Tíminn - 09.07.1974, Page 1
5^
AuglýsingadeiSd
TÍMANS
Aðalstræti 7
*
Dömur!
Nýjung!
DRESSFORM fatnaður loks á
Islandi
Pantið bækling núna
33373
Sjálfvirkur simsvari allan
sólarhringinn.
Póstverzlunin
Heimaval/ Kópavogi.
*
Laxinn stökk hálfan annan metra og Ienti við fætur veiðimannsins, sem varð heldur betur undrandi, en
svo snöggt gerðist þetta að ekkert ráðrúm gafst til að ná laxinum sprettharða.
Tlmamynd: Róbert
FJÖLBÝLISHÚS í
SKÓLAGÖRÐUNUM?
Elliðaárnar fullar af laxi:
Laxinn stekkur
upp á bakkana
GB—Reykjavík. — Geysileg laxa-
gengd var I Elliðaánum á sunnu-
daginn. Talið er að um sjö hundr-
uð laxar hafi farið um teljarann,
sem er ofarlega i ánum. En frá
þvi að veiði hófst i ánum i vor,
hafa nú farið 2570 laxar um telj-
arann. Arnar eru fullar af laxi, og
eru nú komnir á land þi júhundruð
fimmtiu og sex iaxar.
Það er svo mikið af lax i ánum,
að hann hefur ekkert svigrúm til
að stökkva, það sást við brúna við
Veiöihúsið i gærdag. Þar voru
tveir veiðimenn nýbyrjaðir að
veiða, og höfðu þeir eftir stutta
stund landað tveim fallegum löx-
um, um tólf pund á þyngd. Er
annar veiðimaðurinn stóð á bakk-
anum með stöngina úti, stökk
skyndilega myndarlegur lax og
féll að fótum veiðimannsins, en
siðan hentist hann út I ána aftur.
Það var eins og laxinn væri að
segja við veiðimanninn: „Taktu
mig ef þú getur”. Það væri litill
vandi að fá lax i soðið, það þyrfti
aðeins að setja pottinn á árbakk-
ann og biða eftir að laxinn stykki
upp I hann.
Hvenær
breytast
bílnúmerin?
SB-Reykjavik — Það hefur vist
ekki farið fram hjá mörgum, að
tii iandsins flytjast reiðinnar -
ðsköp af hilum. Að sjálfsögðu
hækka skráningarnúmer biianna
við þetta og númerapiöturnar eru
sumar svo langar, að beygja þarf
þær og skekkja tii að koma þeim
með einhverjum ráðum fyrir i þvi
lilla rúmi, sem þeim er ætlað á
semum tegundum bila.
Framhald á 17. síðu.
27%verðfall
áþorskblokk
frááramótum
— alvarlegar blikur á lofti
í fisksölumálum
ALVARLEGAR blikur eru nú
á lofti i fisksölumálum. Þorsk-
blokkin hefur fallið mjög i
verði á Bandarikjamarkaði að
undanförnu. Um sl. áramót
var verðið 80 sent en er nú 60
sent, sem er 27% veröfall eða
svipað og var á árunum 1966-
67.
Tregt hefur verið um sölu á
frystum fiski I sumar, en vera
má að úr þvi rætist með haust-
inu, þótt erfitt sé að spá nokk-
uð þar um. Hins vegar er
varla liklegt aö verðið hækki á
næstunni og kann jafnvel svo
að fara að verðið lækki enn.
Vegna þeirra tollakjara sem
gilda um viðskipti við Efna-
hagsbandalagið eru banda-
risku og rússnesku markað-
irnir enn hagstæðustu fisk-
markaðir okkar.
Fyrir nokkrum dögum voru
undirritaðir samningar við
rússneska fyrirtækið Prodin-
torg um sölu á 5500 lestum af
frystum fiskflökum. Söluaðil-
ar hér eru Sambandið og Sölu-
miðstöð hraðfrystihúsanna.
Þar meö höfum við samanlagt
selt 15600 lestir til Sovétrikj-
anna, en það er 4000 lestum
meira en i fyrra.
Gsal-Reykjavik — Skóla-
garðar Kópavogs við Ný-
býlaveg ætla að verða illi-
lega fyrir barðinu á skipu-
lagsy f irvöldum bæjarins,
því fyrir dyrum standa
byggingaframkvæmdir á
svæði skólagarðanna — á
þeim tíma, sem uppskeru-
hátíð barnanna fer í hönd.
Svo er mál meö vexti, að við
Nýbýlaveginn er verið að byggja
fjölbýlishús og samkvæmt skipu-
lagi og teikningum hefur eigandi
lóðarinnar rétt til aö byggja aust-
asta stigahúsið i miðjum garði
barnanna!
Að sögn umsjónarkonu Skóla-
garða Kópavogs, Huldu Finn-
bogadóttur, var skólagörðunum
úthlutað þessari landareign i
fyrravor, og samningurinn
endurnýjaður i vor. Hins vegar
var það vitað, að skólagarðarnir
yrðu að fá landsvæði á næsta
sumri, vegna byggingafram-
kvæmda á núverandi svæði skóla-
garðanna.
Sagði Hulda, að sér virtist sem
bæjaryfirvöld heföu gert þaö
glappaskot, að veita báðum aðil-
unum not af landsvæðinu á
sama tima.
— A fimmtudaginn i fyrri viku
komu hingað menn og byrjuðu aö
mæla fyrir byggingunni. Við und-
um þessu ákaflega illa, eins og
gefur að skilja, — og i morgun
tókum við þessa hæla upp og
hentum þeim til sins heima.
— Hvað eru mörg börn I þess-
um skólagarði?
— Hér eru 68 börn og ef til þess-
ara framkvæmda kemur eyði-
leggst 1/3 hluti af þessu svæði
og það er hræðilegt fyrir börnin,
sem hér hafa unnið af natni og
kostgæfni við ræktun sina, — að
horfa kannski upp á það einn dag,
að stór ýta kemur og gerði starf
þeirra að engu. Það er sagt að
börnunum verði bættur skaðinn,
— sennilega með þvi að endur-
greiða þeim gjaldið fyrir þessa
reiti sina, — en það gefur auga
leið að það er engin bót.
Sagði Hulda, að hún vonaðist til
þess i lengstu lög, að úr þessum
framkvæmdum yröi ekki og að
Framhald á bls. 17
—--—- • v ,- »■
Hulda Finnbogadóttir, umsjónarmaöur Skólagaröa Kópavogs sést hér á myndinni, á þeim staö þar sem
fyrirhugaö stigahús á aö risa af grunni. Hafin er bygging vestari hluta fjölbýlishússins og sést grunnur-
inn i baksvn. Timamynd: Gunnar