Tíminn - 07.03.1974, Qupperneq 4
4
TÍMINN
Fimmtudagur 7. marz 1974.
Konu dæmdar
skaðabætur
vegna mistaka
lækna
1 Haifa i tsrael var 36 ára
gamalli konu nýlega dæmdar
25.000 dollarar (yfir 2 millj. Isl.
krónur) i skaðabætur vegna
þess, að árið 1970 sögðu læknar
henni að hún væri með krabba-
mein i brjósti og tóku af konunni
brjóstið, en við rannsókn á
æxlinu kom i ljós að það var
ekki illkynjað, svo að þess
vegna hafði verið óþarfi að
fjarlægja brjóstið. Fyrir þetta
var sjúkrahúsið og viðkomandi
læknar gerðir skaðabótaskyldir
við konuna, og ekki siður vegna
þess, að þeir létu 15 mánuði liða
— áður en þeir sögðu henni, að
hún hún hefði ekki verið með
krabbamein — og það þótti
jafnvel verri yfirsjón heldur en
mistökin með greiningu
sjúkdómsins. Réttarhöldin
vöktu mikla athygli og mörg
vitni voru leidd fyrir réttinn,
bæði læknar og rannsóknarfólk.
Gleðilegar
framfarir eða....?
Stjórn trlands hefur lýst þvi yf-
ir, að hún hyggist leggja fram
lagafrumvarp, sem heimili sölu
getnaðarvarna. Verði frum-
varpið að lögum, getur hver sá,
sem náð hefur átján ára aldri,
keypt slikar nauðynjar i lyfja-
búðum innan tiðar. A siðasta ári
leyfðu irsk yfirvöld innflutning
getnaðarvarna, en sala og aug-
lýsing er enn stranglega bönn-
uð! Þetta verður þó áreiðanlega
þungur róður, og flestir efast
stórlega um, að frumvarpið nái
fram að ganga, þvi að kaþólikk-
ar hafa þegar mótmælt þvi
kröftuglega.
í ársfangelsi fyrir
að þvo buxurnar
sinar I
Fáeinar húsmæður sátu og biðu
eftir þvottinum sinum. Þetta
var i bænum Gosforth á Eng-
landi, og frúrnar voru staddar i
almenningsþvottahúsi, þar sem
viðskiptavinirnir settu sjálfir
þvöttinn i sjálfvirkar þvottavél-
ar. Það er auðvitað ekkert
merkilegt við svona þvottahús,
sizt af öllu á Englandi, enda
bjuggust blessaðar konurnar
ekki við neinum stórviðburði.
Sumar sátu meira að segja dott-
andi og biðu þess eins, að
vélarnar skiluðu þeim aftur
þvottinum, svo þær gætu flýtt
sér heim að hengja upp. Þær litu
þvi varla upp.þegar átján ára
unglingspiltur hélt innreið sina i
þvottahúsið. Þetta var Douglas
Hart, og hann var kominn til að
þvo buxurnar sinar, þ.e.a.s.
nærbuxurnar sinar „Ánægju-
IL-J
legt að karlmenn skuli nenna að
þvo af sér sjálfir,” hugsuðu
blessaðar frúrnar i grandaleysi
og héldu áfram að dotta. En þá
dundu ósköpin yfir. An minnstu
svipbrigða klæddi pilturinn sig
úr hverri einustu spjör, stakk
nærbuxunum sinum rólega i
þvottavélina og settist niður til
að biða Konurnar trúðu ekki
sinum eigin augum. Var
drengurinn bandvitlaus, eða átti
hann kannski ekki nærbuxur til
skiptanna? Hvað áttu þær eigin-
lega að taka til bragðs? Þær
skutu á fundi og ræddu málið i
ákafa, en Douglas Hart lét það
ekkert á sig fá og lagði ekkert til
málanna. Eftir japl og jaml og
fuður komust fundarkonur að
þeirri niðurstöðu, að þetta væri
bara alls ekki normalt athæfi.
Að visu væri sá möguleiki fyrir
hendi, að pilturinn væri svo illa
stæður, að hann ætti ekki til
skiptanna, en þá hefði hann lika,
að þeirra dómi, átt að sjá sóma
sinn i þvi að senda einhvern
annan með brókina. (Það skal
tekið fram, blessuðum konun
um til afsökunar, að þær höfðu
auðvitað alls ekki orðið þeirrar
ánægju aðnjótandi að sjá
Klukkustrengi, og þvi fór sem
fór.) Þær kölluðu sem sagt á
lögregluna, sem fannst þetta at-
hæfi drengsins alveg jafn ónor-
malt og þeim, og Hart var dreg-
inn fyrir dómara. Og næsta árið
þarf hann alls ekki að hafa fyrir
þvi að þvo nærbuxurnar sinar
sjálfur, þvi að hann situr i
fangelsi fyrir ósæmilegt athæfi
á almannafæri.
★ ★
Með einkaspæj
ara á hælunum
Bæjarstjórnin i Cromer á Eng-
landi er búin að fá sig fullsadda
á hundaskit um götur og torg.
Ekki alls fyrir löngu var ráðinn
einkaspæjari á vegum bæjarins
til þess að fylgjast með ferðum
hundaeigenda. Og verði hann
var við.að fólk brjóti þær reglur,
sem bæjarstjórnin hefur sett, i
þvi augnamiði að halda götun-
um hreinum, ber honum að taka
til sinna ráða. Að visu er ekki
ætlunin,að hann reyni að koma i
veg fyrir ósómann né stöðva
hund i miðri athöfn, enda gæti
slikt orðið harla erfitt viður-
eignar. Nei, spæjarinn beitir
einfaldlega ljósmyndavél til að
koma upp um sökudólgana, og
siðan verða þeir að greiða fjár-
sektir. Okkur þykir liklegt, að
þessi aðferð eigi eftir að gefa
góða raun, þvi að hver kærir sig
um að greiða offjár fyrir hunda-
skit?
★ ★
Fjarlægðarmæl-
ingar eftir
Laser-kerfinu
1 landmælingadeild Fjöltækni-
stofnunarinnar i Sovétlýð-
veldinu Armeniu hefur verið
hannað Lasertæki til fiar-
lægðarmælinga. Það dregur 273
kilómetra og á nokkrum minút-
um getur það frámkvæmt mæl-
ingar, sem 12 menn gera á 3-4
klukkustundum. Fjöltækni-
stofnunin i Armeniu hefur áður
hannað tæki, sem hafa reynzt
hentug á ýmsum sviðum t.d. við
stifluframkvæmdir, uppsetn-
ingu sjónvarpsloftneta og fl.
★ ★
i Glaðlegir
bílasmiðir!
1 Kama-bifreiðaverksmiðjunum
i Sovétrikjunum var nýlega
haldin Tatara-hátið og þar var
þessi mynd tekin. Allir virðast i
góðu skapi, en hvaö hlægir
fólkið svo mjög getum við þvi
miður ekki sagt ykkur frá, þvi
að myndaiextinn var á okkur
óskiljanlegu máli, en hátiðin er
greinilega vekheppnuð.
DENNI
DÆMALAUSI
Kl' ég hef of liátt, öskrar hún á
mig. Ef ég þegi.heldur hún, að ég
sé veikur.