Tíminn - 21.02.1974, Side 4
4
TÍMINN
Fimmtudagur 21. febrúar 19Í4.
Krabbamein og
tréiðnaðarmenn
Helmingur allra þeirra Frakka,
sem fá krabbamein i nefgöng,
hafa starfað i tréiðnaði, að þvi
er fram kemur i læknaskýrslum
i Frakklandi. Læknar i Bret-
landi hafa komizt að sömu
niðurstöðu eftir athugun, sem
þar hefur farið fram. Dr.
Leroux-Robert, læknir við
læknahásólann i Paris, segir að
krabbamein i nefgöngum se at-
vinnusjúkdómur, sem tre'smiðir
og aðrir, sem starfi i tíeíðnaöi,
eigi á hættu að fá. Hann segir
ennfremur, að allir þeir, sem
hann hafi rannsakað og þjáðst
hafa af þessum sjúkdómi, hafi
eytt frá 22 i 54 ár i sagryki. Ryk
úr eik er hættulegast og veldur
þremur fjórðu af öllum krabba-
meinstilfellunum. Næst á eftir
kemur svo furan og siðan val-
hnota. Læknirinn segir , að mest
hætta stafi af finu, þurru sagi,
sem myndast, þegar vélsagir
eru notaðar til þess að saga
niður timbrið, og þvi þurrara
sem það er, þvi hættulegra er
það. Þá segir læknirinn, að lim,
fúavarnarefni og lökk alls konar
hafi verið útilokuö sem krabba-
meinsvaldar. Læknirinn segir
að lokum, að 70% þeirra, sem
hafa fengið krabbamein i nef-
göng, hafi fengið lækningu við
uppskurð eða geislameðferð.
Stærsta flugvél i
notkun í Síberíu
Stærsta flugvél heims, sovézka
vélin Antej, hefur verið tekin i
notkun i reglulegt flug á leiðinni
milli Tjumen og Nisjnevartovsk
i V-Siberiu. Flugvélin á að
annast vöruflutninga á þessu
svæði, þar sem fátt er um vegi.
Þessa 1000 km. vegalengd
annast flugvélin flutninga á dæl
um, gröfum, rörlagningavélum
og öðrum útbúnaði til oliu-
vinnslu á stærsta oliulindasvæði
Sovétrikjanna, Samotloi; Flytur
flugvélin vélarnar beint á þá
staði, þar sem þær verða notað-
ar. 1 vetur mun flugvélin alls
fara 70 ferðir með varning,
samtals um 2500 tonn að þyngd.
Áætlunarsigling
ar fró Odessa
til Bandaríkjanna
I Odessa við Svartahaf hefur
bandariskt fiutningaskip losað
tækjabúnað til stórrar vörubila-
verksmiðju. sem verið er að
reisa i Nabersejnije Tjelni við
Kama. Þetta er fyrsti
farmurinn, sem fluttur er i
áætlunarsigling'um frá höfnum
a áusturströnd Bandarikjanna
til Odessa.
Samtimis hefur Svartaháfs-
skipafélagið opnað áætlunar-
siglingaleið til Bandarikjanna.
Sovézk skip munu flytja stál
marmara, o.fl. vörur til hafna
við vötnin miklu. Siðar verða
teknar upp áætlunarsiglingar til
hafna á austurstönd
Bandarikjanna.
Hittir sjaldan starfsbræður sína
Wilfried Lange i Hamborg
þarf að fara langt til þess að
hitta starfsbróður sinn, bvi s4
sem næst honum býr er ekki
nær en i S-Afriku.’ Hvað skyldi
það svo vera, sem Wilfried
Sérkennilegt
farartæki
Þessi óvenjulegi bill var til
sýnis i inni árlegu bilasýningu,
sem haldin er i stuttgart i
Þýzkalandi. Bilinn teiknaði
Luigi Colani, sem er mjög
þekktur teiknari. Ekki telja
menn líklegt, að billinn eigi
miklar framtið fyrir sér á
vegum úti, en hann er alla vega
skemmtilegur sýningargripur,
enda vakti hann óskipta athygli
allra þeirra, sem sýninguna
sóttu.
gerir? Hann gerir við brotnar og
sundurbitnar pipur. Venjulega
eru þetta engar smápipur þvi
aðeins borgar sig að láta gera
við þær allra dýrustu, i öðrum
tilfellum kaupa menn sér bara
nýja pipu, ef sú gamla brotnar
eða eyðileggst. Ekki þarf þessi
45 ára gamli pipuviðgerðar-
maður að kvarta undan þvi, að
hann hafi litið að gera, þvi menn
koma með pipur til hans
hvaðanæva að úr Evrópu, og
hann getur yfirleitt ekki komizt
yfir að gera við meira en 30
pipur á dag. Tala pipureykinga
manna komst upp i tvær og
hálfa milljón i V-Þýzka-
landi á siðasta ári, Fjórir
fimmtu þessa hóps gripa þó
annað slagið til sigaretta eða
vindla. Af þeim 1.2 milljónum
pipa, sem seldar eru i verzlun-
um á ári hverju, eru 30% seld i
Bretlandi, Danmörku, ttaliu og
Frakklandi.
Hann er svo ánægöur. leikskólinn
fór i heimsókn i súkkulaðiverk-
smiðju.
DENNI
DÆMALAUSI