Tíminn - 05.09.1974, Side 3
Fimmtudagur 5. september 1974.
TtMINN
3
íslenzk frímerki á uppboði í Stokkhólmi:
650 þús. - býður
nokkur betur?
HHJ-Rvik,— Allmörk Islenzk fri-
merki verða boðin til sölu á fri-
merkjauppboði, sem haldið
verður i Stokkhólmi I september-
lok. i uppboðsskránni er greint
frá byrjunarboðum og ef marka
má þau, er betra fyrir frimerkja-
safnara að vera vel fjáðír. Hæsta
byrjunarboðið er hvorki meira né
minna en sem svarar um 650 þús.
isl. krónum eða 25 þús. sænskar
krónur. Þar er um að ræða safn
fágætra frimerkja, sem hlaut
bronsverðlaun á frfmerkja-
sýningunni Islandia 73.
Byrjunarboð á fimm merkjum
stimpluðum I Reykjavik 3.11.1897
er sem svarar um 340 þús. Isl.
krónum. Þá verður og boðið upp
eitt merki sams konar og hin
fimm, en með tveimur yfir-
stimplunúm Ekki hefur verið
kunnugt um tilvist slíks merkis
fyrr, enda er byrjunarboðið um
315 þús. Isl. kr.
Þannig mætti lengi telja og
væri kannski ekki úr vegi að
menn skyggndust I handraðann
hjá sér. Vera má að þeir lumi á
gömlum frimerkjum og séu þar
með rikari en þeir hugðu.
Byrjunarboð I þessi fimm merki er sem svarar um 340 þús. fsl. kr.
Hluti frfmerkjasafnsins, sem boðið er til sölu á sem svarar um 650 þús.
isfenzkum krónum.
Réttir víða færðar
fram um eina viku
— vegna sumaraukans í fyrra hefðu þær
orðið fyrr en seint í mdnuðinum
JH—Reykjavik — Frá fornu fari
hafa skilaréttir I landinu verið
bundnar við ákveðna vikudaga i
tiltekinni viku sumars, og er enn
svo til alls staðar. Á s’töku stað
hefur þeim þó verið ákveðinn
fastur mánaðardagur, en sumir
sem að þvi ráði hurfu fyrir nokkr-
um árum, hafa breytt tii aftur,
þannig að gamla venjan um
ákveðinn vikudag var tekin upp
að nýju. Að þessu sinni verður
réttardagurin aftur á móti viða
færður fram um viku.
Svo stendur á, að i fyrra var
sumarauki, og hefðu réttir þvi
orðið seint, ef fylgt heföi verið
venjulegri reglu um sumarvik-
Metverð
fyrir
aflann
GISLI KONRAÐSSON, fram-
kvæmdastjóri Útgerðarfélags
Akureyringa, sagði Igær, að hann
vissi ekki til að nokkurt skip hefði
landað þorski fyrir svo mikið
verðmæti, eins og Svalbakur
gerði 1.-2. september sl.
Gisli sagði, að Svalbakur hefði
verið að veiðum i um tiu daga og
fengið 280 tonn af mjög góðum
þorski. Ef miðað er við það fisk-
verð sem gilti til s.l. mánaða-
móta, nemur verð aflans
8.346.000.- krónum. Aflinn var
veiddur I flottroll.
Skipstjóri á Svalbak er Halldór
Hallgrimsson, Akureyri, en er
blaðið ætlaði að hafa samband viö
hann, var skipið farið aftur á
veiðar. — GB—
una, sums staðar jafnvel ekki
fyrr en undir lok september-
mánaðar. Þá er hætta á,að veður
verði farið að spillast, og
unglingar, sem sækja skóla að
vetrinum, farnir að heiman og
viða orðið mannfátt þess vegna.
Þetta veldur þvi, að réttir eru
færðar fram. Með þvi lengist
sláturtið, en hörgull er viða á fólki
til vinnu i sláturhúsum, en bænd-
um er bagalaust að far* að
snemma I göngur að þessu sinni,
þar eð slætti lauk yfirleitt miklu
fyrr en oft áður.
Guðmundur Jósafatsson hjá
Búnaðarfélagi íslands tjáöi okk-
ur, að hann hefði haft spurnir af
þvi, að i Borgarfrrði, bæði sunnan
Hvitár og ofan, yrðu réttir færðar
fram um viku, og slikt hið sama
viða i Húnavatnssýslu og sums
staðar I Árnessýslu. Meðal þeirra
rétta, sem færðar verða fram um
Vetrarstarfsemi Bridgefélags
Reykjavikur er senn að hefjast,
og verður spilað á miðvikudags-
kvöldum i Domus Medica. Verður
starfsemin með svipuðu sniði og
undanfarin ár. Byrjað veröur á
tveimur eins kvölds tvimennings-
keppnum og hefst sú fyrri 11.
september, en 25. september
hefst svo meistarakeppni félags-
ins i tvimenning og veitir sú
keppni réttindi i Reykjavikurmót.
Bridgefélag, Reykjavikur er
elzta og tvimælalaust sterkasta
bridgefélag landsins. Ungum
spilurum hefur fjölgað verulega i
félaginu á siðustu árum og veita
margir þeirra orðið gömlu
„kempunum” harða keppni, enda
að öðrum kosti ekki
eina viku, eru sumar kunnustu og
fjölsóttustu réttir landsins, svo
sem Starfsnrétt i Svartárdal og
Þverárrétt i Mýrasýslu. Hruna-
mannaréttir, Skafthóltsréttir og
Skeiðaréttir mun áður hafa venö
búið að færa fram um viku, og
Tungnaréttir verða færðar fram
að þessu sinni.
— Aftur á móti verða
Landmannaréttir ' i þeirri
sumarviku, er venja hefur verið,
sagði Guðmundur, og þess vegna
ekki fyrr en 27. september.
Fyrstu leitarmennirnir eru
þegar i þann veginn að leggja af
stað á afrétt, þar sem lengstar
eru leitir, ogmá þar nefna til
dæmis, að svokallaðir undareið-
armenn úr Vatnsdal halda að
heiman um helgina, enda verður
Undirfellsrétt — ein þeirra, sem
flýtt var — dagana 13. og 14.
september.
harðna upprennandi kempur
naumast ööruvisi en með harðri
andstöðu.
Bridgefélag Reykjavikur veitir
sem fyrr nemendum framhalds-
skóla 50% afslátt á keppnis-
gjöldum. 1 ráði er að taka upp
bridgekennslu fyrir byrjendur á
vegum félagsins siðar i vetur
Nýir félagar eru velkomnir i
félagið
Stjórn Bridgefélags
Reykjavikur skipa þessir:
Karl Sigurhjartarson, formaður
Gylfi Baldursson, varaformaður
Stefán Guðjohnsen gjaldkeri
Guðlaugur R. Jóhannsson, ritari
Jakob Armannsson, fjármála-
ritari.
Vetrarstarf Bridge-
félagsins að hefjast
AAikil framfarasókn
í 3. hefti Samvinnunnar á þessu ári er grein eftir Andrés
Kristjánsson fræðslustjóra, fyrrum ritstjóra Tfmans, þar sem ræðir
um samvinnustarfið, sem segja má að sé nú orðiö aldargamalt I
landinu. Hann vfkur m.a. að þvi, að skipta megi sögu þess I viss
timabil. Fyrsta tímabilið tilheyrir frumherjunum, næsta tfmabif
Hailgrimi Kristinssyni, þriðja timabilið Sigurði Kristinssyni, og
fjóröa timabilið Vilhjálmi Þór. Siðan
Vilhjálmur Þór lét af forustu S.Í.S. eru nú liöin
um tuttugu ár, og er sá timi ekki sizt merkileg-
ur, en oft veita menn ekki eins mikla athygli
þvi, sem næst þeim er. Andrési Kristjánssyni
farast svo orð um þetta siðasta timabil sam-
vinnustarfsins:
„Erlendur Einarsson tók við aðalforustu
samvinnuhreyfingarinnar af Vilhjálmi Þór
1954 og hefur þvi verið þar I fylkingarbrjósti I
tvo áratugi. Sá timi hefur verið mikil fram-
farasókn, einkum til bættrar þjónustu við við-
skiptafólk og nýtiskulegri verslunarhátta, og má hiklaust telja þaö
megineinkenni þessa 4. timabils i samvinnustarfinu. Iðnaöur sam-
vinnumanna hefur stóreflst og starf kaupfélaganna færst I aukana
og orðið mikilvæg útflutningsgrein. Samvinnuskipunum hefur
fjölgað og tryggingastarfið orðið meðal gildustu greina savinnu-
starfsins. Viðskiptavelta SIS og kaupfélaganna hefur farið vaxandi
með ári hverju og viðskiptahættir orðið æ nýtiskulegri.
Samvinnumenn gerðust brautryðjendur kjörbúðanna um ailt
land. Sambandið hefur reist fullkomna kjötiðnaðarstöð og komiö
upp fuilkominni aðstöðu til fóðurmiðlunar með kornhlöðu og
flutningi á lausu korni i skipum til landsins. Kaupfélögin hafa
endurbyggt sláturhúsakerfi sitt og átt meginþátt I endurbótum á
frystihúsakerfi landsins, þar sem helsta útflutningsvaran er búin að
heiman á sölumarkað. Þá hafa kaupfélögin tekið upp umfangsmikla
landflutninga með bifreiðum, en flutningar á landi biða þó enn
skipulags samvinnumanna’að mestu leyti, en þar blasir við veiga-
mikið samvinnuverkefni.
Hér er ekki ráðrúm til að rekja að gagni hina stórstigu þróun
samvinnumála á siðustu áratugum. Hún ber öil merki um grósku-
mikið starf, sem er I fullu samræmi við kröfur timans og þarfir
þjóðarinnar og lagar sig að staðháttum.”
Sam vinnuöldin
Grein sinni lýkur Andrés Kristjánsson á þessa leið:
„Samvinnuöldin, sem liðin er, hefur orðið gildur þáttur i lifi þjóð-
arinnar á þeim tíma, sem hún festi sjálfstæði sitt og myndaði nýtt
þjóðfélag. i öllum meginþáttum framfaranna á þessu timabili hafa
samvinnumenn verið aö verki og úrræði þeirra verið bæði timabær
og hæft vel staðháttum og viðfangsefnum. Svo mun enn verða á
tólftu öld tslandsbyggðar. Hún verður enn meiri samvinnuöld en
sú, sem eraö kveðja, nema mannkindinni förlist meira en góðu hófi
gegnir i viðleitni sinni til samhjálpar og samábyrgðar. Samvinnu-
stefnan eldist ekki, og hún hæfir nýjum timum og nýjum verk-
efnum, af þvi að hún er ekki form hcldur hugsjón.”
Þ.Þ.
Miklar annir
í innanlandsflugi
— enn ófært til Raufarhafnar, Þórshafnar
og Neskaupstaðar í gærkvöldi
SJ—Reykjavik — Miklar annir
voru i innanlandsfluti i gær, en
ekki var flogiö til Austur- og
Norðausturlands á mánudag og
þriðjudag vegna þoku og flug-
samgöngur við Egilsstaöi og Nes-
kaupstaö höfðu legið niðri frá þvi
siödegis á sunnudag.
Haustannir hafa auk þess verið
i innanlandsflugi undanfarna
daga og farþegafjöldi mikill. —
Það urðu nokkrar tafir af keðju-
verkunum vegna þessarar stöðv-
unar á fluginu, sagði Pétur
Maack afgreiðslustjóri FI á
Reykjavikurflugvelli siðdgis i
gær. En að öðru leyti hefur allt
gengið eðlilega. — Þó hefur ekki
enn verið flogið til Raufarhafnar
og Þórshafnar. Vegna flugskil-
yrða, og ekki heldur til Neskaup-
staðar.
Umhverfisvernd
á Norðurlöndum
— fyrirlestur í Arnagarði
Viggo Nielscn skrifstofustjóri
frá Kaupmannahöfn flytur fyrir-
lestur á vegum Þjóðminjasafns
islands (Asu G. Wright fyrir-
lestur) I Arnagarði á morgun,
föstudag 6. sept. kl. 8.30. Fyrir-
lesturinn nefnist „Yfirlit yfir
umhverfisverndarreglur á
Norðurlöndum, einkum friðunar-
ráðstafanir”.
Viggo Nielsen hefur stjórnað
friðunardeild danska menningar-
málaráðuneytisins frá 1961, en sú
deild er siðan 1973 hluti af hinu
nýja umhverfismálaráðuneyti,
ásamt með skipulagsmálum,
náttúruvernd, húsafriðun, minja-
vernd, o.fl. Viggo Nielsen er lög-
fræöingur að mennt en er auk
þess magister I fornleifafræði.
Auk embættisstarfa hefur hann
lengi unnið að rannsókn járn-
aldarakra i austurhlutum
Danmerkur.
öllum er velkomið að hlýða á
fyrirlesturinn.
Viggo Nielsen lögfræðingur og
fornleifafræöingur flytur fyrir-
lestur um umhverfisverndar-
reglur á Norðurlöndum.