Tíminn - 07.03.1974, Síða 6
6
TÍMINN
Fimmtudagur 7. marz 1974.
Tungulax
5 ára
A ÞESSU ári eru 5 ár liðin siðan
hlutafélagið Tungulax var
stofnað, en rúmur áratugur er
siðan þeir félagar prófessor
Snorri Hallgrimsson, Kristinn
Guðbrandsson og Oddur ólafsson
hófu tilraunir til fiskeldis og
byggðu litla fiskiræktarstöð að
Keldum. Þcir hófu og fiskirækt á
Skaftársvæðinu og gerðu
ræktunarsamning um Eldvatn i
Meðallandi. A dögunum var vigð
fiskeldisstöð sem félagið hefur
komið upp að öxnalæk í ölfusi.
Tungulax h/f hefur haldið
áfram rekstri fiskiræktar-
stöðvarinnar að Keldum og litils
tilraunahúss á öxnalæk, sem þeir
Snorri Hallgrimsson og Kristinn
Guðbrandsson reistu vorið 1969.
Þá hefur félagið haldið áfram
ræktun i Tungulæk og Hæðarlæk i
Landbroti, og ræktun Eldvatns i
Meðallandi, sem er ein stærsta
bergvatnsá landsins.
Við Hæðarlæk hefur félagið
reist 360 fermetra eldishús og eru
þar gerðar tilraunir með lax og
sjóbirting, sem m.a. er sleppt
beint úr húsinu út i læk i von um
endurheimtu, en sá fiskur sem til
baka kemur, er fyrst og fremst
notaður sem klakfiskur.
1 Eldvatn hafa nú verið sett nær
100 þús. gönguseiði, og er
ræktunin þar byrjuð að bera
árangur. 1971 veiddust þar 40
laxar, 1972 60 og á s.l. ári 100.
Stærsta átak félagsins er
bygging fiskiræktar-
stöðvar á öxnalæk. Hér er um að
ræða 900 fermetra hús, með
fullkomnasta búnaði, sem völ er
á, en eldiskerin eru 88 talsins.
Siðan verða gerðar útitjarnir, og
er hugmyndin að þar verði undir
vatni allt að 7000 fermetrar. t stöð
þessari er fyrst og fremst ætlunin
að ala silung til manneldis, bæði
bleikju og sjóbirting. Verða seiðin
alin innandyra i u.þ.b. 10 sm
stærð, en siðan flutt i útitjarnir,
þar sem þau verða alin i u.þ.b. 200
gramma þyngd, en þá sett á
markað, og er hver fiskur einn
málsverður. Vonir standa til
þess, að framleiðslan geti orðið
um 50 tonn á ári, en jafnframt
verður um að ræða eitthvert eldi
á seiðum til sölu og til sleppingar i
þær ár, sem félagið er að rækta.
Segja má, að hér sé um að ræða
fyrstu tilraunina á tslandi til
eiginlegs fiskibúskapar. Veltur
auðvitað á miklu, að sú tilraun
takist eins og efni standa til.
Aðstæður á öxnalæk eru allar
hinar ákjósanlegustu og þá fyrst
og fremst vatnið, sem er 12 stiga
heitt lindarvatn, sem raunar má
hita meira með iblöndun heitara
vatns.
t stjórn Tungulax h/f eru:
Eyjólfur Konráð Jónsson, Krist-
inn Guðbrandsson, og Þuriður
Finnsdóttir. Framkvæmdastjóri
er Guðmundur Hjaltason.
Lögmannafélag
íslands
Almennur félagsfundur verður haldinn i
Þingholti (Hótel Holt) föstudaginn8. marz
kl. 17.
Til umræðu: Gjaldskrármál o. fl. —
Framsögumaður Gunnar Sæmundsson,
formaður gjaldskrárnefndar LMFÍ.
Stjórnin.
Frá Styrktarfélagi
vangefinna
Aðalfundur félagsins verður haldinn i
Bjarkarási sunnudaginn 10. marz og hefst
kl. 14.
Dagskrá:
1. Skýrsla stjórnar.
2. Reikningar félagsins.
3. Kosningar.
4. önnur mál.
Stjórnin.
Vörubílar —
vagn og krani
Scania L-76 1966, 10 hjóla, sturtur og 5 m
pallur.
Scania L-76 1967 6 hjóla, sturtur og 16,5 f.
pallur.
Ford D-800 1967 ekinn 65 þús. km., 17.5 f.
paliur, sturtur.
Flutningavagn, stólvagn, 2ja hásinga, 22
tonn, 12 m langur, dekk 100/20
Hiaf-krani, tvö og hálft tonn (miðjukrani).
AÐAL BÍLASALAN
Skúlagötu 40 — Simar 15014 og 19181.
Séð yfir sal öxnalækjarstöðvarinnar.
Kristinn Guðbrandsson ræðir við Halldór Sigurðsson, landbúnaðarráðherra, við opnunina.
O INÚK
veg og vanda af uppfærslu og
gerð leikritsins, en það er sam-
bland af látbragði, dansi og
söngvum.
Hér er um að ræöa mjög lofs-
vert framtak til kynningar frúm-
stæðum þjóðum, og því er þess að
vænta að skólayfirvöld sýni leik-
urunum stuðning i orði og i verki.
Auk þessa spinnst inn i leikritið
almenn fræðsla og kynning á
Eskimóum.
Leikararnir hafa sjálfir haft
BókhaldsaðstoÖ
með tékkafærslum
PJbúnaðarbankinn
VQ/ REYKJAVÍK