Tíminn - 07.02.1974, Qupperneq 4

Tíminn - 07.02.1974, Qupperneq 4
4 TÍMINN Fimmtudagur 7. febrúar 1974 Börnin eiga að njóta myndanna Opnuð hefur verið nokkuð óvenjuleg málverkasýning i Karlsruhe Kunsthalle i Þýzka- landi. Sýningin er sérstaklega ætluð börnum, og hafa málverk- in öll verið hengd það neðarlega á veggi sýningarsalanna, að börnin eiga auðvelt með áð njóta þeirra. Þetta er sannar- lega nokkuð, sem menn mættu taka upp hér á landi. Það gæti verið skemmtilegt fyrir börn að koma til dæmis i Listasafnið og geta horft þar á myndir i réttri hæð, svo þau geti virt listaverk- in almennilega fyrir sér. Hér sjáið þið hóp barna standa fyrir framan eitt málverkið i safninu i Karlsruhe. Höfrungastofninn þrefaldast Höfrungarnir i Svartahafi hata verið taldir. Tók það þrjá mán- uði og var gert bæði úr flugvél- um og_af skipum. Talningin sýndi, að siðan 1965, er bannið við höfrungaveiði var sett, hefur höfrungastofninn þrefaldazt, og er hann nú um 800 þúsund. Höfrungarnir lifa flestir á siglingaleiðum við Krimskaga, en þar verður nú sett á fót rann- sóknarstofnun með neðan- sjávarrannsóknarstofum til þess að gera athuganir á þess- um fróðlegu dýrum. Árið 1 973 færði mér bæði gleði og vonbrigði, sagði Olga Korbut Allir muna eftir henni Olgu litlu Korbút, sem varð heimsfræg eftir siðustu Olympiuleika vegna leikni sinnar i fimleikum og fyrir heillandi framkomu þar og viðar annars staðar. Þegar hún lítur yfir árið 1973 og svarar spurningum sovézks iþróttafréttaritara, A. Losminsky að nafni, þá segir hún, að árið 1973 hafi orðið sér erfitt á ýmsan hátt. Þó að gleði- stundir hefðu verið margar á slðastliðnu ári, þá segist hún hafa átt við óhöpp og meiðsli að strlða á árinu. Hún tók þátt i Iþróttamóti stúdenta i sinu heimalandi með meðsli i fæti, og fékk þar þó 5 gullverðlaun. Samt var hún ekki ánægð með frammistöðu sina, — fannst hún ekki vera nógu örugg. Þetta var rétt fyrir Evrópumeistara- mótið, sem var haldið i London og nú fannst henni, að hún yrði að sýna eitthvað nýtt og spennandi þar. Hún fór að æfa ný stökk og nýjar æfingar, en timinn var naumur og allur þessi flýtir hafði I för með sér ný meiðsli, sem ollu þvi að þátt- taka hennar i Evrópumeistara- mótinu i London varð ekki með eins miklum glæsibrag og aðdáendur hennar bjuggust við. Hið fræga heljarstökk hennar afturá bak á slá mistókst, og varð hún að hætta keppni vegna meiðslanna. Olga segir: Nú er fyrirhugað heims- meistaramót, og nú ætla ég að æfa meir af forsjá og iðni en áður. Fimleikar eru enginn sirkus, þó að kapp sé gott i keppni, þá verða æfingarnar að athugast rólega fyrst og æfast með nákvæmni, þvi að dómararnir fyrirgefa engin mistök. Flýtirinn og leiknin koma svo smátt og smátt, en meiðsli min hafa oftast orðið, af þvi að ég æfði nýjar æfingar, sem ég hafði ekki náð að fullu tökum á, af of miklu kappi, — og það sé ég nú að borgar sig ekki. Ég vonast til, sagði Olga, að á þessu nýja ári gangi mér velaðæfa og ég geti tamið mér| viljastyrk til að þjálfa mig stöðugt og markvisst. — Við skulum vona að Olgu gangi vel á heimsmeistaramótinu, þvi að öll erum við hrifin af henni, — jafnvel hérna á Islandi, þar sem við höfum þó aðeins séð hana I sjónvarpi! — Kannizt þé ekki við þessa morgna, þegar maður fer öfugu megin út úr rúminu, ungfrú? — Við hittumst þá aftur, þegar heimsóknartimanum er lokið ungfrú? DENNI DÆMALAUSI En hvað þú ert nteð sæta svuntu. Nú er nóg komið.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.