Tíminn - 16.08.1974, Page 9

Tíminn - 16.08.1974, Page 9
Föstudagur 16. ágúst 1974. TÍMINN 9 ÞRJÚ A PALLI. Troels Bendtsen tekur mynd af hinum, þeim Eddu Þórarinsdóttur og Halldóri Kristinssyni. Myndin er tekin viö Bernhöftstorfuna, en ef til vill svipar áhuga á fornum kvæöum og þjóölögum til hins mikla áhuga, sem rikir hér úm varöveizlu gamalla húsa og minja. Texti: Jónas Guomundsson þvi fyrr þvi betra. Nýjar raddir fá fæturna og hljóta vinsældir með sama hraða og þjóðin gleymir þeim, sem áður bar hæst. Um Savanna-trióið gegnir svolitið öðru máli. í vissum skiln- ingi hefur söngur þess hlotið viss- an sess með þjóðinni, og telst fremur klassik en dægurfluga, sumt að minnsta kosti. í tilefni af þjóðhátiðinni, ellefu alda áfmælinu var gerð áður- nefnd þjóðlagaplata. Við hittum Troels Bendtsen að máli og báð- um hann að segja okkur af plöt- unni og eitt og annað af Þrem á palli og Svanna-trióinu, og siðast en ekki sizt af þjóðlagasöng al- mennt. Og við spurðum fyrst: Byrjuðum að syngja saman i skóla Hvernig varö Savanna-trlóiö til og hann hafði þetta að segja: — Ég veit það ekki. Þetta sprettur bara einhvernveginn upp. Savanna-trióið átti ekki að verða neitt. Við byrjuðum að syngja saman á skólaárunum og komum fram á nemendamóti i Verzlunarskólanum fyrst. Þetta var árið 1962. Siðan lá leiðin út i skemmtana- lifið. Það var ekki hörð samkeppni við aðra skemmti- krafta um það leyti. Það var helzt Ómar Ragnarsson, sem þá — eins og nú — skemmti fólki á samkom- um og Jón Gunnlaugsson var þá lika mikið á ferðinni. Við fengum þvi næg verkefni fyrir okkar söng. Fyrst að við i Savanna-trióinu fórum á annað borð að. koma fram sem söngflokkur, þá langaði okkur til að koma með eitthvað nýtt. Dægurlög, sem verið höfðu vinsælt flutningsefni þokuðu brátt fyrir þjóölögum. Alls konar nýj- um og gömlum lögum og jafnvel sálmum. Að þessu leyti sóttum við fyrir- myndina til útlanda, þar sem bæði var rik tónlistarhefð i þjóð- lögum og eins mikill og vaxandi áhugi fyrir þjóðlögum og flutningi þeirra. Þjóðlög tekin til flutn- ings Þá byrjuðum við að taka Is- lenzk þjóðlög og færa þau i flutningshæfan búning, sem hent- aði okkur og ennfremur tókum við erlend þjóðlög til flutnings. Við þessa lagaleit og útsetningu á þjóðlögum, nutum við Þóris Baldurssonar sem var einn af trióinu. Hann er gæddur rikri tón- listargáfu og hefur þetta allt i blóðinu, ef svo má að orði komast. Við fundum, eða höfðum upp á lögunum svona i sameiningu, en hann útsetti og færði i flutnings- hæft form fyrir okkur. — Þjóðlög eru viða að finna i bókum, ef menn vilja hafa fyrir þvi að leita eftir þeim. Hæst ber þó liklega þjóðlagasafn séra Bjarna Þorsteinssonar frá Siglu- firði, en þjóðiagasafn hans gegnir viðlika hlutverki á þessu tónlist- arsviði og Þjóðsögur Jóns Árna- sonar i þjóðsögum Islendinga. Úr þessu safni fengum við talsvert af lögum, sem náðu vinsældum og þess voru dæmi að menn komu til okkar með lög og visur sem við siðan fluttum. Hann Bjarni sálugi bróðir minn Til dæmis um þetta er visurnar um hann Bjarna sáluga bróður minn, sem hlutu talsverða frægð innan þess ramma, sem frægð þjóðlaga verður. Þennan texta fengum við á skemmtun i Silfur- tunglinu, en þar vorum við að syngja. úlfur Hjörvar, blaða- maður lét okkur fá vísurnar og við þær var lag, sem við reyndar notuðum svo ekki, heldur nýtt lag, sem Þórir Baldursson samdi. Með þessum hætti hlóðst utan á Savanna-trióíð, og lagavalið varð fjölbreytt og frumlegt. — En svo hættir Savanna-trió- ið. Hvers vegna, fyrst allt gekk ljómandi vel? Það er gamla sagan. Meðan við vorum i skóla, höfðum við meiri tima, en svo eftir að menn höfðu stofnað til hjúskapar og fengið sér fasta vinnu, var naumast eins hægt um vik og áður að syngja og koma fram opinberlega á skemmtunum. Þar að baki liggur þrotlaus vinna, og maður hrein- lega gefst upp og dregur sig I hlé. Okkur var það ljóst, svo til frá upphafi, að við myndum aldrei geta boðið upp á vandaðan flutn- ing á efni, nema við hefðum taeki- færi til að helga okkur söngnum allt að þvi einvörðungu. Þvi var það mjög snemma á söngferlinum, sem við ákváðum að hætta, ef til þess kæmi, að við hefðum ekki nægan tima til þess að sinna . söngnum, vegna ann- arra starfa. Sungið fyrir sjónvarp og á hljómplötum — Savanna-trióið kom síðast fram i aprilmánuði árið 1965 i Stapanum i Keflavik. Eftir það gerðum við samning við sjón- Framhald á bls. 13 Erik Bye hinn frægi norski sjónvarpsmaöur (með gleraugun) sem dáður er um alla Skandinavfu fylgist með upptöku á Þrem á palli, i Roger Arnhof studlóinu I Osló. Við hlið hans stendur Jónas Sigurðsson bassaleikari, sem setti út þjóðlög fyrir söngflokkinn. Þrjú á palli komu fram I sjónvarpsþætti Eriks Bye, þar sem safnað var fé fyrir norsku strandgæzluna og björgunarsveitirnar. Erik Bye var sjómaður áöur en hann gerðist sjónvarpsstjarna. Hann er mjög vinsæll um borð I islenzku sildveiðiskipunum i Norður- sjónum, en sést aftur á móti sjaidan I islenzka sjónvarpinu. Þrjú á palli á Karl Johan I Osló. Myndin er tekin I janúar 1973 en þau ferðuðust til Oslóborgar til að taka þátt I sjónvarpsþætti Erik Bye, þess er frægastur varð hér vegna söfnunar i Vestmannaeyjasöfnunina i Noregi.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.