Tíminn - 16.08.1974, Qupperneq 4
4
TÍMINN
Föstudagur 16. ágúst 1974,
Sovézkir læknar
í þróunariöndunum
Um það bil 800 sovézkir læknar
starfa i ýmsum löndum Asiu og
Afriku, þar sem þeir meðhöndla
sjúkdóma og aðstoða við skipu-
lagningu heilbrigðisþjónustunn-
ar og menntun læknastúdenta.
Þeir hafa með sérfullkominn
tækjaútbúnað og lyfja- og bólu-
efnabirgðir. Sovézkir læknar
hafa hjálpað mörgum milljón-
um manna i Alsir, Eþiópiu, Ind-
landi og Iran.
Sovétrikin byggja nú heilsu-
verndarstöðvar, sjúkrahús og
fæðingarheimili i mörgum lönd-
um Asiu og Afriku. T.d. hefur
verið sett á stofn stór lyfjaverk-
smiðja i Indlandi, og veittu So-
vétrikin mikla aðstoð við bygg-
ingu hennar.
Jarðgas—
mikilvæg
útflutningsvara
Hafinn hefur verið útflutningur
á jarðgasi frá Sovétrikjunum til
ttaliu. Enn einn áfangi gas-
leiðslanna frá Sovétrikjunum til
Vestur-Evrópu hefur verið tek-
inn i notkun. Flutt er út gas til
Austurrikis og Vestur-Þýzka-
lands, svo og til ttaliu, sem i ár
mun kaupa 800 milljónir rúm-
metra af gasi. Salan til ttaliu
verður smám saman aukin, þar
til hún kemst upp i 6 milljarða
rúmmetra á ári.
Jarðgas er að verða mjög
mikilvæg útflutningsvara. Arið
1968 voru fluttir út 1.5 milljarðar
rúmmetra af gasi, en árið 1973
6.5 milljarðar.
Danir ættu að
tala ensku
Danskir stjórnmálamenn ræða
það nú i alvöru, hvort móður-
málið skuli lagt niður og enska
töluð I staðinn. Umræður um
þetta hófust með grein i dag-
blaðinu Politiken, þar sem þvi
var haldið fram, að allir Danir
ættu að læra ensku, en danskan
skyldi notuð sem nokkurs konar
almúgamál. Danir væru of fáir
til að burðast með eigið mál i
hinni sameinuðu Evrópu. t
dönsku skólareglugerðinni séu
þegar ákvæði um að öll skóla-
börn byrji að læra ensku i fjórða
bekk og eftir það.
Ofurmenni
slaghörpunnar
—I huga fólks er ég þjóðsagna-
persóna, en ég er samt lifandi
enn, sagði pianistinn Vladimir
Horowitz árið 1965, þegar hann
kom aftur fram eftir 12 ára hlé.
Auk þess að vera „ofurmenni
slaghörpunnar” hefur hann
safnað myndum eftir Picasso,
gömlum húsgögnum og dýrindis
neftóbaksdósum. Nú ætlar
gamla hljómplötufyrirtækið
hans að gefa út upptökurnar frá
árunum 1928-1960. Fyrirhugað-
ar eru 18 plötur með verkum
eftir Beethoven, Chopin, Liszt,
Rachmaninoff o.fl. Nú þegar
eru komnar út fjórar plötur er
flutningurinn sagður nálgast
fullkomnum að minnsta kosti
tæknilega séð.
Lítið eitt um
frægan mann
Herbert von Karajan, hinn
heimsfrægi hljómsveitarstjóri
frá Salzburg, hefur bætt einum
dýrgrip við ,,þotufólks”-leik-
föngin sin. Hann er fristunda-
siglari og úti fyrir Saint-Tropez,
nálægt bústað hans ,,La Conou-
biére”, liggur skútan „Heli-
sara”. Sú var smiðuð i Kanada
og metin á u.þ.b. 60 milljónir isl.
króna. A skútunni er 5 manna
áhöfn. Niður að höfninni fer
hann á „Suzuki” drengmótor-
hljóli. Þar að auki á meistarinn
tveggja véla Dusenþotu, sem
hann stjórnar sjálfur með sin-
um viðkvæmu listamannshönd-
um. Og svo mætti hefna nokkra
bila, s.s. Royce, „Silver Cloud”
og Porsche Carrera.
DENNI
DÆMALAUSI
Ég get ekki verið pð hlaupa
alla leið yfir til þin bara fyrir
ispinna. En hvað heldurðu að sé
tii i isskápnum.