Tíminn - 07.02.1974, Page 16

Tíminn - 07.02.1974, Page 16
fyrir góéan mat ^ KJÖTIÐNAÐARSTÖO SAMBANDSINS Japanska sendiráðið í Kuwait hertekið — vegna atburðanna í Singapore NTB—Kuwait — Ilópur japanskra og arabiskra hryftju- verkamanna ruddist i gær inn i japansku sendiráðið i Kuwait og tóku ambassadorinn og aðra starfsmenn sendiráðsins i gisl- ingu. Mennirnir kröfðust þess, að þeir, sem stóðu að baki mis- heppnaðri sprenguárás á oliu- hreinsunarstöð Shell i Singapore nýlega, verði fluttir til Kuwait með japanskri flugvél. Yrði þetta ekki gert, hótuðu mennirnir að myrða gislana. Japönsk yfirvöld sendu þegar flugvél til Singpore til að sækja hryðjuverkamennina, sem siðan árásin var gerð á oliustöðina, hafa haldið til um borð i ferju i höfninni, ásamt tveimur gislum. t gærkvöldi tilkynntu yfirvöld i Kuwait, að japönsku flugvélinni yrði neitað um lendingarleyfi, ef hún kcémi þangað. Hryðjuverka- mönnunum i sendiráðinu var til- kynnt það. I tilkynningu stjórnar Kuwait segir, að enn fari fram samninga- viðræður við mennina, sem eru úr frelsishreyfingu Palestinu og japanska rauða hernum. Þeim hefur verið lofað að fara frjálsum úr landi, ef þeir sleppi gislunum i sendiráðinu. Úr skrifstofum sendiráðsins hafa hryðjuverka- mennirnir beint fjarritasambandi við rikisstjórnina i Japan. Olíuhneykslismálið á Ítalíu: VINNUKONAN FÉKK 110 MILLJ. KRÓNA ÁVÍSUN NTB—Róm — italska stjórnin hefur ákveðið að fresta fyrir- hugaðri hækkun á bensini i bráðina. Ástæðan er sú, að beðið er niðurstaðna rannsóknar á þeim staðbæfingum, að oliusalar hafi mútað stjórnmálamönnum og cmbættismönnum til að láta lita svo út, að oliukreppan sé enn alvarlegri, en hún er. Fimm dómarar i Róm og Genúa hafa fyrirskipað sima- hleranir og að lagt verði hald á skjöl og bókhald margra oliu- félaga meðan verið er að rann- saka málið. Rannsakendur hafa fundið sannanir fyrir þvi að ávisun hljóðaði upp á 110 milljónir (isl. kr.) hefur verið gefin út á nafn vinnukonu stjórnmálamanns, sem ekki er nafngreindur. Aðrar ávisanir hafa verið gefnar út á hin ótrúlegustu nöfn, meira að segja ein á nafn frægs veð- hlaupahests. Dómarar þeir, sem stjórna rannsókninni hafa ákveðið,að öll þau skjöl, sem hald verður lagt á, skuli vera i gæzlu vopnaðra lögreglumanna allan sólar- hringinn. Stjórnarheimildir sögðu i gær, að áætlað hefði verið að hækka bensinverð upp i ca. 35 krónur litrann og hefði það orðið þriðja hækkunin á fimm mánuðum. Skjöl, sem lagt hefur verið hald á, sýna, að oliusalar gáfu rikis- stjórninni rangar upplýsingar um ástandið, þegar Arabar skrúfuðu fyrir oliukranana. A grundvelli þessara upplýsinga gerði stjórn- in siðan ráðstafanir til skömmtunar. Sérfræðingar vilja meina, að þá hafi oliubirgðir verið um 40% meiri, en oliu- félögin vildu vera láta. BORGARBOKASAFN HEFUR ÞJÓNUSTU VIÐ BUNDA S.P.—Reykjavik — Siðastliðin þrjú ár eða svo hefur Borgar'- bókarsafnið unnið að þvi að koma sér upp segulbandasafni til að þjóna blindum. Að sögn Eiriks Hreins Finnbogasonar borgar- bókavörðs er þetta nú komið á góðan rekspöl, en vegna anna við hina stórvaxandi starfsemi safns- ins siðustu ár hefur litill timi gefizt til þessa. Kvaðst Eirikur vonast til þess, að hægt verði að hefja þessa starfsemi safnsins af fullum krafti mjög bráðlega eða nú seinni partinn i vetur. Safnið er búið að fá sér gott tæki til upp- töku en miðað er við, að það hafi minnst eitt hundrað spólur til út- lána, er þetta nýja segulbandsafn blindra verður auglýst og opnað. Ung stúlka, Elva Björk Gunnarsdóttir, mun veita þessari deild Borgarbókasafnins for- stöðu, en hún er menntuð i bóka- safnsfræðum og hefur undanfariö starfað i Sviþjóð við bókasafn, sem nefnist „Bókin kemur”. Frá þvi safni eru einmitt lánuð segul bönd til blindra, en slik starfsemi er mjög öflug i Svþiþjóð, og auk þess léttir þetta safn undir hjá fleira fólki, sem er hjálparþurfi, með þvi að senda þvi heim bækur. Borgarbókasafnið á núna um 50 upptökur af sögum, og hefur svo- litið verið gert af þvi að lána þær i blindraheimilin. Rikisútvarpið hefur tekið upp á þessar spólur fyrir safnið, fyrir ekki neitt — sögur sem þar hafa nýlega verið fluttar. — Mér hefur fundizt það skaði, að upptökur útvarpsins á bókum, i mörgum tilfellum mjög góðum, skuli eyðilagðar að flutn- ing loknum. Nú hlusta blindir á útvarp, en þegar frá liður gætu þeir haft geysimikið gagn af þessu, sagði Eirikur. En eins og áður greinir frá er Borgarbókasafnið nú búið að fá tæki til að taka sjálft upp efni. Þegar starfsemin verður komin i fullan gang, munu blindir geta fengið spólurnar sendar heim eða sótt þær niður á safn eftir vild. Nýr liður i starfsemi Borgar- bókasafnsins er einnig hljóm- plötusafn, sem það hefur verið að koma upp i útibúinu i Bústaða- kirkju. Þar getur fólk fengið að velja sér plötur til að hlýða á á staðnum, en þær eru ekki lánaðar út. Enn syrtir í álinn fyrir Heath: Nýjar kosningar eina lausnin NTB—London — Vangaveltur um að Edward Hcath kynni að rjúfa þing og efna til nýrra kosninga jukust um allan hclming i gær, þegar samband námaverkamanna tiikynnti að það myndi reyna að fá önnur verkamannasamtök til að stöðva allar sendingar kola og oliu til orkuvcranna. Leiðtogi neðri málstofu brezka þingsins, James Prior, sem er einn af nánustu ráð- gjöfum Heaths, sagði i gær, að rikisstjórnin hefði gengið eins langt og hugsazt gæti til að reyna að koma i veg fyrir verkfall i kolanámunum. Prior lét að þvi liggja, að þau vandamál, sem stjórnin á nú við að etja, sé aðeins hægt að leysa með nýjum kosningum. — Námamenn hafa haldið sinar kosningar og við ættum ef til vill að halda okkar, sagði hann. Meðal þingmanna neðri málstofunnar er það útbreidd skoðun, að Heath muni boða til nýrra kosninga annaðhvort 28. febrúar eða 7. marz. Ef fyrri dagurinn verður fyrir valinu, verður að rjúfa þing fyrir föstudag i næstu viku. Margir sérfræðingar eru þeirrar skoðunar, að aímenningsálitið muni snúast námamönnum i óhag ef þeir gera verkfall og er þvi búizt við að Heath muni nota sér það til að öðlast umboð kjósenda á ný. Ef kosningar verða til þess að auka meirihluta ihaldsins i neðri málstofunni, veitir það Heath möguleika til að ganga enn harðar að námaverka- mönnum. Ragnar í Smdra sjötugur 1 TILEFNI sjötiu ára afmælis Ragnars Jónssonar i Smára, sem er i dag, hefur stjórn Listasafns ASt og miðstjórn Alþýðusam- bandsins ákveðið að stækka og í dag reisa mynd Sigurjóns ólafssonar, Kriuna, i landi Mundakots á Eyr- arbakka, en það er æskuheimili Ragnars Jónssonar. Mikil loðna, en óvissa um móttöku —hs—Rvik, — Mjög mikii loönu- veiði hefur verið siðustu dagana og var heildarloönuaflinn orðinn tæplega 158 þús. lestir um kl. 10 i gær. Nú er þróarrými viðast hvar fullt, ncma hvað eitthvað hefur losnað á Seyðisfirði og i Neskaup- stað. Ennfremur er laust þróar- rými á Vopnafirði og á Raufar- liöfn, en þangaö hefur engin loöna borizt ennþá. Allmörg skip voru i gærdag á leið til Austf jarðahafna til að landa. Blaðið hafði i gær samband við Gunnar Ólafsson, formann Félags sildar- og fiskimjölsverk- smiðja á suðvesturlandi, og sagði hann, að fundur yrði haldinn i félaginu á morgun, föstudag, þar sem reynt yrði að komast að sam- eiginlegri niðurstöðu um það, hvort hætta bæri móttöku á loðnu, vegna yfirvofandi verkfalls.Hann sagði, að verksmiðurnar á þessu svæði væru að meðaltali 10 daga að bræða upp úr þrónum, en eins og sagt vari blaðinu i gær, er mjög slæmt ef hráefnið verður gamalt áður en það er brætt, vegna rotnunar og rýrnunar og aukinna erfiðleika við vinnsluna. Lýsið sem úr loðnunni fæst verður súrara, eftir þvi sem loðn- Framhald á bls. 13 Sonardóttur blaðakóngs rænt NTB—San Fransisco — Mikið lið lögreglu leitaði i gær i San Fransisco og nágrenni að tveimur svertingjum og einni konu, sem i fyrrakvöld rændu 19 ára gamalli sonardóttur bandaríska blaða- kóngsins William Hearst. Ránið var afar tilþrifamikið. Patricia Hearst var i heimsókn i ibúð unnusta sins skammt frá Berkeley-háskólanum, þegar kona og tveir menn brutust þangað inn. Patricia, sem aðeins var hálf- klædd, var umsvifalaust dregin út úr húsinu og fleygt inn i bil, sem siðan hvarf á brott á miklum hraða. Sjónarvottar, segja, að stúlkan hafi stöðugt hrópað á hjálp. Unnustinn og nágranni reyndu að tala um fyrir ræningjunum, en voru slegnir niður. Ræningjarnir voru vopnaðir skammbyssu og haglabyssu og skutu mörgum skotum og sjónarvottum skelk i bringu, en enginn varð fyrir skoti úr byssunum. Lögreglan sagði i gær, að ræningjarnir hefðu ekkert sam- band haft við blaðakónginn, eða sett fram nokkrar kröfur um lausnargjald. Hann sendi út til- kynningu i fyrrakvöld, þar sem hann bað ræningjana að hafa þegar samband við sig. Jafn- framt bað hann þá að gera ekki stúlkunni mein á nokkurn hátt. Lögregluvörður er nú við heimili allra meðlima Hearst-fjÖl- skyldunnar.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.