Tíminn - 16.08.1974, Síða 7

Tíminn - 16.08.1974, Síða 7
TÍMINN 7 Föstudagur 16. ágúst 1974. Útgefandi Framsóknarflokkurinn Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (ábm). Jón Helgason, Tómas Karlsson. Auglýsingastjóri: Steingrlmur Glslason. Rit- stjórnarskrifstofur I Edduhúsinu viö Lindargötu, simar 18300—18306. Skrifstofur I Aöalstræti 7, slmi 26500 — af- greiöslusími 12323 — auglýsingaslmi 19523. Verö I lausasölu kr. 35.00. Askriftargjald kr. 600.00 á mánuöi. Blaöaprent h.f. Samrád við stéttasamtökin Sú afstaða Ólafs Jóhannessonar forsætisráð- herra, að ekki sé hægt að hefja viðræður við aðila vinnumarkaðarins I sambandi við stjórnar- myndun, hlýtur að vera auðskilin hverjum þeim, sem ihugar það mál. Stjórnskipunarlög rikisins ætla Alþingi einu það vald að mynda rikisstjórn. Ef ræða ætti við alla þá aðila utan þingsins sem væntanlegir stjórnarsamningar geta varðað að einhverju leyti, yrði stjórnarmyndun ekki aðeins óhemju timafrekt verk, heldur mætti heita næstum útilokað, að hægt yrði að ná nokkru sam- komulagi. Yrði farið inn á þá braut, þá væri vitan- lega ekki eðlilegt að ræða við Alþýðusambandið eitt, heídur einnig samtök annarra stétta, ef væntanlegir stjórnarsamningar skerða t.d. eitt- hvað hag þeirra, þótt ekki sé nema i bili Þvi hefur heldur aldrei verið hreyft áður að slik formleg samráð yrðu höfð við stéttarsamtökin meðan á stjórnarmyndunarviðræðum stæði. Alþýðuflokkurinn hefur margsinnis unnið að stjórnarmyndun, og aldrei minnzt á þetta fyrr en nú, og þvi siður gert það að úrslitaskilyrði, Hver og einn getur svo dæmt um, hvers vegna þetta er fundið upp nú. En þótt sá maður, sem vinnur að stjórnar- myndun, geti ekki og eigi ekki að taka upp form- legar viðræður við stéttarsamtökin, er hægur vandi að hafa við þau nægileg samráð. Hver ein- stakur flokkur, sem tekur þátt i viðræðum um stjórnarmyndun, getur haft samband og samráð við flokksmenn sina innan viðkomandi sam- taka,og þó ekki sizt, þegar þeir skipa þar trúnaðarstöður. Þetta hefur lika verið viðtekin venja, þegar unnið hefur verið að stjórnar- myndun. Flokkurinn verður siðan að vega það og meta, hvernig hann metur álit þessara manna, ef það fer ekki saman við mat og álit þingmanna hans, sem eiga að hafa úrslitaorð um afstöðu flokksins i sambandi við stjórnarmyndun. 1 við- ræðunum um myndun vinstri stjórnar nú, var margsinnis hvatt til þess, að viðkomandi flokkar hefðu samráð við forustumenn verkalýðs- hreyfingarinnar með þessum hætti Á annan hátt er ekki eðlilegt að hafa samráð við stéttarsamtökin, meðan unnið er að stjórnar- myndun. Um hitt eru svo allir sammála, að sjálf- sagt sé, að rikisstjórn hafi sem nánasta samvinnu og samráð við stéttasamtökin. Ólafur Jóhannes- son lýsti þvi hvað eftir annað yfir, að tækist honum stjörnarmyndun, myndi hann gera sitt itrasta i þessum efnum. Þvi til áréttingar lagði hann til, að ýmis veigamikil atriði i efnahagstillögum hans, sem einkum snertu hag láglaunafólks, yrðu ákveðin svo rúmt i væntanlegri efnahagslöggjöf, að hægt yrði að hafa mjög náin samráð við laun- þegasamtökin um framkvæmd þeirra. Um þessi atriði yrði hins vegar væntanleg rikisstjórn að semja. Sú deila, sem hér hefur risið, verður væntanlega til þess, að ekki verður framvegis reynt að skerða stjórnmyndunarvald Alþingis, með þvi að reyna að færa það i hendur aðila utan þess. Enda er vafa- samt, að það hafi verið tilgangurinn, heldur hafi þetta frekar verið notað sem átylla til að sigla um- ræddum viðræðum i strand. Þ Þ. Grein úr „Time" Watergatemálið hefur gert Rodino frægan Hann reyndist íhugull, þrautseigur og heiðarlegur. Þaö var vafalltiö hyggíleg stjórn á störfum laganefndar fulltrúadeildar Bandarlkja- þings, sem átti mikinn þátt i að upplýsa hlut Nixons i Watergatemálinu. 1 eftir- farandi grein, sem birtist ný- lega i vikuritinu Time, er sagt frá formanni nefndarinnar, Peter Rodino, en hann réð mestu um hin hyggilegu viö- brögö nefndarinnar: EKKI hrekkur til að vera heiðarlegur, heldur verður allt að lita heiðarlega út”, sagði Peter Rodino, formaður laga- nefndarinnar, sem var afar þung i vöfum. Nefndarmenn voru 38, starfið ákaflega þreytandi, stóð marga mánuði og sýndist oft og tiðum óvinn- andi. Svo leið að lokum rann- sóknarinnar, úrskurðurinn nálgaðist, og úrslit hlutlausrar atkvæðagreiöslu urðu þau, að 27 nefndarmenn greiddu at- kvæði gegn forsetanum en 11 með. Lágmæltur, hvíthærður formaðurinn fékk hrós fyrir heiðarleika, bæði hjá John Rhodes, leiðtoga Repu- blikanaflokksins i fulltrúa- deild þingsins, og Thomas P. O’ Neill yngri, leiðtogi Demó- krataflokksins. „Hann hefur færzt ótrúlega i aukana með erfiðleikunum”. sagði O’ Neill. begar rannsókn hófst til undirbúnings landráðaákæru á hendur forsetanum, var Rodino litt kunnur. Hann er þingmaður Newark, dæmi- gerður frjálslyndur stór- borgarbúi. Hann hefur setið á þingi i 25 ár. kynnzt náið öllum störfum, þess, lært að koma sér áfram með þvi að koma sér vel, en á forustuhæfileika hans hafði ekki reynt. „Hann var eins og falinn eldur, þegar til kom”, sagði O’ Neill. RODINO er sonur italsks verkamanns, sem fluttist vestur um haf. Hann ólst upp i litla, italska hverfinu i Newark og svo róstusamt var i nágrenninu, að hann sá menn skiptast á skotúm á götum úti. Rodino samdi skáldsögu um uppvaxtarár sin. Hún hefur ekki verið gefin út, en heitir „Rekastræti”. Hann gerði sér eitt sinn vonir um að verða skáld, og hefur enn yndi af að þylja ljóð eftir Shakespeare, Byron, Shelley og Keats. Litið varð þó úr skáldskapnum hjá Rodino, en hann brauzt með eljusemi gegnum lagaskólann i Newark. Rodino gegndi herþjónustu I siðari heimsstyrjöldinni, og varkjörinn á þing i fyrsta sinn árið 1948. A þingi einbeitti hann sér einkum að þeim málum,sem snertu þjóðfræði. Loks olli ósveigjanleg aldurs- reglan þvi, að hann varö for- maður laganefndarinnar, og þá var hann kunnastur fyrir að hafa komið þvi I kring, að dagur Kólumbusar yrði haldinn hátiðlegur. LEIÐTOGAR Demókrata- flokksins i fulltrúadeild þings- ins þekktu Rodino og báru tak- markað traust til hans, þegar ákæran um landráð kom til álita fyrir rúmu ár, sjö mánuðum eftir að hann varð formaður laganefndar. Carl Albert, forseti fulltrúadeildar- innar, lét ótvirætt I ljós, það álit sitt við Rodino, að réttara væri að fulltrúadeildin kysi sérstaka nefnd til að kanna málið, I stað þess að fela laga- n'efndinni rannsóknina. Rodino þverneitaði, og Albert lét undan siga. (Albert varð siðar ánægður með þá ákvörðun. Republiknana- flókkurinn heföi getað kosið i nefndina tóma gallharða stuðningsmenn Nixons, og komið þannig i veg fyrir hlut- lausan úrskurð.) Rodino hlakkaði ekki til að stjórna undirbúningsrannsókn landráðaákærunnar. Hann hafði árum saman átt fremur vinsamleg samskipti við Nixon. „Mér eru góðu hliðar- nar á hverjum og einum kær- ari”, segir hann. En hann hóf undirbúning sinn og fól I kyrr- þey Jerome Zeifman, skrif- stofustjóra laganefndar, að kynna sér allan gang málsins, ásamt tveim aðstoðar- mönnum. Arið 1973 hafði Rodino hætt störfum sem lög- fræðingur i Newark, en þau höfðu áður takmarkað nokkuð þann tima, sem hann eyddi i Washington. Nú hóf hann að kynna sér af gaumgæfni, hver afstaða semjenda stjórnar- skrárinnar heföi verið til land- ráðaákæru RODINO kynnti sér einnig frumskrif átjándualdar spekingsins ihaldssama, Edmunds Burkes, en hann hélt meðal annars fram, að ákæra um landráð ætti „ekki að byggjast á lögfræðilegum smámunum, heldur á traustum grunni siðalögmáls rikisins”, Og Rodino las einnig þrisvar bókina, sem sagn- fræðingurinn Michael Les Benedict gaf út 1973 um ákæruna á hendur Andrew Johnson. Hann játaði hrein- skilningslega, að sér ægði ábyrgðin. „Ég ligg andvaka á nóttunni”, sagði hann einu sinni. „Ég vona bara, að ég reynist maður til að standa undir ábyrgðinni”. Carl Albert, forseti fulltrúa- deildarinnar, hét Rodino að horfa ekki i kostnaðinn við rannsóknina, og hann fór þvl að ráða sérstaka starfsmenn, en þeir urðu alls 105, og ná- lega helmingur þeirra lærðir lögfræðingar. Hann fór einnig að svipast um eftir aðalmála- fræðslumanni. Rodino vildi ekki láta bera sér á brýn hlutdrægni. Þess vegna vildi hann finna óvið- komandi mann, sem væri I Republikanaflokknum. Tvo mánuði samfleytt ræddi hann við rektora lagaskóla, dómara, starfsmenn lög- mannafélaga og mikils virta málafærslumenn, en leiötogar Demókrataflokksins báru sig illa yfir drættinum. Loks varð John Doar fyrir valinu, og þá var komið fram i desember. ÞETTA var skrýtið sam- eyki: Tungumjúkur stjórn- málamáðurinn frá Newark og þegjandalegur lögfræðingur frá Princton, en hann hafði farið með mannréttindamál i dómsmálaráðuneytinu á for- Rodino setaárum þeirra Eisenhowers og Kennedys. En samvinna þessara tveggja manna varð náin, og þeir báru vaxandi virðingu hvor fyrir öðrum. Rodino var frá upphafi ljóst, að rannsóknin hlyti að verða til einskis, ef almenningur liti á hana sem blóðhefnd Demó- krataflokksins. Hann var raunar sjálfur sakaður um hlutdrægni i fyrstu, meðan hann var að hamra i gegn, að einn heföi stefnuréttinn. Siðar afsalaði hann sér þeim rétti og fékk hlustlausa samþykkt átta úrskurða um skyldu for- setans til að afhenda segul- böndin frægu, en Nixon neitaði að hlýða þeim öllum. EN Rodino var stöðugt að láta undan i ýmsum öðrum efnum. Hann ákvað, þvert ofan i tillögur Doars, aö leyfa James St. Clair, verjanda for- setans, að sitja fundi nefndar- innar, meira aö segja að yfir- heyra vitni og leiða þau sex vitni, sem hann óskaði eftir. Meðan á þessu stóð hélt for- maður rannsóknarinnar áfram að brýna fyrir mál- pipum Demókrataflokksins að hætta að heimta landráða- kæru. „Ég sagði þeim, að þjóðin kvæði upp lokaúr- skurðinn, og þeim dómi yrði frammistaða okkar einnig að lúta”, segir Rodino. Og nefndarmenn urðu að kröfum hans, en undu þvi ekki ætið sem bezt. John Conyers frá Detroithvæsti einusinni: „Ég vil fullvissa mig um, að hann sé ekki alltof andskoti heiðar- legur”. Álagið á Rodino var gifur- legt. Viku eftir viku hóf nefndin lokaða fundi klukkan hálf tiu alla þriöjudaga, mið- vikudaga og fimmtudaga. „Jæja, herra Doar”, var Rodino vanur aö segja. „Þá skulum við byrja”. Morgun- fundunum lauk klukkan fimmtán minútur yfir tólf, og siðdegis var aftur setið á fundi klukkan tvö til fimm. En þetta voru bara hinir formlegu fundir. Rodino settist við skrifborð sitt klukkan átta að morgni, sat þar oft fram yfir miðnætti, og ráðgaöist stundum við samstarfsmenn sina fram til klukkan þrjú á nóttunni. ÞEGAR tækifæri gafst, reyndi Rodino að hvila sig, ýmist úti við eða við að hlusta á óperusöng af plötum i ibúð sinni i höfuðborginni, en Tosca er uppáhalds ópera hans. Um helgar dvaldi hann hjá Mariönnu konu sinni i Newark, en hún var vin- stúlka hans á skólaárunum. (Börnin eru tvö: Peternemur Frh. á bls. 15

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.