Tíminn - 16.08.1974, Side 13

Tíminn - 16.08.1974, Side 13
Föstudagur 16. ágúst 1974. TÍMINN 13 0 Þjóðlög varpið, gerðum fyrir það 4-5 skemmtiþætti og fórum siðan á þess vegum til Stokkhólms og tókum þátt i gerð Norðurlanda- dagskrár sem send var út á gamlárskvöld á öllum Norður- löndunum. Ennfremur fórum við eftir þetta tvisvar til London og gerðum hljómplötur. Þetta voru lög, sem við höfðum flutt i sjónvarpsþáttunum svo segja má, að við höfum gernýtt efnið með þessu móti. Lögin voru flutt á skemmtun- um, siðan i sjónvarpi og loks sett á plötur. — Nú, i framhaldi af þessu tekur þú þátt i nýju triói, Þrem á palli. Var það framhald af Savanna-trióinu? Þið munið hann Jörund —• Þrjú á palli varð til einvörð- ungu fyrir tilstilli Jónasar Árna- sonar. Það var i sambandi við leikritið ÞIÐ MUNIÐ HANN JÖRUND. Gert var ráð fyrir þessu söngtriói, þegar leikritið var skrifað. Það kom i minn hlut að setja saman þennan söngflokk. 1 honum voru Edda Þórarinsdótt- ir, Helgi R. Einarsson og ég. Sið- an urðu mannaskipti, þegar Halldór Kristinsson kom i stað Helga. — Ég persónulega hafði gert það upp við mig, að bezt væri að láta opinberan söng vera, eftir að Savanna-trióið var hætt, eða þá að demba mér út i þetta aftur með fullum krafti. Þarna dugar engin hálfvelgja. Þótt stökkpallurinn fyrir trióið væri þarna niður i Iðnó, þá var öllum ljóst, að timafrekar æfing- ar urðu að fara fram, ef takast ætti að þjálfa upp góðan söng- flokk. Það tekur a.m.k. eitt ár. Og það verð úr, að byrjað var að æfa. Þegar Savanna-trióið starfaði, voru auðvitað margar hugmyndir i gangi, em ekki komust allar i gagnið. Sumar þeirra fram- kvæmdu Þrjú á palli. Þarna á ég einkum við tvær hljómplötur, sem Þrjú á palli hafa gefið út. Það eru þær plötur, sem ég er hvað ánægðastur með af þvi, sem gert hefur verið að öðrum ólöst- uðum, en það eru JÓLALÖG, er gefin voru út fyrir tveim árum (tekin upp i Stokkhólmi undir stjórn Þóris Baldurssonar), og svo islenzk þjóðlög, sem gefin voru út nú i sumar og eru nýkom- in á markaðinn hér. Segja má, að þessar tvær plötur séu eins konar kóróna á þessum ferli. Þurrausinn þjóðlaga- brunnur — Er þessi þjóðlagabrunnur ekki brátt þurrausinn, eða er af nægu að taka? — Ég held að það sé búið að þurrka hann að mestu leyti. Það er ekki orðið af miklu að taka, ef átt er við lög, em henta til söngs og flutnings af þeirri gerð, sem áðurnefndir söngflokkar við- höfðu. — Að visu bætist ávallt eitt og annað við af lögum i þennan þjóð- lagaarf. Ég er nú ekki rétti mað- urinn til að greina frá starfi að þjóðlagasöfnun, en þjóðlögum hefur verið safnað á seinustu ár- um og er safnað. Rikisútvarpið á mikinn fjölda af upptökum á þjóðlögum, sem þyrfti að gefa út i handhægu formi, skrifuð, eða flutt. Ég veit t.d. til þess að ágæt kona, Helga Jóhannsdóttir ferð- aðist um og safnaði þjóðlögum fyrir rlkisútvarpið, og Hallfreður örn Eiriksson hefur unnið að svipaðri söfnun alþýðusöngs. Útvarpið geymir sin lög á segul- böndum, og þau geyma raddir fólksins, sem kom lögunum á framfæri. Hallfreður örn mun þó mest hafa safnað kvæðalögum og rimum, en eins og áður sagði, er ég hér að fjalla um mál, sem aðr- ir kunna á betri skil en ég. Litil saga fylgir hverju þjóðlagi — Þessi þjóðlagasöfnun er mjög dýrmæt. Ekki vegna þess að mig skorti lög i svipinn. Fólk er ekki að trana þessu fram, og dýr- gripir munu glatast, ef við hirð- um ekki um að safna þeim, áður en þeir eru allir, sem geyma þau i minni. Eina leiðin er að fara út á meðal fólksins og hljóðrita þau. Auðvitað er margt af þessum lögum áður þekkt, en i strjálbýli og raunar þéttbýli lika, lifir mikið af þýzkum og dönskum lögum, sem menn halda að séu islenzk þjóðlög. — Nú, að lokum. Hefur þetta starf þitt að þjóölagaflutningi haft einhver áhrif á söguskoöun þína og viðhorf til genginna kynslóða? — Þetta er flókin spurnine. sem erfitt er að svara, en þó vil ég segja, að þessi gömlu lög eiga það yfirleitt sameiginlegt að þeim fylgir litil saga. örstuttar smásögur, eða þjóðsögur. Mér finnst ég með einhverjum hætti komast i mjög náin tengsl við þessar sögur, upplifa þær jafnvel með einstæðum hætti, og ég held að öllum, sem til þekkja, verði það ljóst, að i þjóðlaginu skilar sér menningararfur, sem ekki kemst til skila með öðrum hætti og á sér lifandi rætur langt út i sögunnar rökkur. — JG. Akranes Óskum að ráða skrifstofumann til afleys- inga um 4ra mánaða skeið. Viðkomandi þarf að hafa þekkingu á bók- haldi og almennum skrifstofustörfum. Umsóknir berist undirrituðum fyrir 23. ágúst n.k. Akranesi 15. ágúst 1974 Bæjarritarinn Akranesi. Hótel- og veitingaskóli íslands INNRITUN fer fram i skólanum, Suður- landsbraut2 (Hótel Esju) 19. til 23. ágúst kl. 1^-16 daglega. Innritað verður i 1. og 2. bekk framreiðslu og matreiðslu, ásamt 3. bekk matreiðslu. — Einnig á kvöldnámskeið fyrir mat- sveina á fiski- og flutningaskipum. Skólastjóri. 11 .N; ■111 Sunnudagur 18. ágúst. 18.00 Skippi. Ástralskur myndaflokkur fyrir börn og unglinga. Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir. 18.25 Sögur af Tuktu. Kanadiskur fræðslumynda- flokkur fyrir börn. Þýðandi og þulur Jóhanna Jóhanns- dóttir. 18.40 Steinaldartáningarnir. Bandariskur teiknimynda- flokkur. Þýðandi Guðrún Jörundsdóttir. 19.00 Hlé. 20.00 Fréttir. 20.20 Veður og auglýsingar. 20.25 Bræðurnir. Brezk fram- haldsmynd. 6. þáttur. Samningsgerö.Þýðandi Jón O. Edward. Efni 5. þáttar: Veislan hjá Carter heppnast miður en hann hafði vonað. Aðeins Mary Hammond og Kingsley-mæðgurnar koma. Eftir að gengið hefur verið frá sameiningu fyrirtækj- anna láta ökumenn Hamm- ond-fyrirtækisins i ljós megna óánægju með, að menn Carters, sem ekki eru i stéttarfélagi, skuli njóta sama réttar og þeir sjálfir. Boðað er til fundar um mál- ið. Brian hittir Pamelu Graham aftur og býður henni á kvöldtónleika, en áður en hann fer, kemur Ann óvænt heim og virðist ekki hugsa sér að fara aftur. 21.20 Andstæður.Tónverk eftir Béla Bartók. Flytjendur Rut Ingólfsdóttir, Gisli Magnússon og Sigurður Snorrason. Stjórn upptöku Egill Eðvarðsson. 21.40 Sinn er siður i landi hverju. Brezkur fræðslu- myndaflokkur með saman- burði á siðum og venjum fólks i fjórum heimsálfum. 3. þáttur. Unglingarnir. Þýðandi og þulur Gylfi Pálsson. 22.25 Að kvöldi dags. Sr. Sigurður Haukur Guðjóns- son flytur hugvekju. 22.35 Dagskrárlok. Mánudagur 18. ágúst. 20.00 Fréttir. 20.25 Veður og auglýsingar. 20.30 Hið lifandi, eilifa haf. Slóvakisk kvikmynd um jarðsögulegefni. I myndinni er einkum fjallað um hafið og myndun járðlaga á sjávarbotni. Þýðandi og þulur Þorsteinn Jónsson. 20.45 Sjúkur og sæll. Danskt sjónvarpsleikrit, byggt á sögu eftir Sven Holm. Aðal- hlutverk Jörgen Ryg. Þýð- andi Jóhanna Jóhannsdótt- ir. Aðalpersónan, Arntsen, er miðaldra öryrki, sem stundar igripavinnu i þvottahúsi. Hann er óánægður með tilveruna og lendir gjarnan i erfiðleikum i daglegri umgengni við annað fólk. (Nordvision — Danska sjónvarpið). 21.55 Joe Glazer. Þáttur frá upplýsingaþjónustu Bandarikjanna. Visna- söngvarinn Joe Glazer syngur verkalýðssöngva og rekur jafnframt sögu verkalýðsbaráttunnar i landinu. Þýðandi Dóra Haf- steinsdóttir. Aður á dagskrá 17. mai 1974. 22.30 Dagskrárlok. Þriðjudagur 20. ágúst 20.00 Fréttir. 20.25 Veður og auglýsingar. 20.30 Bændurnir. Pólsk fram- haldsmynd byggð á sögu eftir Wladislaw Reymont. 5. þáttur. Þýðandi: Þrándur Thoroddsen. Efni 4. þáttar: Brúðkaup Boryna bónda og Jögnu er haldið með mikilli viðhöfn, en um það bil, sem gleðskapnum er að ljúka, finnst Kuba vinnumaður látinn af sárum sinum. 21.20 Sumar á norðurslóðum. Brezkur fræðslumynda- flokkur um dýralif i norð- lægum löndum. 3. þáttur. Griðland visundanna. Þýð- andi og þulur Óskar Ingi- marsson. 22.00 íþróttir. Meðal annars mynd frá bikarkeppninni i frjálsum iþróttum. Umsjónarmaður Ómar Ragnarsson. Dagskrárlok óákv. Miðvikudagur 21. ágúst. 20.00 Fréttir. 20.25 Veður og auglýsingar. 20.30 Nýjasta tækni og visindi. Landhúnaður með flugvél- um. Sædýrasafn I New York. Sólsjónauki. Útvarpssjónauki. Dýragarður i San Diego. Umsjónarmaður örnólfur Thorlacius. 21.00 Enginn vildi deyja. Litháisk biómynd með rúss- nesku tali gerð árið 1966. Þýðandi Reynir Bjarnason. Myndin gerist viö lok heimsstyrjaldarinnar siö- ari. Litháiskir skógarmenn, sem forðuðu sér úr þjónustu Þjóðverja,er leið að lokum striðsins, gera samyrkju- bændum lifið leitt og drepa alla þá menn i valdastöðum, sem þeir ná til. Meðal fórnarlama þeirra er nýráð- inn bústjóri, Björn að nafni. Synir Björns koma heim til útfararinnar og ákveða að setjast þar um kyrrt og leita óbótamannanna. 22.40 Dagskrárlok. Föstudagur 23. ágúst. 20.00 Fréttir. 20.25 Veður og auglýsingar. 20.30 Kapp með forsjá. Brezk- ur sakamálamyndaflokkur. Þýðandi Kristmann Eiðs- son. 21.25 Samarnir við ströndina. Finnsk fræðslumynd um Sama i nyrstu héruðum Skandinaviu og Finnlands. Þýðandi Málfriður Kristjánsdóttir. (Norsvision — Finnska sjónvarpið). 21.40 íþróttir. Meðal annars myndir frá knattspyr-nu- leikjum innanlands. Umsjónarmaður Ómar Ragnarsson. Dagskrárlok óákv. Laugardagur 24. ágúst. 20.00 Fréttir. 20.20 Veður og auglýsingar. 20.25 Læknir á lausum kili. Brezkur gamanmynda- flokkur. Upton tæmist arf- ur. Þýðandi Jón Thor Haraldsson. 20.50 Borgir. Kanadiskur fræðslumyndaflokkur, byggður á bókum eftir Lewis Mumford um borgir og borgarlif. 4. þáttur. Þýð- andi og þulur Ellert Sigur- björnsson. 21.20 Makleg málagjöld. (Death of a Scoundrel). Bandarisk biómynd frá ár- inu 1956. Leikstjóri Charles Martin. Aðalhlutverk Ge- orge Sanders. Zsa Zsa Gabor og Yvonne de Carlo. Þýðandi Briet Héðinsdóttir. Myndin lýsir ferli manns, sem flyzt búferlum frá Evrópu til New York til þess að öðlast þar fé og frama. Hann gerist brátt at- hafnasamur á verðbréfa- markaðnum, og er ekki allt- af vandur að meðulum. 23.25 Dagskrárlok. Bílstjóri OSKAST STRAX I A i&J Kópavogur— Gæzlustörf Félagsmálastofnun Kópavogskaupstaðar óskar að ráða tvær kouur til starfa á gæzluvelli i austur bænum. Umsóknarfrestur til 26. ágúst n.k. Umsóknareyðublöð liggja frammi á Félagsmálastofnuninni, Álfhólsvegi 32. Þar eru jafnframt veittar nánari upp- lýsingar. Simi 4-15-70. Félagsmálastjóri. ----------—------------------------------- Akranes Verkamenn óskast til sorphreinsunar- starfa Umsóknir berist undirrituðum, sem veitir nánari upplýsingar i sima 1211. Akranesi, 15. ágúst 1974. Bæjarritarinn Akranesi.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.