Tíminn - 16.02.1974, Side 5

Tíminn - 16.02.1974, Side 5
Laugardagur 16. febrúar 1974. TÍMINN 5 Forstöðukonur Barnavinafélagið Sumargjöf óskar að ráða forstöðukonu að leikskólanum Tjarnarborg frá 1. mai n.k. Jafnframt óskar félagið að ráða forstöðu- konu að nýju dagheimili við Háaleitis- braut Fóstrumenntun er áskilin. Laun samkvæmt kjara- samningum starfsmannafélags Reykjavikurborgar. Umsóknir um störf þessi sendist skrifstofu Sumargjafar, Fornhaga 8 fyrir 28. febrúar. Barnavinafélagið Sumargjöf. M.s. Suðurland. A litlu myndinni frá vinstri: Guðmundur Sigurgeirsson 1. stýrimaður, Gunnar Magnús- son skipstjóri og Eirikur Eiriksson yfirvélstjóri. Tímamynd: Róbert. NÝTT „SUÐURLAND TIL LANDSINS -gbk-Reykjavik. Nýtt skip M.S. Suðurland, kom til landsins s.l. þriðjudag. Það er eign nýstofnaðs skipaféiags, sem ber nafnið Nes- skip h.f. Skipið er keypt frá Finnlandi og var smiðað þar árið 1964 i Turku. Þetta er annað islenzka skipið, sem ber þetta nafn, en árið 1919 keypti Eimskipafélag Suðurlands Búnaðarþing: Samstarf um nýtingu ullarinnar A FUNDI Búnaðarþings flutti frú Sigriður Thorlacius, formaður Kvenfélagasambands Islands, erindi Gat hún þess, að á s.l. ári tóku Heimilisiðnaðarfélag tslands og Kvenfélagasambandið upp samstarf um námskeiðahald og leiðbeiningastarfsemi I heimilisiðnaði. Ullin af islenzka fénu væri eitt bezta og vinsælasta hráefni til heimilisiðnaðar. Væri þvi ánægjuefni hinn mikli áhugi, sem fram kæmi á Búnaðarþingi fyrir bættri nýtingu og meðferð ullar. Þá þakkaði Sigriður bætta framleiðslu, pökkun og merkingu mjólkurvara, en gagnrýndi nokk- uð dreifingu grænmetis og ásig- Hreindýr sækja í Nesjahrepp SJ-Reykjavik. — Hreindýr hafa verið i byggð i Hornafirði allt frá þvi um mánaðamótin október- nóvember og fara þau allt út að sjó. t fyrstu skiptu þau hundruð- um og telur Sigurður Eiriksson hreindýraeftirlitsmaður i Sauða- nesi i Nesjahreppi, að þau hafi verið um 300 i byggð um tima. Nú eru þau oft 10—15 i hóp og fremur mögur, að sögn Sigurðar. Um áramótin fundust nokkrir kálfar dauðir. Hreindýr hafa sótt mikið i Nesin undanfarin ár, en þar er beit, sem ekki er veí við þeirra hæfi. Næstu daga fer Sigurður Sigurðsson dýralæknir austur á land til að kynna sér ástand hreindýranna ásamt dýralæknum og hreindýraeftirlitsmönnum eystra. komuiag kartaflna i matvöru- verzlunum. Loks ræddi hún um þörf á mun meiri l.eiðbeininga- þjónustu i heimilisgarðrækt og taldi, að fjölga þyrfti ráðunautum I þeirri grein. A fundinum i gær voru lögð fram tvö ný mál og lokið fyrri umræðu um tvö mál, tillögu til þingsályktunar um umhverfis- mál send frá allsherjarnefnd Alþingis og erindi Hjartar E. Þórarinssonar um jöfnun skurö- ruðninga. h.f. strandferðaskip, sem hét Suðurland. M.S. Suðurland er smiðað úr stáli með sérstökum styrkleika til siglinga i is. Það er hlifðarþilfars- skip með tvær vörulestar sam- tals, 86.600 rúmfet. Fulllestað er burðarmagn þess 1840 tonn. Skipstjóri á Suðurlandi er Gunnar Magnússon, Guðmundur Sigurgeirsson er 1. stýrimaður, en yfirvélstjóri er Eirikur Eiriks- son. Áhöfn skipsins er ellefu manns. M.S. Suðurland var afhent nýju eigendunum 1. febrúar s.l., eftir að skipið hafði verið i þurrkvi hjá Burmeister og Wain. Skipið tók farm heim fyrir Haf- skip h.f. og eftir að iosun þess lýkur, siglir það til Póllands með loðnumjiöl, sem ætlað er Júgós- lövum. Þess má geta, að þetta er eina skipið I flotanum, sem er búið gufubaði fyrir áhöfnina. Þorvaldur Jónsson skipa- miðlari mun sjá um útgerð skipsins fyrir eigendur. Hef opnað bifreiðaverkstæð BRAUTARHOLTI 4 undir nafninu BIFREIÐAVERKSTÆÐIÐ EKILL Sími 2-83-40 eði í ■ 4 Annast viðgerðir á folksvagenbifre Karl Pdlsson Verzlun til sölu i einni glæsilegustu verzlunarmiðstöð landsins. Tilboð merkt „Trúnaðarmál nr. 1685” óskast sent Timanum. Ævintýraferð til Bangkok Á 12 klukkustundum flytur SAS þotan yður frá Kaupmannahöfn aftur í alda gamla menningu, og töfra austursins. Undurfagrar musterisbyggingar, lita- skruð, fagrir listmunir og ekki má gleyma brosmildri þjóð. sem heillar alla gesti. Pattaya er nafnið á einhverri beztu bað- strönd, sem um getur og hún er aðeins 1 50 km frá Bangkok. SAS býður yður úrvals Globetrotter ferðir til Bangkok. Þar á meðal hópferð, sem farin verður frá Reykjavik þ. 17. 3. n.k. Biðjið um upplýsingar annaðhvort hjá okkar ellegar ferðaskrifstofunum. Bæklingar eru fyrir hendi. Það er stutt frá Bangkok til fjölmarga heillandi borga og bæja Austurlanda. Vegna aukinna flutninga, stærri flugvéla, hagkvæmari hótela og yfirleitt meiri um- svifa hefir verið unnt að lækka verð Aust- urlandaferða mjög mikið undanfarin ár. Þær kosta nú miklu minna en þér haldið. Spyrjið ferðaskrifstofurnar S4S • • • Laugavegi 3 símar 21199 og 22299.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.