Tíminn - 07.03.1974, Page 13
Fimmtudagur 7. marz 1974.
TÍMINN
13
0 Strandferðir
hnjaski, stundum bleytu. Seinast i
janúar bárust mér fréttir frá Nes-
kaupstað um blautar pappa-
umbúðir og rafsuðuþráð, hvort
tveggja ónýtt, ennfremur gólf-
teppasendingu. Og það er
óþolandi, sem ég og fleiri verða
þrásinnis að heyra þegar fyrir-
tæki i Reykjavik er beðið að
senda minni háttar sendingar
með Rikisskip. En þá eru svörin á
þá leið alla tið, hvort ekki megi
senda með bil eða flugvél, það sé
svo stirt að koma vörunni á
afgreiðslu skipanna.
Þetta er nú utan við efni þeirrar
tillögu, sem hér er til umræðu,
enda eru úrbætur á aðstöðu
Skipaútgerðar rikisins i Reykja-
vik væntanlega komnar á það
stig, að óþarft er að gera þær að
sérstöku þingmáli, enn einu sinni.
— En ég vil nota þetta tækifæri til
að skora mjög alvarlega á Skipa-
útgerðina og samgönguráðu-
neytið i fyrsta lagi að hraða
varanlegum úrbótum svo sem
framast er unnt og i öðru lagi að
gera þegar i stað einhverjar þær
ráðstafanir til bráðabirgða, er
bætt gætu aðstöðuna hér i
Reykjavik og taka um leið til
rækilegrar athugunar hvað hæft
er i kvörtunum um óeðlilegar
vöruskemmdir og bæta um ef
réttar reynast.
Um tillöguna sjálfa vil ég svo
að lokum segja það, að ég tel mig
hafa leitt veigamikil rök að þvi að
bein þörf sé á þriðja vöru-
flutningaskipinu á ströndina, til
þess að auka tiðni ferða, til þess
að anna flutningaþörfinni á anna-
timunum og til öryggis þegar skip
tefjast af einhverjum ástæðum.
Flutningsmenn leggja áherzlu á
báða þætti tillögunnar, heimild til
að láta smiða eða kaupa skip og
til bráðabirgða heimild til að taka
skip á leigu.
Vegna staðhátta og veðurfars
er nægur skipakostur nauðsyn.
Fyrst við þurfum að eiga skipin
þá ber okkur að nýta þau vel.
o Orkusala
forráðamenn landsins sem komu
fram i Norðurlandaráði, nota enn
þessar tölur. En um þessi efni
hefur m.a. formaður
Landsvirkjunarstjórnarinnar
Jóhannes Nordal sagt, að hann
gerði ráð fyrir þvi að það yrði að
lækka þessar tölur um þriðjung
miðað við þau viðurkenndu
sjónarmið i umhverfismálum,
sem nú væru efst á baugi alls
staðar og mundu verða hér eins
og annars staðar.
Þessi atriði eru til þess fallin að
opna augu okkar fyrir þvi, að við
verðum að endurskoða öll þessi
mál frá rótum i ljósi þeirra nýju
viðhorfa sem eru búin að vinna
sér fylgi. Það verður að endur-
skoða allar áætlanir um virkjan-
legt vatnsafl á Islandi frá rótum
og þar með aílar eldri fyrir-
ætlanir um stóriðju og annað slikt
i þvi sambandi. Og það er ekki
sizt ástæða til að gera þetta,
vegna þess að það verður bein-
linis sótt á um að koma inn á
okkur mengunariðnaði á
næstunni, iðnaði, sem aðrir vilja
vera lausir við.
Iðnaðarráðherra Sviþjóöar
hefur nýlega lýst þvi yfir, að hann
áliti að búið sé að nota svona
hér um bil allt það vatnsafl, er
Sviar vilji nýta frá umhverfis-
sjónarmiði séð. Norðmenn hafa
endurskoðað allar sinar áætlanir i
þessu tilliti frá sama sjónarmiði
og lækkað áætlanir sinar um
virkjanlegt vatnsafl. Það verður
áreiðanlega enginn vandi að fá
erlenda aðila til þess að koma hér
upp iðnað á næstunni Við verð-
um að vera vandlátir i þessum
efnum og lita raunsætt á þessi
mál og hafa þá ekki sizt þau
sjónarmið i huga, að við ráðum
sjálfir yfir okkar eigin atvinnu-
rekstri. Það verða áreiðanlega
ekki mikil vandkvæði fyrir okkur
að fá fjármagn til þess að koma
upp góðum iðnaðarfyrirtækjum á
næstunni, án þess að þurfa að
hafa þau i eigu erlendra aðila.
Það er ekki um það að villast, að
það verður engum erfiðleikum
bundið, eins og þessi mál eru ao
snúast og með jafngóða aðstöðu
og við höfum i orkumálum, þótt
við þurfum að endurskoða okkar
eldri áætlanir.
Þess vegna lit ég björtum
augum á framtiðina.
0 Flatey
vist er það að starfið hlýtur að
vera guði þóknanlegt og að ekki
hefðu sumarbúðir minna þroska-
gildi, ef þær leiddu unglingana i
snertingu við undirstöðuatvinnu-
vegi þjóðarinnar.
Ef þessir atvinnuvegir, eins og
sjávarútvegur, landbúnaður og
fiskverkun, afmannast og við
þurfum e.t.v. að flytja inn fólk til
þess að draga fyrir okkur fiskinn
og vinna hann, þá er illa komið
fyrir þjóðinni.
Þvi miður óttast ég það veru-
lega, að skóla- og menntakerfi
okkar allt mennti alltof mikið af
fólkinu frá atvinnuvegunum — og
sliti það úr tengslum við þá.
Við þurfum gott og vel menntað
fólk i þessa atvinnuvegi. Mennta-
kerfið verður að mennta fólkið til
atvinnuveganna og fyrir þá — en
ekki frá þeim.
0 Sement
eiginleiki Pozzolan-sements og
það dregur úr súlfat-þenslu, sem
er efnabreyting, sem einnig getur
valdið sprungumyndun.
Pozzolan-sement harðnar
jafnar og hægar en annað sement,
þannig að spennur i stórum bygg-
ingahlutum verða hægari og
minni en annars er.
— Auk þess að henta vel til
allrar massasteypu er þetta nýja
sement hentugt i mannvirki, sem
eru i vatni. Við gerum okkur þess
vegna m.a. vonir um að geta i
framtiðinni selt pozzolan-sement
tilhafnargerðar, brúa og annarra
vatnamannvirkja, sagði
Guðmundur.
Sementsverksmiðjan hefur
þegar framleitt 250 tonn af
pozzolansementi til reynslu.
Framleiðslu til Sigöldu verður
svo háttað, að fyrsta árið verða
framleidd 15 þús. tonn, hið næsta
20 þús. og ioks 5-10 þús. tonn árið
1976.
Heildarframleiösla 1973 var um
135 þús tonn, en verður 150-160
þús. tonn á þessu ári, þegar
pozzolan-sementið bætist við.
Innan einnar eða tveggja vikna
fáum við nýja sementskvörn,
sagði Guðmundur, en hún er for-
senda þess að við getum framleitt
þetta magn.
Til framkvæmda í Búrfelli var
notað lág-alkolisement sem ekki
hefur eins fjölþætta eiginleika og
pozzolansementið og var auk þess
innflutt vara frá Danmörku.
Það er þvi mjög ánægjuleg þróun,
að notað skuli íslenzkt sement i
mannvirkin við Sigöldu. Hið nýja
pozzólan-sement er ekki aðeins
framleitt hérlendis heldur notuð
innlend hráefni til fram-
leiðslunnar. Pozzolan-sementið
er framleitt þannig, að malað er
saman lipari úr Hvalfirði og
sementsgjall, en i gjallinu er
skeljasandur blandinn lipariti.
. MIKID SKAL
TIL
§ SAMVINNUBANKINN
Skyndisala
Fermingarföt No. 36-37
Nokkur settverð frá kr. 3000.-
Drengjajakkaföt frá kr. 2500.-
Ilrengjajakkar molskinn
No. 8-10 kr. 800.-
Nýkomið enskt dúnléreft
Æðardúnsængur
Póstsendum
Simi 13570
Vesturgötu 12.
SAMVIRKI
Barngóð
kona
búsett i nágrenni Há-
skólans, óskast til að
gæta 2ja mánaða gam-
als drengs mánud. til
föstud. á tímanum kl.
13-16. Æskilegt er, að
aðstaða sé til þess að
láta hann sofa úti
þennan tíma.
Upplýsingar veittar i
sima 2-26-58 kl. 13-17 í
dag.
Við birtingu mynda úr þorrablóti þvi, sem SÍS bauð búnaðarþingsfulitrúum i ásamt fleiri mönnum, sem
trúnaðarstörfum gegna i þágu landbúnaðarins, misritaðist nafn undir þessari mynd, og ieiðréttist
það hér-í Fremst á myndinni er Lára Einarsdóttir, kona Sveins Einarssonar veiðistjóra.
Samgönguleysið
forðar frá flensunni
og einu sinni i viku að undan-
förnu. Bót i máli er, að skut-
togarinn Framnes I hefur getað
verið að og hann hefur nokkrum
sinnum komið með góðan afla
siðustu vikur.
Ófært er fyrir Dýrafjörð vegna
mikilla snjóflóða, sem féllu á
veginn á Ófærum skammt utan
við botn Dýrafjarðar að norðan
fyrir hálfri annarri viku. Siðan
hefur ekki viðrað til
snjómoksturs.
Undanfarna dagur hefur-hvass-
viðri verið mikið hér vestra og
rigningar, en ekki hafa orðið
miklar skemmdir á vegum, svo
að vitað sé, þvi að mikil svellalög
hafa hlift þeim.
Vel er fært frá Þingeyri um
utanverðan Þingeyrarhrepp.
Flug hefur verið mjög stopult
vegna veðurs og liklega hefur
samgönguleysið forðað mönnum
hér frá inflúensunni, sem geisar
syðra.
Laust starf
Starf fangavarðar við Hegningarhúsið i
Reykjavik er laust til umsóknar.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um fyrri
störf, sendist skrifstofu sakadóms
Reykjavikur, Borgartúni 7, fyrir 28. marz
n.k.
Yfirsakadómari.
Lagermaður
Maður óskast til lagerstarfa sem fyrst,
framtiðaratvinna fyrir duglegan mann.
Upplýsingar i skrifstofunni.
1. SKIPAUTGCRÐ RÍKISINS
AKRANES
Verkamenn vantar
til starfa i
Sementsverksmiðju rikisins.
SE—Þingeyri — Sjaldan hefur
gefið á sjó frá Þingeyri að
undanförnu. Heita má að bátar
hafi ekki komizt á sjó nema eins
0 Loðna
kynntu 4 skip um afla, en það
voru Óskar Magnússon, 200, Faxi
50, Talknfirðingur 250, Höfrungur
II 80.
Um kl. 18 i gær höfðu 24 skip til-
kynnt um afla, sem fékkst á
Breiðafirði. Þau voru Bjarni
Ólafsson 280, Húnaröst 90, Járn-
gerður 210, Hamravik 150,
Höfrungur III 260, Svanur 300,
Voniin 45, Helga 200, Steinunn 40,
Arsæll Sigurðsson 180, Hinrik 90,
Grimseyingur 200, Hafrún 70,
Asborg 150, Baldur 100,
Reykjaborg 420, Keflvikingur 220,
Bergur 180, Sandafell 190, Sigfús
Bergmann60, Þorbjörg II 100,
Rauðsey 240, Þorsteinn 300,
Ólafur Sigurðsson 180.
AKRANES
Vélvirkja vantar
til starfa i
Sementsverksmiðju rikisins.
R53 Starfsmenn
^ óskast
Sauðárkrókskaupstaður óskar eftir að
ráða eftirtalda starfsmenn nú i vor eða
fyrr eftir samkomulagi:
1. Vélvirkja.
2. Trésmið.
3. Verkstjóra.
4. Verkamenn.
Umsóknir, er greini aldur og fyrri störf,
sendist undirrituðum fyrir 15. marz n.k.
Bæjarstjórinn á Sauðárkróki.