næturnar rennur hún upp á
sandinn og verður ekki greind frá
loðnunni, sagði Jakob að lokum.
Er blaðið spurði Þórð Asgeirs-
son, fulltrúa i sjávarút-
vegsráðuneytinu, hver hafa ætti
umsjón með þvi að sild væri ekki i
loðnuaflanum, sagði hann, að það
væri i verkahring Fiskmats rikis-
ins. Hann sagðist vera nýbúinn að
fá greinargerð um þessi mál frá
Jakobi Jakobssyni fiskifræðingi,
og búið væri að biðja Fiskmatið
um að athuga þetta.
Þórður sagði, ,að þetta væri
þegar komið i athugun hjá
ráðuneytinu og eins og Jakob
benti á, þyrfti hugsanlega að loka
áðurnefndu svæði yfir nóttina.
Hann sagði að lokum, að mjög
fljótlega yrði tekin ákvörðun um
þetta i samráði við Fiskifélagið,
en vel flest hagsmunasamtök i
sjávarútveginumeigaaðild að þvi.
Að lokum hafði blaðið samband
við Jón J. Ólafsson, deildarstjóra
Frh. á bls. 15
Til greina kemur að banna loðnuveiöi aö næturlagi frá Hrollaugscyjum að Ingóli'shöfða. Tímamynd Gunnar.
NÝ EITURLYFJAMÁL
í UPPSIGLINGU
tveir í gæzluvarðhaldi
OÓ—Reykjavik. — Tveir menn,
scm grunaöir eru um að hafa
sinyglað og dreift eiturlyfjum,
sitja nú I gæzluvarðhaldi. Ekkert
samband virðist þó vera milli
3000 símanúmer í Reykja-
vík sambandslaus í
þessara tveggja manna, og eru
mál þeirra aðskilin. Auk þessara
tveggja eiturlvfjamála er rann-
•sókn á hinu þriðja yfirstandandi,
þótt enn hafi enginn verið hand-
tekinn i samhandi viö þaö mál.
Eiturlyfjadeild lögreglunnar
telur, að talsverðu magni af
eiturlyfjum hafi verið smyglað til
landsins frá áramótum, en ekki
hefur tekizt aö ná þvi áður en það
er selt og þess neytt. Smyglleið-
irnar eru hinar sömu og oftast
áður. flugleiðis frá Kaupmanna-
höfn.
Mennirnir tveir, sem nú sitja i
gæzluvarðhaldi eru Islendingar.
en útlendingar, sem hér dvelja —
að minnsta kosti öðru hverju,
koma einnig við sögu. Nýverið
var gerð húsleit i húsi nokkru i
vesturhluta Reykjavikurborgar.
Þar fundust ekki eiturlyf, en
sterkur grunur leikur á að þeirra
hafi verið neytt þar og jafnvel
hafi verið um sölumiðstöð þar að
ræða.
Eiturlyfjadeild lögreglunnar
vill að svo komnu máli ekki gefa
neinar upplýsingar, þar sem
rannsókn er hvergi nærri lokið.
Erum ekki
skæruliðar
— segir Jón Sigurðsson,
formaður Sjómannasambandsins
GSal-Reykjavík — Stuttu eftir
hádegi i gær bilaði hluti sjálf-
virka simkerfisins i Reykjavik.
011 númer, sem byrja á tölu-
stofunum 25, 26, 27, og 28 urðu
sambandslaus, en það eru nálægt
þrjú þúsund númer, flest i miðbæ
og vesturbæ.
Bilunin varð á jarðhæð i húsi
pósts og sima við Austurvöll.
Einhver tæknilegur útbúnaður i
signalvél lét undan, og þess
vegna rofnaði samband bæði til
og frá ofangreindum númera-
röðum. Signalvélin (merkjavél)
gefur bæði sónmerki og
hringingarstraum.
Viðgerð hófst strax og laust
fyrir klukkan fjögur var lokið
bráðabirgðaviðgerð, en simnot-
endur voru beðnir að minnka
simnotkun næstu klukkustundir.
Astæðan fyrir þvi, að ekki var
hægt að ljúka viðgerð um miðjan
dag i gær, var að sögn sima-
manna mikið álag notenda.
Fullnaðarviðgerð fór fram i nótt.
Bilunin kom mjög illa við Reyk-
vikinga, þvi að stór hluti þeirra
númera, sem misstu samband
voru fyrirtæki og stofnanir, þar
sem simalinur eru daglega rauð-
glóandi. Sams konar bilun og
þessi hefur ekki komið fyrir áður,
en eins og simnotendur vita, hafa
smábilanir verið tiðar að
undanförnu. „Oftast er það mikið
álag sem gerir það að verkum. að
erfitt er að ná i ákveðin númer”,
sagði Hafsteinn Þorsteinsson,
skrifstofustjóri hjá pósti og sima.
„Islendingar tala manna mest i
heiminum, en simkerfi okkar er
ekki það fullkomnasta. En við
vinnum alltaf að endurbótum,
fjölgum linum og þess háttar”,
sagði Hafsteinn að lokum.
—hs—Rvik. — Ekki hefur ennþá
verið ákveðið hvenær sjómenn á
bátaflotanum fara i verkfall, þ.e.
ef til þess keniur, en liklega skell-
ur það á á sama tima og hjá hin-
um almennu verkalýðsfélögum
þann I!). febrúar, ef ekki liefur
samizt fyrir þann tima.
Jón Sigurðsson, formaður
Sjómannasambands Islands,
sagði i viðtali i gær, að þeir teldu
eðlilegast að fara i verkfall á
sama tima og hin almennu verka-
lýðsfélög, annars væri þetta
skæruhernaður.
Ef til verkfalls kemur hjá
verkamönnum m.a. i frystihús-
unum, þá stoppa bátarnir sjálf-
krafa, og væri það hreinn og
beinn skæruhernaður, ef sjómenn
færu i verkfall eftir að samizt
hefði við landverkamenn, sagði
Jón. Ekki hefur enn verið boðaður
sáltafundur með undirmönnum
og útgerðarmönnum. en siðasti.
fundur var miðvikudaginn 30.
janúar.
Annar samningafundur með
Sjómannasambandinu og útgerð-
armönnum togaranna var s.l.
föstudag. en þar voru kröfur
lagðar fram. 1 dag eru sjómenn á
stóru skuttogurunum með
mánaðarkaup. fritt fæði og
13.26% af aflaverðmæti. sem
skiptist i 17 staði. en á siðutogur-
unum skiptast 14.82% i 19 staði.
Frh. á bls. 15
Unnið að viðgerð I gærdag. Timamynd G.E.