Tíminn - 05.09.1974, Page 2
2
TÍMINN
Fimmtudagur 5. september 1974.
Fimmtudagur 5. september 1974
Vatnsberinn (20. jan.—18. febr.)
Þú skalt alveg búa þig undir það, að umgangur
við annað fólk verði þér fremur til ama en
skemmtunar i dag, svo að þú skalt fremur
færast undan þvi að lenda i fjölmenni, þó með
kurteisi. Þetta gengur yfir.
Fiskarnir (19. febr.—20. marz.)
Þú skalt forðast að efna til rökræðna um
viðkvæm mál eða lenda i orðaskaki i dag, og þá
eru langmestar likur fyrir þvi, að dagurinn verði
þér skemmtilegur og árekstralitill. En þú skalt
halda þig heima við i kvöld.
Hrúturinn (21. marz—19. april)
Þetta er heppilegur dagur til breytinga, ekki
aðeins á vinnustað heldur og heimafyrir. Þú
skalt búa þig undir það, að fagrir hlutir freisti
þin, og einhverjar tilfinningar festa rætur hjá
þér i dag, þú finnur sjálfur bezt hverjar.
Nautið (20. april—20. maí)
Það, sem krefst sameiginlegs átaks gengur
mjög vel i dag, og eins það, sem snertir sam-
vinnu við annað fólk. Þú átt mjög auðvelt með að
tala um fyrir skyldfólki þinu, ef þú þarft á þvi
að halda i dag — og það getur vel verið.
Tviburarnir (21. maí—20. júni)
Það er framkoma þin, sem auðveldar þér
margt i dag, en þú skalt samt varast að skipta
þér af viðskiptamálum, þetta er ekki rétti
dagurinn til þess. Þú ættir að reyna að sækjast
eftir umgengni við skemmtilegra fólk en upp á
siðkastið.
Krabbinn (21. júni—22. júlí)
Þú munt komast að raun um þaö i dag, að vinir
þinir eru afar skilningsrikir, og hvað snertir
áform þin, munu þeir að ýmsu leyti koma þér að
liði. Þetta skaltu meta við þá og sýna þeim þakk-
læti og velvilja á móti.
Ljónið (23. júlí—23. ágúst)
Það er harla litið útlit fyrir annað en möguleik-
arnir séu á hverju strái i kringum þig i dag. Það
verður einna helzt á vinnustaðnum, sem þú berð
virkilega eitthvað úr býtum, jafnvel aðstöðu,
sem þú ert búinn að sækjast lengi eftir.
Jómfrúin (24. ágúst—22. sept.)
Þú skalt gefa þér tima til að lita i kringum þig á
heimili þinu og athuga, hvort ekki sé hægt að
gera það skemmtilegra á einhvern hátt.
Umhverfið hefur afskaplega mikil áhrif á sálar-
lifið. Þetta skaltu hafa hugfast.
Vogin (23. sept.—22. okt.)
Þér veitist innan skamms tækifæri til þess að
gera hreint fyrir þinum dyrum gagnvart
einhverjum, sem hefur komið þannig fram
gagnvart þér, að það er engu likara en
tilfinningar þinar hafi orðið fyrir verulegu áfalli.
Sporðdrekinn (23. okt.—21. nóv.)
Þetta er að mörgu leyti ágætur dagur, og þar
sem aðstæður eru heldur hagstæðar, þá skaltu
gera þitt bezta til þess að hagnýta þér þær. Þú
skalt vinna vel og af vandvirkni, þar sem vel er
fylgzt með störfum þinum i dag.
Bogmaðurinn (22. nóv.—21. des.)
Það litur út fyrir, að tilfinningarnar séu ekki i
jafnvægi i dag og jafnvel litur út fyrir, að þær
sveiflist frá innilegustu hamingju til sárustu
örvæntingar. Að öllum likindum stafar þetta af
einhverjum nákomnum þér.
Steingeitin (22. des.—19. jan.)
Þú skalt taka daginn snemma, svo að þú missir
ekki af gullvægu tækifæri, sem þér mun veitast
að likindum rétt fyrir hádegið. Þú þarft að
endurskoða einhver smáatriði til þess að koma i
veg fyrir misskilning, sem annars gæti orðið.
•3
Auglýsid |
í Tímamim 3
A sunnudaginn var opnuð sýning að Hallveigarstöðum á innrömmuðum eftirprentunum eftir á annað
hundrað heimsfræga listmálara. Þetta eru á þriðja hundrað eftirprentanir, og er verðið frá rúmum þrjú
þúsund krónum. Þetta er i fimmta skipti sem sýning er haidin á eftirprentunum en þessi sýning verður
opin dagiega milli klukkan 14-22 og stendur hún tii 8. sept.
Vetrarstarf
Pólýfónkórsins
SJ—Reykjavik— Á undanförnum
árum hefur Pólýfónkórinn eink-
um helgað sig stórverkum J.S.
Bachs og flutt Jólaoratoriuna
mörgum sinnum, frumflutt
Mattheusarpassiuna og H-moll
messuna á Islandi og Jóhannes-
arpassiuna I heild sl. vor.
Næsta stórverkefni Pólýfón-
kórsins verður oratorian Messias
eftir G.F. Handel, eitt hið feg-
ursta tónverk sinnar tegundar og
tvimælalaust hið vinsælasta.
Veröa tónleikarnir I páskavik-
unni. 100-150 kórfélagar flytja
verkið.
Messias hefur þrisvar áður ver-
ið tekinn til flutnings hér á landi,
siðast árið 1973, undir stjórn Dr.
Róberts A. Ottóssonar. Ekkert
stórverk fyrir kór og hljómsveit
er jafnoft flutt erlendis, einkum i
Bretlandi, þar sem sérstök hefð
rikir um flutning verksins, enda
er talið að oratorian Messias hafi
haft meiri áhrif á tónlistarsmekk
og framþróun tónlistarlifs hjá
Bretum en nokkur tónlist önnur.
Æfingar Pólýfónkórsins á
Messiasi munu hefjast i næsta
mánuði og verður verkið flutt i
sinum upprunalega búningi á
ensku, og a.m.k. sumir einsöngv-
aranna verða úr hópi kunnustu
einsöngvara i Bretlandi. Það
hefur verið regla kórsins að flytja
tónverk á frummálinu. Uppi-
staðan i hljómsveitinni verður hin
nýstofnaða Kammersveit
Reykjavikur, en hún er að mestu
skipuð sömu hljóðfæraleikurum
og hafa tekið þátt i flutningi Pólý-
40 SÓTTU UM
A TVEIM DOGUM
fónkórsins á verkum J.S. Bachs.
Raddþjálfarar Pólýfónkórsins
auk söngstjórans, Ingólfs Guð-
brandssonar, eru Elisabet
Erlingsdóttir, Ruth L. Magnússon
og Friðbjörn G. Jónsson.
Ef til vill verður einnig unnið að
sérstakri jólasöngdagskrá.
Pólýfónkórinn hefur farið
margar söngferðir til útlanda við
góðan orðstir og m.a. sungið inn á
stóra hljómplötu RCA fyrir
alþjóðamarkað, sem kom út sl.
haust. Hefur hún hlotið lofsam-
lega dóma hér og i Sviþjóð. Siðast
kom kórinn fram á þjóðhátið i
Reykjavík og flutti islenzk
þjóðlög, sem i ráði er að hljóðrita
til útgáfu á næstunni.
Auk kórstarfseminnar rekur
Pólýfónkórinn fjölmennan söng-
skóla, þar sem fólki gefst kostur á
að læra undirstöðuatriði tónlistar,
nótnalestur, rétta öndun og
beitingu raddarinnar. Hefur sú
starfsemi bætt úr brýnni þörf og
notið mikilla vinsælda, enda
árangur ágætur, þvi að margir
nemendur kórskólans eru nú
.starfandi félagar i Pólýfónkórn-
um og öðrum kórum borgarinnar.
Kórskólinn tekur til starfa i lok
september, og er innritun þegar
hafin I sima 26611.
Um fjörutiu manns sóttu um
upptöku i kórinn tvo fyrstu dag-
ana eftir að auglýst var eftir söng
fólki fyrr i vikunni.
Hjúkrunarkonur
Sjúkrahúsið i Húsavik óskar að ráða
hjúkrunarkonur nú þegar eða eftir sam-
komulagi.
Góð launakjör.
Upplýsingar gefur framkvæmdastjóri i
sima 96-4-13-33.
£júltrabijsfö í Husdvík s.f.
SqLuh
SÖLUM HJÓLBARÐA A FÓLKSBlLA,
JEPPA- OG VORUBILA MEÐ
DJÚPUM SLITMIKLUM MUNSTRUM.
Ábyrgð tekin d sólningunni.
Kaupum notaða sólningarhæfa nylon-hjólbarða.
önnumst allar .viðgerðir hjólbarða með
fullkomnum tækjum.
GÓÐ ÞJÓNUSTA. — VANIR MENN.
BARÐINN HF.
ARMULA7V3050I&84844