Tíminn - 21.02.1974, Síða 3
Fimmtudagur 21. febrúar 1974.
TÍMINN
3
Fimmtán
loftskeyta-
menn í
Gufunesi
sögðu upp
í einu
Klp—Reykjavík — Fimmtán loft-
skeytamenn við fjarskiptastöðina
i Gufunesi hafa sagt upp starfi
vegna óánægju með einn lið í
kjarasamningi BSRB og rikisins,
sem gerður var f siðasta mánuði.
Þarna er um að ræða hina svo-
kölluðu ,,50 min. - reglu” sem
snertir það starfsfólk Lands-
simans er vinnur vaktarvinnu.
Eru i þeim hópi m.a. loftskeyta-
menn i Gufunesi og starfsstúlkur
við talsambönd við útlönd, en
nokkrar þeirra hafa þegar
auglýst eftir annarri atvinnu, og
ætla að segja upp störfum ein-
hvern næstu daga.
Þeir sem sagt hafa upp i Gufu-
nesi, eru þeir starfsmenn, sem
hófu að vinna þar eftir 1. janúar
1971 en i þessum samningi hefur
þeim verið gert skylt að vinna 11
til 12 timum Jengur I hverjum
mánuði en þeir, sem hófu þar
störf fyrir 1. janúar 1971.
Þykir mönnum þetta mikið
óréttlæti, og þar sem ekki hafi
verið látinn i ljós neinn áhugi
fyrir þvi að leiðrétta þetta, sé
ekki um annað að gera en að
segja upp.
I fjarskiptastöðinni i Gufunesi
vinna um 60 loftskeytamenn.
Búast má við að mikið ófremdar-
ástand skapist þar eftir 1. mai
n.k. en þá rennur uppsagnar-
frestur fimmtánmenninganna út.
Litið framboð er á loftskeyta-
mönnum, og þeir sem eru á lausu
hafa sagt, að þeir muni ekki ráða
sig til starfa i Gufunesi nema upp
á sömu launogsömu hlunnindi og
þeir loftskeytamenn, sem þar
séu fyrir.
Iðnir við
brotin
-hjá Loftleiðum
—hs—Rvik. — Á annað hundrað
manns mætti i gærmorgun á
skrifstofu VR, til að taka þátt i
verkfalls vörzlu, eða nálægt
helmingi fleiri en i fyrradag.
Fremur litið hefur verið um verk-
fallsbrot og þvi litiö að gera fyrir
allt þetta lið.
Að sögn Elisar Adolfssonar,
voru þeir, sem komust upp með
verkfallsbrot i fyrradag skráðir,
og væri sú skrá nú tæmd. Flestir
hefðu fallizt á sjónarmið verk-
fallsnefndar.
Einkum hefur það verið Loft-
leiðir, sem verkfallsbrot hefur
framið á mörgum vigstöðvum.
M.a. hafði verkfallsnefnd rök-
studdan grun um að Loft-
leiðamenn ynnu við telex-tæki
sin, en það hefur áður verið i
höndum VR-fólks. Þeir lofuðu þvi
hins vegar i gær, að þvi yrði hætt.
Ennfremur var um brot að ræða
hj afurðadeild SIS, en að sögn
Elisar var þvi kippt i liðinn eftir
„diplomatiskum ”-leiðum.
Ekki eru nándar nærri öll verzl-
unarmannafélög landsins i verk-
falli. Eftirfarandi félög frestuðu:
i Arnessýslu, Rangárvallasýslu,
Skaftafellssýslum, á Egilsstöðum
og Austfjörðum, Sauðárkróki,
Blönduósi, Bolungarvik, ísafirði
og Akranesi. Ekki var i gær vitað
um félögin á Snæfellsnesi, en á
Húsavik og Akureyri var verkfall
og i Hafnarfirði og á Suðurnesjum
auk Reykjavikur.
Fjöldi félagsmanna i LtV er um
8000, en á Reykjavikursvæðinu
einu eru um 5000 félagsmenn.
Framsóknar-
vistin er
í kvöld að
Hótel Sögu
Eins og kunnugt er af fréttum urðu miklar skemmdir á raflinuin i óveðrinu á dögnuin, meðal annars á
Grenivíkurlinunni og háspennulinunni vestur til Skagafjarðar, og ollu einkum snjóflóð tjóninu á báðum
stöðunum. Viðbirtum hér tvær myndir aðnorðan. Sýnir efri myndin, hvernig staurar i Skagafjarðarlín-
unni kvistuðust sundur eins og eldspýtur af völdum snjóflóðs, og voru það einir sjö eða átta staurar, er
þannig fóru. Hin neðri er af mönnum við viðgerð á Grenivikurlínunni.
Ljósmyndir: Eðvarð Sigurgeirsson.
Margt er
handtakið
Ahrif verkfalls verzlunarmanna:
KVIKMYNDAHÚSIN LOKUÐ
Leikhúsin þurfa ekki að loka
FB-Reykjavík. — Nokkur kvik-
myndahúsanna I Reykjavik
auglýstu i dagblöðunum i gær, að
þau væru lokuð vegna verkfalls.
Við nánari athugun kom i ljós, að
húsin eiga öll að vera lokuð, og
verða það á meðan á verkfalli
Verzlunarmannafélagsins
stendur, þar sem miðasölufólk og
fleiri af starfsfólki húsanna er i
Verzlunarmannafélaginu.
Þjóðleikhúsið þarf ekki að loka
af þessum sömu orsökum, þar
sem starfstúlkur þær, sem selja
þar aðgöngumiða eru rikisstarfs-
menn. Hins vegar fengum við þær
upplýsingar að félagskonur i
Verkakvennafélaginu Framsókn
vinni i fatageymslu og við
ræstingu, og gæti komið til
verkfalls hjá þeim.
Miðasölukona hjá Leikfélagi
Reykjavikur er ekki i VR, og þess
vegna þarf ekki að koma til
lokunar þar.
Fannfergi — en samt aka þeir
Það hcfur snjóað á Akureyri — það er svo sannarlega ekki nein skröksaga. En menn komast samt leiðar
sinnar — ef þeir hafa belti á ökutæki sinu, svona viðlika og á skriðdreka.
— Ljósmynd: A. A. fótó.
Fá tillögurnar
stuðning
Alþýðuflokksins?
i Alþýðublaðinu i gær birt-
ast viðtöl við þrjá talsmenn
stjórnarandstöðunnar. Eru
þeir spurðir, hvort flokkar
þeirra bafi tekið afstöðu til
skattatillagna rikisstjórnar-
innar. Þessi viðtöl Alþýðu-
blaðsins fara hér á eftir:
Bjarni Guðnason, formaður
Frjálslynda flokksins:
Ég hef ekki fengið nákvæm-
ar frásagnir af þessum tillög-
um, lieldur aðeins séð þetta i
grófum dráttum.
Söluskattshækkun felur i sér
visst óréttlæti fyrir vissa hópa
þjóðfélagsins, og ef ekki verð-
ur komið til móts við þá hópa á
amian hátt, þá sé ég mér ekki
fært að styðja þcssar tillögur,
þegar þær verða lagðar fram
á Alþingi.
Benedikt Gröndal, varafor-
inaöur Álþýðuflokksins:
Alþýðufiokkurinn hefur flutt
á þingi tillögur i þá átt, að
beinir skattar verði lækkaðir
og þess I stað teknir upp óbein-
ir skattar, þ.e. söluskattar.
\ ið höfum lýst þvi yfir, að
við séum reiðubúnir að greiða
slikmn tillögum atkvæði, komi
sannanlega til samsvarandi
lækkunar á tekjuskatti — en
ekki eyri þar framyfir.
Geir'Hallgrimsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins:
Sjálfstæðisflokknum ' hafa
alls ekki verið kynntar þessar
tillögur, og þvi getum við ekki
tekið neina afstöðu til þeirra
sem slfkra. fig hef aftur á móti
i dag séð uppkast af þeim i
ljósriti, og ef það er, sem mér
virðist, aö þær séu til að auka
heildarskattabyrðina i land-
inu, þá nuinuni við beita okk-
ur ákveðið gegn þeim.
Fóheyrð bíræfni
Eins og skýrt var frá í blöð-
um i gær, heitir stjórn
Meistarasambands bygginga-
manna nú fáheyrðri biræfni til
pólitískrar misnotkunar á
þessum l'élagssa mtökum i
þágu Sjálfstæðisflokksins i
Rey kjavik.
i bréfi til félagsmanna
skýra formenn aðildarfélaga
meistarasambandsins frá þvi.
að „ákveðið liafi verið af sam-
tökum meistarafélaga hér i
Reykjavik að vinna að kjöri
ákveðinna manna til borgar-
stjórnar á vori komanda."
Skýra þeir svo Irá, aö þeir
liafi valiö tvo menn úr sinum
röðum til prófkjörs i Sjálf-
stæöisflokknum og segja:
„Að viðveljum þennan flokk
til prófkjörs er einungis vegna
þess,að þar eru mestu mögu-
leikar á árangri."
Frestun
réttlætanleg
1 viðtali við Þjóðviljann i
gær um frestun verkfallanna
segir Eðvarð Sigurðsson,
formaður Dagsbrúnar, m.a.:
„Eg tel að máluni liafi þok-
að það áleiðis að undanförnu,
að frestun hafi verið fullkom-
lega réttlætanleg. Yið hiildum
okkar stöðu i alla staði
óskertri, og komi til verkfalls
þrátt fyrir þennan frest, þá tel
ég, að það eigi að geta orðið
a.m.k. fjórum dögum styttra
en ella, vegna þess sem ætla
má,aö við þokumst nær niður-
stöðu á þessum 4 dögum, sem
fresturinn nær yfir. Ég reikna
hins vegar með þv^að ef verk-
lall hefði hafizt i nótt, þá hefði
það aldrei staðið styttra en i
viku. Þegar fresturinn rennur
út á föstudagskvöld tel ég, að
það eigi hins vegar aö liggja
algerlega ljóst fyrir, hvort
verkfall er óhjákvæmilegt eða
ekki." — TK.