Tíminn - 07.02.1974, Page 9
8
TÍMINN
Fimmtudagur 7. febrúar 1974.
Fimmtudagur 7. febrúar 1974.
TÍMINN
9
DÝRIÐ SEAA
VINNUR
HYLLI ALLRA
Hinn heimsfrægi Ming Ming (sem talað er um i greininni), en hann er
fyrsti risaþvottabjörninn, sem fæðzt hefur i ófrelsi. Með honum er
auðvitað móðir hans, Li Li. Þau eiga heima i dýragarðinum i Peking.
Villtur risaþvottabjörn
1 hinu gamla Kinaveldi leyfðu
stjórnvöldin grimmdarlegar
veiðar og frelsisskerðingu viiltra
dýra. Hn siðan 1949, að
Kommúnistafiokkurinn komst til
valda, hefur stjórnin gengizt fyrir
rannsóknum og veiðum undir
ströngu eftirliti. Arangurinn hef-
ur orðið sá, að einstaklingum
margra dýrategunda, sem voru
orðnar sjaldgæfar, hefur fjölgað
til muna.
Sjaldgæfastur allra dýra er
risa-þvottabjörninn, Ailuropoda
melanoleuca. Fá verður leyfi frá
viðkomandi yfirvöldum, áður en
þvottabjörn er veiddur, hvort
sem það er fyrir dýragarð, eða til
rannsóknar. Dráp er stranglega
bannað.
Aldrei hafa jafn-margir risa þvottabirnir verið myndaðir saman eins og á þessari inynd! Myndin var tekin f klnverskum dýragaröi.
Eftir miklar rannsóknir á
tömdum þvottabjörnum hafa kin-
verskir dýrafræðingar safnað
saman dýrmætum upplýsingum
varðandi umhirðu þeirra, sjúk-
dóma, fæðu, vöxt og endurnýjun
kynstofnsins. Dýragarðurinn i
Peking fékk fyrsta þvottabjörn-
inn árið 1956, og seinna fengu
fleiri stórir dýragarðar i Kina
einnig þvottabirni. 1 september
1963fæddist fyrsti þvottabjörninn
i dýragarði, en það var atburður,
sem vakti heimsathygli. For-
eldrarnir Li Li og Pi Pi eignuðust
unga, karldýr, sem var kallaður
Ming Ming. Sfðan hafa nokkrir
þvottabirnir fæðst i kinverskum
dýragörðum. Ekki er vitað ná-
kvæmlega hve margir þvotta-
birnir eru i kinverskum dýra-
görðum, en i Peking eru a.m.k.
fjórir. Utan Kina er par i dýra-
garðinum i Washington, annað i
Ueno dýragarðinum i Tokyo svo
og I Norður-Kóreu.
Þó hægt sé að fræðast mikið um
þvottabjörninn með þvi að rann-
saka hann i dýragörðum, er einn-
ig nauðsynlegt að rannsaka hann
við eðlilegar kringumstæður i
náttúrunni. Visindamenn frá kin-
verskum rannsóknarstofnunum
og náttúrufræðideildum háskól-
anna hafa farið margar rann-
sóknarferðir upp i háfjöll, þar
sem dýrið lifir og notið fylgdar
kunnugra manna. Fornleifa-
fræðingar hafa gert umfangs-
miklar rannsóknir og skrifað
fjölda skýrslna um steingerðar
likamsleifar risa-þvottabjarnar-
ins og aðrir visindamenn hafa
rannsakað liffæra fræði hans.
Þótt risa-þvottabjörninn hafi
lifað á jörðinni i 600.000 ár, var
hann ekki „.uppgötvaður”
visindalega fyrr en árið 1869.
Fullorðið dýr vegur rúmlega 113
kg og lengd skrokksins er milli 1,5
og 2 m, rófan er aðeins um 20 sm.
Þetta óvenjulega dýr er rólegt og
skapgott og vinnur hugi allra.
Risa-þvottabjörninn likist mik-
ið björnunum, en hefur einnig
einkenni minni þvottabjarna og
eða rauða þvottabjarnarins. Til
hvaða tegundar telst hann? Sum-
ir vlsindamenn hallast á þá skoð-
un að hann tilheyri bjarnar-
tegundinni Ursidae, aðrir
Procyonidae og ann aðrir, sem
álita að þvottabjörninn tilheyri
hvorugri þessara tegunda. Flestir
visindamenn eru nú á þeirri skoð-
un, að risa-þvottabjörninn og
birnirnir séu náskyldir og eigi
e.t.v. sameiginlegan forföður.
Kinverskir náttúrufræðingar
hallast hins vegar að þeirri skoð-
un, að hann teljist til eigin
tegundar. Ailuropodiae og rök-
styðja þeir kenningu sina með að
benda á tannstöðu hans,
meltingarfæri o.fl.
Risa-þvottabjörninn er sjald-
gæfur á okkar tlmum, en eitt sinn
var hann útbreiddur um stórt
svæði. Steingervingar sýna, að
fyrir u.þ.b. 600.000 árum, hélt
hann til á mörgum stöðum i Suð-
ur-Kina. Það hafa lika fundizt þar
steingervingar af mörgum öðrum
dýrum, sem sýna að eitt sinn hef-
ur risa þvottabjörninn lifað I heit-
ara loftslagi en nú. T.d. hafa
fundist leifar af mannöpum, hý-
enum, mauraætum og filum, sem
hafa dáið út isöld og við tilkomu
mannsins. Aðeins risa-þvotta-
björninn lifði.
Nú fyrirfinnst risa-þvottabjörn-
inn aðeins I norður- og suður
Sechwan, I fjöllum i Kansu-héraði
og suðurhluta Shensi héraðs i
Klna.
Heimkynni risa-þvottabjarnar-
ins eru i skógivöxnu fjalllendi i
10.000-14,500 feta hæð yfir sjávar-
mál. Loftslagið er yfirleitt kalt og
rakt: sumrin eru svöl og vetur
mjög kaldir. Oft rignir og snjóar.
Skógarnir eru svo þéttir, að mað-
ur getur varla séð metra fram
fyrir sig, en þeir eru skjólsælir og
ákjósanlegt skýli og uppspretta
fæðu fyrir þvottabjörninn. Eitt
sinn var álitið að risa-þvotta-
björninn væri grasæta, og nærðist
eingöngu á bambustrjánum. En
nú er vitað að þótt hann nærist
aðallega á bambustrénu, þá étur
hann lika stundum smærri dýr.
Bein hafa fundizt i maga dauðs
þvottabjarnar.
Rannsóknir hafa leitt i ljós, að
risa-þvottabjörninn leggst ekki i
dvala yfir veturinn, aftur á móti
flytja þeir sig milli staða eftir
árstiðum.
Karldýrið og kvendýrið lifa sitt
I hvoru lagi. Um fengitimann
heyrast lág, djúp ástarköll þeirra
i skóglendinu. Þegar kvendýrið er
að þvi komið að ala ungann (um
haustið) leitar hún að holu tré eða
helli, þar sem hún elur ungann og
hlynnir að honum. Nýfæddur
risaþvottabjörn er venjulega ekki
stærri en fullvaxin rotta og vegur
um 100 grömm. Hann hefur
gisinn, hvitan loðfeld, og getur
ekki skriðið fyrr en hann er orð-
inn þriggja mánaða.
Risa-þvottabjörninn er rólegt
dýr og hægt að komast mjög ná-
lægt honum, en ef dýrið skynjar
hættu, klifrar það upp i hátt tré.
Það getur einnig synt yfir ar.
Helztu óvinir þvottabjarna, villtir
hundar og hlébarðar, ógna á eng-
an hátt tilveru þeirra.
Ennþá er margt ólært og órann-
sakað varðandi risaþvottabjörn-
inn, en rannsóknum er stöðugt
haldið áfram.
(þýtt og endursagt — gbk)
Tilbúinn undir tréverk
Hann er þess virði að þú lítir á hann tvisvar, nýi
Volvoinn. Nýjungar, eins og ”hrein grind” með
völsuðum langböndum, rafkerfi tengt í einum
aðgengilegum töflukassa, lofthemlakerfi í nylon-
leiðslum, 50 gráöu snúningsgeta, þrátt fyrir aöeins
3,8 metra lengd milli hjóla, koma þér skemmtilega
á óvart. Eins og allt annað í sambandi við Volvo N.
Volvo N er langt á undan öðrum í tækni og útliti.
Volvo N er vörubíll framtíðarinnar orðinn að
raunveruleika. Volvo N nýtir hvern einasta mögu-
leika til hins ýtrasta í þágu eigandans. Allar tækni-
legar upplýsingar um Volvo N eru ávailt til reiðu
í Volvosalnum við Suðurlandsbraut. Hafið samband
við Jón Þ. Jónsson.