Tíminn - 05.09.1974, Síða 7

Tíminn - 05.09.1974, Síða 7
Fimmtudagur 5. september 1974. TÍMINN 7 r v Útgefandi Framsóknarflokkurinn Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (ábm). Jón Helgason. Auglýsinga- stjóri: Steingrimur Gisiason. Ritstjórnarskrifstofur I Edduhúsinu viö Lindargötu, simar 18300—18306. Skrifstof- ur I Aðalstræti 7, simi 26500 — afgreiöslusimi 12323 — aug- lýsingasimi 19523. Verö i lausasöiu kr. 35.00. Askriftargjald kr. 600.00 á mánuöi. Blaöaprent h.f. J Launajöfnunar bætur í samræmi við stjórnarsamninginn hefur for- sætisráðherra nú snúið sér til aðila vinnu- markaðarins og óskað eftir samráði við þá um skipan kjaramála. f fyrsta lagi er óskað eftir viðræðum um skipan þeirra til nokkurrar fram- búðar, og i öðru lagi um launajöfnunarbætur eða tryggingabætur, sem tækju sem fyrst gildi, til handa þvi fólki, sem skarðastan hlut ber frá borði. Eins og komið hefur fram, er stefnt að þvi að ná samkomulagi við stéttasamtökin um launa- jöfnunarbæturnar fyrir lok þessa mánaðar. Ætlunin er, að umræddar launajöfnunarbætur komi fyrst um sinn i stað dýrtiðarbóta samkvæmt visitölu. Ætlunin er að þeir, sem meira bera úr být- um, verði að sætta sig við visitöluskerðing- una óbætta, enda myndu efnahagsráðstafanir haldlausar, ef visitölukerfið héldist óbreytt áfram. Það er kunnara en frá þurfi að segja, að kaupsamningarnir, sem gerðir voru á siðastliðn- um vetri, höfðu i för með sér stóraukið óréttlæti i launamálum. Þeir fengu mesta hækkun, sem bezt voru settir. í efnahagsfrumvarpi vinstri stjórnar- innar, sem lagt var fyrir Alþingi á siðastliðnu vori, var lagt til að þetta yrði leiðrétt á þann hátt, að skertur yrði hlutur þeirra, sem mest hefðu fengið. Þetta fékk ekki nægan hljómgrunn og þótti illframkvæmanlegt. I tillögum þeim, sem Ólafur Jóhannesson lagði fram, þegar hann hóf stjórnar- myndunarviðræður við vinstri flokkana i sumar, lagði hann til, að sú leið yrði farin til launa- jöfnunar, að þeir, sem hefðu lægst kaup og lakastar aðstæður, fengju sérstakar bætur vegna væntanlegra efnahagsaðgerða, en aðrir ekki. Um þetta yrðu höfð nánari samráð við launþega- hreyfinguna. Á þetta féllust vinstri flokkarnir svonefndu. Sjálfstæðisflokkurinn féllst einnig á þetta, eftir að viðræður hófust við hann. Það liggur i augum uppi, að hér er um augljóst réttlætismál að ræða. Það er réttlátt að jafna aftur launin eftir þann ójöfnuð, sem átti sér stað við gerð kjarasamninganna á siðastliðnum vetri. Það er réttlátt að tryggja sérstaklega hlut þeirra, sem lakast eru settir, þegar gera þarf meiriháttar efnahagsaðgerðir. Þess ætti að mega vænta,að tillögunni um launa- jöfnuð verði vel tekið af verkalýðssamtökum. Þau settu sér það mark, þegar viðræður hófust um kjaramálin i fyrra, að stefnt yrði sérstaklega að þvi að bæta kjör hinna láglaunuðu. Það var þvi ekki að vilja heildarsamtakanna, að útkoman varð önnur. Nú fá verkalýðssamtökin sérstakt tækifæri til að auka jöfnuðinn að nýju. Við þær erfiðu að- stæður sem nú eru,er vitanlega ekki hægt að koma á fullum jöfnuði, enda þarf lengri tima til að vega og meta þau hlutföll, sem hér eiga að vera og telja verður eðlileg. Eðlilegum launajöfnuði verði ekki komið á öðruvisi en i áföngum. Hér er tækifæri til að ná fyrsta áfanganum. Ýmsir telja það ekki góðs vita og kenna pólitik um, að Alþýðusambandið hefur mælt með uppsögn kaupsamninganna vegna gengisfellingarinnar. Það þarf þó ekki að vera, heldur séu samtökin hér að styrkja samningsstöðu sina. Engum ætti að vera það ljósara en leiðtogum verkalýðs- hreyfingarinnar, að almennar kauphækkanir nú væru engum til hags, nema verðbólgubröskurum, og sizt af öllu venjulegu launafólki. Þ.Þ. Marcel Berlins, The Times: Lítill árangur ráð- stefnunnar í Caracas Aðalglíman verður í Genf á næsta ári Hans G. Andersen flytur ræöu á Caracasráöstefnunni. i forseta- stóli er Amerasinghe, forseti ráöstefnunnar. „EF 150 hænur eru settar i sömu stiuna, þarf engan að undra þó að þær gaggi allar I einu”. Ef til vill hefur verið vænzt of mikils af þriðju hafréttar- ráðstefnu Sameinuðu þjóð- anna, eins og ofanskráð at- hugasemd eins af sendimönn- unum frá Afriku gefur til kynna. Umræður um málin áður en ráðstefnan settist á rökstóla lýstu mjög mikilli bjartsýni, og þessar umræður voru si- endurteknar á fyrri hluta ráð- stefnunnar, sem stóð i tiu vikur. Þetta olli þvi, að margir af fulltrúunum, sem voru ná- lega þrjú þúsund, tóku að gera sér vonir um, að samkomulag um meginmálin væri ekki að- eins hugsanlegt, heldur i seilingarfirrð. ÞÓTT digurbarkalega væri lengst af talað, bæði i al- mennum og opinberum frétt- um af ráðstefnunni, tókst ekki að nálgast hin upphaflegu markmið til neinna muna, og heildarárangurinn olli von- brigðum'. Nú eru helztu vonir bundnar við næsta áfanga ráðstefn- unnar, sem hefst i Genf i marz á næsta ári. Margir fulltrúar hafa þó látið i veðri vaka, að óhófleg bjartsýni sé að vænta verulegs árangurs af þeim viðræðum. Er þvi ekki talið útilokað, að til þriðju lotu komi siðla á næsta ári. Fram hefur komið veru- legur ágreiningur um viðhorf til hafréttar i framtiðinni og stefnumótunar i löggæzlu á hafinu og nýtingu auðlinda þess. Mesti og alvarlegasti ágreiningurinn er þó milli tækniþróuðu iðnaðarrikjanna annars vegar og vanþróaðra rikja þriðja heimsins hins vegar. ÉG ræddi við tugi fulltrúa frá rikjum þriðja heimsins. Þeim ber flestum saman um, að fulltrúar iðnþróuðu rikjanna yfirleitt, og stórveld- anna sér i lagi, virðist litið far gera sér um að reyna að skilja viðhorf vanþróuðu þjóðanna eða að taka tillit til þarfa þeirra. „Gildandi reglur um hafrétt eru verk þróuðu þjóðanna. Við tókum ekki þátt i mótun þeirra og viðurkennum þær hvergi nærri aliar. Þessi ráðstefna er þvi fyrsta meiriháttar tæki- færið, sem við fáum til að gagnrýna þessar reglur og lýsa viðhorfum okkar til þeirra”. Þannig komst aldinn og reyndur stjórnmálamaður frá Afriku að orði. „Við erum hingað komnir til þess að ná samkomulagi um alveg nýjar reglur um haf- rétt”, hélt hann áfram. „Sumir fulltrúar þróuðu þjóð- anna láta þó svo sem aðeins sé ætlunin að lagfæra gömlu reglurnar. Þeir heyra það, sem við höfum um málin að segja, en þeir virðast ekki leggja við hlustir i raun og veru”. ÉG hef einnig rætt við full- trúa siglinga- og fiskveiði- þjóða. Þeir benda á, að full- trúum vanþróuðu þjóðanna hafi oft virzt meira i mun að taka „rétta” stjórnmálaaf- stöðu en að leggja fram raun- hæfar tillögur. Sumir þessara fulltrúa sögðu berum orðum: „Þetta er miklu fremur stjórnmálaráðstefna en ráð- stefna um hafrétt”. Hlútlaus áheyrandi kæmist sennilega einna helzt að þeirri niðurstöðu, að fulltrúar bæði þróuðu rikjanna og hinna van- þróuðu hefðu aðeins verið að itreka áður framkomnar skoð- anir með mismunandi hætti. Þeir hefðu notað ráðstefnuna i Caracas sem eins konar æfingu til undirbúnings hinni raunverulegu samningabar- áttu á ráðstefnunni i Genf að ári. Ráðstefnan i Caracas stóð i tiu vikur, eins og áður er sagt, og afstaða til þeirra mála, sem verulegum ágreiningi valda, hefur ekki tekið teljandi breytingum á þeim tima. t FYRSTA LAGI er ágrein- ingurum, hvaða vald og laga- rétt strandriki eigi að hafa innan efnahagslögsögunnar (sem flestir fallast á að skuli ná allt að 200 milum). Full- trúar þriðja heimsins krefjast fullra yfirráða á þessu svæði. Fulltrúar þróuðu þjóðanna telja yfirleitt, að ef fallizt yrði á þessar kröfur, jafngilti það 200 milna landhelgi. t ÖÐRU LAGI er ágreining- ur um, hvaða vald strandriki eigi að hafa á skipum, sem séu á ferð á alþjóða siglingaleið- um um sund innan 12 milna landhelgi, ef hún yrði almennt viöurkennd. Siglingaþjóðir og flotaveldi krefjast fyllsta siglingafrelsis öllum skipum tii handa. Fulltrúar flestra rikja, sem land eiga að slikum sundum, krefjast nokkurs valds á siglingum, einkum þá þegar herskip eiga i hlut. 1 ÞRIÐJA LAGI er ágrein- ingur um fyrirhuguð alþjóðleg yfirráð yfir úthafsbotninum. Eiga þessi yfirráð einkum að koma fram i veitingu leyfa til námunýtingar á hafsbotni, eins og fulltrúar iðnþróuðu rikjanna vilja? Eða á þetta að verða voldug stofnun, sjálfráð um, hverjum ieyft sé að nýta námur og hvar, og jafnvel fær um að taka sjálf að sér slika nýtingu? Fulltrúar vanþróuðu rikjanna virðast helzt hallast að þvi. 1 FJÓRÐA LAGI er svo ágreiningur um umhverfis- vernd á hafinu og i þvi, þar á meðal mengunarvarnir. A þetta einkum, eða nálega ein- vörðungu, að lúta ákveðnum, alþjóðlegum reglum, eins og siglingaþjóðirnar vilja, eða á að láta hin einstöku riki að einhverju leyti um reglurnar og eftirlitið með þeim? BRETAR voru tiltölulega hlutlausir á ráðstefnunni. Þeir óttast einkum, að vonbrigðin með hinn litla árangur ráð- stefnunnar kunni að valda þvi, að aðrar þjóðir gripi til ein- hliða ráðstafana, sem skaði hagsmuni Breta. Einkanlega er hætt við, að Norðmenn lýsi yfir einhliða útfærslu fisk- veiðilögsögu sinnar meöfram strönd Norður-Noregs, en það hlyti að valda verulegri rýrn- un á þorskafla brezkra fiski- manna. Fulltrúar Breta og margra annarra þjóða eru einnig ugg- andi út af áformum i banda- riska þinginu um að lýsa ein- hliða yfir ákveðinni auðlinda- lögsögu. Ef þetta yrði gert og lánaðist að fylgja yfirlýsing- unni fram, gæti það orðið öðrum þjóðum hvatning til aö fara eins að. Ef það yrði ofan á, væri næsta áfanga ráðstefn- unnar i raun settur stóllinn fyrir dyrnar.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.