Tíminn - 09.07.1974, Blaðsíða 4

Tíminn - 09.07.1974, Blaðsíða 4
4 TÍMINN Þriðjudagur 9. júli 1974 Frumlegur fatnaður Þessi mynd er tekin i Bremen i Þýzkalandi. Þar keppast verzl- anir um að bjöða viðskiptavin- unum klæðnað, svipaðan þeim, sem hér sést á myndinni. Hann er gamaldags að dómi margra, en framleiðendur og seljendur segja hins vegar að þetta sé það sem koma skal, og þetta sé ein- mitt það, sem fólkið víll. Gam- aldags kjólar eins og þessir eru sagðir kvenlegir og skemmti- legir. Þeir eru lika sagðir eggj- andi fyrir karlkynið, sér i lagi fjaðrirnar og fineriið. Um það verða karlmenn sjálfir að dæma, sem þessa mynd sjá. Konurnar geta svo velt fyrir sér hvort næsti kjóllinn þeirra eigi að verða eitthvað i átt við það sem þær sjá hér. Þeir endurnýja kunningsskapinn? Það slettist upp á vinskapinn hjá Onassis og Rainier þjóðhöfðingja i Monaco i marz 1967. Þá þröngvaði Reinier fursti i Monte Carlo Onassis til að selja sér hlutabréf sin i spila- vitinu Société des Baines de Mer. Kaupverðið var 9 milljónir dollara. Rainer sagði að Onassis væri allt of ihaldssamur og gamaldags, og væri ómögulegt að stjórna þessu bezta fjár- öflunarfyrirtæki rikis sins, án þess að gera einhverjar breytingará rekstrinum, en það gengi svo seint, þegar þyrfti að semja við Onassis, að hann yfir- *» tók hans hluta i fyrirtækinu — hvernig, sem hann fór nú að þvi, þvi að hingað til hefur Onassis verið frægur fyrir hörku i sinum viðskiptum. Hann varð mjög móðgaður yfir þessari meðferð, og kom ekki i mörg ár til Monte Carlo. Nú nýlega neyddist hann samt til að fara þangað, þvi að hann varð að fara og sækja lik sonar sins, Alexanders, sm fórst i flugslysi. Alexander hafði átt heima i Monaco. Við þetta tæki- færi hittust þeir aftur gömlu vinirnir Rainier fursti og Onassis, og sættust heilum sátt- um. Rainer bauð Onassis og Jackie konu hans að dvelja um tima i Monaco, en sagt er að Jackie sé ekki hrifin af þvi að vera þar. Sumir segja, að hún öfundi Grace furstafrú, vegna glæsjleika hennar og stöðu, en aðrir góðir kunningjar þeirra beggja segja að svo sé ekki, heldur þyki Jackie leiðin- legt að dvelja i Monte Carlo, vegna þess, að þar er svo margt, sem minnir Onassis, eiginmann hennar á gamla daga, þegar Tina, fyrri kona hans, var þarna mest áberandi frúin á frönsku Rivierunni. Enn þá ganga sögur af ævintýralegu veizlunum, sem þau Onassis- hjónin héldu þá i holl sinni Chateau de la Croe. Siðar giftist Tina öðrum griskum i,,m i 11 j a r d a r a ” Stavrosí Niarchos að nafni, og þau dvöldust oft i þessari sömu höll, svo það virðist sem hún hafi átt gfiðar minningar þaðan. A myndinni sjáum við þá Onassis og Rainier fursta og frú Grace, Konan i doppótta kjólnum er hin fræga söngkona Maria Callas, en þau Onassis voru lengi góðir vinir, og var á tima bili talið að þau ætluðu að ganga i hjóna- band. Þess vegna kom það eins og þruma úr heiðskiru lofti þegar tilkynningin kom um hjónaband Onassis og Jacquiline Kennedy, eins og hún hét þá. — Hann gerir allt til að losna við að slá garöinn... DENNI DÆMALAUSI Jú, mig langar I súpu. Þú minntist ekkert á að það væri aspas í henni.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.