Tíminn - 16.08.1974, Side 8
8
TÍMINN
Föstudagur 16. ágúst 1974.
ÍSLENZK
ÞJÓÐLÖG
Rætt við Troels Berndtsen um íslenzk
þjóðlög og þjóðlagasöng
Ný þjóðlagaplata ó þjóðarafmæli
Troels Bendtsen þjóölagasöngvari. Hann hefur stundaft þjóftlagasöng og
tónlistarflutning i tveim frægum trióum Savanna-trfó og Þrem á palli.
Áhuga islenzku þjóð-
arinnar á fornsögum
þekkja allir. Mikið af
tima fræðimanna og
spekinga fer i að bera
saman hauga og kuml
við sögur og forseti ís-
lands hefur m.a. bent á
að sagan á Islandi verði
að verða persónuleg, til
þess að vera áhugaverð.
Það verður að vita úr
hverjum beinin eru, sem
grafin eru upp, og helzt
verða þau að vera úr
frægum manni ef vel á
að vera.
— Ég veit að þú ert
skáld, helvitið þitt, sagði
Eirikur á Þingeyri, en
ég skal mæta þér i Is-
lendingasögunum
hvenær sem er, og
þannig miðast allt við
bækur og við sögur á
bókum, sem menn
kunnu spjaldanna á
milli.
En fleira er saga en
þeirra, sem koma við
stjórnmál sögualdar og
riða um héröð og skapa
sögu með deigum sverð-
Savannatrlóift á hinum „gömlu og góftu dögum”. Myndin er tekin I vor, þegar sjónvarplft lét gera dag-
skrá um þetta merkilega trió og fékk söngvarana til aö vinna saman aft enn einni dagskrá. Þótt liftin séu
nú um þaft bil nfu ár siftan Savannatrlóift kom slftast fram opinberlega, er „ný” plata frá þeim væntan-
leg á markaftinn innan skamms. Þar er safnaft saman á plötu ýmsum gamanvisum og spaugsömum
kvæftum, sem trlóiö flutti. Savannatrólift lagfti ekki minna upp úr frumlegum og góöum söngtextum, en
sjálfum lögunum. A myndinni eru Troels, Þórir Baldursson og Björn Björnsson.
um og þungum öxum.
Alþýða manna hefur
ekki komizt i sögur sem
skyldi, þar til nú, að hin-
um nafnlausa manni vex
nokkur ásmegin i sög-
unni. Fræðimenn og
söngvarar sem fremur
hafa asklok fyrir himin,
en dramb og ættir þing-
manna hafa komið þar
til skjalanna og það er
byrjað að syngja það i
fjölmiðlum sem vinnu-
konan söng yfir verki
sinu, og það sem alþýð-
an fór meðan dans var
leyfður.
Þrjú á palli
Já, ný saga er komin fram i
dagsljósiö, ný söguskoðun, sem
ekkért á skylt við þingmennsku
og vlg höfðingja né heldur við
fræg skáld og rithöfunda fornald-
ar. Fornfræðingar sigta gegnum
vírnet og sópa saman nýrri nafn-
lausri sögu og sönglistarmenn og
hljóðfæraleikarar nema nýjan
tón, ýmislegt af fornum bókum
eða kerlingum uppi I sveit.
Laglínur, sem varðveittar voru i
aldir I hjartanu komast nú ekki
einasta á blað, heldur hafa fengið
nýja vængi, sem heitir útvarp,
sjónvarp og hljóðritun.
Ljóð og lög sem rauluð voru yfir
börnum og i rökkrinu dimma
hljóma nú um allt ísland i flutn-
ingi farandsaungvaranna, sem
nefnast nú þjóðlagasöngvarar.
Nú fyrirskömmu kom merkileg
þjóðlagaplata á markað hér,
ICELANDIC FOLK SONGS, þar
sem trióið Þrjú á palli syngja
nokkur forn þjóðlög i raddsetn-
ingu Jóns Sigurðssonar, bassa-
leikara (i Sinfóniuhljómsveit-
inni), en hann er kunnur fyrir
útsetningar sinar og frumlega
tónlistargáfu.
Þeir, sem syngja og leika i trió-
inu, eru þau Troels Bendtsen,
Halldór Kristinsson og Edda
Þórarinsdóttir, en allt eru þetta
kunnir söngvarar i þessum nýja
sið.
Þekktastur þessara þriggja
mun vera Troels Bendtsen, sem
hefur lengi sungið, fyrst i hinu
fræga Savanna-triói, — nafn hans
er eins konar vörutrygging nú
orðið, þegar þjóðlagasöngur og
þjóðlagatónlist kemur til tals.
Savanna-trióið klass-
iskt!
En þótt þjóðlög lifi lengi i hjarta
þjóðarinnar án sérstakrar nær-
ingar, þá lifa söngflokkar stutt.
Þeir leysast upp i veraldarinnar
volki, ný atvinna býðst, börn fæð-
ast og skyldur kalla burtu frá
söng og það gefur i öskjurnar hjá
öðrum og þá verður sjálfhætt og
Séra Bjarni Þorsteinsson
prestur á Sigiufirði, sem getift
er um I vifttalinu. Séra Bjarni
var fæddur 14. okt. 1861 á Mel I
Hraunhreppi, dáinn 2. ágúst
1938.
Bjarni varft stúdent I
Reykjavik 1883 og útskrifafiist
frá prestaskólanum 24. ágúst
1888.
Hann haffii mikinn áhuga á
tónlist og kom auga á
verfimæti islenzkra þjóðlaga
og vikivaka.
1 jaiíúarmánuði árift 1904
sigidi séra Bjarni til Kaup-
mannahafnar til rannsóknar-
starfa á þjófiiögum.
Bjarni gaf út fjölda rita og I
þessar útgáfur hafa þjóftlaga-
söngvarar sótt fjölda laga.
Séra Bjarni var sæmdur
prófessorsnafnbót fyrir störf
sin árift 1930, og hann var
heiöursborgari Siglufjarftar-
kaupstaftar.
Kona Séra Bjarna
Þorsteinssonar var Sigríftur
Lárusdóttir Blöndal,
sýslumanns á Kornsá I Vatns-
dal. Sigriftur var fædd árift
1866 og lézt áriö 1929.